Alþýðublaðið - 28.03.1956, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 28.03.1956, Blaðsíða 2
w AlþýðublaSáð Miðvikudagur 28. marz 195® Þrótimikið og fjölbreyi) sfarf AÐALFUNDIR slysavarna- deildanna á Akranesi hafa ný- lega verið haldnir. Slysavarnadeildin ,,Hjálpin“ hélt aðalfund sinn 18. marz í Hótel Akranes. Miklar umræð- ur urðu um slysavarnamál. Mik il eining var á fundinum og ein kenndist hann af áhuga manna fyrir því, að vinna slysavarna- hugsjóninni með sameinuðum kröftum. Fundurinn sendi Gísla J. Johnsen frá Vestmannaeyj- um skeyti og þakkaði honíim veglyndi hans og rausn í garð slysavarnanna og árnaði honum heilla í tilefni af nýliðnu af- mæli hans. Þá sendi fundurinn slysavarnadeildinni „Iiappa- sæl“ í Meðallandi kveðju og þakkir í skeyti fyrir afrek hennar í björgunarmálUm. For- maður deildarinnar, JÞorvaldur Ellert Ásmundsson útgerðar- maður, sem verið hefur formað ur hennar undanfarin ár, baðst undan endurkosningu vegna mikilla anna. í hans stað var kosinn Sveinn Guðmundsson rafvirki. Sveinn stundaði lengi sjó og var einn þeirra, sem tók þátt í björgun skipverja á „Jóni forseta11, er fórst á Stafnestöng- um 1928. Ritari og gjaldkeri: Elías Guðjónsson kaupm. og Arnór Sveinbjörnsson kaupm., voru báðir endurkjörnir. 6 full- trúar voru kosnir á landsþing slysavarnafélagsins. Bj örgunar- sveit deildarinnar var að nokkru endurskipulögð. Eru í henni samtals 32 menn. For- maður hennar er, eins og áður, Axel Sveinbjörnsson forstjóri, og Níels Kristmanhsson bók- haldari varaformaður. Skráðir félagár í deildinni eru á sjötta hundrað. Hét fundurinn því, að vinna að því að ná öllum karl- mönnum í deildina, sem búsett- ir eru í bænum. Félagsgjald var hækkað upp í 10 krónur. 17. marz hélfbarna- og ung- lingadeildin „Litla höndin“ að- alt’und sinn í barnaskólahúsinu á Akranesi. Mun hún langfjöl- mennasta unglingadeild slysa- varnafélagsins í landinu. Er sá háttur á hafður, að börnin ger- ast meðlimir hennar um leið og þau eru skírð, undantekningar- iaust. 112 börn, flest fædd árið 1955, voru formlega boðin vel- komin í deildina á fundinum. Fundurinn var mjög fjölmenn- SAMTÍNINGUR jFIMM ógefnar glæsikonur í Am eríku hafa valið 10 ókvænta rnenn, sem þær telja éftirsókn arverðasta í Bandaríkjunum: Þeir eru þessir: Marlon Bran- do, Joe Di-Maggio, Tyrone Power, Adlai Stevenson for- setaefni, leiltarinn Phil Silvers, útvarpsstjarnan Mel Allan, körfuboltaleikarinn Johnny Podres og málfáerslumaðurinn Greg Bautzer og auk þeirra voru tilnefndir Frank Sinatra og -dansarinn Gehe Nelson, en beir gengu þó í hjónaband, svo r'ð þeir voru úr leik. CSV'O BAR VIÐ á uppboði á sveitabæ í Svíþjóð, að gylta, sem verið var að bjóða upp, fór að bera. Hækkaði verð hennar jafnt og þétt eftir því sem grísunum fjölgaði hjá gylt unni. Og þegar hún bar tólfta grísinum var verðið komið i «pþ í 1000 sænskar krónur. ur. Umsjónarmaður Litlu hand- arinnar er Hjálmar Þorsteins- son kennari, en vérndafi henn- ar frá stofnun 8. febr. 1948 hef- ur verið Níels Kristmannsson. Sóknarprésturinní séra Jón M. Guðjónsson, var á fundinum og ræddi við