Tíminn - 03.02.1965, Blaðsíða 8

Tíminn - 03.02.1965, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 1965 TÍMINN \ g 1) I I I I I | I STÚLKA AÐ NAFNI JACKY Hún vissi alltaf hvað hún vildL Það greip Jacqueline Bouvier Kennedy stingandi hræðslutil- finning við hina sögulegu at- höfn á tröppum þinghallarinn- ar í Washington, er hinn ungi og sólbrenndi eiginmaður hennar vann eiðinn sem for- seti Bandaríkjanna. Henni fannst skyndilega eins og hún væri í þann veginn að missa það, sem var henni hjartfólgn- ast — einkalíf sitt með eigin- manni og börnum. Sama tilfinning hafði grip- ið hana daginn eftir að maður hennar var kjörinn forseti Bandaríkjanna. í margar klukkustundir hafði hún stöð- ugt neitað að taka við heilla- óskum. Hún vildi ekki veita hamingjuóskum viðtöku fyiT en vafalaust væri með öllu, að manni hennar hefði tekizt að ná því marki, sem hann hafði keppt að svo lengi og lagt á sig svo mikið erfiði til að ná. Þegar sigurinn varð ekki leng ur véfengdur, fannst henni hún þurfa að vera í einrúmi með hugsanir sínar. Hún yfirgaf fjölskylduna, vini og blaðamenn, sem her- sátu heimili hennar í Hyannis- port í Massachussetts. Hún gekk ein út, einmanaleg, grönn kona í regnkápu. Hún gekk nið- ur á Nantucket Sound strönd- ina. Hún reikaði í hægðum sín- um eftir mannlausri strönd- inni og veitti aðeins brimöld- um Atlaptshafsins, sem skullu á ströndinni, hlutdeild í hugs- unum sínum. Kosningabaráttan og allt það brambolt og erfiði, sem henni hafði fylgt, hafði tekið á þrek hennar. Henni hafði þó yfirleitt alltaf tekizt að líta glaðlega út og vera hress i bragði — fyrirtaks maki fram- bjóðanda. En stundum hafði þó ótti hennar náð undirtök- unum og hún vissi, að menn höfðu stundum orðið þess var- ir, að hún var taugaóstyrk og festu og öryggi skorti í fram- komu hennar Þegar hún gekk parna um -tröndina komu tárin fram í augu hennar. Það voru ham- irigjutár. sem féllu vegna Jack. því að hún vissi, að heitasta ósk :ifs b:ns tafði ræ'zt. En hún feiidi e.t.nig tár sjálfrar sín vegna - það var þessi hræðslutilfinning, sem aldrei v'ildi hverfa til fulls. Hún ótt aðist framtíð þeirra og barn anna. „Þegar sú stund kemur, að ég er ekki lengur forsetafrú, mun ég verða fullkomlega ánægð með að vera aðeins eig- inkona mannsins míns og móð ir barna okkar,“ sagði hún ein faldlega. Og þannig myndi hún vafalaust hafa orðið. En brátt fyrir hina sterku óttatii finningu þarna á .tröndinni > Hyannisport gat hana ekki ór- að fyrir að hinn dimmi nóv emberdagur ætti eftir að renna mp í Dallas. Að kvöldi dagsins, er mað- ur hennar var myrtur og dag- inn, sem ég horfði á hana ganga hin þungu spor upp hin ar mörgu tröppur á Capitol á' eftir líkkistu eiginmanns henn ar, leiðandi tvö börn þeirra, hvarflaði hugur minn aftur til janúarmánaðar 1961 og fyrstu orðanna, sem ég skrifaði um Jacqueline Kennedy: „Hvernig er hún eiginlega þessi unga kona, sem er í þann veginn að taka að sér svo mik- ilvægt hlutverk í lifi fjöl- margra manna?“ Þetta voru fyrstu orðin, sem ég skrifaði um Jacqueline Kennedy. Mágur hennar, Robert Kennedy, sem hélt í hendi hennar við gröf Johns Fitzger ald hefur lýst henni sem „skáldlegri, duttlungafullri. sjálfstæðri, en samt mjög kven legri." En á dögum hinnar djúpu hryggðar, sýndi þessi kona, sem virtist veikbyggð og hafði átt við þrálát veikindi að stríða í æsku (lá m.a. 6 mán. 