Alþýðublaðið - 04.01.1956, Side 3

Alþýðublaðið - 04.01.1956, Side 3
Miðvikutlagur 4. janúar 1ÍÍ56 A I fr ý S ub Ia S 13 AfmæEiskveðja yfirvalda tíf aamallar konu GAMLA KONAN fékk á- byrgðarbréf á gamlársdag. Nú, einhver hefur munað eftir af- mælinu mínu á morgun, hugs- aði hún og opnaði bréfið. Vonbrigðin voru sár og mikil. Afmælisgjöf var það ekki, held ur eftirfarandi bréf: „Skrifstofa borgarfógeta. Skattheimta. Nýja Arnarhvoli. Með því að þér skuldið enn eftirtalin gjöld, hefur tollstjór- inn í Reykjavík krafizt þess, að gert verði hið fyrsta lögt.ak hjá yður til tryggingar greiðslu gjaldanna, sem eru: Þinggjald no. 1969 1955 23,00 Þinggjald no. 1938 1954 16,00 Dráttarvextir 2,00 Samtals kr. 41,00 auk áfallandi dráttarvaxta og kostnaðar við lögtakið og eftir- farandi uppboð, ef til kemur. Með tilvísun til framanritaðs ■ og skv. heimiid í 7. gr. laga nr. 29, 16. des. 1885, sbr. 2. gr. laga rtr. 108, 28. des. 1950, ákveður fógeti hér með að byrja lögtaks ■gerðina til tryggingar framan- greindum gjöldum í skrifstofu ■sinni og stefnist yður hér með, að viðlagðri ábyrgð að lögum, til að mæta á 3. hæð í Nýja ■Arnarhvoli, herbergi nr. 11, -sem fyrst og í síðasta lagi 8. nóvbr. n.k. er gerðin verður tekin fyrir. Reykjavík, 1. nóvbr. 1955. Þar sem kvaðningu þessari hefur ekki verið sinnt, verður viðkomandi sóttur af lögregl- unni, hafi hann ekki mætt fyr- ir 5/1 ’56 n.k. Lögreglustjórinn í Rvík, 29/12 ’55. Sigurjón Sigurðsson.“ Hún kom til mín og sagðist j ekki vilja láta lögregluna taka ' sig — hún vildi ekki láta setja sig í tugthúsið. Hún sendi strax þessar krón- ur til Tollstjóraskrifstofunnar, enda þótt hún hefði ekki úr miklu að spila. — En hún get- ur ekki skilið, af hverju hún á að greiða skatta — hún á engar eignir og tekjur hefur hún eng- ar, nema ellilífeyri, sem- þó hrekkur ekki til fyrir vistgjaldi hennar. Þeir eru fleiri en þessi hálf- níræða kona,. sem ekki skilja hvers vegna verið er að elta uppi gamalmenni með hótun um að láta lögregluna sækja það vegna greiðslu á nokkrum krónum — gamalmenni, sem ekkert eiga og engar tekjur hafa, nema ellilaunin. — Ef þetta eignalausa og fátæka fólk á eitthvað að borga — er þá ekki heppilegra að taka þá greiðslu af ellilaununum, eða beint úr bæjarsjóði, heldur en að vera að hrella þessa vesa- (Frh. á 7. síðu.) lliiil'illlilllíillilllliliTf A N-N E S Á II O R N I N Uli VETTVANGUR DAGSINS LEÐUR - GÚMMÍ - STRI6I DÖMUSKÓR, HERRASKÓR, INXISKÓR STRIGASKÓR, BOMSUR, GÚMMÍSTÍGVÉL VEIÐISTÍGVÉL, SJÓSTÍGVÉL HERRA SOKKAR. ALLT NÝJAR VÖRUR MIKILL AFSLÁTTUR ALLT Á AÐ SELJAST KltOSSGÁTA. Nr. 950. Frábær leiksýning — Lifir lengi með manni — Þjóðleikhúsið og stjórn þess — Svartsýnir leið- togar — Merkar ræður nú og fyrir nokltrum ára- tugum — Færri tiiheyrcnclur og minni áhrif. — Of mikið talað — Varnarorðin kafna í mælgi oltkar EFNI JÓNSMESSUNÆTUR- ÐRAUMS Shakespeares er ekki mikið, en leikritið lifir í manni, ógleymanlegt og ilmríkt, maour lítur bjartari augum á tilveruna eftir að hafa séð það, maður fer úr leikhúsinu glaður og: ánægð- ur, ekki aðeins með það, sem • maður hefur séð á sviðinu, held ur og með allt og alla. ÞARNA ER IIIÐ MIKLA gildi fólgið í ritum hins enska önd- vegisskálds. Það fylgir þeim eitt hvað, sem er hafið yfir allt ann- að. Svona eru miklir listamenn, þannig er listin sjálf í allri sinni dýrð, maður getur ekki gert sér . íyllilega grein fyrir því, hvað veldur- þessum áhrifum, maður finnur þau, það er eins og þau endurfæði mann, lyfti manni upp yfir daginn og darraðar- dans hins gráa hversdagsleika. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir hvert listaverkið á l’ætur öðru. Þeg'ar ég sá í deiglunni fannst mér það vera ein tilkomumesta leiksýn- ing, sem ég haföi séð. Nú finnst rnér þetta sama um Jónsmessu- næturdraum. Það er ekki hægt að neita því, jafnvel þó maður sé fullur af illvilja gagnvart stjórnendum Þjóðleikhússins, eins og sumir virðast vera, að stjórn leikhússins hefur tekizt vel. Það hefur sýnt fjölmörg frábær leikrit, sýningar hafa yf iríeitt tekizt mjög vel, og fjöld- inn sækir leikhúsið svo að jafn vel einsdæmi er um nokkra aðra þjóð. Einnig það er órækur vott- ur um það, að vel hefur tekizt. LEIÐTOGAR ÞJÓÐARINNAR virðast vera nokkuð svartsýnir um þessi áramót. Forsætisráð- herrann var það og biskupinn ekki síður. Stjórnmálaleiðtog- arnir voru það líka í áramóta- greinum sínum. Það kenndi einna mestrar bjartsýni og hlýju í áramótaræðu forsetans, — og þess vegna minnist ég á hana síðasta í röðinni, en ekki af því að hún hafi verið sú sízta, þvert á móti. BISKUPINN FLUTTI varn- aðarorð og það gerði forsætis- ráðherra líka. Ég fór að hugsa um það meöan ég hlustaði á biskupinn, að slík ræða hefði þótt mikill viðburður fyrir þrem ur fjórum áratugum, en nú þykja merkar ræður ekki mikl- um tíðindum sæta og þess vegná verða áhrif þeirra ekki mikil. Hvers vegna? Áreiðanlega vegna þess að við tölum of mik- ið. Ræður glymja i eyrum okk- ar á hverjum degi, en þannig var það ekki áður. Þegar Gestur Pálsson flutti fýrirlestur sinn um lífið í Reykjavík, þótti hann mikil tíðindi og skipti mönnum í flokka. Þó að snjall rithöfund- ur og ræðumaður flytti fyrirlest- ur nú um sama éfni, myndi hann ekki vékja neina athygli. Þá tal- aði Gestur í Góðtemplarahúsinu fyrir í rnesta lagi 100 áheyrend- um. Nú mundi hann flytja hann í útvarpið fyrir hundrað þúsund áheyrendum, en áhrifin yrðu hundrað þúsund sinnum minni. Svona er allt breytt. Iíannes á horninu. Lárétt: 1 sólskin, 5 spyrja, 8 hóta, 9 rúmmálseining, sk. st., 10 líffæri, 13 jökull, 15 skor- dýr, 10 gælunafn, 18 svelta. Hér meS er auglýst eftir framSiðsíisf (S við ltosningu á 5 mönnum í stjórn Fi-kimatsveinadeildar S.M.F., ásamt janfmörkum varamcinnunt og 5 fullírúum á aðalfund Sambands matreiðslu a/ framreiðslumanna. Framboðsfrestur er til kl. 12 á hacíegi hinn 20. jan- úar n.k. Framboðslistum með rnir.r. . 10 íullgildum með mælendum, skal skilað í skrifstofu S.M.F. Vonarstræti 8, Lóðrétt: 1 sjóhrakningar, 2 rót, 3 mjúk, 4 mót, 6 bíta, 7 með tölu ef., 11 lágt hljóð, 12 tómt, 14 fjúk, 17 mynni. Lausn á krossgátu nr. 949. Lárétt: 1 tildur, 5 asni, 8 rusl, 9 dl, 10 rjól, 13 es, 15 óðar, 16 Lára, 18 rindi. Lóðrétt: 1 torvelt, 2 iður, 3 las, 4 und, 6 slóð, 7 illra, 11 jór, 12 l'and, 13 sár, 17 an. í síðasta lagi fyrir kl. 12, 20. janúar. Kjörst jórn.m. Móðir okkar GUÐLAUG S. GUÐBRANDSÐÓ/TIR andaðist að Elli- og hjúkrunafheimílinu Grund. aðfaranótt 2. janúar. Guðbjörg BencdiktsdóttG . Óskar Benediktsson MARGRÉT ÓLAFSÐÓTTiK andaðist 1. janúar síðast liðinn. að Fýrir hönd vandamanna Vigfús .Vigfússon. isBmsitiíiiiBiitiasntiiisuM

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.