börnin um þjónustu- hugsjón slysavarnanna. Umsjón armaður hvatti þau til árvekni og trúmennsku í málefnum Slysavarnafélagsins. — Börnin kusu að venju stjórn deildar- ínnar úr sínum hópi. Skipa hana: Svana Þorgeirsdóttir for- maður, Sigurbjörg Halldórsdótt ir ritari, Halldóra Hákonardótt ir gjaldkeri, Ólöf Sigurðardótt- ir, Sigríður Kristjánsdóttir, Sól- veig Auður Friðþjófsdóttir, Val ur Jónsson, Kristinn Guðmunds son, Guðmundur Kristinsson. Börnunum voru sýndar tvæ'r stuttar kvikmyndir, sem skrif- stofa slýsavarnafélagsins sendi deildinni. Kvennade.ild slysavarnafé- lagsins á Akranesi hefur iyrir nokkru haldið aðalfund sinn og kjörið fulltrúa á landsþing. Stjórn hennar skipa: frú Ragna Jónsdóttir foi’maður, Helga Guð jónsdóttir ritari, Gíslína Magn- úsdóttir gjaldkeri, Dóra Erlends dóttir, Sigurlaug Sveinsdóttir. Deildin t'elur rúmar 500 félags- konur og starfar með miklum dugnaði. Heildartekjur kvennadeildar innar voru á árinu rúmlega 20 þús. krónur, sem aflað ér auk félagsgjaldanna, með hluta- veltu og bazar. Auk 15 þús. kr„ sem deildin greiddi til Slysa- varnafélags íslands, gaf hún 10 þús. kr. til kaupa á sjúkraflug- vél og 5 þús. kr. til kaupa á ljóslækningalampa handa sjúkrahúsinu á Akranesi, og á 13 þús. kr. í sjóði. Auk umræðu funda heldur deildin jafnan einn skemmtifund í mánuði. Einnig fara félagskonur eina eða fleiri, lengri eða skemmri hópferðir á ári hverju. Segja má með sanni, að hér er almennt mikill og vaxandi áhugi fyrir slysavörnum, þótt konurnar beri af um fórnfýsi og dugnað í þeim málum. Það er heldur engin tilviljun, því enginn skilur það eins vel og eiginkonan, móðirin, dóttirin eða systirin, sem eig'a sína nán- ustu á hafinu á ægilcgustu stundum hættunnar, hvers virði öruggar slysavarnir cru. BARNASAGA — 27 BATRCt eftir Mary du Morgan s $ s s s s s s I s 5, Selfosskirkja vígð á sunnudag SELFOSSI í fyrradag. | SELFOSSKIRKJA var vígð síðastliðinn sunnudag, pálma- sunnudag, af herra taiskupi Ás- mundi Guðmundssyni að við- stöddum 17 skrýddum prestum auk mikils fjölrnennis utan og innansóknar fólks. Veður var hið fegursta. Vígslan hófst með skrúð- göngu ráðamanna og starfs- m'anna kirkjunnar ásamt hinum skrýddu prestum. Gengið var úr kapellu kirkjunnar undir kór hennar og' meðfram kirkjunni ánnars vegar, síðan milli raða fólksfjöldans, er saman safnað- ur var fyrir aðaldyrum, og síð- an gengið í kórinn sem venja er til. Bornir voru í skrúðgöng- unni hinir kirkjulegu helgigrip- ir, og þar afhentir biskupi fyrir altari. Þá hófst vígsluathöfnin, og fór hún einkar hátíðlega og virðulega fram. 30 manan kór annaðist kirkju sönginn undir stjórn hins nýja organista, hr. Guðmundar Gils- sonar, er hingað réðist á sl. hausti sem skólastjóri hins ný- stofnaða Tónlistarskóla. Er það eitt af höppum safnað- arins að fá svo ágætlega tón- menntaðan mann til stjórnar kirkjusöngsins við hina nýju kirkju, þegar frú Anna Eiríks- dóttir organisti óskaði eftir að láta af starfi eftir ötult og giftu samlegt starf um margra ára skeið við hin erfiðustu skilyrði. Sóknarpresturinn, séra Sig- urður Pálsson, prédikaði við