Alþýðublaðið - 22.03.1956, Blaðsíða 2
AlþýSublaSfð
Fimmtudagur 22. marz 195S.
Frá Same'mu ðu þjóðunum.
TÍU MILLJÓN börn hafa nú
verið bólusett gegn lömunar-
„veiki (polío) og þegar frá eru
dregin tvö óhöpp, sem bæði áttu
sér stað í Bandaríkjunum, bend
ir ekkert til að bólusetningin
geti verið hættuleg, ef rétt er
með farið. Reynsla, sem þegar
hefur fengizt í Bandaríkjunum,
Danmörku, Kanada, Vestur-
Þýzkalandi og Suður-Afríku,
hefur sannað, að „bólusetning
gegn lömunarveiki gefst vel
undir vissum kringumstæðinn
meðal skólabarna á aldrinum
6—10 ára“.
Tilvitnunin er tekin úr
skýrslu, sem 12 heimskunnir
iæknar og vísindamenn hafa
samið um revnslu þá, sem feng-
izt hefur við bólusetningu gegn
iömunarveiki. Þessir læknar
komu saman í Karelinsku stofn
-uninni í Stokkhólmi í haust til
þess að bera saman bækur sín-
ar, en ráðstefnan var haldin á
vegum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
únarinnar (WHO). Skal hér
lauslega vikið að nokkrum nið-
urstöðum skýrslunnar, sem nefn
ist „Poliomyelitis Vaccination,
A Preliminary Review“. Það er
skýrt fram tekið í skýrslunni,
aS þar sem talað er um bólu-
setJiingu gegn lömunarveiki er
átt við bólusetningu barna í
aldursflokkunum 6—10 ára, því
enn skorti reynslu í bólusetn-
ingu annarra aldursflokka.
Aðaltilgangur sérfræðinga-
fundarins í Stokkhólmi var að
saí'na vísindalegum fróðleik og
reynslu, sem gæti komið þeim
heilbrigðisyfirvöldum að gagni,
sem enn hafa ekki ákveðið
hvort börn skuli bólusett gegn
Jömunarveiki.
ÓHÖPPIN IIRÆDDU FRÁ
BÓLUSETNINGU.
Óhöppin, sem áttu sér stað
þegar fyrst var farið að nota
Salk-bóluefnið í stórum stíl í
Bandaríkjunum dró* mjög hug
úr heilbrigðisyfirvöldunum og
almenningi. Stærra óhappið
náði til um 200 tilfella og er
fvllilega ljóst hvernig það or-
sakaðist. Hitt slysið þykir ekki
nægjanlega upplýst ennþá.
í Bandaríkjunum hefur mjög
dregið úr lömunarveiki eftir að
farið var að bólusetja. Þýðing-
armestu spurningarnar í sam-
bandi við bólusetningu gegn
lömunarveiki telja sérfræðing-
arnir að séu eftirfarandi:
ER HÆGT AÐ TRYGGJA
ÖRUGGA FRAMLEIÐSLU
BÓLUSETNINGAREFNIS?
Svarið í skýrslum WHO er
þetta: „Nýjustu aðferðir í fram-
leiðslu og eftirliti með bólusetn
ingarefni ætti að vera trygging
fyrir öruggri vöru.“ •—■ Hins
vegar er bent á, að það hafi kom
ið í ljós, að bólusetningarefni,
sem framleitt var á nákvæm-
lega sama hátt í mismunandi
löndum hafi gefizt vel og reynzt
öruggt í öðru landinu en ekki
hinu. Það sé því aldrei nægjan-
lega brýnt fyrir mönnum, að
hafa strangt eftirlit með bólu-
setningarefninu.
ER RÁÐLEGT AÐ LÁTA
ALMENNA BÓLUSETN-
INGU FARA FRAM ALLS
STAÐAR?
