Alþýðublaðið - 04.01.1956, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 4. janúar 1956
skjóit við
Gífisrleg ýtlánsaukning og minnkandi
sparifjársmyndun einkenna þróunina
„ÞRÓUNIN í PENINGAMÁLUM hefur verið mjög óhag-
stæð á þessu ári (árinu 1955). Hin gífurlega útlánaaukning hcf
ur enn haldið áfram síðustu mánuði en jafnframt hafa spari-
fjárinnstæður lækkað. Ut á við er aðstaða bankanna orðinn
mjög erfið og eru þeir komnir í miklar skuldir við útlönd“.
HUGH GAITSKELL formað-
uar þingfjokks brezka Alþýðu-
f lokksins gékk í fyrradag á fund
Anthony Eden forsætisráðherra
'Bretlands til þess að ræða við
liann um vopnasendingar þær,
ar komizt hefur upp að átt liafi
sér stað frá Bretlandi til Egypta
Jlancls.
Fór Gaitskell fram á það við
Eden, að þing yrði kvatt saman
út af atburðum þessum. Kom
brezka stjórnin saman til fund-
ar út af málum þessum í gær.
Gaitskell mun hafa krafizt þess
að þeðar yrði tekið fyrir vopna-
söluna til Egyptalands.
/ASV leyfir skráningu á
skip, þóff samningar
séu úfrunnir.
Fregn til Alþýðublaðsins
.ÍSAFIRÐI í gær.
TOGARARNIR héðan eru
báðir farnir á veiðar og róðrar
'báta eru að hefjast aftur eftir
,'hátíðirnar, en veður hefur verið
farslæmt hér síðan fyrir hátíð-
ir. Þótt Alþýðusamband Vest-
fjarða hafi sagt upp öllum samn
ingum, bæði hinum almenna
’kjarasamningi og fiskverðs-
samningi, hefur það ekki boðað
■verkfall og leyft skráningu á
bátana, þótt samningarnir séu
•ekki útrunnir. Var ágætur afli
hér fyrir jólin, komst allt upp
:í .12 tonn á bát í róðri.
S
s na Mnuievn í
s
\Fregn til Alþýðublaðsins S
S PATREKSFIRÐI í gær. S
Þannig farast Fjármálatíðind
um orð í nýútkomnu hefti í
grein um peningamarkaðinn.
SLÆMAR AFLEIÐINGAR
OFÞENNSLU.
Ritið heldur áfram á þessa
leið um þróunina í peningamál-
unum:
Gjaldeyrisstaðan batnaði ör-
lítið í október og nóvember, en
hvergi nærri eins mikið og eðli-
legt væri, þar sem gjaldeyris-
tekjurnar eru yfirleitt miklar
haustmánuðina vegna mikils
j útflutnings. I nóvember var að-
staða bankanna út á við 128 mill
ijónir kr. lakari en á sama tíma
|á síðasta ári. Er þessi þróun
' bein afleiðing þeirrar ofþennslu
Uem ríkt hefur í efnahagsmál-
um að undanförnu.
VERSNANDI GJALJl-
EYRISSTAÐA.
Sé litið á reikninga seðla-
banskans, er tvennt sérstaklega
áberandi, annars vegar versn-
andi gjaldeyrisstaða og hins
vegar auknar skuldir viðskipta-
bankanna. Endurkeyptir víxlar
hafa aukizt geysilega á þessu
ári og voru í nóvemberlok 145
millj. kr. hærri en á sama tíma
í fyrra. Hækkunin satfar af því,
að nú eru allmiklu meiri birgðir
í landinu bæði af útflutnings-
vörum og landbúnaðarafurðum.
Jafnframt hafa aðrar skuldir
viðskiptabankanna við seðla-
bankann aukizt mjög. I nóvem-
berlok voru nettóskuldir banka
og sparisjóða í seðlabankanum
91 millj. kr., en aðeins 9 millj.
kr. á sama tíma á síðasta ári.
Er þetta mjög alvarleg þróun,
sem ekki þarf aðeins að stöðva,
(heldur snúa algjörlega við, ef
j nokkur von á að vera til þess
. að koma gjaldeyris- og peninga
málum þjóðarinnar í rétt horf.
AUKNAR INNSjTÆÐUR
RÍKISSJÓÐS.
Aðstaða ríkissjóðs og ríkis-
stofnana gagnvart seðlabank-
anum hefur batnað á árinu.
