Alþýðublaðið - 07.01.1956, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 07.01.1956, Blaðsíða 6
AlþýSublaSIS Laugardagur 7. janúar 1956 Vaskir bræður (All the Brothers Were Valiant). Ný spennandi bandarísk stórmynd í litum, gerð eftir frægri skáldsögu Bens Ames Williams. Aðalhhitverk: Robert Táylor Stewart Granger Ann Blyth. Sýttd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð bömum innan 14 ára AUSTUR- BÆJAR BIÖ Lucretia Borgia Heimsfræg, ný, frönsk stór- mynd í eðlilegum litum, seon er talin einhver stór- fenglegasta kvikmynd Frakka hin síðari ár. í flest- óm löndum, þar sem þessi kvibmynd hefur verið sýnd, hafa verið klipptir kaflar úr feenni, en hér verður hún sýnd óstytt. Banskur skýr- iögartexti. Marííne Carol Petro Armenariz Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HVÍT J ÓL WHITE CHRISTMAS ffý amerísk stórmynd í lit- m. Tónlist: Irving Berlin. Leikstjóri: Miekael Eurtiz. Þetta er frábærlega skemmti leg mynd, sem alls staðar hefur hlotið gífurlega að- sókn. Aðalhlutverk: Rittg Crosby Danny Kaye Rosemary Elonney Sýnd kl. 5, 7 og 9,15 — 6444 — Skrímslið í Svartalóni (The Greture fram Black Lagoon) Ný, spennandi. amerísk vís- Lndaævintíramynd (Science Fiction). Richard Carlson Júlía Adams Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNAR- FJARÐARBtÓ — 9249 — R E G í N A REGINA AMSTETTEN Ný þýzk úrvalskvikmynd. Aðalhlutverkið leikur hin fræga þýzka. leikkona Luise Ullrích. Myndin hefur ekki verið sýnd áður hér á Iandí. Danskur texti. Sýnd kl. 7 og 9. NYJA BfÓ — 1544 — Á hjarðmarmaslóðum. („Way of a Gaucho“) Óvenju spennandi, ævintýra rík og viðburðahröð ný ame rísk litmynd, frá sléttum Argentínu. Aðalhlutverk: Rory Calmoun Gene Tierney Bönnuð börnum yngri eu 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLIBfÓ — 1182 — RORINSON CRUSOE Aðalhlutverk: Dan O’Heríiby James Fernanáez Sýnd kl. 5, 7 og 9. Aukamynd: Frá Nóbelsverðlauna- hátíðinni í Síokkhóimi. Hér kemur verðlaunamynd- in ársins 1954 — Á eyrirmi (On the Wateríront) Amerísk stórmynd, sem all- ir hafa beðið eftír. Mynd þessi hefur fengið 8. heið- arsverðlaun og var kosin bezta ameríska r. T.din árið 1954. Hefur alls staðar vak- ið mikla athygli Aðalhlutverkið fer hinn rinsæli leikari með, Marlou Bratiáo Eva Maric Saint Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9,10 tm WÓDLEIKHOSID S Jónsmessudraumur $ eftir ^ IViIliam Sbakespeare. S sýning í kvöld kl. 20.00 S S Uppselt. S S í deiglunni • sýning sunnudag kl. 20.00 • Næst síðasta sinn. S s Aðgöngumiðasalan opin ) frá kl. 13.15 til 20. Tekið á Smóti pöntunum. 5 Sími 8-2345, tvær línur. S ^ Pantanir sækist daginn (fyrir sýningardag, annais S seldar öðrum. í LEKFÉIAG reykjavíkur: Kjarnorka og kvenhylli Gamanleikur eftir Agnar Þórðarson. Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala í dag kl. 16—19 og frá kl. 14 á’morg- un. — Sími 3191. Fáar sýningar eftir. s Filmía sýnir áströlsku kvikmynd- ma iOver fanders í dag og á morgun. Sýningarskrá verður aí- > (hent við innganginn. Ötbreiðið JtlþýSublaSiS lœBnST" HANS LYNGBY JEPSEN: Drottning Nílar iiir^-'’' 76. DAGUR nnnifB •y«y“*y*vv*. Herra $ 39 kr. settið S Síðar buxur 24,50 ^ Sokkar frá 8,50 Toledo Fischersundi. í salnum eru dauf og skipta í sífellu um lit. Skemmtiatriðin fara fram hvert á eftir öðru af öryggi og festu og samkvæmt nákvæmari áætlun. Dansarar og látbragðsleikarar flytja tákn- ræna leikþætti. Milli þátta standa þeir í skipulögðum röðum eins og fylkingar hermanna; við lítið borð á milli raðanna sit- ur ungur