'samfleytt rúmföst), ótrúlegan styrk og bar sorg sína með fá- dæma virðingu. Aldrei fyrr í sögunni hefur kona þurft að standa svo berskjölduð gagn- vart almenningi oS umheimin- um með persónulega sorg sína. Og aldrei áður hafa jafn marg- ar milljónir kvenna um allan heim spurt: „Hefði ég getað sýnt slíka virðingu og hetju- lund eins og Jacqueline Kenne dy? Vegna þess að hún tilheyrir yngri kynslóðinni voru áhrif Jacqueline, sem ætíð tókst að líta út eins og hún væri klippt út úr nýju tízkublaði, mjög mikil og einhvem veginn finnst mér, að áhrifum hennar hafi ekki lokið með drápi eig- inmanns hennar. Og þeir, sem þekkja hana bezt, eru mér sammála um það. Og hvernig er hún þá í raun og veru þessi athyglisverða, unga kona, sem varð húsmóð- ir í Hvíta húsinu 31 árs að aldri og var frú 35, og yngsta forseta Bandaríkjanna? Ég hef nú á reiðum hönd um svar við þeirri spumingu, sem ég átti ekki 1961, er ég fyrst spurði þessarar spuming ar. Ég hef fengið svör við spurningunni af vörum forseta frúarinnar sjálfrar, við kynni af henni, fjölskyldunni, nán um vinum hennar og samstart- mönnum Svör hennar, sem stundum nálguðust hvísl.erhún gaf áður en maður hennar var myrtur. hafa nú einhvern veg- inn fengið nýja merkingu. Hún er hávaxin — 5 fet og 5 þumlungar — grönn, og hef ur allt útlit eftirsóttra sýning- arstúlkna. Hún hefur 'eðlilega liðað. hnotubrúnf há og græn augu, se skipta litbrigðum með klæðnaði hennar. Fólk kallaði hárgreiðsly hennar „gólfþurrkuna." Maður inn minn er mjög hrifinn af þessari hárgreiðslu," svaraði Jackie blátt áfram og brosandi. Hún er breiðleit og það er langt á milli augna hennar. Húðin er fílabeinshvít. Hún kýs helzt að klæðast dökkum litum og notar dökkan andlits farða. Hún er látlaus í klæða burði og fasi öllu. Jæja. Þetta er nú skelin — og reyndar mjög falleg skel. En hvernig er innri maður þessarar konu? Hún er tilfinningarík og hef- ur viðbjóð á öllu, sem að henn ar áliti misbýður persónulegu einkalífi hennar. Arthur Schles inger jr. hefur sagt um hana: „Hún er skarpgáfuð og mjög eftirtektarsöm — þrátt fyrir hina hógværu framkomu og stillingu veit hún alltaf hvað er á seyðj. En smekkur henn- ar er fremur smekkur fagur- kerans en hins skynsama og raunsæja manns.“ Hún hefur mjög skemmti- lega kímnigáfu. Hún er gam- ansöm á kostnað sjálfrai sín en hefur heldur ekki á móti að sýna öðrum smástríðni. Hún á mjög létt með að hérma eftjr fólki og sérlega hafði hún gaman af og tókst vel að herma eftir Boston-framburði forsetans. „Hún hefur fasta áætlun, sem hún reynir að framkvæma eftir beztu getu,“ sagði ein vinkona hennar. „Áætlun henn ar er sniðin eftir hinum gömlu góðu kenningum um hina full- komnu hefðarkonu: hafa áhuga á listum, tala nokkur tungu mál og sjá vel fyrir heimili sínu, eiginmanni og börnum, — hin vel upp alda unga kona.“ Hún er gætin í tali, einnig við vini, og jafnvel stundum eins og hún sé svolítið utan við sig. Þó er hún mjög vin gjarnleg og glaðleg, en þú færð það einhvern veginn á tilfinninguna, að hún sé ekki ætíð að tala við þig. Ástarævintýri Jack og Jackie var næstum lokið áður en það byrjaði. Þau hittust í kvöld verðarboði í Washington. „Hann hallaði sér yfir asparges-súpuna og stakk upp á því, að við færum eitthvað og fengjum okkur í glas," sagði Jackie. Þegar þau komu út að bll Jackie, sat vinur hennar einn í bílnum. „Ég átti leið