Alþýðublaðið - 28.01.1956, Blaðsíða 8
’/íSa að ai landinu.
VERKAMAXXAFÉLAGIÐ DAGSBRÚX átti fimmtíu ára
ritmseli í fyrradag og hélt í því tilefni sérstakan hátiðarfumi í
Austurbæjarbíói. Var húsfyllir á fundinum. I gærkvöldi var
'.fmælisins minnzt í útvarpinu og lýkur hátíðahöklunum veg-na
afmæiis félagsins með samsæti í kvöld að Hótel Borg.
Hátíðafundurinn í Austur-
ijæjarbíói hófst með. því, að
lúðrasveitin Svanur. lék, mokk-
nr lög undir stjórn Káris O.
Funóífss.onar tónskálds. Þá
setti formaður félagsins, Hann-
es M. Stephensen, fundinn með
stuttú ávarpi og minntist sér-
.í caklega þeirrar stundar fvrir
!:0 árúm, er stofnfundur Dags-
brúnar var settur og haldinn.
Pétur Pétursson flutti erindi
eftir Sverri Kristjánsson um
• icofnun og störf Dagsbrúnar,
en síðan söng Söngfélag verka
lýðssamtakanna í Kevkjavík
undir ' stjórn Guðmundar Jó-
iiannssonar. Meðal laga þeirra,
er kórinn söng. voru Dagsbrún-
arljóð, er' Þorsteinn Gíslason
orti í -tilefni af 5 ára félagsins
1911. Lokalag kórsins var helg-
að Dagsbrún 50 ára. Er ljóðið
eftir Þorstein Valdimarsson og
J.agið eftir Sigursvein D. Krist-
insson, en einsöng í laginu
•'öng Guðmundur Jónsson óp-
erusöngvari.
AFHENDING
HEIÐURSMERKJA
Á fundinum var tilkynnt,
'sö í sérstöku hófi í Oddfellow-
arsveig. A fundinum voru heið-
ursmerki félagsins afhent Sig-
ur.ði Guðnasyni. sem var for-
maður félagsins í 12 ár, og Ottó
N. Þorlákssvni. -fyrir. brautryðj
endastörf. Fluttu þeir Sigurður
og Ottó stutt ávörp. Ólafi Frið-
rikssyni fvrrv. ritstjóra var
einnig veitt heiðursmerkið, en
gat ekki komið því við að mæta
til - að taka við því. En Ólafur
er brautryðjandi hinnar skipu
lögðu verkalýðshreyfingar á ís-
landi, vann að stofnun ASÍ
1916 og að stofnun Hásetafé-
lagsins sama ár og var um tíma
[ varaformaður Dagsbrúnar. Þess
ir þrír menn voru síðan hyíltir.
! Þá minntist formaður látinna
brautryðjenda og risu menn úr
sætum í virðingarskyni.
AFHENT BÓKASAFN
Þá tók til máls frú Guðrún
Pálsdóttir, ekkja Héðans Valdi
marssonar, og las hún upp
gjafabréf, en með því afhenti
hún Dagsbrún að gjöf allt bóka
og blaðasafn Héðins, sem mun
vera fullkomnasta blaða- og
tímaritasafn í einstaklingseigu
hér á landi. Engar kvaðir fylgja
gjöfinni, en óskir um, að safnið
Laugardagur 28. janúar
Ríkisstjórnin greiði þegar van-
goldinn hluta ríkisins af kostnai
við framkvæmdir sveitarfélaga
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR Sambands íslenzkra sveitar-
félaga, sem nýlokið er, samþykkti m, a. að skora á ríkisstjóru
og Alþingi að greiða hið fyrsta vangoldinn hluta ríkisins at'
kostnaði við ýmsar framkvæmdir sveitarfélaganna, svo seh»
hafnai-mannvirki, skólabyggingar, sjúkrahúshyggingar, íþrótia-
mannvirki o. s. frv.
Bókagjöfin afhent.
félaginu er tilkynnt, að því hafi
verið veitt byggingarlóð við
Skólavörðutorg, á horni Frakka
stígs, þar sem nú stendur List-
vinahúsið og efstu hús við
Frakkastíg. Á að nota lóðina
undir félagsheimili. Þá voru í
bréfi borgarstjóra árnaðaróskir
til félagsins. Tíðindum þessum
var tekið með miklum fögnuði.
