Alþýðublaðið - 29.12.1955, Page 2
AlþýSublaðlg
Fimmtudagur 29. des, .1955,
ÍBarátta stórveldanna færlst útfyrir jortSina,
yfir gervsmána, fiiýtur að sigra í
- sá, sem ræöur
stríöi
ÓSLÓ í desember.
MANNKYNIÐ er nú í þann
veginn að leggja undir sig leið
ir geimsins. Það líða varla
raörg ár, áður en tilbúnir hnett
eða mánar svífa umhverf-
xs jörðu utan gufuhvolfsins.
Frá þessum svífandi vísinda-
stöðvum verða send daglega
skeyti til jarðarinnar um ástand
íð út í hinu víða rúmi. Vís-
; idarnenn gera sínar rannsóku-
ír og verkfræðingar gera tiliög
-•ar um geimför. Ekki mun líða
á. mjög löngu, áður en mann-
kynið hefst handa um að leggja
^íindir sig aðra hnetti.
Í0O ÞÚS, KM. HRAÐI.
Það var tilkynnt í Washing-
tori í sumar, að Bandaríkja-
menn mundu senda upp tilbú-
inn mána á stærð við körfu-
'foolta. Mun hann ganga kring-
um jörðina í 350—500 km. fjar
isegð frá jörðu með 300 þús.
km. hraða á klukkustund. Er
það því hálfan annan klukku-
tímá að ganga kring'.um jörðina.
Standa vonir til samkvæmt
xregnum að vestan, að þessu
verði komið í framkvæmd ein-
B.vern tíma á hinu jarðeðlis-
íræðilega ári, sem hefst 1657.
Eússar hafa tilkynnt, að þeir
foúizt við að vera tilbúnir með
0 ndirbúning sams konar geim-
rannsókna sinna á miðju ári
1956. Eng'land og Frakkland
yinna einnig af kappi að því
sama, enda kapphlaup stórveld
| anna um geimflug og rannsókn
1 ir að ná hámarki, en hver verð
ur fyrstur til að komast út í
geiminn, veit enginn enn.
SKÆÐASTA VOPNIÐ
Ekki ber á öðru en, að öll
þessi fyrirhöfn og rannsókn sé
gerð í friðsamlegu skyni og
vegna hins mikla framg'angs vís
indanna, sem hún hefur í för
með sér. En hins vegar verður
ekki dreginn dul á það, að hern
aðarlegt gildi þessara tilrauna
er ómetanlegt. Sú þjóð, er fyrst
kemur í framkvæmd þeirri hug
mynd að láta tilbúinn mána
svífa umhverfis jörðina, hefur
þá um leið öðlazt skæðasta vopn
ið og beztu vígstöðuna í hugs-
anlegri styrjöld í framtíðínni.
Halda vísindamenn því fram,
að engar varnir geti staðizt
hryðjur f jarstýrðra skeyta, sem
send séu til jarðarinnar frá slík
um hnetti. Enda þótt allt slíkt
tal virðist fjarri öllum fram-
kvæmdum, skulu menn muna,
að Bandaríkjamenn hafa smíð
að rakettu, sem komst 400 km.
út í geiminn. Þetta gerðist 1949,
og nú er þróunin í þessum efn-
um komin miklurA mun lengra.
En öllu, er snertir árangur þess
ara rannsókna á síðustu árum,
er haldið strengilega leyndu, og
menn geta einungis gizkað á
það, hvað er að gerast í ein-
manalegum eyðimerkursvæð-
um Ameríku og Sovétríkjanna,
þar sem tilraunir fara fram.
Hítstjóri Alþvðublaðsins,
REYKJAVÍK.
AÐ gefnu tilefni vii ég und-
Lrrltaður skipstjóri á b.v. Jóni
.Þorlákssyni taka fram eftirfar-
s.ndi:
Þegar b.v. Jón Þorláksson
var að fara frá Flateyri kl. 0.40
laugardaginn 24. des. yfirgáfu
(5 skipverjanna skipið án míns
íevfis og neituðu að koma um
öorð aftur. Hafði skipið þá leg-
tð á Flateyri í 30 klukkustund
iff og tekið þar vatn og vistir,
ea landaði engum fiski þar.
Hinn 19. des. hafði skipið
andað 20 tonnum af ísfiski á
Þingeyri.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir til þess að fá mennina um
foorð aftur, tókst það ekki. Var
þá ekki annað að gera en að
halda til heimahafnar.
IJm kl. 8.30 að morgni að-
fangadags átti ég tal við Haf-
stein Bergþórsson framkvæmda
stjóra í síma og skýrði honum
frá því hvernig komið var. Var
hann sammála mér um það að
ekki væri annað til fyrir hendi
en að sigla skipinu til Reykja-
víkur,
Eins og að framan greinir
voru hásetarnir þá farnir frá
borði.
Enginn þeirra óskaði eftir því
að fá fár' með skipinu og er al-
gerlega tilhæfulaust að nokkr-
um þeirra hafi verið um það
neitað.
Reykjavík, 28. des. 1955.