maður með svart, hrokkið hár og hreyfir henduriiar eins og sé hann að skrifa langa lista. Er það satt, Marcus Antoníus, tekur Kleópatra til máls, að meira en tvö þúsund nöfn göfugra Rómverja hafi staðið á listunum, sem þið skrifuðuð þið Laviníus? Er það satt að langflestir þeirra hafi misst lífið, æru og eignir, eftir að þið Oktavían náðuð Róm á ykkar vald? Skál er borin inn í salinn og látin á borðið fyrir framan „skrifarann“ á miðju gólfi. Dansarar og látbragðsleikarar setj- ast við langt borð; fyrir því miðju situr gervilegur maður og við hlið hans dansmær nokkur með afskræmdum, djöfullegum andlitsdráttum. Er það satt, Marcus Antoníus, heldur Kleópatra áfram, að þú hafir látið bera höfuð spekingsins og ræðusnillingSins Ciceros alblóðugt inn í veizlusalinn, þar sem aftaka hans var hátíðleg haldin? Er það satt, að Fulvía, sem þá var kona þín, hafi gegnumstungið tungu hans með nálum og hrækt á haúa? Getur það verið satt, að þú, sigurvegarinn, hafir hætt mót- stöðumenn þína látna svo svívirðilega? Hávaxin, ljóshærð dansmær stígur fram, stendur ein sér á miðju gólfi, aðrir leikarar mynda hálfhring umhverfis haria. Með hreyfingum, sem tákna djúpa sorg, nálgast hún Marcus Antoníus, fellur á kné fyrir framan hann, eins og biðjist hún vægðar, teygir handleggi í átt til hans, stendur á fætur, fellur á ný á kné og hylur andlitið í höndum sér. Sjá, Marcus Antoníus! Hin ljósa Oktavía bíður þín. Hún biður þig koma á ný til Rómar, til þess að þú getir haldið á- fram að drottna yfir ríkinu ásamt bróður hennar. Hún er fög- ur og bíður þess eins að geta umvafið þig ljósum örmum! Að loknu hverju atriði hefur Marcus Antoníus tæmt Bik- ar sinn og þegar í stað rétt hann fram til þess að fá hann fyllt- an á ný. En þegar hér er komið, fleygir hann bikarnum í gólf- ið með þvílíku afli, að ein marmaraflísin sundrast og brotin fljúga í ýmsar áttir. Svo stendur hann á fætur og yfirgefur salinn. En þá hina sömu nótt, þegar kyrrð ríkir á ný í konungs- höllinni, gengur hann til herbergja drottningar. Varðmaður- inn, sem blundar fyrir framan dyr hennar, verður hans var, en Marcus Antoníus fleygir honum frá sér. Kleópatra er vak- andi; hún situr á rúmi sínu, veizluklædd, eins og hún bíði hans. Þú hefur spottað mig í augsýn minna eigin manna! Þú hefur af ráðnum hug valdið því, að nú er hlegið að mér ,um þvert og endilangt Egyptaland! Og þú! Var það ekki þú, sem spottaðir þá, sem eftir þér beið! Hefur þú aldrei gert neina þá mannveru hlægilega, sem bar traust til þín? Gott, segir hann ákveðinn. Þá er jafnt á komið með okkur, og við getum skilið að skiptum. Hún stendur á fætur, þau standa hvort andspænis öðru, eins og víghanar búnir til bardaga. Já, segir hún. Loksins! Hann finnur hvernig reiðin sýður í honum, hvernig reiði hennar æsir hann, og samtímis finnur hann fegurð hennar kalla, hann finnur sem straum fara um líkama sinn og hendur hans taka að skjálfa. Lampinn hjá speglinum að baki hennar var-par á hana daufu ljósi, hún er grannvaxin og ógnarsterk. Fögur og grönn og gædd andlegum og líkamlegum þrótti, sem hæfa honum. / Eg sigli á morgun, segir hann. Vinir þínir munu fagna komu þinni! En hann veit þegar, að hann getur ekki yfirgefið hana, og það veit hún líka. Hvert augnablik, sem líður, gerir slíkt enn ómögulegra, en hvorugt vill verða fyrri til að viðurkenna það, hvorugt þeirra vill láta veikleika á sér merkja. En skyndilega og jafn- snemma hafa bæði stigið eitt skref í áttina til hins, þau standa

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.