Tíminn - 16.12.1964, Qupperneq 2
14
TÉMINN
MIÐVIKUDAGUR 16. desember 1964
verður að styðja atvinnubótasjóð
til að sinna að nokkru þeim verk-
efnum, sem jafnvægissjóði eru ætl
uð. Ekki orkar það tvímælis, að
mikið verkefni gæti jafnvægissjóð
urinn leyst af hendi í einu af
okkar stærstu þjóðfélagsvandamál
um, jafnvægi i byggð landsins, ef
það lagafrv. fengi náð fyrir aug-
um meiri hluta alþingismanna.
Flugvellir
Við gerum nokkrar brtt. við 20.
gr. fjárlagafrv. Eru þær þessar.
Lagt er til að taka upp í fjár-
lög tillögu deildarstjóra jarðeigna
deildarinnar um, að fjárveiting
til bygginga á jörðum ríkisins
verði 4. millj. kr. Þörfin fyr-
ir þessa fjárveitingu er alþingis-
mönnum kunn og að allra vitorði
mjög brýn.
Gerð er tillaga um, að fjár-
veiting til nýrra flugvalla hækki
um 10 millj. kr. Mörg verkefni
bíða úrlausnar, fjárins er sannar-
lega þörf. Sama er að segja um
lltla fjárlagahækkun vegna sjúkia
flugvalla.
Aður höfum við flutt tillögu um
framlag til að byggja fiskirann-
sóknaskip. Og hægt miðar þeirri
nauðsynlegu framkvæmd áfram.
Gerð er hér tilraun til að hraða
henni lítið eitt.
íþróttakennaraskóli íslands
hefur starfað að Laugarvatni um
langt árabil. Hann hefur leyst af
hendi mikið og gott starf. Hefur
honum tekizt vel fyrir starfsemi
nemenda sinna og velunnara að
líkamsrækt að hjálpa þjóðinni til
að komast yfir þá erfiðleika sem
voru því samfara að hverfa frá
dreifbýli til þéttbýlis. Skóli þessi
á ekki þak yfir höfuð sér nema
að takmörkuðu leyti. Á yfirstand-
andi ári fékk hann leyfi til að
hefja byggingarframkvæmdir með
lítilli fjárveitingu. Hér er tekið
undir fjárbeiðni skólastjóra og
skólanefndarformanns og að því
stefnt með tillögunni að gera hús
íþróttaskólans fokhelt á árinu
ígefö.
Einnig tökum við undir beiðni
veðurstofustjóra um fjárveitingu
til að hefja byggingu yfir stofn-
unina, svo sem hann hefur sann-
að með rökum að brýna þörf beri
til.
Atvinnudeild
Þá gerum við tillögu um, að
tekinn verði upp nýr liður: 8
millj. kr. verði varið til að halda
áfram að byggja upp og greiða
áfallnar skuldir á húsi búnaðar-
deildar Atvinnudeildar háskólans
í Keldnaholti. Þessar framkvæmd-
ir munu kosta um 13 millj. kr. nú.
Með öllu er óforsvaranlegt að láta
slíka fjármuni ónotaða, og brýn
nauðsyn knýr á að koma húsinu
í þau not, sem að var stefnt, þeg-
ar ákvörðun var tekin um að reisa
byggingu þessa.
Engu getur það breytt, þó að
mönnum hafi sýnzt sitt hverjum
um staðsetningu hússins í upp-
hafi. Það mál var afráðið í eitt
skipti fyrir öll, þegar verkið var
hafið. Úr fjárþörf byggingarinnar
verður að leysa, svo að verkinu
STORKOSTLEG FRAMFOR
í FRAMLEIÐSLU HRUKKUEYÐANDl SMYRSLA
LA SALLE verksmiðjurnar í Bandaríkjunum setja
á markaðinn
La Salk lotion
(HRUKKUEYÐANDI SMYRSL)
lj Mun stærri glös
2) Mur. meira magn fyrir færri krónur
3) Slét.tar úr hrukkunum á 5 minútum
4) Algerlega skaðlaust fyrir húðina
5) Má nota eins oft og hver og einn óskar
6) Eitt glas endist mánuðum saman
7) AuSvelt í notkun. — Notkunarreglur á ís-
lenzku fylgja hverju glasi.
FÆST Í FLESTUM VERZLUNUM LANDSINS,
SEM VERZLA MEÐ SNYRTIVÖRUR.
HeildsölubirgSir:
O. Johnson & Kaaber h.f.
geti orðið haldið áfram. Allt ann-
að er óforsvaranlegt.
Félagsheimilasjóður
Þá leggjum við til, að inn á 22.
grein fjárlagafrv. verði teknir
nokkrir nýir liðir.
Lagt er til, að ríkisstjórninni
sé heimilt að bæta úr fjárhags-
erfiðleikum félagsheimilasjóðs,
sem er fjárvana og á þar af leið-
andi ógreiddar til félagsheimil-
anna stórar fjárhæðir. Ekki þarf
orðum að því að eyða, hvaða erf-
iðleikum þetta veldur þeim, sem
klífa þrítugan hamarinn við að
reisa félagsheimili. Hér verður úr
að bæta. Vegna þess er þessi til-
laga flutt.
Þá leggjum við til, að upp verði
tekin ábyrgðarheimild vegna bygg
inga og endurbóta á síldarverk-
smiðjum, umhleðsjustöðvum og til
síldarflutninga. Óþarft er að rök
styðja þessa tillögu.