vígsluna og tók síðan til altaris viðstadda presta og fleira fólk. Öll þessi hátíðlega athöfn mun verða viðstöddum minnsstæður atburður, enda langþráð stund að kirkja risi af grunni í þessu ört vaxandi byggðarlagi til mannbóta og blessunar fyrir andlegt líf fóíksins. Margar góðar gjafir bárust við þetta tækifæri, en stærstar og mestar frá kvenfélagi stað- arins, og munu gjafir þær, ér fé- lagið hefur látið af hendi rakna til kirkjunnar, nema við vígslu hennar tugum þúsunda. Öllum kirkjugestum og öðr- um var að vígslumessu lokinni boðið til kaffidrykkju í Hótel Selfoss og þar veitt af rausn. Margar ræður voru þar fluttar af heimamöhnum ö'g géstum, og árnaðaróskir fram bornar og' gjafir þakkaðar. Að því loknu var aftur geng- ið til kirkju, og hófst messa aft- ur kl. 6. Prédikun flutti séra Bjarni Jónsson vígslubiskup. Altariþsjónustu fyrir prédikun annaðist prófasturinn séra Gunnar Jóhannesson í Skarði, en eftir prédikun séra Bjarni Jónsson. í þessari síðari messu fór fram barnsskírn og fram- kvæmdi sóknarpresturinn hana. Kirkjan var fullskipuð. Þess má geta, að meðal þeirra presta, er heiðruðu staðinn með nærveru sinni, var hinn aldni barnavinur og préstaöldungur séra Friðrik Friðriksson, og gerði'það út af íyrir sig sitt til að gera þessa athöfn hátíðlega. Öllum þessum prestum, konum þeirra margra, svo og öðru ut- ansóknarfólki, mun söfnuður- inn þakka fyrir að hafa heiðrað staðinn og starfið með komu sinni. Kirkjubyggingin var hafin á sínum tíma með því að fyrrver- andi biskup, herra Sigurgeir Sigurðsson, stakk fyrstu stung- una og blessaði staðinn. Síðan eru nærri fjögur ár. Svo hefur verkinu miðað jafnt og þétt áfram: að vísu stundum við fjárhagslega erfið- leika, en með tilstilli guðs og góðra manna rætzt úr öllu. Kirkjan kostar á vígsludegi nálægt 1 milljón og eitt hund- rað þús. í peningagreiðslum, auk þeirrar gjafavinnu, er fram var lögð við framkvæmdina, er nema mun nokkuð á þriðja hundrað þús. að verðgildi. Aðal- skip kirkjunnar er 10 m. á vídd og 20 m. á lengd. Lengd kórsins er 7 metrar. Öll er kirkjan hin vandaðasta og hið veglegasta hús. Svört föt og svört flögg blöstu við hvarvetna um borg- ina og staðurínn sem hárskurðurinn* átti að fara fram á, var þakinn svörtu klæði. Snenima morguns hafði fjöldi fólks safnast saman á staðn- um, en síðast komu kóngur og drottning. Einn af þjónum konungsins tók upp langa pappírsrúllti, sem á voru skrifuð nöfn allra kvcnna í landinu. Hann hróp- aði upp fyrsta nafnið. Það var nafn prinsessu, sem var ung; og fögur. Hún stóð upp grátandi og gekk á staðinn. Ilún var í- klædd svörtum, dragsíðum kjól og nú lokaði hún augunum, því að hún hafði enga von um hjálp. róbert kemur áftur og drottning FÆR HÁR SITT Á NÝ. Um lcið og fyrstu hárin féllu af höfði piiaScssunnar, van hrópað: — Hættið. Eg cr mcð fræ af háratrénu. Difottning hrópaði upp yfir sig, kóngurirm dansaði af ánægju og prinsessan hljóp upp um hálsinn á Róbert, sem kons að í þessu, og kyssti hann. — Reynið þessi fræ, áður en þér skerið hár kvcnnanna, hrópaði Róbert. Þau eru af háratrénu, ég tók þau af því sjálfur. Er drottningin heyrði þetta, gat hún ckki lengur á sér sét- ið, hún hljóp til Róberts, settist lijá honum og bað hahn reyna. 