Alþýðublaðið - 20.01.1955, Blaðsíða 3
Fimmíudagur 20. jan. 1355
ALÞYÐUBLAf>*e
HYQIENIC WAX
! «
POLISH
i
FORBRIGHTAMD /j
HEALTHY HOMES ÆÉ
Biðjið ávaiít um það bezía
ír£«B~—m
I
I
í
---HANNES Á HORNINU-"'
Vettvangur dagsins
1
Deilur myndlistarmanna. — Bandalag íslenzkra
listamanna óstarfhæft. — Fátt á skautum.
Bahia Blanca. — Hvar voru hásetarnir?
IJr öllu
áff u
DEILUR MYNDLISTAR.
MANNA eru ekki að eins
hvumíeiðar, híeldur eru þær
*>§■ sorglegar. Svo virðist sesn
fjórar skoðanir séu uppi með-
al þeirra um það, sem dcilt
er um. Fjórir aðilar hafa þeg-
ar tekið til máls um þetía og
ekki verður annað séð en að
ekki verði hægt að brúa djúp-
Ið mi-lli aðaldeiluaðilanna.
Þetta er hörmulegt — og spá-
*r ekki góðu um þátttöku okk-
ar í sýningunni í Róm.
BANDALAG íslenzkra lista
öianna virðist hvergi koma
nærri, enda verður 'ekki ann.
að séð en það sé orðið óstarf-
hæft. Það er heldur ekki við
öðru að búast. Það er ekki
fullrúi nema fyrir nokkra
íslenzka lisamenn. Helmingur
skálda og listamanna stendur
fyrir utan það, og þar á með-
ial margjir ,þeirra, sem skipa
ðieiðurssess — og állir vita
hvernig er um myndlistar-
mennina. Fremstu listmálarar
okkar eru ekki í Bandalaginu.
FYRIR ATBEINA utanað
komandi aðila þarf að endur
skipuleggja samtök lista.
manna. Það parf annað hvort
að endurnýja Bandalagið —
og það er mikill vafi á því,
að það sé hægt, eða að leysa
það hreinlega upp í von um
að það verði til þess að neyða
listamenn aftur til skipulagðra
heildarsamtaka. Að minnsta
kosti er núverandi ástand ó-
þolandi.
A ■ ■ ■ Bmaiin* iniiiit ■ rt iiiiiiiiiimiis
Nýja seridf-. _ \
§ bílastöðin h.f.
fe hefur afgrelOslu 1 Bæjítr !
E bílaítöBinni i ASalatmft S
S 1«. OpiB 7.80—21. 4:
C tuimudðgam 10—18.
| Blmi 1885. ;
UlULUaiUUl.<UMU*a.*«KimMlí](IIMUU
SJALDAN eða aldrei, á
undanförnum tíu árum hef-
ur verið eins góður skautaís
á Tjörninni og undanfarna
daga. Þiess vegn,á hefur það
vakið nokkra furðu, að ekki
skuli hafa verið krökt af fólki
öll kvöld á skautum. Eg man,
að fyrir nokkrum árum gat
að líta mikinn fjölda fólks á
Tjörninni í 'hvert sinn. sem
skautafæri var gott, en nú eru
þar ekki margir.
ERUM við að gleyma ein-
hverri fegursu íþrótt okkar?
Það lítur sannarlega svo út.
Eg talaði við skautagarp í
fyrrakvöld, og hann sagði
mér, að nú væri minni þátt-
taka í skautaíþróttinni en
var til dæmis fyrir tíu árum.
Hann gat ekki skilið hvters
vegna pað væri svona. Ekki
gæti það stafað af því, að fólk
hefði ekki ráð á að kaupa sér
góða skauta, en það hélt mörg
um niðri í gamla daga, nú
hefðu allir peninga og skautar
væru ekki svo dýrir, að það
kæmi í veg fyrir þátttöku í
skautaíþróttinni.
SVO BÆTTI hann við: En
ef til vill eyða menn svo
miklu í kvikmyndahúsin og í
kaffihúsaseturnar, að ' þeir
hafa ekki efni á því að kaupa
sér skauta.
YFIRMÖNNUM á togaran-
um, ;siem bjargaði skipbtrots-
mönnunum af Bahia Blanca
hefur verið veitt viðurkenn-
ing fyrir björgunarstarfið. ■—
Þeir voru einir á skipinu, að
eins yfirmenn, enginn háseti,
eða þá að hásetarnir hafa
neitað að bjarga. Að minnsta
kosti heyrist engínn háseti
nefndur á nafn í sambandi
við þetta mál.
Hannes á horninu.
í DAG er fimmíudagurinn
20. janúar 1955.
FLUGFERÐIK
Flugfélag íslands.
Millllandaflug: Sólfaxi fer
til Kaupmannahafnar á laug-
ardagsmorgun. Innanlandsflug:
í dag eru áætlaðar flugferðir
til Akureyrar, Egilsstaða,
Kópaskers og Vestmannaeyja.
A morgun er ráðgert að fljúga
til Akureyrar, Fagurhólsmýr-
ar, Hólmavíkur, Hornafjarðar,
ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust-
urs og Vestmannaeyja.
Lofíleiðir.
Hekla, millilandaflngvél Loft
leiða, er væntanleg til Reykja
víkur kl. 19 í dag frá Ham-
borg, Kaupmannahófn og Staf
angri. Flugvélin fer til New
York kl. 21.