Olafur Kristjánsson
skipstjóri,
Samkvæmt kröfu bæjarstjórans í Hafnarfirði verða
fisktrönur í Kapplakrika við Hafnarfjörð eign S.F, Bóbó
og Bessi seldar á opinberu uppboði sem fram fer á staðn-
um fimmtudaginn 12. janúar n.k. kl. 2 e. h.
rrreiðsla við hamarshögg.
Hafnarfirði 28.12 1955.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. ;f
MENN A MANANUM FYRÍR
ALDAMÓT
Norman V. Petersen, vísinda-
maður nokku'jr í New York,
heldur því fram að á næstu 20
árum muni reynast unnt að
láta fyrsta mannlausa geimfar-
ið lenda á tunglinu. Og áður en
þessi öld er liðin, telur hann,
að fyrsta geimfarið, sem hefur
menn innan borðs, muni Isnda
á sama stað. Fjarlægðin tii
tunglsins er um 400 000 km., cn
Marz og Venus, sem næst jörð-
inni svífa um geiminn umhverf
is sólina, eru margfalt lengía í
burtu. Það er því trúlegt, að
fyrsta geimförin til annarra
reikistjarna verði engin hóp-
ferð. g
----------*----------
Lítið drukkið af víni,
en mikið af ávaxta-
safa í Genf.
HVERSU svo sem fer um
endanlegan árangur hins mikia
í'áðherrafundar í Gefn í sumar,
vakti það óskipta eftirtekt, að
hann var talinn sú „þurrasta“
stjórnmálasamkunda, sem um
getur, eftir því sem frétt í Ðag-
ens Nyheter hermir.
Drykkjusiðir ráðamanna
voru nú með allt öðrum hætti
en áður hafði þekkst, svo að hér
var um hina róttækustu breyt-
ingu að ræða.
Ávaxtasafinn var nú allsráð-
andi. Margs konar tegundir á-
vaxtasafa, þó mest bæri á app
elsínu og greipsafanum.
Aldrei áður hefur nein al-
þjóðaráðstefna neytt anna.rs
eins af ávaxtasafa og nú var
gert, sagði einn veitingamann-
anna, sem langvarandi reynslu
hefur haft í því að væta skræl
þurrar kverkar stjórnmála-
manna, sambandi við alþjóðlega
fundi.
Whisky og Martini, sem áður
voru í fremstu röð svaladrykkja
slíkra funda mega muna fifil
sinn fegri — áður fyrr var á-
vaxtasafinn í þriðja sæti, að-
eins á undan mjólkinni, en nú
hefur hann skotið öllum fyrri
uppáhaldsdrykkjum aftur fyrir
sig', bætti veitingamaðurinn
við.
(Áfengisvarnarnefnd
Reykjavíkur).
SAMTÍNINGUR
Að vndánförnu hafa vtsinda-
viennirnir sífedlt verið að finna
upp fleiri og fleiri undralyf við
ölhuu hugsanlegum og óhugsan-
legum sjúkdómitin. Nit kvað.eitt
enn verct í þanrt veginn að lioma á
1 viafkaðinn, sem er svo sterkt, að
1 aðeins alheilhrigðir menn þola að
neyta þess.
❖
Máttitr vanans.
Það var í stórrí langferðafhtg-
vél. Strákhnokki nokkur var alliaf
á hlaitpum á vúlli sætanna með
hlátri og skölhtm. Svo gerðist það
að hann rakst á flugfreyjuna með
þeim afleiðingum að lmn missti
glasabakka og öll glösin fóm í
mél. „Hvers vegna ferðu ekki
héldur út og leikur þér?“ spurði
hún vingjarníega, itm leið og hún
tók að sópa glerbrotunmn saman.
Peron og Eva
HINIR nýju valdhafar Argen
tínu eiga í vandræðum. Svo er
mál með vexti, að ýmsar hjálp-
arstofnunum og sjóðum til
styrktar fátækum var komið á
fót á valdatímum þeirra Perón-
hjóna, og nema eignir þeirra nú
meira en þrem milljörðum
króna, og nú er það spurning-
in, hvort starfrækslu þeirra
skuli haldið áfram eða ekki.
Hjálparstofnun sú, er kennd
er við Evu Perón og starfar að
mannúðar- og líknarmálum al-
mennings, veldur þeim, sem nú
fara með völdin, mestum heila-
brotum. Stjórn Leonardis tók
þessa stofnun þegar í sínar hend
ur og gaf henni heitið „Velferð
arstoínun ríkisins“, en almenn-
ingur nefnir hana ekki annað
en „stofnunina hennar Evu“.
Hin ljóshærða og geðþekka
Eva hófst handa um þessa stofn
un árið 1948. Sjóðurinn var
fyrst og fremst myndaður fyrir
frjáls framlög' verkamanna í
landinu. I dag ræður þessi stofn
un yfir 2,5 milljörðum pesos
eða 3,5 milljörðum íslenzkra
króna og um átján þúsundir
manna stárfa á vegum hennar.
