Alþýðublaðið - 24.09.1955, Síða 5

Alþýðublaðið - 24.09.1955, Síða 5
I.awgardagur 24. sept. 1955. ftLÞfÐUBLAÐIÐ' r Ulfarnir í PRÝÐILEGRI AFMÆLIS- GREIN um Þorstein M. Jons- son, skólastjóra á Akureyri, kemst Sverrir Pálsson magister svo að orði: „Ef athugað er, hvaða bæk- ur þú hefur gefið út til þjóð- arinnar, sjáum við, að þær stuðla allar að menningarauka og fegurra mannlífi, fræðibæk ur, kennslubækur, fögur ljóð, I góð skáidverk, en einkum og sér í lagi þjóðsögur og alþýðu- fróðleikur, sem þér hefur allt- af verið hugleikin og hjartfóig in fræðigrein“. | Grein þessi, sem ber yfir- skriftina: „Öllum kom hann til nokkurs þroska“, var upphaf- ) lega afmælisræða. j Hvílíkur reginmunur á at- , Jiæfi manna, sem leitast við af fremsta megni að koma öllum, | sem þeir ná til, til nokkurs þroska, til manndóms og vax- andi þroska, eða hinna sjáifs- ; elskusjúku sálna, er gefa út ( glæparit, klámsögur og margs . konar siðspillanndi lesmál, sið- ] spiilingu og sjúkdóma þjóð- anna. Hér á ég ekki við þessa venju lega kvilla manna, heldur sjúk- clóm þjóðanna, siðspillinguna. Heilar þjóðir geta verið sjúk- ar, engu síður en einstaklingar, og oft eru sjúkdómseinkennin augljós. Aldrei hefðu menn unn ið bug á tæringu né öðrum sjúkdómsplágum, ef þeir hefðu ekki gert sér ljóst, að slíkir sjúk dómar væru geigvænlegir og að á þeim þyrfti að sigrast. Ekk- ert þýðir að loka augunum fyrir jtnannlegu böli, í hvaða mynd sem það er. 5BÖL, SEM FER VAXANDI Hvergi er meira gefið út af glæparitum enn í Bandaríkjun um, og áreiðanlega eiga þau sinn drjúga þátt í glæpalííi unglinganna, en það er nú eitt stærsta vandamál þeirrar á- gætu þjóðar. Æðsti maður rann sóknarlögreglu ríkjanna, J. Edg ar Hoover, hefur sagt: „Dag og nótt ásækir mig sú óhuggnan- lega staðreynd, að glæpir fara yaxandi á meðal æskumanna ”. í Bandaríkjunum voru meiri háttar afbrot 2.159,080 árið 1952, og er aukningin 39 af hundraði síðan árin 1937—39. Árlegar skemmdir á eignum manna, af mannavöldum eru 3DÚ metnar á fjögur hundruð milljónir dollara. Árið 1953 var stolið 226,530 bílum í Barida- xíkjunum, og er þar einnig um aukningu að ræða. Vopnaöir ræningjar tóku frá fólki 14 milljónir dollara þetta sama ár. Meira en helft þessara glæpa yar framin af ungmennum inn an við 20 ára aldur. Talið er, að alls konar fjár- jrán, fjárdráttur, fjársvik og prettir kosti þjóðina tuttugu jmilljarða dollara á ári. Engin leið er að gera sér vel ljósar slíkar upphæðir sem tuttugu anilljarða dollara. Þá er og talið, að sjö milljónir af þess- um glæpalýð sé í landinu. Að- eins 4% þeirra eru fangelsað- ir, sumir eiga sér felustaði, en megnið af þeim eru „úlfarnh"“ í þjóðfélaginu. Þessir menn skálma um götur borganna, aka í dýrum bifreiðum og búa í rík jnannlegum húsurn. Þjóð, ,sem hefur á meðal sín 7 milljónir alls konar glæpa- manna, og nokkrar milljónir á- íengissjúklinga og ofdrykkju- Pétur SigurSsson: I manna, er visssulega ekki heil- brigð, þótt óhölt gangi, og fæst ar munu menningarþjóðir vera lausar við þessa ískyggilegu kvilla. 