— * —■
Þingeyingafélagið
í Reykjavík heldur árshátíð
sína að H-ótel Bofg föstudag-
inn 4. febr. Nánar auglýst síð
ar.
Háteigsprestakall.
Fermingarbörn þessa árs
(vor og haust) eru beðin að
koma í hátíðarsal Sjómanna-
skólans í dag kl. 6.30. Jón Þor
varðsson.
Handavinnunámskeið.
Handavinndeild Kennara-
skólans, Laugavegi 118. efnir
til 3ja mánaða nánjskeiðs í
handávinnú. —' Kennslugjald
verður kr. 50,00. Kenndur
verður einfaldur fatasaumur
og útsaumur. Upplýsingar
verða gefnar í 'síma 80807
næstu d-aga kl. 9—3.
Samtök herskálabúa
halda fund í Naustinu víð
Vesturgötu í kvöld. Sjá nánar
auglýsingu hér í blaðinu.
Leiðrétting.
1 fréttatilkynningu utan-
ríkisráðuneytisins frá 25. marz
f. á., sem birt var ásamt at-
hugasemd ráðuneytisins í Al-
þýðublaðinu 19. janúar, féll
lína niður í næstsíðustu máls-
grein (úr tilfærðum ummælum
dr. Helga P. Briems sendi-
herra). Rétt er h;n tilfærða
setning á þessa leið: ,,.. . Það
er því ekki rétt að tala um, að
handrit þessi hafi nokkurn
tíma verið eign Ðanmerkur,
enda þótt segja megi, að þau
hafi verið ,,eign“ sameiginlegs
konungs íslands og Danmerk-
ur, og að konungur hafi varð-
veitt þau í sínu konunglega
bókasafni í Kaupmannahöfn.“
Konan mín,
INGVELDUR JÓHANNSÐÓTTIR,
andaðist að heimili sínu, Klapparstíg 13, þann 19. janúar.
Magnús Björnsson.
Innilega þökkum við öllum, sem sýndu okkur samúð við
fráfall og jarðarför föður okkar, - *
ODDS J. BJARNASONAR skósmíðameistara.
Anna Oddsdóttir. Ingibjörg Oddsdóttir.
Kristján Oddsson. Steingrímur Oddsson.
Hinn nýi vélbátur „Frosti“.
SKÖMMU fyrir jól bættist
flota Vestmannaeyinga ein-
hver vandaðasti vélbátur, sem
enn hefur þangað komið. að
dómi fróðra manna. Er það
vélbáturinn „Frosti“ Ve 363,
eign Helga Benediktssonar út-
gerðarmanns í Eyjum.
Bátur þessi er smíðaður í
|T á K IÐ
' EFTIR
s
s
s
i EFTIR 1
^Saumum yfir tjöld á barna.-
Svagna. Höfum Silver Crosss
b barnavagnatau í 5 litum ogS
^ dúk í 6 litum. — Athugið: b
SNotum aðeins fyrsta flokks^
Sefni. Vönduð vinna. SímiS
^ 9481.
I ^firði.
S
S
i
Öldugötu 11, Hafnar.^
Geymið auglýsinguna!
Samlök herskálabúa
Fundur verður haldinn í kvöld kl. 8,30 í Naustinu
við Vesturgötu.
Fundarefni:
1. Eldhættan í bröggunum.
2. Rætt um sumarstarfið.
3. Önnur mál.
Herskálabúar, fjölmennið.
Stjúrnin.
Djupvik í Svíþjóð, 53,64 smá-
lestir brúttó, knúinn 180 há.
June-Munk)tell Dieselvél, en
auk þess er ihann búinn 10 ha.
J.M. Diesel ljósavél. og lími
og akkerisvinda eru olíudrlab
ar. Báturinn er í meginatrið-
um byggður samkvæmt í|-
lenzkum ákvæðum varðandi
styrkleika, nema hvað hann ér
að ýmsu leyti sterkbyggðaiú,
en þar er gert ráð fyri-r; mátt-
arviðir meiri. og betur gengi5
frá ýmsum festingum. Er þáð
gert með tilliti tll hinnar hörðú
sóknar Vestmannaeyinga iá
míðin í slæmu veðri og sjó, qg
þeirri reynslu, sem þar hefur
fengist.
Þá má það heita nýmæli héte,
að yfirbygging bátsins er öll
gerð úr léttmálmi, aluminíuin.
og vegur aðeins 700 kg., — ðn
venjulegar yfirbyggmgar vega
fleiri smálestir. Þá er það al-
gert nýmæli, hve vel er að á-
höfninni búið. hvað híbýli um
borð snertlr. Eru klefar skípa
manna með afbrigðum vandað
ir að öllum frágangi, auk þesa
sem þeim fylgja geymslur fyr
ir vosklæði og hlííðarföt, ©g
skápar fyrir annan fatnað.
Hreinlætistæki eru og h|n
fullkomnustu, svo að sjómönn
um gefst þar kostur á að við-
hafa allan nauðsvnlegan þriín
að í daglegu starfi. Munu sjó-
menn fagna þeim aobúnaði ©g
kunna vel að meta, bví »ð
starfi þeirra er oft óhiákvæmi
lega samfara vos og óþrifnað-
ur.
„Frosti“ hlaut fárviðri ég
stórsjó á leiðinni hingað, pg
reyndiist hdð bezíLa s-jóskip' ií
hvívetna. Um þessar mundir
er verið að búa hann til róðra
frá Eyjum; skipstjóri verðúa
Ingólfur Matthíasson. ;