Kvennadeildir verkalýðsfélag
anna halda minningu Evu enn
mjög í heiðri fyrir starf hennar
í þágu hinna fátæku. Hún safn-
aði milljónum pesósa í sjóði
stofnunar sinnar og útbýtti
þeim aftur á meðal hinna fá-
tæku af miklu örlæti, enda
þurfti hún ekki að standa nein-
um opinberum aðilum skil af
fjárreiðunum.
„í ÞÁGU VERKAMANNA •.
Þegar stofnuninni tók að vaxa
íiskur um hrygg starfaði hún
'ekki lengur í þágu hinna fá-
tæku eingöngu, heldur í þágu
! verkalýðsins almennt. Hvert
hvíldarheimilið, sumardvalar-
* gistihúsið, verzlunin og sjúkra-
húsið var reist á eftir öðru víðs
vegar um landið, og þessar
stofnanir seldu síðan verka-
mönnum þjónustu sína við svo
I lágu verði, að allir gátu notfært
sér hana.
| Hins vegar var verkamönn-
um gert að gefa að minnsta
kosti tvenn daglaun til stofn-
unarinnar á ári hverju, — en
samt sem áður trúðu flestir því
'að það væri Eva, sem útvegaði
alla peningana. Þá hafði stofn-
jun þessi og leyfi til að krefja
ýmiss iðnaðarfyrirtæki um
sliatt, auk þess sem hún naut
opinbers styrks árlega til að út-
býta jólagjöfum meðal fátækra.
Allt varð þetta til þess að Eva
og stofnunin nutu almennra
vinsælda í æ ríkari mæli. A6
Evu látinni var stofnunin starf
rækt áfram í nafni hennar.
Þessi risavaxna stofnun er
hinum nýju valdhöíum vand-
ræða viðfangsefni. Um leið og
hætt var að krefja verkamenn.
um framlag var dregið úr stárf-
seminni og þá tóku að sjálf-
sögðu ýmsar óánægjuraddir að
heyrast. Forstöðumaður stofn-
unarinnar nú vill ekkert. láta
upiDskátt um framtíð hennar,.
„Það verður að rannsaka sjúk-
linginn gaumgæfilega áður en
aðgerðin fer fram“, segir hann.
áffym
I DAG er fimmtudagurinn
29. desember 1955.
SRIPAFEÉlTnt
Ríkisskip.
Hekla fer frá Reykjavík 1.
janúar vestur um land til Ak-
ureyrar. Esja fer frá Reykjavík
1. janúar austur um land til Ak
ureyrar. Herðubreið er á 'Aust-
fjörðúm á norðurleið. Skjald-
breið fór frá Reykjavík í gær til
Snæfellsness- og Breiðafjarðar-
hafna, Þyrill er í Reykjavlk.
Skaftfellingur fer frá Reykjavík
í dag til Vestmannaeyja. Baldur
fór frá Reykjavík í gær til Búð-
ardals,
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Flateyri í
gær til Grundarfjarðar, Stykk-
ishólms og þaðan til Hamborgar.
Dettifoss fór frá Gautaborg
27/12 12 til Reykjavíkur. Fjall
foss fór frá Hull 27/12 til Ham-
borgar. Goðafoss fór frá Vent-
spils 27/12 til Gdynia og Rotter
dam. Gullfoss fór frá Reykjavík
27/12 til Kaupmannahafnar.
Lagarfoss kom til Reykjavíku'r
28/12 frá Hull. Reykjafoss fór
frá Reykjavík x gær til ísafjarð
ar, Siglufjarðar, Akureyrar og
Húsáyíkur. Selfoss er í Reykja-
vík. Tröllafoss fór frá Reykja-
vík 26/12 til New Yorlc. Tungu-
foss kom til Reykjavíkur 21/1.2
frá New York.
— * —
Munið
j.ólatrésskemmtun Breiðfirð-
ingafélagsins í ’ dag kl. 2 % og
félagsvistina kl. 8V2 Í Breiðfirð-
ingabúð. Nefndin.
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar.
K. Ó. 100. Friede Briem 100.
Anna 100. ísl. aðalverktakar
5000. S. K. 100. Stína 100. Sam-
einaðir verktakar 10 000. Anna
Pálsdóttir 50. Kristín Thorodd-
sen 100. Harpa h.f. 170. Eggert
Kristjánsson heildverzl. og starfs
fólk 950. H. S. 100. Sveinri Eg-
ilsson h.f. starfsf. 380. Þ. H. 100..
Halldór og Margrét 500. H. Þ.
100. Magnús Kjarna starfsf. 650,
Útvarpið.
19 Tónleikar: Óperettulög.
20.30 Leikritaskáldið Eugene
O’Neill: Halldór Þorsteinsson
kennari flytur erindi um höf-
undinn og velur efni til dag-
-skrárinnar. Leiknir verða
þættir úr leikritum, lesnxr
ritdómar o. fl.
22.10 Náttúrlegir hlutir (Guð-
mundur Kjartansson jarð-
fræðingur).
22.25 Sinfónískir tónleikar.
M U n i ð
jólairésskemmfu®
Breiðfirðingafélagsins í dag
kl. 2,30 — og félagsvistina kl. 9,30 í Breiðfirðinga-
búð. Nefndin,