Tíminn - 20.01.1965, Blaðsíða 16
\
15. tbl--Miðvikiidagur 20- ianúar 1965 — 49. árg.
NÝTT BÚLGUEYÐ-
ANDI LYF FUNDIÐ
NTB-Árósum, þriðjudag.
Nýtt bólgue'yðandi efni, sem
framleitt er í Sviss, virðist hafa
læknað 30 tilraunasjúklinga á
Radium-sjúkrahúsinu í Danmörku.
Þ-að er formaður krabbameins-
rannsóknarsí,öðvarinnar í Dan-
mörku, prófessor Jörgen Bichel,
sem skýrði frá þessu í dag. Pró-
fessorinn getur enn ekkert sagt
um það, hvort einkennin muni
koma aftur í ljós, en segir að
miklar vonir séu bundnar við
þetta nýja efm
Það er notað við frekar sjald-
gæfum bólgusjúkdómi i æðum,
sem ekki má rugla saman við
blóðkrabba. Svissneska verksmiðj-
an, er framleiðir efnið, hefur
beðið prófessorinn um að taka að
sér nánari rannsókn á eiginleik-
um efnisins. Verksmiðja þessi er
þekkt fyrir meðalatilraunir í sam-
bandi við krabbamein. Prófessor
Bichel mun leggja fram niður-
stöður af rannsóknum sínum á
Spilakvöld Fram-
sóknarfélaganna í
Framsóknar-
félögin í Reykja-
vík efna til kvöld
skemmtunar í
Súlnasal Hótel
Sögu, fimmtudag-
inn 4. febníar
næsfikomandi.
Spiluð verður
framsóknarvist
og glæsileg verðlaun veitt. Bjöm
Pálson bóndi og aliþingismaður að
Löngumýri flytur stutta ræðu og
að lokum verður stiginn dans til
kl. 1 eftir miðnætti. Boðsmiðar að
skemimtuninni verða afhentir í
skrifstofu Framsðknarflokksins að
læknafundi í Árósum í byrjun
febrúar.
LlTIL
SÍLD-
VEIÐI
E.J.-Reykjavík, þriðjudag.
Lítil síldveiði var í Breiðamerk-
urdýpi í nótt, enda leiðindaveður
á miðunum. Var Guðrún Jónsdótt-
ir aflahæst með 800 tunnur. Síldin
var frekar léleg, og fór mestur
hluti hennar í bræðslu.
Blaðinu er kunnugt um afla
eftirtalinna báta: — Guðrún Jóns-
dóttir 800, Hafrún 550, Víðir 300,
Engey 250, Reynir 170, Ófeigur
II 250, Húni II 750, Guðbjörg
700, Akurey 750, Sveinbjörn
Jakobsson 450, Bára 400, Gull-
toppur 550, Gjafar 700, Krossa-
nes 700.
ELDUR
ÍBÁTI
BS-Ólafsfirði, þriðjudag.
Um áttaleytið á mánudagsmorg-
un urðu menn varir við að eldur
var laus í mótorbátnum Stíganda,
sem lá hér við hafnargarðinn.
Slökkviliðið var kvatt á vettvang
og tókst því fljótlega að ráða nið-
Tjamargötu 26. Miðapantanir eru urlögum eldsins, sem hafði komið
í síma 15564 og 16066.
Stjómir Framsóknarfélaganna í
Reiykjavík.
upp í skilrúmi milli lestar og
lúkars. Skemmdir urðu tiltölulega
litlar.
HVERGIJAFNAKAFT LEITAÐ
AD 0LÍU 0G í N0RDURSJÓ
NTB-Osló, 19. janúar.
Eins og komið hefur fram í
blöðum, mun umfangsmikil leit
að olíu og gasi á hafsbotni fara
fram í Norðursjó á þessu ári.
Auk þess verður leitað í Erma-
sundi, við ísland, frland og Jan
Mayen. Lengi hefur verið leitað
í Norðursjó, en I ár munu Norð-
menn í fyrsta skipti taka þátt í
leitinni. Fyrirlestur um þetta efni
var nýlega haldinn í Noregi og
kom í ljós, að hvergi í heiminum
er í dag leitað eins mikið að
olíu og gasi á hafsbotni og í
Norðursjó.
