Alþýðublaðið - 21.03.1954, Síða 3
Sunnudagur 21. marz 1954
ALÞYÐUBLAÐiÐ
varp Reykjavík.
11 Morguntónleikar (plötur).
13.15 Erindaílokkurinn ,.Þætt-
ir i'u’ ævisögu jarðar1'
fimmta erindi (Hjörtur Hall
dórsson menntaskólakennari
15.30 Miðdegistónloikar.
17 Messa í Dcmkirkjunni.
18.30 Barnatími (Hildur Kal-
man).
19.30 Tónleikar: Claudio Arrau
leikur á píanó (plötut).
20.20 Erindi: Fjariæg lönd og
framandi þjó’ðir; II: Mexikó-
borg fyrr og nú (Rannveig
Tómasdóttirþ
20.45Tónleikar (plötur): Svíta
21 Umræðufundur í útvarps-
sal: Guðlaugur Þorláksson
skrifstofustjóri, séra Gunnar
Árnason, séra Óskar J. Þor-
láksson og T-heódór B. Lín-
dal hæstaréttarlögmaður tala
um kirkjuna og þjóðfélagið.
-— Vilhjálmur Þ. Gíslason
útvarpsstj'. stýrir fundinum.
22.05 Danslög (plötur).
8ANNIS Á EOENINE
Vettvangur dagsins
Aftur hefur brennivínsfrumvarpinu verið breytt.
— Ekki áfengt öl. — Hver verða úrslitin —
Hvatningarorð til útvarpsins.
KROSSGATA.
Nr. 621.
Lárétt: 1 tala^ 6 sannfæring,
7 nöldur, 9 forn greinir, 10
kvendýr, 12 limur, 14 íþrótta-
félag, 15 flýtir, 17 uppsprettan.
Lóörétt: 1 samtal, 2 spírað
foygg, 3 tve ireins, 4 púki, 5 líð
andi stund, 8 tilvera, 11 barn,
13 gælunafn, 16 greinir.
Lausn á krossgátu nr. 620.
Lárétt: 1 opinber, 6 úri, 7
ræll, 9 nn, 10 tak, 12 U.K., 14
kali, 13 slæ, 17 nótína.
Lóðrétt: 1 ofrausn, 2 illt, 3
foú, 4 ern, 5 rindi), 8 la!k, 11
kaun. 13 kló, 16 æt.
AFENGISLAG 4FRUM-
VARPíÐ er komið úr nefnd í
neðri deild. A því hafa verið
gerðar allmiklar breytingar frá
því sem það var, þegar það
kom frá efri deild, — en hin
merkasta þejrra er, að nú skal
ekki leyft að selja áfengt öl.
Hins vegar virðist gert ráð fyr-
ir því, að það verði framleitt í J
landinu — til útflutnings.—j
Enn iskulu strangar reglur
gilda um sölu áfengis og verð-
ur meðal annars bannað aö
senda áfengi í pósíi. Mun þáð
gert til þess að koma í veg fyr-,
ir að menn geti pantað áfengi
til staða þar sem héraðsbann er
í gildi.
U.NDANFARIÐ hefur mjög j
verið deilt um bessi mál og 1
munu áfengismálin hafa verið j
rædd af kappi á flestum heim- j
ilum, Langflestir, sem ég hef
héyrt tala um þessi mál, hafa
verið aigerlega á móti framr-
leiðslu og sölu áfengs öls. Hafa
menn óttast að framleiðsla og
sala þess yrði einmitt til þess
að auka mjög drykkjuskap —
og jafnvel verða til þess að
verkalýðurinn í landinu færi
að drekka almennt, en honum
til heiðurs skal það sagt, að
hann er ekki ofurseldur áfeng-
inu hér, eins og stéttarbræðúr
verkamanna eru víða um lön
hans eru víða um lönd.
