Tíminn - 16.12.1964, Síða 9

Tíminn - 16.12.1964, Síða 9
MIBVIKUDAGUR 16. desember 1964 TÍEVIINN 21 53 var hár maður vexti, grannur, með kuldaleg, blá augu, hvítar, stórbeinóttar hendur og fölur í andliti. Um leið og skipið hafði lagzt við akkeri, kom hann til káetu sinnar, og í fylgd með honum var liðsforingi, sem hét Parkin. Hann settist við borðið og skipaði mér að koma fram fyrir sig. Stundarkorn horfði hann á mig eins og ég væri eitt af furðuverkum veraldarinnar. Þegar hann hafði rannsakað mig frá hvirfli til ilja.horfði hannhvasst í augun á mér. — Hvað heitið þér? — Roger Byam. — Þér voruð liðsforingjaefni á skipi Hans Hátignar, Boun- ty? — Já, skipstjóri. — Hve margir af skipshöfninni á Bounty dvelja nú á Ta- hiti? — Þrír, að ég hygg, auk mín. — Hverjir eru það? Ég nefndi nöfn þeirra. — Hvar er Fletcher Christian, og hvar er Bounty? Ég skýrði honum frá því, að Christian hefði farið brott ásamt átta uppreisnarmönnum. Enn fremur skýrði ég hon- um frá viðburðum þeim, sem skeð hefði á Tahiti síðan. Ég skýrði honum frá skonnortunni, sem Morrison hafði byggt, og að Morrison hefði haft í hyggju að reyna að komast á henni til Batavíu, en þar vonaðist hann eftir því að komast um borð í Evrópuskip, sem færi til Englands. — Mjög sennileg saga, sagði hann og glotti háðslega. — Og hvers vegna fóruð þér svo ekki með honum? — Vegna þess, að mér leizt ekki þannig á skonnortuna, að hægt væri að sigla henni langar leiðir. Ég áleit, að betra væri að bíða eftir ensku skipi. — Sem þér áttuð víst ekki von á að sjá. Þér munuð verða undrandi á þeirri frétt, að Bligh skipstjóri og menn- irnir, sem hraktir voru frá skipinu ásamt honum, komust til Englands. — Það gleður mig mjög að heyra það, skipstjóri. — 0 þér munuð sennilega líka undrast það, að nákvæm skýrsla hefur verið gefin um uppreisnina og þar er getið um þorparaskap yðar. — Þorparaskap minn? Ég er jafnsaklaus af þátttöku í þessari uppreisn og þér. — Þorið þér að neita því, að þér hafið tekið þátt í ráða- bruggi Christians um uppreisnina? — í sannleika sagt, herra skipstjóri, þá hljótið þér að vita, að nokkrir þeirra, sem urðu eftir á Bounty, voru eftir af því að þeir voru neyddir til þess vegna þess, að ekki var nóg rými í skipsbátnum. Við vorum níu um borð, sem ekki tókum þátt í uppreisninni. Skipsbáturinn var orðinn svo hlaðinn, að Bligh óskaði sjálfur eftir því, að ekki væru fleiri settir í bátinn. Hann lofaði því, að láta okkur njóta réttlætis, ef hann kæmi nokkru sinni til Englands aftur. Og hvers vegna er þá farið með mig eins og ég sé sjóræn- ingi? Ef Bligh skipstjóri væri hér . . . Edward greip fram í fyrir mér. — Þetta er nóg, sagði hann. — Þér munuð hitta Bligh a smum tima, þegar þér komið til Englands til þess að þola refsingu þá, sem þér verðskuldið. En viljið þér, eða viljið þér ekki segja mér, hvar Bounty er? — Ég hef sagt yður allt, sem ég veit, skipstjóri. Ég mun áreiðanlega finna Bounty og alla, sem fóru með skipinu, það megið þér vera viss um. Og yður er alveg árangurslaust að reyna að hylma yfir með þeim. Ég var svo reiður, að ég gat ekki svarað. Allan þann tíma, sem liðinn var frá því uppreisnin var gerð hafði mér ekki dottið í hug, að ég yrði álitinn einn af uppreisnarmönn- um. Enda þótt ég hefði ekki haft færi á því að tala við Bligh morguninn, sem uppreisnin var gerð, vissu bæði Nel- son og fleiri af þeim, sem fóru 1 skipsbátinn, að ég var ekki meðal uppreisnarmanna. Og ég hafði álitið sjálfsagt, að Bligh væri þetta kunnugt, og mér var óskiljanlegt, hvern- ig á því stóð, að ég hafði verið settur á svarta listann með- al uppreisnarmanna. Mig langaði til þess að vita, hvernig Bligh hefði gengið ferðalagið heim, og hversu margir hefðu komizt með honum, en Edward vildi ekki leyfa mér að