Tíminn - 23.12.1964, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. desember 1964
TÍMINN
í SPEGLI
Martin Luther King, sem nýlega tók á móti friðarverðlaunum Nóbels í Osló, kom við í Stokk-
hólmi á leið sinni til Bandaríkjanna, og dvaldi þá á Grand Hotel. Einn morguninn var hann
vakinn snemma morguns af þessari laglegu sænsku Luciu, sem kom með morgunkaffið hans.
Bandaríkjamenn láta sér detta
margt í hug. Nú ætlar maður
nokkur í Oklahoma City að
framleiða tóbakslausar sígar-
ettur! Og það er ekki nauð-
synlegt að reykja sígarettur
þessar, maður getur alveg eins
borðað þær!
Hráefnið í þessar sígarettur
er salatblöð, verða þær með
mentholbragði. Verksmiðjan
hefur starfsemi sína i Okla-
homa í marzmánuði.
★
Margar ástæður eru gefnar
fyrir skilnaði — en þó mun
eftirfarandi saga frá Varsjá
vera nokkuð sérstök. Kona
ein, 22ja ára gömul, bað um
skilnað í réttinum í Lodz.
Ástæðan var sú, að hún hafði
ofnæmi fyrir manni sínum! í
hvert sinn sem hann kom ná-
lægt henni, fékk hún útbrot.
Eiginmaðurinn var leiddur
inn í réttarsalinn, og samstund
is fékk eiginkonan útbrot!
Hún fékk því skilriað, að pví
er „Standar Mlodych" segir.
■k
Þeir sem hafa áhuga á að
kaupa sér eyju suður í Miðjarð
arhafi, hafa nú gullið tækifæri.
Og það ætti ekki að draga úr
áhuganum, að hér er um svo-
kallaða „djöflaeyju" að ræða.
Það er ítalska rikisstjórnin,
sem ætlar nú að selja djöfla-
eyju sína, Santa Stefano, sem
er um 20 km. frá Napoli. Fang-
elsið, sem byggt var árið 1796,
er ekki notað lengur, en það
hefur verið aðsetursstaður
margra saklausra manna, sem
voru andstæðir Mussolini og
fasistum hans. En nú hefur rík
isstjórnin ekkert með eyjuna
að gera og hefur því ákveðið
að selja hana. Lætur hún þá
ráðleggingu fylgja sölutilboð-
inu, að góður arkitekt ætti
leikandi að geta breytt fang-
elsinu í hótel, en fyrir neðan
fangelsið er tveggja km. ■ löng
sandströnd, svo að hér ætti að
vera hægt að hafa góðan bað-
stað.
★
Ákveðið er að reisa styttu
af Winston Churchill fyrir ut-
an brezka sendiráðið í Washing
ton. En mörgum finnst þó, að
eitt mikilsvert atriði vanti á
styttuna — nefnilega hinn
fræga vindil. Myndhöggvarinn,
Bandaríkjamaðurinn William
MacVey, segir, að það sé erfitt
að hugsa sér Churchill án vind
ilsins, en The English Speak-
ing Union, sem lét gera sytt-
una, telur, að ekki sé hægt að
hafa vindilinn. Eins og styttan
lítur út núna, heldur Churchill
á staí sínum og vindli í
sömu hendinni. en það finnst
ESU einum of mikið. Church-
ill hefur hægri höndina upp-
rétta og myndar með fingrun-
um hið ódauðlega V-merki.
*
Arabar fengu reiðikast á
hinum árlega dansleik Samein-
uðu þjóðanna í New Vork, en
það eru blaðamenn í aðalstöðv-
um SÞ., sem sjá um þennan
dansleik. Ástæðan var sú, að
inni í daussalnum voru að
venju til skreytingar fánar
nokkurra SÞ-þjóða — að þessu
sinni fánar Bandaríkjanna,
Frakklands, Ítalíu, Grikklands
og ísraels, en reiði Arabanna
stafaði af síðastnefnda fánan-
um. Þeir neituðu að mæta á
dansleikinn, þegar fréttist um,
að ísraelsfáninn hafði verið
hengdur þar upp.
SÞ-dansleikur þessi er hald-
inn árlega til heiðurs forseta
allsherjarþingsins, sem að
þessu sinni er Alex Quaison-
Sackey frá Ghana. Hainn var
haldinn á Hotel Pierre.
★
Fyrrverandi herbergisþjónn
kynbombunnar Brigitte Bardot
hefur grætt óhemju fé fyrir
greinaflokka í frönskum og
ítölskum blöðum. Skrifar
hann um starf sitt hjá Bardot
og koma þar að sjálfsögðu
fram ýmis atriði úr einkalífi
leikkonunnar, sem hún hefur
síður en svo áhuga á að komist
í blöðin.
Nú hefur Bardot ákveðið, að
ráða.ekkert fólk í sína þjón-
ustu, nema það skrifi fyrst und
ir yfirlýsingu, þar sem það
heitir því að þegja algjörlega
um allt það, sem það kann að
komast að í starfi sínu.
*
Lögreglan í Genua hefur beð
ið i 10 ár, án árángurs, éftir
því að geta handtékið sígauna-
konu eina, Margherita Caldar-
es, — 10 barna móður — fyrir
þjófnaði í verzlunum, sem hún
stundar af mikium dugnaði.
Ástæðan er einfaldlega sú, að
samkvæmt ítölskum lögum má
ekki setja þungaða konu í fang
elsi.
Lögreglan heimsótti Marg-
herit, enn einu sinni nú ný-
lega, en varð frá að hverfa
tómhent. Hún á nefnilega
von á sínu 11. barni.
Frægasta dægurlagasöngkona Breta þessa stundina, Dusty Springfield, sézt hér á flugvellinum í London. Hún var á söngferða-
lagi í Suður-Afríku, en var rekin úr landi af því að hún söng bæði fyrir hvíta menn og svarta á skemmtun einni í Höfðaborg,
en slíkt er bannað í Suður-Afríku eins og alræmt er orðið.
WESTINGHOUSE
ísskápar
WESTINGHOUSE
Þvottaválar
WESTINGHOUSE
Ryksugur
WESTINGHOUSE
Steikar-
pönnur
WESTINGHOUSE
Grillofnar
Vandlátir
veija
WESTINGHOUSE
Véladeild