Tíminn - 23.12.1964, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 23. desember 1964
TÍMINN
Þorskabítur
f. 29. ág. 1859, D. 7. febr. 1933.
Eins og ýmsir hafa tekið eftir
hef ég nú gefið út úrval ljóða
Þorskabíts skálds. Þykir nú rétt
í tilefni þess að segja fáein orð.
Eins og einkum Borgfirðingar vita
ólst hann upp í Reykholtsdal og
bjó þar nokkur ár á Breiðhóls-
stöðum, næsta bæ við Reykholt.
Ég hef heyrt haft eftir séra
Guðmundi Helgasyni. að hann
teldi Þorskabít ein^ivern greind-
asta ungling, sem hann hefði
þekkt, enda var séra Guðmundur
alltaf honum vinveittur.
Skírnarnafnið var Þorbjörn og
faðir hans var Björn Eggertsson.
En hann tók sér höfundarnafn-
ið Þorskabítur eftir að til Amer-
íku var komið. Hann naut mik-
illa vinsælda sem ljóðahöfundur
meðal fslendinga vestra. Og 1914
gaf Borgfirðingafélag í Winnipeg
út Ijóðabók eftir hann. í eink-
unnarorðum fyrir þeirri bók hef-
ur höfundur sett þetta á forsíðu:
„Hinu ljóðelska alþýðufólki eru
ljóð þessi virðingafyllst tileinkuð
af höfundinum, sem er alþýðu-
maður“.
Bókin hefur verið uppseld og
ófáanleg nú í hálfa öld. Að ég
gaf nú út úrval af ljóðum Þorska-
bíts er mikið af því mér þykir
mörg Ijóða hans svo góð, að
skaði væri ef þau týndust úr
íslenzkum Ijóðum. Ég tel mörg
ljóða hans svo góð að þau eiga
skilið að varðveitast, t.d. eins og
minni Borgarfjarðar, sem ég tel
bezt ort af því sem kveðið hefur
verið um mitt merka hérað,
eins Eiríksjökull, Halley og hala-
stjarnan og Ást í meinum, sem
öll eru í úrvalinu o.fl. ljóð og
lausavisur, sem eiga skilið að varð
veitast.
Þegar ég kom vestan úr Kletta-
fjöllum árið 1917, og fór suður
í Manitoba í Kanada, stanzaði ég
í tvo daga hjá Þorskabít og fél-
aga hans Hallbjörgu Halldórsdótt-
ur systur Halldórs á Kjalvarar-
stöðum, fermingarsystir Þorska-
bíts. Þau bjuggu þá og lengst
af vestra í litlu landbúnaðarkaup-
túni, er heitir Pempina í N-Da-
kota. Þau bjuggu þar sparneytnu
lífi, höfðu 2 kýr og dálitla garð-
rækt. Af þessu höfðu þau sitt
lífsuppeldi. Þorbjörn var ekki
heilsuhraustur. M.a. hafoi hann
misst aflið úr öðrum fæti sínum
og hafði því staurfót. En hann
hélt vel við sínu móðurmáli eins
og margra íslendinga er dæmi,
þótt þeir búi fjarri feðrafold.
Munu þó tæki jafnan hafa verið
erfið að auðga anda sinn, en
hann hélt þjóðrækni sinni og
menntun, sem hann hafði aflað
sér, þegar hann var fátækur
drengur að alast upp í Reykholts-
dal. En Þorbjörn var einn af
þeim góðu kvistum, sem gróið
hafa upp í íslenzkum dölum, sem
mér finnst að eigi skilið að við
hlúum að, sem erum svo lán-
samir að geta það, þótt „þú
sért nú lagður lágt í mold lista-
skáldið góða“ eins og kveðið var
um eitt ágæta skáldið okkar ís-
lendinga. — Ein bezta gjöfin
til okkar fátækra íslenzkra ungl-
inga um síðustu aldamót voru
hin fögru ljóð skáldanna. Megi
þeir tímar koma aftur til íslenzks
æskufólk's, að ljóðin fögru verði
í heiðri höfð.
Vigfús Guðmundsson.
Bótagreiðslur
almannatrygginga
í Reykjavík
Bótagreiðslum lýkur á þessu ári kl. 12 á hádegi
á aðfangadag og hefjast ekki aftur fyrr en á venju-
legum greiðslutíma bóta í janúar.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
1 \ r~'n
trúlofunarhringap
Hverfisgötu 16
Simi 21355
WESæ&WW
KIRKJUSTRÆTI
Bíla & búvélasalan
TRAKTORSGRÖFUR!
Massey-Ferguson árgerð 63—'64 eru i toppstandi
góðir greiðsluskilmálar et samiS er strax.
Traktorar Vörubílar. Jeppar fólksbílar
Bíla & búvélasalan
v Miklatorg — Simi 2-31-36.
Bremsuborðar
í rúllum fyrirliggjandi.
1 3/8” 1 1/2” — 1 3/4” —
2” — 2 1/4” — 2 1/2” X 3 16”
3” — 3 1/2” — 4”. — 5” X d/16”
4” — 5” — X 3/8” 4” X 7 16” 4“ X l/2‘
Einnig bremsuhnoð. gott úrval.
Laugavegi 170.
Sími 1-22-60.
SMYRILL
JÖLAFÖTIN 1964
7?orc/e*
Gnfáít.
m
Úra- og skart-
gripaverzlun
Skólavörðustíg 21 ( við
Trúlofunarhringar
Fljót afgretðsla
Sendum gegn póst-
kröfn
GUÐM PORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12
Klapparstíg).
Gull — Silfur — KristaU — Keramik — Stálbarð-
búnaður — Jólatrésskraut — <Jr og klukkur.
SIGURÐUR TÓMASSON, úrsmiður.
JÓN DALMANNSSON, guUsmiður.
AUÐVELDAR HEIMILISSTORFIN
r
Á BRAUDIÐ