Þá var tilkynnt, að Mjólkur-
fræðingafélag Islands og
Þvottakvennafélagið Freyja
hefðu gefið í húsbyggingarsjóð,
er hefði verið stofnaður í til-
efni af afmælinu.
ÁVÖRP OG GJAFIR
Þorsteinn Ö. Stephensen las
kvæði, en síðan fluttu Hanni
bal Valdimarsson, Björn Bjarna
son, Hermann Guðmundsson
og Björn Jónsson stutt ávörp.
Færði Hermann Dagsbrún
fundahamar, gerðan af Rík-
harði Jónssyni, að gjöf frá Hlíf
I Framhald á 7. síðu.
Söngfélag verkalýðsfélaganna í Reykjavík.
b.úsinu fyrr um daginn hefði
þeim 17 stofnendum félagsins,
sem enn eru á lífi og verið hafa
meðlimir alla tíð, yerið veitt
þeiðursmerki félagsins, sem að-
alfundur þess fyrir 2 árum
befði ákveðið að láta gera í til-
«fni af 50 ára afmælinu. Heið-
ursmerki þetta er úr gulli með
félagsmerkinu umvöfðu lárvið-
fari aldrei úr eigu félagsins og
verði haft á lesstofu, en ekki til
útlána. Formaður Dagsbrúnar
þakkaði.
BYGGINGARLÓÐ
Því næst las formaður hús-
nefndar félagsins upp bréf frá
borgarstjóra, er borizt hafði fé
laginu þá um daginn, þar sem
Þíðan hæg, svo að
Hvítá flæðir ekki.
ÞÍÐVIÐRIÐ hefur komið svo
hægt, að Hvítá hreyfði sig ekk
ert í gær. Er vindurinn aust-
lægur óg þurr, en hefði komið
stórrigning er hætt við, að stór
flóð hefði komið í ána. Er áin
ein lirönn á tveggja kílómetra
kafla, en virðist vatnslítil og
rennur undir ísnum. Hefur
blaðið þessar upplýsingar eftir
Ágústi Þorvaldssyni, bónda á
Brúnastöðum, en bær hans
stendur rétt á árbakkanum.
Blaðið hafði einnig tal af
Hermanni Þorsteinssyni í Lang
holti og kvað hann fénað haia
verið á gjöf síðan snemma. í
desember.
Fundurinn gerði margar aðr-
ar samþykktir um málefni
Sveitarfélaga. Fara þær hér á
eftir:
„Fulltrúaráðsfundurinn felur
stjórn sambandsins að hafa á-
fram forgöngu um það, að
reynt verði að samræma launa-
kjör fastra starfsmanna kaup-
staða og kauptúna og fá um
það samvinnu við stjórn Banda
lags starfsmanna ríkis og bæja.
I Jafnframt felur fundurinn
stjórninni að rannsaka hver nú
eru raunveruleg launakjör odd
vita og sveitarstjóra og leggja
niðurstöður þeirrar athugunar
fyrir næsta fultrúaráðsfund, á-
samt tillögum um frambúðar-
lausn á launakjörum þeirra.
Að gefnu tilefni telur fundur
! inn einnig rétt, að stjórnin
Ikynni sér jafnframt launakjör
hreppstjóra, og leggi fyrir
næsta fund skýrslu um það
mál,“
I .
BOKHALD
OG ENDURSKOÐUN
I „Fulltrúaráðsfundurinn sam-
þykkir að fela stjórn sambands
ins að vinna áfram að því, að
sett verði löggjöf um bókhald
kaupstaða, hreppa og sýslufé-
laga og endurskoðun reikninga
þeirra, og lagt verði til grund-
vallar frumvarp það, sem fyrir
fundinum liggur. Þó telur fund
urinn rétt að gerðar verði á því
nokkrar breytingar.“
ENDURSKOÐUN SVEITAR-
STJÓRNARLAGANNA
„Fulltrúaráðsfundurinn árétt
ar samþykkt síðasta landsþings
i Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga um endurskoðun sveitar-
! stjórnarlaganna og felur stjóm
| sambandsins að vinna að fram-
'gangi þess máls við alþingi og
ríkisstjórn."