í ÞESSUM UMRÆÐUM
hefur verið á það bent, að
hvergi séu reglur eins strangar
um sölu áfengis og hér, enda
hvergi eins Iítið drukkið. Á-
stæðan er fyrst og fremst sú,
j að hér er ekki framleitt og selt
áfengt öl. Þegar re:knuð er út
drykkja þjóöanna er miö'að við
alkdhólinniihald drykkjarins —
og þá er ölið talið með. Þetta
ætti að nægja til þess að koma
í veg fyrir framleiðslu og sölu
áíengs þls, því að ótrúlegt er j
áð riokkur maður vilji stuðla!
að því að drykkjuskapur auk- j
ist. ' I
. j
MÉR ÞYKIR úívarpið ekki
vera nógu lifandi. Hvers vegna :
efnir það ekki til margvíslegra
samkeppna meðal hlustenda? |
Þetta gera útvarpsstöðvar um'
öll lönd, en liér hefur aðeins j
vérið efnt til samkeppni um j
leikrit og leikþætti. •— Ég vil j
að Ríkisútvarpið efni til sam-
keppni um dans- og dajgurlög, :
um smásögur, leikþætti, leikrit
og gamansöngva.
i
RÍKISÚTV ARPIÐ ætti í
raun og veru að hafa svona1
samkeppni í gangi alltaf, eitt j
eða tvennt í einu. Með því1
myndi það vekja nýjan áhugaj
hvetja hlustendur til þess að
spreyta sig á viðíangsefnunum j
og útvegá sjálfu sér efni til
flutnings, sem. myndi vekja eft
irvæntingu og atihygli.
EF TIL VILL þykir forráða-
mönnum útvarpsins, að hér
væri í of mikið ráðizt af fjár-
hagslegum ástæðurri. Verðlaun
in þurfa ekki endilega að vera
há. Mörgum mun nægja að fá
viðurkenninguna. Þó verða
þau að vera nokkur — og vor-
kenni ég útvarpinu alls ekki að
greiða þau. Þó að rekstur þess
sé dýr, þá hefur það geysilegar-
tekjur, og ekki munar svo .mik
ið um tíu þúsund krónur eða
svo til öflunar innlends nýs
efnis meðal hlustenda.
Móðir mín,
SOFFÍA SKÚLADÓTTIR,
verður jarðsungin að Stóru-Borgarkirkju þriðjudaginn 23. þ. m.
klukkan 2 eftir hádegi.
Bílar fara frá Ferðaskrifstofunni i Reykjavík.
F. h. vandamarma.
Halldór Gunnlaugsson.
í DAG er sunnmlagurinn 21,
marz 19.54.
Helgidagslæknir er Hulda
Sveinsson, Nýlendugötu 22,
sími 5336.
Næturlæknir er í siysavarð-
stofunni, sími 5030.
Nælurvörður er í Reykjavík
ur apóteki, sími 1760.
F L.U GFERÐIX
Á morgun er ráðgert að ^
fljúga til Akureyrar, ísafjarð-;
ar, Patreksfjarðar og Vest-
-mannaeyja. Á þriðjudag verð-
lir- f].ogið, ef veður leyfir, til
Akureyrar, Bíldudals, Blöndu-
óss, Egilstaða, Flaíeyrar. Sauð-
árkróks, Vestmannaeyja og
Þingeýrar.
Millilandaflug. Flugfélag' ís-
lands. Til Prestvíkur og Kaup-
mannáháfnar á þrið.iudag kl. 8.
Flugvél frá Pa:i American
er vær'anleg frá New-York að
faranó t þriðjudags og fer héð-
an ti’ Lond'on. Frá London
kemur ílugvél aðfaranótt mið-
'vikud: -rs og heldur áfram til
New-York.
Millilandaflugvél Loftleiða
er væntanleg kl. 4—5 í dag frá
Hamíborg, Kaupmannahöfn og
Stavanger. Gert er ráð fyrir að
yélin haldi áfram til Bandaríkj
anna eftir 2j.a stunda viðdVöl
hér.
SKIPAFRÚTTIR
Einiskip.
Brúarfoss fór frá Reykjavík
í gær til Hafnarf jarðar og Kefla
víkur. Dettifoss fer frá Rví;k á.
niorgun til Keflavíkur. Fjall-
foss kom tD Vestmannaeyja
19/3, fer þaðan til Belfast og
Hamborgar. Goðafoss fór frá
Reýkjavík 18/3 til. Vestfjarða.
Gullfoss kom til Kaupmanna-
hafnar í gænnorgun, fer þaðan
á morgun til Leitih og Reykja-
víkur. Lagarfoss er í Ventspils,
fer þaðan til Reykjavíkur.