héi hjá af tii viljun, Jackie,” sagði hann, ,,og ákvað að bíða eftir þér hérna í bílnurn." Það þyngdist brúnin á Jack Kennedy. Honum geðjaðist ekkert að því, að fá þriðja aðilann í spilið og súr á svip gekk hann á brott. Þannig hefði þetta ævintýri getað endað fyrir þeim. Jack og Jackie, því bæði voru bau mjög sjálfstæðii og stoltir pei sónuleikar. Þrír menn höfðu einkun \ Jakie 1934. áhrif á mótun persónuleika Jacqueline Kennedy. Það voru afi hennar, John Vernon Bou vier, hinn dugmikli lögmaður, móðir hennar, hefðarkonan Janet Lee, og faðir hennar, John Bouvier III., hinn hör undsdökki og laglegi verðbréfa sali, sem lét mikið á sér bera í New York og gekk undii nafninu „Svarti-Jack“ eða „Sheikinn" vegna hins dökka litarháttar. „Ég gekk á hina svokölluðu „betri skóla,“ sagði Jackie, „í New York og Connecticut. Eg var tvö ár í Vassar og eitt ár við Sorbonne í París. Ég var búlduleitur krakki, sólginn í sætindi, og lá með blekuga fingur yfir skólabókum fram á nætur. Ég hugleiddi aldrei að ég myndi verða kona stjórnmála- manns. Ég hugsaði um að eign ast hús og hvernig ég myndi skreyta það. Ég hugsaði méi að eignast börn, en það hvarfl- aði aldrei að mér að ég yrði undir smásjá almennings. Ég hafði engan áhuga á stjórn málum áður en ég giftist. Þegar ég var 19 ára hafði ég ráðið það við mig. að eng inn þeirra ungu manna. sem ég hafði alizt upp með, kom til greina sem hugsanlegur eig inmáður." Þegar hún var uppkomin stúlka í skóla skrifaði Bouvie’ afi hennar henni bréf, þar sem hann lagði henni lífsreglurn ar. í bréfinu sagði m.a.: „Elsku Jacqueline. Hæfm manna til að samlagast um hverfi sínu er þeim ekki að- eins til þroska og framfara, af þgir leggja sig fram og beiía gáfum sínum rétt. heldui opn ar einnig augu þeirru og huga fyrir nýjum hugmyndum. sem þeim er liollt að kryfja til mergjar Sem betur fer. hefui þú átt auðvelt með að sam- lagast umhverfi þínu og haga þér eftir aðstæðum. Ég hef séð í þér foringjahæfileika, en áð- ur en við förum að stjóma öðrum, verðum við að kunna fulla stjórn á okkur sjálfum. Þetta er sannleikurinn um lífsgengi . . . Þú munt komast að því, að þeir, sem eru sjálf- um sér til gagns eru bezt til forystu fallnir til að hafa áhrif á líf annarra og þegar öllu er á botninn hvolft eru þeir ötul- ustu og ánægðustu lífverurnar í sköpunarverki drottins . . Þinn afi.“ Einu sumri eyddi Jackie *i ferðalag um Evrópulönd ásamt þremur vinstúlkum sínum. Hún hafði mjög skarpa at- hyglisgáfu, en hún virtist ótt- ast að hrinda vinum sínum frá sér með því að vera bæði fai leg og gáfuð, svo hún ieyndi oft gáfum sínum og þekkingu á bak við grímu saklausrar skólatelpu. Ég hef eftir einum vina hennar: „Hún var miklu skarp ari en flest fólkið. sem hún umgekkst, en duldi það af ásettu ráði Menn sögðu, að hún væri mjög kaldlynd, vegna þess, að hún var dul og stundum viðutan, en öllum féll vel við hana. þótt hún virtist tala alveg hræðilega mikið um dýr og skepnur." Og eftir konunni. sem þekk ir hana betur en allir aðrii er þetta haft: „Það er ekki hægt að segja. að hún haíi verið sérlega falleg stúlka, en hún vissi alltaf hvað hún ‘ vildi.“ Móðir Jackie var af Lee-æH inni, sem er talin einhvei „fíri asta“ ættin í Bandarikjunum og hún varð, að læra og lifa eft ir lífsreglum hinna ættstóru og þær siðareglur innprentaði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.