spyrja. — Það eruð þér, sem á að spyrja, en ekki ég, sagði hann. — Þér neitið enn þá að segja mér, hvar Christian er? — Ég veit ekki meira um það en þér, skipstjóri, svaraði ég- Hann sneri sér að liðsforingjanum. — Herra Parkin, farið með þennan mann undir þiljur og sjáið um það, að hann nái ekki sambandi við nokkurn mann. Bíðið andartak. Biðjið herra Hayward að koma hing- að inn. Ég varð undrandi, þegar ég heyrði nafn Haywards nefnt. Skömmu seinna var hurðin opnuð og Thomas Hayward, fyrrum káetufélagi minn, kom inn. Ég gleymdi hlekkjun- um og gekk fram til að heilsa honum, en hann horfði á mig með hinni mestu fyrirlitningu og hélt höndunum fyrir aftan bakið. — Þekkjð þér þenpgn1náupga(IhjeKoa.iHayá«ar.d'?;;ll ad inj vj “t— Já, skipstjóri. Það er Rogeií !BýSthý'Ifýt,rum1liðsforiri|jáii; efni á Bounty. — Þökk fyrir, sagði Edwards. Hayward horfði á mig kuldalega og fór. Verðirnir fóru með mig inn í klefa, sem bersýnilega var ætlaður föngum. Það var hræðileg hola og megnasti óþefur þar inni. Nú fékk ég bönd bæði um hendur og fætur, og tveir varðmenn stóðu við dyrnar. Um klukku- tíma seinna var komið með Coleman og Skinner, og þeir voru lagðir í bönd. Enginn fékk að koma til okkar, nema varðmaðurinn sem færði okkur matinn, og honum var stranglega bannað að tala við okkur og við máttum ekki heldur tala hver við annan. Þarna lágum við allan daginn og það leit svo út, sem hann ætlaði aldrei að líða. Og líðan okkar var hin aumkunarverðasta. NÝR HIMINN - NÝ JÖRD EFTIR ARTHÉMISE GOERTZ 63 upp úr vatninu. Höfuð hans var ein blóðug kássa, og ekki þurfti annað en líta snöggvast á hann við kyndilbjarmann til að sjá, að hér var um höfuðkúpubrot að j ræða.Hann hafði farið í hár sam- an við Justin Dufour út af veiði, sem Ilercule taldi sig eiga. Og Justin hafði gripið strokjárnið, sem hann hafði til að brjóta skelj ar með og ráðist á Hercule eins og óður maður. Margir þeirra sem viðstaddir voru, höfðu horft á það sem fram fór. Maðurinn varð að komast á sjúkrahús, en klukkan var nærri eitt, og hvorki um skipsferð né lest að ræða til New Orleans fyrr en með morgninum. Hægt var að lina þjáningamar með ópíum, þangað til Hercule yrði komið til borgarinnar, en hætta var á drepi þangað til og ýmsri aukasýkingu. Aðgerð var óhjákvæmileg vegna höfuðkúpubrotsins, og Viktor myndi ekki til að hafa séð neina kúpusög til þeirra nota meðlal hinna úreltu áhalda Jolivets gamla. Hann hikaði við og yfir- vegaði aðstæður. Honum var um og ó að leggja útí neitt sem hann var ekki viss um að geta leyst af hendi. Nú höfðu einhverjir náð í föð- ur piltsins, Alceste Moreau. Hann stóð þar í ráðaleysi og horfði ým- ist á son sinn meðvitundarlausan, eða lækninn. —Þér ætlið að iækna dreng- inn minn? Þér getið það, er ekki svo? Andlit hans var afmyndað af angist. — Annars hefur lánið allt- af leikið við mig. Eg hef eignast ellefu sonu, eiginkonu, rúm . . . ég þarf svo sem ekki að vera guði i reiður fyrir neitt. Hercule var eft | irlæti föður síns. Það væri hreinn i harmleikur, ef Alceste gæfist nú ! á gamalsaldri ástæða til að slíta í vináttu við guð sinn. — Flytjið hann heim í hús yð- ar, mælti læknirinn um síðir. —Ég skal koma þangað undír eins með þau áhöld sem ég þaif að nota. Það var mesta óráð að senda Hercule heim til konu sinn- ar, sem var komin langt á leið, eins og hann hafði sagl. Auk þess væru margar hendur á lofti heima hjá Alceste föður hans, til að halda á lömpum, sjóða vatn, sækja og finna hverskonar hluti. En þó yrði þar enginn til að stjóma svæfingunni, meðan læknirinn fengist við aðgerðina, engin hönd sem hann gæti treyst til fulls. Allt í einu sá hann Mirjam í hugan- um, eins og hún hafði staðið við rekkju frú Gaspardi . . En hann ýtti þeirri mynd frá sér. Hann vildi ekki sjá hana