Alþýðublaðið - 29.01.1955, Qupperneq 8
Textar á 6 fungumálum gerð-
fi nýja Islandskvikmynd
Laugardagur 29. janúar 1955
Myndin tekin af Nordisk Tonefilm
fyrir samvinnusambönd Norðurland-
anna; frumsýnd í Gamla Bíó í dag.
FRUMSÝND verður í Gamla Bíó í dag ný íslandskvikmynd
er sænska kvikmyndafélagið Nordisk Tonefilm tók hér á landi
í sumar. Hafa verið gerðir textar við mynd þessa á sex tungu-
málum og verður myndin sýnd víða út um heim.
Frá töku íslandskvikmyndarinnar í sumar.
Mynd þessi er ein af þrem
kvikmyndum, sem Svíarnir
tóku hér í sumar. Þessi mynd,
sem er 45 mínútna mynd í hin
um fegur.stu lltum, var gerð
fyrir samvinnusambönd allra
Norðurlandanna. Er myndin
fyrst og fremst íslandsmynd,
ætluð til sýninga erlendis, en
leggur þó aðaláherzlu á að
sýna í svipmyndum starf sam-
vinnufélaganna.
SÉRSTAKUR LEIÐANGUR
Nordisk Tonefilm sendi sér-
stakan leiðangur þriggja
manna til þess að taka mynd-
ina, en notaði auk þess ýmsa
Frá aðalfundi Ferðamálafélags Reykjavíkur:
Tillaga um að setja hér á stofn „spilabanka
í líkingu við spilabankann í Monte Carlo
Hugsaðor fvrir útlendinga eingöngu og ágóðanum varið
tíí stuðnings árlegri „Íslandshátíð.“
A AÐALFUNDI Ferða-
málafélags íslands, er hald-
inn var 26. þ. rn., var rætt
miíki'ö um nauðsyn þess að
auka ferðamannastraumitm
til Islands og bæta úr hótel-
skortinum hér á landi.
ÁRLEG LISTAHÁTÍÐ
Á fundinum ræddi Jón
Leifs tónskáld um að koma
þyrfti á hér á landj árlegri
listahátíð í líkingu' við liátíð-
irnar í Edinborg, Bergen og
víðar. Vildi Jón, að hátíðir
þessar yrðu kallaðar Islands
háííð eða „Festival of Ice-
land“, sbr. „Festival of Hol-
land“. Taldi Jón vafalaust, að*
slík hátíð hér á landi myndi
auka verulega ferðamanna-
strauminn til landsins.
..SPILABANKI“
SETTUR UPP
I>á lag'ði Jón Leifs einnig
til, að settur yrði á stofn hér
,,spilabanki“ í líkingit við
spilabankann í Monte Carlo
(fyrir útlendinga eingöngu)
og að ágóðanum yrði varið tii
síuðnings árlegri „fslandshá-
tíð“. Formaður Ferðamálafé-
lagsins tók mjög undir þá til
lögu.
Skemmdir á mannvirkjum í nor
ausfan sfórviðri á Pafreksfirði
Veðrið braut tvo símastaura í þorpinu
og feykti þaki af heyhlöðu.
Fregn til Alþýðublaðsins. Patreksfirði í gær-
NORÐAUSTAN veðrið, sem gengið hefur á Vestfjörðum,
var mjög mikið hér á Patreksfirði, enda eru norðaustan veður
mjög hörð hér. Fjöldi íslenzkra og innlendra togara komu inn
á fjörðinn í var, og voru hér í þrjá sólarhringa.
Barnaskemmlun
KVENFÉLAG Alþýðu-
flokksins heldur barna
skemmfun í Alþýðuhúsinu
kl. 2 e. h. á morgun. Hefst
hún með því að börnin
syngja, síðan les Stefán
Jónsson rithöfundur upp,
Ragnheiður og Þuríður
Jónsdætur syngja og spila,
Erna Kaldalóns lcs upp og
sýnd verður kvikmynd.
FYRSTA MEISTARA-
PRÓF VIÐ HÁSKÓL-
ANN SÍÐAN 1945.
FYRSTA meistaraprófi, 'sem
tekið hefur verið við Háskóla
íslands síðan 1945, lýkur n.k.
fimmíudag með fyrirlesíri í
háskólanum.
Það er Gunnar Sveinsson,
sonur séra Sveins Víkings,
sem tekur þetta próf. Ritgerð-
arefni hans var um skólakveð
skap á vissu tímabili 19. aldar.
Meistarapróf hel'ur ekki ver
i'ð tekið við háskólann síðan
1945, að Lárus Blöndal bóka-
vörður lauk því.
sérfræðinga og tæki, sem hér
voru vegna „Sölku Völku“.
Kvikmyndastjóri var rithöf-
undurinn Jöran Forsslund,
sem kunnur er af greinum og
bók, ,sem hann hefur skrifað
um Island. Myndatökumaður
var einn af reyndustu og við-
urkenndustu mönnum Svía á
því sviði. Einer Akeson, en
þriðji maður í ferðinni var
Erik Park.
FRUMSÝND í STOKKHÓLMI
Kvikmynd þessi hefur þea-
ar verið frumsýnd í Stokk-
hólmi. en búið er að gera fexta
við hana á íslenzku, sænksu,
dönsku, norsku, finnsku og
ensku. Má því heita öruggt, að
milljónir manna erlendis muni
sjá myndina á nokkrum næslu
árum.