Njðurstöður læknaráðstefn-
unnar í sambandi við þessa
spurningu eru, að svo framar-
lega sem allra varúðarráðstaf-
ana, sem getið er í skýrslunni
sé öruggt að láta fram fara al-
menna bólusetningu í þeim
löndum, þar sem lömunarveiki
gengur sem faraldur. Talið er
þýðingarmikið, að börnin séu
bólusett ung.
HVENÆR ER BÓLUSETN-
ING RÁÐ LEG?
Samkvæmt skýrslunni ber að
gæta tvenns: „Hversu útbreidd
er veikin í viðkomandi landi,
hver er kostnaður við almenna
bólusetningu og hvað hyggjast
menn að vinna við bólusetn-
ingu í stórum stíl. Það er oft
erfitt að taka ákvörðun sérstak
lega þar sem ekki eru fyrir
hendi skýrslur um útbreiðslu
veikinnar, eða þar sem veikin
leggst aðallega á ungbörn, en
ekki er vitað, hversu bólusetn-
ing gefst hjá ungbörnum. Hins
vegar er bent á, að lömunar-
veiki geti gosið upp í löndum,
þar sem hennar hefur aldrei
orðið vart fyrr. Það er því lögð
mikil áherzla á, að haldnar séu
öruggar skýrslur um útbreiðslu
lömunarveiki.
HVERSU LENGI VARIR
ÖN/EMIÐ?
Sérfræðingarnir taka fram,
að enn sé engin reynsla fengin
fyrir því, hve lengi ónæmi vari
eftir bólusetningu.
Loks veitir skýrslan margs
konar leiðbeiningar í sambandi
við bólusetningu gegn lömunar-
veiki, t. d. um magn, hve lengi
skuli líða milli bólusetninga.
Hávísindalegir viðaukar urn
þetta og önnur atriði fylgja
skýrslunni.
Sérfræðingarnir vara rnjög'
eindregið við því, að hafin sé
almenn bólusetning, án þess að
tryggja, að nægjanlegt lið áf
vönum læknum og hjúkrunar-
konum séu fyrir hendi. Leið-
beiningar eru til þeirra þjóða,
sem hafa í hyggju að hefja fram
leiðslu á bóluefni.
Að lokum leggja sérfræðing-
arnir til, að WHO leiti sam-
vinnu við rannsóknarstofnanir
víðs vegar um heim til þess að
safnað verði á einn stað allri
þeiri-i vísindalegu vitneskju,
sem fyrir hendi er í dag um
lömunarveiki og einkenni henn-
ar í mismunandi löndum.
SAMTÍNINGUR
SKÝRT ER FRÁ sérkennilegu
ástarævintýri í London. Tví-
tugur maður kærði unga stúlku
fyrir að hafa gefið sér utan
undir á hverjum einasta degi
í 3 vikur, þar sem þau biðu
eftir strætisvagni. Hún bar aft-
ur sér til málsbótar, að hann
hafi glápt s-vo ósiðlega á sig.
Önnur voru kynni þeirra ekki.
Hún var dæmd til að greiða
honum talsverða upphæð í bæt
ur fyrir kinnhestana, en nú
nokkrum mánuðum seinna eru
þau trúlofuð.
. * * *
SÆNSKT timburfyrirtæki hef-
ur gert samning um sölu á
timbri til fjarlægra landa, sem
ættu að geta fengið slíka vöru
nær. Annað er eyjan Madagask
ar við Austurströnd Afríku.
Þar á að nota sænska timbrið i
húsabyggingar, þar eð ekki er
talinn kostur á sterkara timbri
en stormviðri hafa umturnað
byggingum þar undanfarið.
Hitt landið er írak, og á að
nota sænska timbrið í sambandi
við olíustöðvamannvirki.
* * »
BÚGARÐUR einn í Svíþjóð hef-
ur verið í eigu sömu ættarinn-
ar mann fram af manni í 13
ættliði eða frá því rúmlega
1600. Ekki eru neinar horfur
á breytingum, með þeirri kyn-
slóð, sem nú er að koma.