Að minnsta kosti 50 félög eyða
hundruðum milljóna í rannsókn
ir þessar. Þrátt fyrir þetta eru
félögin efins um, að leitin beri
nokkurn árangur, en þau vona að
með tímanum hafizt eitthvað upp
úr krafsinu. Það verður samt ekki
fyrr en eftir nákvæmar og um
fangsmiklar rannsóknir og margar
borholur. Fjöldi rannsóknarferða
í Norðursjó hefur aukizt mjög
mikið á undanförnum árum. Einn
leiðangur var farinn við Englands
strendur árið 1962, en árið 1964
yorU þeir alls 200. Farnir voru
átta jarðfræðirannsóknaleiðangr-
ar í ár sem leið frá Noregi, en
árið þar áður voru peir fjórir.
Ástæðan fyrir því, að svo
mikill áhugi er á að finna olíu
í Norðursjó, er sú, að það svæði
er skammt frá miklum og ört
vaxandi olíu- og gasmarkaði. Það
er hörð samkeppni á milli olíu-
félaganna í dag og það þeirra,
sem finnur olíu eða gas í Norður
sjó, er mun betur sett en hin,
vegna þess, hve stutt leiðin verð
ur til neytendanna.
Olíuleit á höfum úti er mjög
dýr, t. d. kostar jarðfræðirann
sóknir frá 1—1,5 milljónir norskra
Framh. á bls. 14.
Ufsaveiiin / rénun
GS-Keflavík, þriðjudag. lanþágu. Landa hér nokkrir línu-
Ufsaveiðin hér er nú í rénun,' bátar frá nokkrum nágrannastöð-
og eru þeir tveir bátar, sem hana! unum, sem standa utan verkfalls-
hafa stundað, komnir á síldveiðar.1 ins. í dag landaði Ágúst Guð-
Ver kom á mánudag með 250 tn.,; mundsson og Freyja fimm tonn-
er hann fékk skammt undan Álfta- um, sem er það skásta í dag
nesi. Er síldin afarsmá og fer öll' Svo komu héi tvö síldveíðiskip
í bræðslu. ; að austan í dag, Guðbjörg GK
Línuveiði hefur verið sæmileg með 600 tunnur og Helgi Fló-
undanfarið, enda fáir um magnið, j ventsson með 300 tunnur. Síldin
utan þeirra skipa, sem róa á und- fer öll i vinnslu
Myrtu þeir börn til að ná
„sannsögulegri" kvikmynd?
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
ítalska vikublaðið L‘Espresso
hefur birt grein um ítalskan
kvikmyndaflokk, sem er nýkom
inn frá Kongó, þar sem hann
kvikmyndaði átökin milli hers
uppreisnarmanna og ríkisstjórn
arinnar. Blaðið ákærir kvik-
myndatökumennina fyrir að
hafa fengið málaliða ríkisstjórn
arinnar til þes að myrða börn
og pynda fanga, svo að þeir
gætu tekið ,,sannsögulega“
kvikmynd. Leiðangursstjóri ít-
alanna var Franco Prosperi,
einn þeirra, sem stóð að Mondo
Cane — myndunum frægu.
Blaðamaðurinn, sem skrifaði
greinina, Carlo Gregoretti, seg
ir, að fimm manna hópur kvik
myndatökumanna hafi farið til
Kongó til þes að taka sann-
sögulega kvikmynd af átökun-
um þar. Þeir gerðu samkomu
lag við belgískan major, Le
Mercier, um aðstoð við töku
bardagaatriða.
Ásamt 200 hermönnum frá
Katanga og 36 hvítum mála
liðum héldu kvikmyndatöku
mennimir til bæjamir Boende,
sem var undir stjóm nokkurra
uppreisnarmanna. Var ætlunin
að bænum yrði „bjargað“ með
snöggri árás fyrir kvikmynda-
mennina.
Hewnennirnir komu til bæjar
ins 24. október. Fremst ók suð-
urafrískur málaliði í jeppa en
fyrir aftan hann komu vöru-
bifreið með kvikmyndatöku-
mennina.
Fyrir utan bæinn gengu þrír
litlir drengir — allir um 10
á:ra að aldri, og héldust þeir
í hendur. Suðurafríski mála-
liðinn skaut á þá með vélbyssu
án aðvörunar og drap þá sam
stundis. Kvikmyndatökumenn-
irnir höfðu fengið fyrstu mynd
ir sínar af manndrápum í
Kóngó.
— Myndatökumaðurinn sá
um, að myndavélin væri ná-
Framhald á 12. sfðu