Síldarleitarskip
Sömuleiðis leggjum við til, að
lánsheimild verði veitt til kaupa
tveggja síldarleitarskips. Kunnara
er það en frá þurfi að segja
hvað síldin er mikill þáttur í okk-
ar atvinnulífi, og það er einníg
kunnugt, að við eigum á að skipa
hinum færustu vísindamönnum á
þessu sviði. Það á að vera okkur
metnaður að eignast hin full-
komnustu tæki vegna vísindalegs
stuðnings við þessa atvinnugrein.
Þess vegna er tillaga þessi flutt.
Síldarvinnsla og
markaósleit
Þá leggjum við til, að varið
verði allt að 20 millj. kr. af
greiðsluafgangi fyrri ára til að
styrkja nýja síldarvinnslu og
markaðsleit í því sambandi. Kapp
eigum við að leggja á það að
gera útflutningshráefni okkar sem
verðmætúst með því að vinna úr
þeim hér heima fyrir. Það getur
kósiáð mikið fjármagn að koma á
fót slíku fyrirtæki og koma vör-
unni á markaðinn. Þessari tillögu
er ætlað að létta þann róður.
Þó að við gerum ekki tillögur ,
um meiri breytingar á fjárlagafrv. i
er það ekki af því, að okkur sé I
ekki ljós þörfin á þeim, svo sem
að framlag til aflatryggingasjóðs
E I N N
T V E I R
SM E L LIÐ
A F
rapid
myndavélin
* ER ODvrust
* ER HENTUGUST
* ER FALLEGUST
Amerísk
Rauð Delicious epli
EINGÖNGU BEZTI GÆÐAFLOKKUR
,, E X T R A FANCY"
NÝ SENDING MEÐ HVERRl FERÐ
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
SÍMI 1-1400.
verði hækkað, heldur af hinu, að
við treystum því, að t.d. svo aug-
ljós leiðrétting verði gerð af
meiri hlutanum fyrir 3. umræðu.
í nefndaráliti okkar hér að
framan höfum við gert grein fyrir
tillögum okkar og með rökum
sýnt fram á réttmæti þeirra. Við
flytjum ekki tillögur um lækk-
un á útgjaldaliðum fjárlaga, telj-
um, að stefnubreyting þurfi að
eiga sér stað hjá meiri hluta al-
þingismanna, svo að slíkar tillög-
ur hafi hljómgrunn. Við höfum
líka lýst lauslega, hvernig stjórn-
arstefnan, Viðreisn. speglast í fjár
lagafrv. Einkennin eru: verðbóla,
skattpíning og eyðsla. Ekki verð-
ur heldur sagt, að reisn sé yfir
fjárlagaafgreiðslu. eins og hún er
við 2. umræðu málsins, þar sem
botninn fyrirfinnst enginn
Enda þótt frá fjárlagafrumvarp
ínu sé nú þannig gengið, að það
sýni greiðsluhalla, er okkur Ijóst,
að úr því verður bætt, og mögu-
leikar til að brúa bilið eru fyrir
hendi og verða að vera það. Að
afgreiða fjárlög með greiðsluhalla
kemur ekki til mála í slíku góð-
æri sem nú er til lands og sjávar
vegna metafla og hagstæðrar
tíðar til landsins. Með þeirri
skattastefnu, sem rikisstjórnin
fylgir, er auðvelt að draga mikið
fé í ríkissjóð. enda er það óspart
gert, svo sem augljóst er. Hins veg
ar verður það takmark ríkisstjórn
arinnar sem fyrr að draga þang-
að meira fé en þörf er á, þó að
það leggi meiri álögur á þjóðina
en gjaldgeta almennings leyfir.
Að því mun ríkisstjómin keppa
við lokaafgreiðslu fjárlaganna nú
sem fyrr. Á þann hátt mun henni
takast að tryggja vöxt verðbólg-
unnar til hagsbóta fyrir þá, er
fjármagnið hafa í sinni þjónustu.
Þá virðist stjórnarstefnunni full-
nægt.
Alþingi, 12. des. 1964.
Halldór E. Sigurðsson, frsm. Hall-
dór Ásgrímsson, Ingvar Gíslason.
MISVINDI
„Misvindi" nefnir Snæbjörn
Jónsson bók sína, sem nú er að
koma út hjá ísafold. Það er ekbi
neinn nýliði, sem hér kveður sér
hljóðs, því að fyrsta blaðagrein
Snæbjörns kom út um áramótin
1906-7, og síðan má segja, að hann
hafi stöðugt skrifað í blöð, bæði
íslenzk og erlend. „Misvindi“ er
greinasafn eftir Snæbjörn og er
að því leyti ólíkt áður útkomnu
greinasafni hans. að því er hann
segir sjálfur í formála, að nér
koma nokkur dæmi deilu-
greina. Snæbjorn segir rnnfrem-
ur: „Um hinai endurprentuðu
greinar í hvoru tveggja safninu
er það að segja, að ; sumum er
engu orði haggað, en aðrar eru
með nýjum viðaukum og stundum
nokkrum úrfellingum. í þessu
greinasafni eru 25 greinar Bók-
ina prýða allmargar myndir ug
samtals er h'ún 248 orentsíður og
kostar kr. 295.40