BARNASAGA — 22
R ,A T R £ Ð
eftir
Mary du Morgan
Uppfinningamaðurinn Edison
Myndasaga
það, svo hann gat ekki fengið af sér að slíta það upp. Þá hlögw
öll blómin mcð munnana.
RÓBERT NÆR FRÆI AF HÁRATRÉNU.
Nú var Róbert alvcg að komast að háratrénu. Stór silr-
urplöntur mynduðu hátt gerði umhverfis það og voru 3auf
þeirra dökkgræn. Plöntur þessar stóðu svo þétt umhverfis
tréð, að ekki var nokkur leið að komast að hví.
Róbert gekk fast að þeim og athugaði vándlcga hvort nokk
ur leið væri að skera þær upp og mynda þamiig skarð í gerð-
ið. Hann tók nú um eina plöntuna og ætlaði að rcyna að sveigja
hana til hliðar cn þá slóg hún liann all ónotalega í andlitið, svo
að hann féll aftur á bak og viö það ráku plönturnar með immil
ana á ný upp skellihlátur.
— Zirbalbaunir hjálpið mér nú, þið hafið áður hjálpað aiép
mér er á reið, bjargið mér líka í þctta skipti. Hann tók cina
baunina í hönd sér en um leið hrópuðu allir blómamunnarnie'
einum rómi:
— Zirbalbaunir, gefðu okkur Zirbalbaun. Einn munnurinm
yfirgnæfði þá alla hina og kallaði:
— Verið rólegir, sneri sér sídan að Róbert og sagði: Skerða
þessa baun í sundur og gefðu okkur liana, þá skulu við bíta upp
nokkrar silíurplöntur svo að þú getir farið leiðar þinnar að
hárarénu.
Róbert brytjaði baunina í smáagnir á meðan fjöldi nmma
heit í sundur leggi silfurplantnanna. Að vísu börðu silfurplönt-
ui'nar frá scr á alla vegu, en árangurslanst. Að lokum var svo
opinn greiður vegur að háratrénu.
Úr öllum
I kjallaranum heima hjá sér
kom hann sér upp rann-
| sóknastofu á meðan hann
j var enn barn að aldri, og
hreifst af öllu því, er hann
! komst að fyrir tilraunir sín-
I ar. Hann trúði ekki neinu
fyrr en hann hafði sjálfur
| reynt það, og móðir hans,
‘ sem lagði á hann mikið ást-
! ríki, veitti honum alla þá
[ Jivöt og tilsögn, er hún mátti,
Fullorðinn komst Edison
þannig að orði, að lífsspeki
sín væri falin í einu orði, —-
VNNA. Tólf ára seldi hann
dagblöð og sælgæti í járn-
brautarlestum. Hann setti
þar upp litla prentsmiðju og
gaf út fyrsta „brautardag-
blaðið“, sem sögur fara af,
— en keypti tilraunaefni og
tæki fyrir þá aura, sem hann
græddi á útgáfunni.
Að tilraunum sínum vann
hann hvenær sem færi og
tóm gafst. Það var eitt sinn,
að hann kveikti í farmvagni
með þessum tilraunum, Þá
rak reiður lestárstjóri honum
löðrung, og eftir það var
Edison jafnan heyrnarsljór.
Fyrir bragðið lifði hann löng
um í sínum eigin hugar-
heimi, meira en títt er um
unglinga. s
I DAG er fimmtudagurinn 22.
marz 1956.
FLUGFERÐIJR
Fiugfélag íslands.
Innanlandsflug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar, Eg-
ilsstaða og Vestmannaeyja, Á
morgun er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hólmavíkur, Hornfjarðar, ísa-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs
og Vestmannaeyja.
Loftleiðir.