18 morð á einu ári í höf uðborg Svía (á okkar ágætu Norðurlöndum) er óróandi sjúk dómseinkenni, og er aðeins eitt af mörgum. Útvarpsfréttir segja stundum slíkkar fregnir í Bandaríkjun- um, að „fjórir drengir hafi, t. d. barið varnarlausan mann til dauða, aðeins sér til gamans", Þrír þessara voru innan við 18 ára aldur. GLÆPIR Á SÝNINGATJALDI Blöð og tímarit þar vestra, er rita um þennan glæpafaraldur, hika ekki við að gefa kvikmynd um, sjónvarpi, glæparitum og öðru slíku sökina að verulegu leyti. Ranrirókn á 115 kvik- myndum leiddi í ljós, ,að 66% þeirra sýndi áfengisneyzlu, 87% reykingar, 49% ósiðsemi og í 57% þeirra komu fyrir morð og manndráp. í kvikmynd um þessum komu fyrir 54 morð, 59 ofbeldisverk, 36 rán, fyrir bófum féllu 74 manneskjur — voru drepnar, og manriþj ófn aður (kidnapping) kom þar fyr ir 21 sirínum. Alls voru framd ir 406 glæpir í þessum 115 kvik myndum. Rannsókn á öðrum 500 kvikmyndum sýndi, að 82% þeirra moraði af glæpum, kynferðismálum og ástarsvik- um — lauslæti. Kvikmyndahúsin eru áhrifa ríkir skólar æskumanna í öllum löndum, hinir skólarnir eru flestir áhrifalitlir til uppeldis, þótt þeir fræði unnglinga, en mörg kvikmyndahúsin eru kennslustofnanir í glæpa- mennsku. Á svo íslenzka ríkis- útvarpið að bætast í hópinn, er það lætur þylja örgustu glæpa sögur í eyru ungmenna þjóð- arinnar? Útvarpssagan „Hver er Gregory11 hneykslaði fólk unnvörpum. Fólk lét gremju sína óspart í ljós og sagði að heita mætti, að morð kæmi fyr ir í hverjum þætti sögunnar. Ég heyrði ekki orð af henni, ég loka eyrum mínum fyrir slík- um óþverra, ef ég á þess nokk- urn kost. „DESIGN FOR MUKDER“ Allsterk alda hefur þegar ris- ið í Ameríku gegn glæparit- unum. Ritstjóri einn, T. E. Murphy, varð til þess að hrinda af stað því, sem var var kallað Hartfords crusade — herferð gegn þessum óþverra- ritum. Hann skrifaði hverja greinina á fætur annarri og kallaði þær: Design for Murdcr — tilsögn í manndrápum, en glæparitin eru einmitt slík til- sögn. Þau kenna ungu fólki glæpi. Ritstjórinn segir, að barn ná- granna síns hafi skilið eftir heima hjá honum tvö af þessum ritum, sem ætluð eru börnum og unglingum til skemmtunar. Hann tók að blaða í þessum rit um og lesa og varð ekki lítið undrandi. „Mér hefði ekki brugðið meir, þótt ég hefði stíg ið ofan í höggormshreiður1, sagði hann. „Bækur þessar moruðu af þeim ógeðslegustu sögum, sem ég hef nokkru sinni séð á prenti. Það getur þó ekki átt sér stað, að rit þessi séu seld hér í heimabæ mínujn, seld börnum okkar?“ Jú, vissulega voru þau seld þar, og nóg af þeim. Frá þessu segir ritstjórinn í furðu legri grein í Reader's Digest, í júní 1954. AÐEINS í SKÁRSTU SÖGUNUM Hann gerir sér lítið fyrir og rannsakar þessi rit hundruðum saman og segir svo: „Mér finnst sem ég hafi vaðið um frárennsl is holræsi — kloak. Hér er háif rökkrið milli vits og brjálæð- is, veröld byggð ófreskjum, ræningjum, umskiptingum, er éta mannakjöt. Hér er traðkað og hrækt á allt, er siðmenntað- ur heimur hefur haldið í heiðri. Hér verða venjuleg morð smá munir innan um kynferðisæv- intýri, limlestingar, hórdóm, föðurmorð, móðurmorð, likát og þessháttar. Aðeins í skárstu sögunnum eru menn drepnir með hnífum eða skotnir. Þetta er lesmálið, er við höfum leyít nokkrum samvizkulausum út- gefendum að troða inn í sálir barna okkar og Unglinga fyrir ávinnirigssakir eingöngu. Hér ér sýnishorn: Lucy er tíu ára og er í fjórða bekk. Hún er óánægð með for eldra síria, viíl heldur geta bú ið hjá frænku sinni í fallegra húsi. Tækifæri hennar kemur, er móðir hennar, frú Johnson, tekur áð dingla við friðil sinn. þau eru að fara út, er húsþónd inn kemur heim að húsinu, Lucy er í glugga á efri hæð húss ins. Hún skýtur föður sinn, það líður yfir móður hennar, friðill inn hleypur á brott, en