Frumsýningin í dag verður
aðeins fyrir boðsgesti. en önn-
ur sýning verður á morgun,
sunnudag, klukkan þrjú, og
verður þá seldur aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
í ÞRÓTTAFÉ LAG1Ð Höfr-
ungur á Þingeyri varð 50 ára í
des. Það .heldur upp á afmælið
í dag.
Veðr19 f Í9IS
A eða NA gola; léttskýjað.
Myndin er af Anastas Niko-
yan, rússneska viðskiptamála-
ráðherranum, er „leystur hef-
ur verið frá störfum“.
Sváíu sveíni
hinna rélliálu,
Fjögurra manna fjöl-
skylda í Hobart í Ástralím
svaf sem fastast þótt bíH
æki inn um trévegginn á
svefnherberginu, svo aS
rúm, með íveim sofandi
drengjum í, þeyttist þvert
yfir herbergið.
Annar bróðir, scm svaf
um tvo metra frá þessrn
rúmi, svaf einnig áfranu
þótt gipsinu úr lofiinw
rigndi yfir hann.
Faðirinn, Kennoth Evans,
tjáði lögreglunni, að hamu
hefði ekkert um þetta vitað,
fyrr en hann las bað í blað-
inu. Hann hljóp þá inn í her
bergi drengjanna.
Þeir steinsvái'u.
Mælskuiisfarke
félðgsins lóksl sérlega vel
Umræðufundur og þorrablót bráðlega,
STÚDENTAFÉLAG Reykja-
víkur liélt kvöldvöku í Sjálf-
stæðishúsinu í fyrrakvöld, þar
sem teldnn var upp nýr
skemmfiþáttur, er takast þótti
mjög vel og þótti mönnum að
hin mcsta skemmtun.
Er hér um að ræða mælsku-
listarkeppni, sem stúdentar
frá menntaskólunum á Akur-
eyri og Reykjavík þreyltu með
sér. Tilhögun keppninnar var
,sú, að þrír menn voru í hvoru
liði og hélt hver þeirra tvær
tveggja mínútna ræður um
efni, sem hann vissi ekki hvert
var, fyrr en hann gekk í ræðu
stól Þá var í sanibandi við
Þær skemmdir urðu hér I
þorpinu, að tveir símastaurar j
brotnuðu undan veðrinu, og
slitnaði síminn niður, auk þess
sem þak fauk af hlóðu á Geirs-
eyri. Lítið hey mun hafa veriö
í hlöðunni.
LENTI í FÁRVIÐRÍ
Togarinn Ólafur Jóhannes-
son var að veiðum á Jónsmið-
um, og lenli þar í fárviðri.
Hann varð fyrir lít.'ls háttar
skemmdum. Hanri er nú einí
togarinn, sem er hér inni, að
undanskildum Keflvíkingi,
sem er að landa slatta. Hlnir
eru allir farnir út. ÁP,
nginn postur i nærri manu
tilaiisf við i
Fregn til Alþýöublaðsins.
DJÚPUVÍK í gær.
ENGIN skipsferð hefur
verið hingað til Djúpuvíkur
isíðan snemmá í janáar, og af
þeim sökum heíur enginn
póstur borizt hingað í nálega
heilan mánuð.
SAMGÖNGULAUST
Orsökin fyrir þcssu sam-
göngulcysi mun vera sú, að
þetta eina skip, sme heldur
uppi ferÖum til Djúpuvíkur,
Skjaldbreið, er stöðvað í
Reykjavík. En utn samgöngu
á landi er ekki að ræða, ckki
einu sinni að isumrinu.
PÓSTUR MEÐ FLUGVÉL •
Hingað er ckki heldur
hægt að komast nerna á smá-
flugvélum, nema ef unnt
reyndist að lenda á sjó. En
von er um, að unnt verði að
fá hingað póst lofileiðis, svo
að menn hér á norðanverðum
Ströndum verði ekki alveg
slitnir úr mannlegu samfé-
lagi. Einnig fer menn að van
haga um ýmislegt, ef dráttur
verðurá, að ferð falli.
hvert efni eitt orð, skylt efn-
inu. er þeir mátlu ekki nefna
og hlutu menn víti fvrlr að
nefna það. Ekki vissu ræðu-
menn hvert orðið var. en hins
vegar var áheyrendum sýnt
orðið á spjaldi. Þá höfðu and-
stæðirigar rétt til að mótmæla,
ef þelr töldu ræðarnenn hika
úr hófi fram eða enduralka sig
og fara of langt frá efninu.
Þótti áheyrendum ræðu-
mönnum takast vel upp og
skörulega. En keppnin fór þó
þannig, að norðanmenn unnu,
þar eð einum ræðumanni sunn
anmanna varð á að nefna hið
forboðna orð. Annars komust
alllr kepnendur klakklaust í
gegn. — Önnur, skemmtiatriði
tókust einnig mjög' vel og var
þarna hinn dýrðlegasti fagnað
ur.
UMRÆÐUFUNDUR !
OG ÞORRABLÓT
Á næstunni gengst Stúdenta
félagið fyrlr umraíðufundi,. en
umræðuefnið er enn óákveð-
ið. Þá mun félagið halda þorra
blót laugardaginn 19. febrúar
á þorrsþrælnum. Verður þar
allt með rammíslenzku sniði,
bæði matur og skemmtiatriði,
enda er hugmyndin, að gamlir
stúdentar sjái að mestu fyrir
þeim.