Hekla, millilandaflugvél Loft
leiða, var væntanleg tíl Reyltja-
víl.ur kl. 7 í rnorgun frá New
York. Flugvélin fer áleiðis til
Gautaborgar, Kaupmannahafna-r
og Hamborgar kl. 8.
SKIPAFRÉTTI*
Ríkisskip.
Hekla er á Austfjörðum á
norðurleið. Esja er I Reykjavík.
Herðubreið íór frá: Reykjavík í
gærkveldi austur um land til
Vopnafjarðar. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík í dag vestur um
land til Akureyrar. Þyrill er í
Reykjavík. Baldur’ fór frá Rvík
í gærkveldi til Gilsfjarðarhafna.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Boulogne
20/3 til Rotterdam og Reykja-
víkur. Fjallfoss fór frá Hamborg
í gsér til Ántwei-pen, Hull og
Reykjavíkur. Goðaföss fer frá
Hangö 24/3 til Reykjavíkur.
Gullofss fór frá Reykjavík 20/3
til Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Reykjavík 20/3
til Ventspils, Gdynia og Wismar.
Reykjafoss fór frá Keflavík í
gær til Reykjayíkur. Tröllafoss
kom til Reykjavíkur 16/3 frá
New York. Tungufoss fer vænt-
anléga frá Reykjavík í kvöld til
Síglufjarðar, Akureyrar, Húsa-’
víkur og þaðan til Osló, Lysekil
og Gautaborgar. Drangajökull
kom til Reykjavíkur 19/3 frá
Hamborg.
fundib
Æskulýðsfélag Laugarnessókn
’ar heldur fund í kvöld kl. 8.30 £
kirkjukjallaranum. Fjöibrevtt
fundarefni. Séra Garðar Svav-
arsson.
Gjafir og áheit til SÍBS
J s.íðari hluta árs 1955. N. Ní
50, Björg Bergþórsdóttir 125,
, frá Dana 10, N. N. 100, framlag
1 frá Reykjavíkurbæ 50 000, Ólaf-
Jur Halldórsson 10, Halldór Jóns
son 75, N. N.100, Pöntunarfélag
Grímsstaðaholts 2122,60, J. B„
50, N. N. 100, Halldór Jónssoji
50, Iíalldór Jónsson 50, Flarald-
ur Eggertsson 50, frá Hafnarfirði
68, frá Sadngerði 24, _N. N. 50,
frá Kef-lavík 150, Á. Á. 500, frá-
Xristnesi 180, frá Borgarnesi 50,
frá Patr.eksfirði 15, frá Ljósa-
vatni 50, Steindór 26, ísleifur
Árnason 147,50, Ó. N. 35, N. N„
350, frá Vestmannaeyjum 3036,
G. B. 50, laxveiðimaður 50, G„
L. 100; frá Siglufirði 20, Magn-
,ea Símonardóttir 50, frá Reykja:
vík 667,23, frá Ljósafossi 10, ÓL
B. Ólafsson 1000, B. B. 100. N„
N. 25, frá Þykkvabæ 10, R.H.V,.
Hólmavík 50, D. B. 50.
Gjafir og áheit til Hlífarsjóðs
1955. Garðar Þórhallsson 25,
Óskar Gíslason 500, Berklavörn,
■Hafnarfirði 4000, Béi’klavörn,
Vestmannaeyjum 4000, Kristján
Júlíusson 500. Kærar þakkir.
S.X.B.S.
Úlvarpið
20.30 Einsöhgur: Pétur Á. Jóns
son óperusöngvari (plötur).
20,50 Biblíulestur: Séra Bjar.nl
Jónsson les og skýrir Post-
ulasöguna.
21.15 Tónleikar: Streng.jakvart
ett nr. 2 eftix C.. Guarnier.i.
21.30 Útvarpssagan.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.30 Náttúrlegir hlntir.
22.45 Sinfónískir tónleikar. —.
„Sinfonia espansiva“ eftir
Carl Nielsen.
23.20 Dagskrárlok. ___