Lucy leggur svo byssuna í hönd með ur sinnar, sem.er í yfirliði. Á mynd sjást þau svo síðar, móð ir Lucíu og friðill hennar, bæði í rafmagnsstólnum, og svo end ar þessi saga, sem heitir „Föð- urmorð borgar sig“, á því, að Lucy sést brosandi veifa hend- inni, því að nú á hún heima í fallegu húsi. Þetta var eitt af ritunum, sem börnunum var ætlað hér i heimabæ mínum, áður en hreinsunin fór fram, og líklegt má telja, að það sé einnig á boðstólum í bókabúð í ná- grenni þínu, iesari góður“. Slík er frásögn ritstjórans, og framhaldið er svo á þessa leið. í sama heftinu og hami var að segja frá, eru þessar írá sagnir: 1. Faðir ber dóttur sína til dauða, en hélt að það væri sá, sem hún var að dingla við. 2. Maður einn er dáleiddur ÞJOÐVILJINN héfur öðru hvoru að undanförnu verið að hella úr skálum reiði sinnar yfir því, að sex forustumönn- um 1 verkalýðshreyfingunni hefur verið boðið til nokkurra vikna dvalar í Bandaríkjunum, þar sem þeim gefst kostur á að kynna sér starfserrii fjölmenn- ustu verkalýðssamtaka heims. Aðstandendum Þjóðviljans er sjálfsagt engin gleði í huga,1 þegar þeim verður á að gera samanburð á því annars vegar, að Bandaríkjamenn bjóða heim fólki úr íslenzkri verkalýðs-1 hreyfingu til þess að kynnast fjölþættu starfi frjálsra verka- lýðssamtaka, sem markvíst, og með jákvæðum árangri, vinna að því að bæta aðstöðu meðlima sinna í lífsbaráttunni, en hins vegar á því, að yfirboðar þeirra 1 sjálfra, Rússar, verða að láta sér nægja að bjóða íslenzku verkafólki til þess að horfa á hersýningar á Rauða torginu!,, - einfaldlega af því að verkaiýðs- samtök, í þeim skilningi,: er ís- lenzkt fólk leggur í það heiti, eru ekki fyrir hendi. i Það undrar því engan, þó að Þjóðviljinn hrissti úr klaufum sér, Og reyni að breiða yfir van líðan sína með reiðiöskrum um þá menn, er valizt hafa til vest- urfararinnar. . Þessi . viðbrögð. hafa þó öfug áhrif við það, sem til er ætlazt; mönnum verður aðeiris ljósari eðlileg vanstill- ing kommúnista útaf för þess- ari, en reiðiöskur þeirra verður máttlaust með öllu. ) Hitt vekur nokkra furðu, að forseti Alþýðusambandsins skuli nota -málgagn verkalýðs- samtakanna, Vinnuna, til þess að veitast með stráksskap að þeim mönnum úr verkalýðs- hreyfingunni, sem tekizt hafa umrædda ferð á hendur. Slík misnotkun á blaði samtakanna verður ekki skilin á annan veg en forsetinn sé með þessum ein stæðu skrifum að þjóna vilja þeirra samherja, er hann hefur valið sér úr hópi kommúnista í miðstjórn sambandsins. En mikið má vera, ef einhverjum, og látinn berja annan mann | með bílkeðjum til dauða. Kor>.a 1 dávaldsins hafði verið honum ótrú. Mest ber alltaf á þessu, morðum, ólifnaði og hórdómi. 3. Maður einn kaupir atvinnu morðingja til þess að koma friðli konu sinnar fyrir .kattar j nef, en þetta kostar þó eigin- J mann konunnar lífið. „BLÓÐ-MARÍA“ Þannig er í einu riti margor Framhald á 7. síðu. er þar á sæti, finnst hér ekki gengið feti of langt af forset- anum, eigi síður en með fund- arauglýsingum á s.l. sumri. Hvað finnst mönnum t.d. um þá kenningu forseta * 1 Alþýðu- sambandsins, að þeir sex menn, sem skipa sendinefndina, er fór til Bandaríkjánna, séu ekki full trúar verkalýðshreyfingarinn- ar? Ölium hefur þeim verið sýndur margvíslegur trúnaður um langt skeið og flestir skipa þeir þýðingarmikinn sess innan verkalýðssamtakanna og njóta til þess kjörfvlgis sinna félaga. Forsetinn hefði átt að