Reykjafoss fór frá Hamborg í
gær til Antwerpen, Rotterdam,
Hull og Reykjavíkur. Selfoss
fór frá Reykjavík 17/3 til Gra-
verna, Lysekil og Gautaborgar.
Tröllafoss kom til New York
12/3, fer .þaðan til Reykjavík-
ur. Tungufoss fór frá Santos
16/3 til Recife og Reykjavíkur.
Hanne S'kou fór frá Gautaborg
19/3 til Reykjavíkur. Katla fór
frá Hamborg 19/3 til Rvíkur.
Ríkisskip:
Hekla var væntanleg til Ak-
ureyrar í gæi’kvöld á austur-
leið. Esja var væntanleg til Ak
ureyrar í 'gærkvöld á vestur-
leið. Herðubi’eið er á Austfjörð
um á norðurleið. Skjaldbreið
fór fi'á Reykjavík í gærkvöld
til Breiðafjarðarhafna. Þyrill
fór frá Reykjavík síðdegis í
gær vestur um land í. hring-
ferð.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell fór frá Norðfirði
18. þ. m. áleiðis til Bremen.
Arnarfell á að fará frá Hafnar
firði í dag áleiðis til Danzig.
Jökulfell fór frá New York 12.
þ. m. áleiðis til Reykjavíkur,
er væntanlegt á morgun. Dísar
fell átti að koma til Keflavíkur
í morgun frá Sandi. Bláfell er
í Aberdeen. Litlafell fer frá
Reykjavík í kvöld í hringferð
kringum landið.
BLÖÐ Ó G TÍMARIT
íslenzkur iðnaður,
marzhefti 1954, hefur borizt
blaðinu. Birtir iímaritið út-
varpserindi um þörunga og bag
nýtingu þeirra eftir Hallgi'ím
Björnsson og greiiiina Hvað,
dvelur Ormdnn langa? í
: I
MESSURIDAG
llail grímskirk j a: Messa kl.
11 f. h. Baniaguðsþjónusta kl.
1,30. Séra Sigurjón Þ. Árna-
son. Messa kl. 5 e. h, Séra
Jakob Jónsson.
Biðjið ekki bara um biautsápu, held*
ur um Bemíiiít sápuna frá Frigg'
Vélbátur til salu
Báturinn er 11 tonna með nýlegri 32 ha. ELVE-vél.
Vél og bátur í 1. flokks ásigkomulagi. — Nánari
uppl. gefur
ÁRNI GUNNLAUGSSON LÖGFRÆÐINGUR,
Hafnarfirði — Sími 9270
Mál og menning. Ny féiagsbók
og Tímaritshefti.
Fimm synir
EFTIR HOWARD FAST.
Skáldsaga sem gerist á Gyðingalandi á dögum Makka-
bea. Sý'nir hetjuskap smáþjóðar, er berst fyrir lífi sínu
gegn erlendri yfiidrott.nun. Snilldarleg saga og áhrifa_
mikil. Þýðing eftir Jóhannes úr Kötlum.
og menningar
1. hefti 1954
Heima og heiman, i’itgerðir eftir Halldór Laxness, enn
fremur greinar eftir Bjarna Einai’sson og Sigurjón Björns-
son, ritgerð eftir Einar Bragá um'Garcia Lorca, lí£ hans
og starf. Kvæði eftir Guðmund Böðvarsson, saga eftir
Elías Mar, ljóðaþýðingar eftir Helga Hálfdánarson og Þor-
stein. Valdimai’sson, ritdómar o- m. fl.
Tímarit kvenna, 1. hefti 1954.
Fjölbi’eytt'efni af innlendum og erlendum vettvangi,
m. a. greinar eftir Aðalbjörgu-Sigui'ðai’dóttur. Nönnu ÓI-
afsdóttur, Þóru Vigfúsdóttur, Drífu Viðar. Um réttindi
kvenna, eftir dr. Axidreu Andreen, Að sigra ellina, eftir
prófessor Olgu Lepesjinskaja, Tízkan í dag, einnig saga,
kvæði o. fl.
Félagsmenn í Reykjavík. Vitjið bókanna í Bokabú®
Máls og menningar. Skólavöi’ðustíg 21.
Félagsmenn í Hafnarfirði. Vitjið bókanna í Verzlun
Þorvaldar Bjarnasonar, Strandgötu 41.