1 Ur ölium áttum í DAG er miðvikudagurinn 28. marz 1956. FLUGFERÐIR Flugfélag íslands h.f. Innanlandsflug: í dag er ráð- gert að fljúga til Akureyrar, ísafjarðar, Sands og Vestmanna- eyja. — Á morgun er ráðgert að fljúga til Akureyrar, Egilsstaða og Vestmannaeyja. Millilandaflug: Millilandaflug- vélin Gullfaxi er væntanleg til Reykjavíkur kl. 16.30 í dag frá London og Glasgow. SKIFAFKETTIB ! Eimskip. I • Brúarfoss fór frá Rotterdam (27.3. til Reykjavíkur. Dettifoss kom til Reykjavíkur 25.3. frá New York. Fjallfoss fer frá Hull í kvöld 27.3. til Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Goðafoss fór frá Hangö 25.3. til Reykjavíkur. Gullfoss kom til Kaupmanna- hafnar 26.3. frá Leith. Lagarfoss fór frá Reykjavík 20.3. til Vent- spils, Gdynia og Wismar. Reykja foss fór frá Norðfirði 26.3. til Rotterdam. Tröllafoss fór frá Reykjavík 26.3. til New York. Tungufoss fór frá Siglufirði í morgun 27.3. til Ósló, Lysekil og Gautaborgar. Skipacleild S.Í.S. Hvassafell fer væntanlega í dag frá Piraeus til Patras. Arn- arfell fór 25. þ.m. frá Þorláks- höfn áleiðis til meginlandsins. Jökulfell er í New York. Dísar- fell er í Rotterdam. Litlafell er |í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er í Hafnarfirði. Ríkisskip. Hekla fer frá Reykjavík kl. 19 í kvöld vestur um land til Akureyrar. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er væntanleg til Reykjavíkur í dag frá Austfjörð um. Skjaldbreið er á Húnaflóa á leið til Reykjavíkur. Þyrill er á leið til Hollands. — * _ Happdrætti Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Dregið var hjá borgarfógeta 27. inarz í happdrætti húsbygg- ingasjóðs S.V.F.R., og komu upp þessi númer: Málverk nr. 3745, myndavél nr. 389, Milward flugu stöng nr. 2207, Hardy’s flugu- stöng nr. 2766, kaststöng nr. 1283, Flugúbox m. flugum nr. 1297, 364, 2814 og 1905, snældu- hjól m. línu nr. 841 og 1729., veiðid. í Norðurá nr. 1450, 294, 932, 1682 og 1408, veiðid. i Laxá í Kjós nr. 3767 og 731, veiðid. í. Elliðaám nr. 690 og veiðid. í Miðfjarðará nr. 3902. — Vinn- inganna sé vitjað í skrifstofu S. V.F.R. í Varðarhúsinu. (Birt án ábyrgðar.) Farfuglar. Dvalið verður í Heiðabóli ura páskana. Gagleg áfengisdrykkja ea? hættuleg. — ITmdæmisstúkan. LEIÐRÉTTING. í athugasemd Guðmundai' Jónssonar fréttaritara Alþýðu- blaðsins á Selfossi, er birtist í blaðinu í gær, féll brott línan með dagsetningu og staðsetn- ingu í upphafi greinarinnar. —. Hún átti að vera: „Selfossi í gær.“ Leiðréttist þetta hér með. Útvarpið 12.50 Við vinnuna: Tónleikac. 20.30 Daglegt mál (Eiríkur Hreinn Finnbogason kand. mag.). 20.35 Hæstaréttarmál (Hákon Guðmundsson hæstaréttarrit- ari). 20.50 Tónléikar (plötur). 21 „Hver er maðurinn?“ Sveinn Ásgeirsson hagfr. stjórnar þættinum. 22.10 Passíusálmur (XLVIT). 22.20 Vökuléstur (Broddi Jó- hannesson). 22.35 Vinsæl lög (plötur). ********** ****** AUGLÝSIÐ 1 ALÞÝÐUBLAÐINU. }******■»********

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.