UM ATVINNULEYSIS-
TRYGGINGAR
„Þar sem enn liggur ekki
fyrir fullkomið frumvarp una
| atvinnuleysistryggingar, telur
fundurinn ekki rétt að gera um
þetta mál ákveðnar tillögur, en
felur stjórn sambandsins að
fylgjast með lagasetningunní.
{sem í undirbúningi er, sérstak-
lega með það fyrir augum að'
tryggt verði að sveitarstjórnir
á hverjum stað fái fulltrúa í
nefndir þær, sem úthluta eiga
atvinnuleysisstyrkjunum, og að
Samband íslenzkra sveitarfé-
laga tilnefni einn mann í sjóðs
stjórnina.“
ALMANNATRYGGINGAR
„Fulltrúaráðsfundurinn sam
þykkir að leggja til, að 24. gr.
j frumvarpsins um endurskoðun
I almannatrygginga breytist
þannig:
| a. Ríkissjóður 37% í stað
'33%.
I c. Sveitarsjóðir 15% í stað
' 19%.
Fulltrúaráðsfundurinn telur
að sú breyting, sem felst í þvi
að fella niður 27. og 28. gr. nú-
gildandi almannatryggingalaga
sé til óhagræðis fyrir bótaþega
og sveitarfélögin og mótmælir
því þeirra breytingu.
Framhald á 7. síðu.
Unnið er að rannsókn á jarðskjálftahœttu og
áhrifum jarðskjálfta á byggingar
NEFND þriggja sérfra;ð-
iinga vinnur nú að öflun upp-
llýsinga um jarðskjálftasvæði
og jarðskjálftahættu á íslandi
og áhrif jarðskjálfta á bygg-
iingar. Starfar nefndin á veg-
um rannsóknarráðs ríkisins,
en í henni eiga sæti Eysteinn
'Tryggvason, umsjónarmaður
jarðskjálftamælanna, dr. Sig-
urður Þórarinsson og Sigurð •
ur Thoroddsen verkfræðingur.
Nefndin hefur til þessa ekki
Jaaft nein fjárráð, en hefur nú
ritað bæjarráði í ósk um styrk
til rannsóknanna. Mun nefnd-
in að lpknum rannsóknum eí-
laust semja álitsgerð og
leggja 'fram tillögur um þetta
efni. Hljóta íslendingar að láta
sig þetta nokkru skipta þar eð
ísland mun vera mesta jarð-
skjálftaland Evrópu að hluta
af Balkanskaga undanteknum.
Rannsaka jarðskjálfta-
svæði.
Annað aðalhlutverk nefntí-
arinnar er að safna gögnum
um jarðskjálfta hér á landi og
jarðskjálftasvæði er gert með
því að rannsaka sagnir um
jarðskjálfta fyrr á tímum og
ekki sí^t að vinna úr jarð-
skjálftamælingum, sem hér
hafa verið gerðar. Fyrstu jarð-
skjálftamælingar voru frám-
kvæmdar á árunum 1909 til
1914, en takmörkuð gögn eru
til um þær. 1926 hóf Veður-
stofan jarðskjálftamælingar, en
Framhald á 7, síðu.
Ekki batnar Bergi enn
Léí prenta upp frumvarp s|,
en gleymdi helmingnum aí
viðbótinni, sem gera þurffi
Á ÞAD var bent hér í blaðinu í gær, að flautaþyrli
Þjóðvarnar, Bergi Sigurhjörnssyni, ætlaði seint að fara
fram. Ekki lét maðurinn langt um líða að hann satin-
aði þessi orð blaðsins, því að hann lét prenta upp frum-
' varp sitt um eignar- eða leigunám fiskvinnslustöðva og
flutningaskipa og lét nú bæta inn í það heimild til handa
ríkisstjórninni til þess að reka umrædd fyrirtæki og skip,
en honum láðizt að setja inn í það heimild handa ríkis-
stjórninni til að nota fé til þess að reka þau. Er nú allt
útlit fyrir, að Bergur verði að fara enn á stúfana og láfa
prenta upp frumvarpið. Fer þetta að verða ein meui-
háttar „kómedía", að sjá Berg á harðahlaupum með við-
bætur við frumvarp í hvert skipti, sem því er útbýtt
á ný.