Reikningsskuldir hafa aukizt
um 17 millj. kr., en innstæður
jafnframt hækkað um 46 millj.
kr. Er þetta svo að segja eina
bjarta hlið þróunarinnar í reikn
ingum seðlabankans. Hinir
auknu innstæður ríkissjóðs og
ríkisstofnana eru fyrst og
fremst að þakka góðri rekstrar-
afkomu ríkissjóðs á árinu. Skipt
ir það mjög miklu máli, að sá
greiðsluafgangur, sem verða
greiðsluafgangur. sem verða
kann nú um áramótin, verði lát
inn standa áfram óhreyfður. en
ekki veitt út í hagkerfið á ný í
stóraukinni peningaveltu.
STÓRFÉ TIL RAFORKU-
FRAMKVÆMDA.
Þess ber að geta í þessu sam-
bandi, að viðskiptabankarnir
hafa lánað stórfé á þessu ári til
raforkuframkvæmda og íbúðar
lána fyrir atbeina ríkisvalds- J
ins. Námu þessar lánveitingar t
þremur tugum milljóna frá árs-1
bvrjun til nóvemberloka, og j
hafa þær átt þátt í versnandi
stöðu viðskiptabankanna gagn-
vart seðlabankanum.
400 MILLJ. KR. ÚTLÁNA-
AUKNING.
Útlánaaukning bankanna á i
þessu ári hefur verið meiri en
nokkru sinni áður. Frá upphafi j
ársins til nóvemberloka nam
hún 400 millj. kr., en þá voru
útlánin orðin 343 millj. kr.
meiri en á sama tíma í fyrra.
Útlánahækkunin stafar að all-
miklu leyti af auknum afurða-
lánum vegna meiri framleiðslu
og birgða bæði í sjávarútvegi og
landbúnaði. Einnig hafa útlán
aukizt til opinberra aðila og til
olíufélaga vegna vaxandi inn-
flutningsþarfa.
Skák Friðriks fór í bið
HASTINGS í gær.
Darga vann Persitz, en gerði
jafntefli við Fullcr. í sjöttu um-
ferð vann Ivkov Darga, en Tai-
manov og Korschnoi gerðu jafn
tefli, sömuleiðis Penrose og
Fuller. Skák Friðriks og Golom
beks fór í bið. — IN.GI.
Staðan eftir 6 umferðir er þá
þessi: Korschnoi er efstur með
41-á vinning, Darga og Ivkov
næstir með 4 vinninga og Frið-
rik þriðji með 3 vinninga og
eina biðskák.
Plötur fuku aí húsum og glugg
brotnuðu á Straumnessfjalli
Framkvæmdir að hefjast á ný í Aðalvík,
Allir vegir ófærir í grennd við
ísafjarðarkaupstað
Fregn til Alþýðublaðsins ÍSAFIRÐI í gær.
VONZKUVEÐUR með ofsaroki hefur verið hér undanfarna
tvo daga. Hefur veðurhæðin verið slík, að plötur munu hafa fok
ið af liúsi á Straumnessfjalli, þar sem unnið er að byggingia
radarstöðvarinnar. Þá munu hafa brotnað gluggar og lftilsháít
ar skemmdir hafa orðið á íbúðarhúsi, sem starfsmenn Samein-
aðra verktalca búa í í Aðalvík.
Snjóalög munu vera mikil í
Aðalvík og hefur verið miklum
vandkvæðum bundið að halda
uppi samgöngum milli fjallsins
og víkurinnar. Hefur verið not-
uð stór og sterk ýta til þess, en
ekki hefur hún komið að notum
vegna þess, hve mikill snjórinn
er. Menn eru nú að fara af stað
aftur vestur í Aðalvík til starfa
á ný.
ALLIR VEGIR ÓFÆRIR.
Hér í grenndinni hafa allir
vegir verið ófærir undanfarið,
enda hefur snjóað feikilega hér.
Hefur færðin verið svo slæm,
að það var meira að segja ófært
út í Hnífsdal yfir hátíðarnar.
B.S.!
Hafnarfirði
SPILAKVÖLD Alþýðu-*
f lokksfélaganna í Hnfnar-»
firði hefjast á ný eftir jólin !
annað kvöld, fimmtudaginn,s
kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu við»
Strandgötu. Er það spila-1.
kvöld síðasta kvöldið í heild ;
arkeppninni. j»
Spilakvöldin voru mjög»
vel sótt og vinsæl fyrir jólin,í
og er ekki að efa að svo verð •
ur áfram. »
Snjóbíll flytur skólafólk ausfur
og vestur yfir Vaðlaheiði
12 stiga hiti á Akureyri um 6 leytið
í gær, frost komið um miðnætti
Fregn til Alþýðuhlaðsins
AKUREYRI í gær.