aftur. Hann vildi ekki láta þennan atburð eyði leggja þá hugarró, sem hann hafði háð harða baráttu í marga daga og nætur, til að öðlast. Öll fjöl- skylda Moreaus var stiliingarfólk. Hafði það orð fyrir að bregða sér ekki við hvaða sársauka sem fynr það kom. Krókódílsbit, þó hár beittur fiskflökunarhnífur rynni út af beini og stingist gegn um lófann — slíkt fannst því ekki meira en títuprjónsstunga. Þegar menn lyptu Hercule upp á einn vöruvagninn, heyrði lækn irinn að hann stundi. Þetta var ekki nein hnífsstunga. Ég get ekki gert þetta. Ég get það ekki. Hann varð að fá aðstoð, hverj- ar svo sem afleiðingarnar yrðu. — Sep . . . Ilann krotaði nokk- ur orð aftan á lyfseðil. — Farðu með þetta út að Fagranesi . . . Þú hlýtur að geta fengið einhvern dl að aka þér. En hraðaðu þéir! Klukkan var fjögur, þegar þau komu út úr húsi Alceste Moreaus, sem var snoturt og hvítkalkað, með skrúðgarði og trjám í kring. Aðgerðin á Hercule hafði verið erfið og seinleg, því læknirinn hafði orðið að fjarlægja beinbút til að létta af þrýstingi af viðkvæm um hluta heilans. Það var ebki meira en læknirinn hafði gert ráð lyrir, og meðal áhalda Jolivets fyrir fannst ekkert sem komið gat í staðinn fyrir tæki það er með þurfti, til slíkra fram- kvæmda. Hann varð að gera sér það að góðu, sem gamli læknirinn gat í té látið. En hann var ánægð ur með það sem honum hafði tek- ist. Hercule hafði hann bjargað og Alceste gat haldið áfram að vera í vinfengi við sinn guð. Colin Menard stóð við garðshlið ið ásamt hópi forvitinna manna. — Haldið þér að Hercule deyi? spurði Colin. Auðheyrt var að hann vonaðist eftir morðfrétt til að fylla hina mörgu fréttadálka Ojallarhorns með. — Allir eigum við að deyja, svaraði læknirinn, — einhvern- tíma. En það er þýðingarlaust að búast við forsíðufrétt í blað yðar. — En höfuð hans molaðist, var ekki svo? hélt Colin ótrauður áfram. — Og enginn maður getur lifað með sundrað höfuð, eða livað? — Það gera margir, sagði læknirinn og brosti kuldalega. — Það er fólkið sem lifir með þeiim, sem finnst það öllu erfið- ara. — Þér óskið bersýnilega ekki að láta hafa neitt eftir yður? Coi- in varð iililegur. — Hræddír við að opna munnin, eða hvað? — Já, anzaði læknirinn nú með hæðnisbrosi. — Ég er skelíingu lóstinn. Æsifregnasnapararnir umhverf- is hann tóku að drattast á brott. j Það yrði nægilegt slúðurefni fyrir Colin, ef hann sæi læknirinn aka á brott í léttivagni sínum með Mirjam við hlið sér. Fagranes var nær mílufjórðungi utar með vatn inu. Þar sem almenningur hér taldi það nærri eins mikla svívirð ingu af stúlku að aka ein vagni með karlmanni , og ef hún hefði sézt koma út úr vændishúsi í fylgd með honum, fannst lækninum rettast að fara eangandi heim, með henni. Þau tóku létt hjál um daginn og veginn, tii að létta af sér spennu hinna síðustu stunda. Stjörnur voru teknar að fölna og stilia og svali í döguninni. — Þap er ekki hægt að treysta i Narcisse iengur Vitið þér hvar hann var á sunnudaginn í óveðr- inu? Hann var að gifta sig! Gift- ast Bíbí. Hún hló. — ^auvette seg ir, að það sé fyrsta starfið, sem Narcisse hafi unnið samkvæmt eigin geðþótta, á ævi sinni. — Svo þá er Bíbí komin til ykkar aftur? — Já, frú Vigée vildi ekki hafa hana eyktarstund hjá sér, eftir að hún fékk að vita þetta. Það var eins og henni finndist eitthvað ósiðlegt við það. að Bíbí skyldi gifta sig. Hann skildi það vel, að frú Vigée, sem klæddi Apolló í buxur og Vénus frá Míló i blússu, vildi ekki hafa í sinni bjónustu stúlku sem var kvænt manni er starfaði hjá annarri eins konu óg Pal- mýru Delamare. Það hlaut að vera' fyrir neðan henar virðingu. — Annars voru pau Narcisse og Bíbí vígð saman á löglegan hátt, hélt hún áfram. — Þau

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.