stilla hvatvísi sinni í hóf, og láta sér nægja að lýsa yfir, að nefndar- menn færu ekki í umboði mið- stjórnar Alþýðusambandsins. Það hefði verið sannleikanum samkvæmt, enda ekki vitað, að peinn nefndarmanna hafi sótzt eftir slíku umboði! Hér skuiu ekki eltar ó.lar við þær firrur, er forsetinn lætur sér ssema að halda fram í skrif- um sínum um þetta mál, svo- fjarri eru þær heilbrygðri skyn. semi, að því verður vart trúað, að róleg yfirvegun hafi komizt nærri áður en hann lét þau frá sér fara. Það er ekki nóg með að forseti Alþýðusambandsins geri sjálfan sig að athlægi með málflutningi á borð við þann, er hann hefur haft í rammi í tveim síðustu tölublöðum Vinnunnar í sambandi við sendinefndina til Bandaríkj- anna, heldur gerir hann með .þessu . málgagn verkalýðssam- takanna að algjöru viðundri í augum allra annara en komm- únista. Er það öllu ver farið. Aliur þorri fólks innan verka- lýðssamtakanna fagnar því að sendinefnd héðan á þess nú kost að kynna sér starfsemi verkalýðshreyfingarinnar £ Bandaríkjunum. Mönnum er það ljóst að íslenzk verkalýðs- samtök eiga margt ólært, ekki' sízt í skipulagsstarfi. Óvíða mun einmitt þeim málum betur borgið en vestan hafs. Þær von ir fylgja því sendinefndinni á för hennar, að meðlimum nefnd arinnar takist að afla hagnýtrar þekkingar á þeim málum m.a., sem verkalýðshreyfingin hér á landi geti síðan dregið sína lær- dóma af, eftir því sem staðhætt ir og önnur ytri skilyrði kref j- ast. Öll alþýða mun fagna hverju því, er stefnir til bóta, og sérstaklega ættu þeir menn, sem telja sig sérlega útvalda til þess að vera „fulltrúar verka- Iýðssamtakanna“ að fagna slíku í stað þess að láta augnabliks geðvonzku hlaupa með sig í gönur. Bláberjafausf í Svífijó ff f sumar ©g a$ ári Skrúðgarðar og£ skó^aráróðu ur hefur ©é fsrið m|ö^ ílfa. í SUMAR hafa verið stöðug- ir þurrkar í Svíþjóð eins og kunnugt er. Vegna þurrksins hefur ekki aöeins öll kornupp- skera brugðist að mestu leyti, heldur og uppskera ávaxta og berja. Jarðarberjauppskeran er ekki nema sáralítill hluti af því, sem venjulegt er, vínber hafa ekki náð nema fjórðungs- þroska, og reyniberjalirfan hef ur ráðizt á eplin og valdið stór skemmdum, en reyniber hafa ekki sprottið, að heitið geti. Þá hafa cg bláberin skrælnað á i lynginu og þar með hefur ekld laðeins þessa árs þláberjaupp- skera farið forgörðum, heldur og næsta árs. j Þá hafa og skrúðgarðarnir ^ farið illa, og ýmis tré og plönt- ] 1 ur eyðilagzt að meira eða ( minna leyti. Skógarnir eru og illa farnir, trjátoppar og vaxt- , arbroddar sviðnað, þá hefur ( birkiormurinn reynzt athafna- j mikill í þurrkinum, og hafa stór svæði, vaxin svonefndri j fjallabjörk, orðið fyrir alvar- ! legum skemmdum ai hans völd um. Eikur, sem lifðu af þurrka sumarið 1914, hafa flestar fall- ið í sumar. Vcru nokkrar þairra 1 orðnar yíir hundrað ára að aldri, en eikur geta, ef allt fer með felldu, náð þúsund ára aldri. Þá hefur kartöfluuppskeran brugðizt svo gersamlega, að ekki spretta nerna á að gizka fimm hundruð kartöflur fyrir hverjar tíu þúsund, sem settar eru niður. Er þó heldur betra í Norður-Svíþjóð en í Mið- og Suður-Svíþjóð. j Landbúnaðarvísindamenn sænskir telja þó, að þrátt fyrir 1 ailt sé þurrkurinn betri en sí- fellt regn. Og sú uppskera, sem jfæst, sé mun bætiefnaauðugri , vegna sólskinsins heldur en .uppskera á yotviðrasumri. t

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.