ASAHLÁKU gerði hér í geer
og voru hitahreytingar óvenju
snöggar. Var mældur hér 12
stiga hiti um 6 leytið í gær, en
um miðnætti var hitinn aftur
kominn niður fyrir frostmark
og komið f júk. Á meðan á hlák-
unni stóð óð allt út hér í vatns-
elg og krapi, en í dag er ástand-
ið hins vegar orðið spakt á ný.
Færðin er enn mjög þung hér
í nágrenninu og t.d. ekki fært
nema snjóbíl austur yfir Vaðla-
heiði. Bíður fjöldi manns hér á
Akureyri eftir fari austur að
Laugum í skólana þar, héraðs-
skólann og húsmæðraskólann.
Sömuleiðis bíður fjöldi manns
MJÓLK hefur verið skömmt?
^uð hér síðan 1. október. Hef-^
( ur mjólk verið flutt hingað(
C með strandferðaskipum fráí
Akureyri og með þeirri (
Cmjólk, sem fæst af bæjunums
j hér í grenndinni hefur rætztS
Smiklu betur úr mjólkurmálÁ
‘ um staðarins, en -horfði íS
S haust. Hefur yfirleitt alltaf)
i verið hægt að láta hálfan lít-^
S cr á inann. ^
Enn vantar lán til sementsverksmii
unnar svo að framkvæmdir geli haíizt
fvrir austan, sem líkt er ástatt
um, þarf að komast í skóla hér„
Fór snjóbíllinn austur í gær og
flutti fullfermi í báðum leiðum,
og lagði hann af stað aftur aust
ur snemma í morgun og verðui’
ferðunum haldið áfram í dag
eftir því sem tími og færð leyf-
ir. |
Ekki hefur orðið vart neinn-
ar mænuveiki í Akureyrarum-
dæmi, að því er héraðslæknir-
inn segir, hins vegar mun veik-
innar eitthvað hafa orðið vart
úti á Dalvík og í Svarfaðardal,
B.S.
er a mann.
Veður var leiðinlegt hér á
1 gamlárskvöld og haldizt svo^
síðan. Færð er ill, enda mikl ^
ir svellbunkar. — Á.P. ^
ENN eru framkvæmdir við
húsbyggingar sementsverk-
smiðjunnar á Akranesi ekki
hafnar. Hins vegar er lokið við
j að byggja undirstöður að
stærsta húsi verksmiðjunnar.
Verður hús þetta 100 þús. rúm-
metrar að stærð og því lang-
stærsta hús á íslandi í eigu
Islendinga.
LANIN VANTAR.
í grein Páls S. Pálssonar
framkvæmdastjóra Félags ísl.
iðnrekenda um iðnaðinn 1955
segir hann um sementsverk-
smiðjuna „að nú upp úr ára-
mótunum verði hafizt handa
af fullum krafti við sjálfar hús
byggingarnar“. Enn bólár þó
ekkert á þessum framkvæmd-
nm og að því er Alþýðublaðið
liefur bezt fregnað og liggja
þar mjög cðlilegar orsakir til
grundvallar: Ennþá vantar
stærstu lánin til verksmiðj-
unnar, svo að framkvæmdir
geti hafizt af krafti. Hefði ekki
sakað að geta þess um leið og
fullyrt er að framkvæmdir
hefjist um áramót, að skilyrði
þess að svo geti orðið sé það,
að lánin fáist í tæka tíð.
Vel heppnuð jólatrés-
skemmtun
j ALÞÝÐFLOKKSFÉLAG
Reykjavikur hólt jólatrésfagnað
í Iðnó í gær. Var þar samai*
kominn mikill fjöldi barna og
var þetta fjölmennasta jólatrés-
skemmtun félagsins um langí
skeið.
Sérstakan fögnuð barnanna
vakti leikþáttur, þar sem ýmis
villidýr, Ijón, tigrisdýr, björn
og api áttu í höggi við Tarzan,
Einnig komu fram 3 jólasvein-
ar, bjúgnakrækir, gáttaþefur og
hurðarskellir og höfðu börnin
mikla skemmtun af. Þá var
sýnd prýðileg kvikmynd. Arn-
grímur Kristjánsson formaður
skemmtinefndar félagsins
stýrði skemmtuninni.