Alþýðublaðið - 12.04.1956, Page 3
Fimmtudagur 12. apríl ISSti
Alþýðublaðlð
m *
FYRIR tæplega hálfum mán
uði lýsti manneskja sin á Bret-
landi yfir því við blaðamenn,
að hún væri ekki lengur kona,
— upp frá þessu væri hún karl
maður! Og að hún hefur hingað
til. verið talin kona, stafar af
misdæmi, er átti sér stað dag-
ana eftir að hún fæddist. Hinn
nýi karlmáður átti tal við blaða
menn að prestssetri einu í Norð
humbralandi, en presturinn
hafði þá lokið vað að breyta
nafni hans á öllum skjölum og
skilríkjum. Var það í sjálfu sér
auðvelt verk, þar sem ,,hún“
hét Olive, en hann heitir hér
eftir Oliver, — sem sagt, nafn-
ið aðeins lengt um eitt „r“.
Undanfarin ár hefur ,,01ive“
starfað sem kennari, og mun
gera það áfram. Nú er það svo
með Bretum, að kvenkennarar
hafa þar lægri laun en karl-
kennarar, og ein afleiðingin af
þessum kynskiptum verður því
sú, að ,,01iver“ fær fimmtán
hundruð sterlingspd. hærri
laun en ,,01ive“ bar úr býtum
fyrir sama starf. Það er því
ekki hægt að segja að hann
tapi á kynskiptunum.
„Þegar ég fæddist lék nokk-
ur vafi á því hvort ég væri í
rauninni kvenkvns eða karl-
kyns. Til allrar óhamingju fyr-
ir míg varð það ofan á, að ég'
var dæmdur kvenkyns. Þegar
ég eltist, varð mér ljóst, að ég:
væri kárlmaður, en léngi vel
hélt ég því leyndu. Og þegar
ég var kominn yfir fermingu,
varð mér enn örðugra allra
hluta vegna að „taka stökkið“.:
Ég nam í kennaraskóla sem
kvenmaður og síðan hef ég
kennt um átján ára skeið við
miðskóla sem kvenmaður. Og
nú er afráðið að ég starfi þar
áfram, — sem karhnaður,“-
sagði Oliver við fréttamennina.
Ekki kvað haim um neina lækn
isaðgerð að ræða í þessu sam-
bandi.
„Árum saman hefur það ver-
ið þannig, að ef ég hef ekki
verið klæddur í föt, sem óve-
fengjanlega hafa skorið úr um
það, að ég væri kvenmaður,
hafa ókunnugír jafnan ávarpað
mig sem karlmann, — og það
hefur verið óþægilegt á stund-
um.“
Skólastjórinn, sem Oliver hef
ur starfað hjá, hrósar mjög
hæfileikum hans og dugnaði.
Kveður hann sér það fagnaðar-
efni, að hann verði áfram
kennari við skólann og telur
þessa ,,kynbreytingu“ ekki
munu valda þar neinum breyt-
ingum.
Fyrir utan foreldrana vissi
enginn þetta leyndarmál
„kennslukonunnar“, nema
kennslukona ein við skólann,
ungfrú Kittv Liddle. Eftir að
kynbreytingin varð almenningi
kumi, var þegar farið að ræða
um að vingott mundi vera
með þeim og talið líklegt að
þau myndu ganga í hjónaband.
Þau neita því þó harðlega og
segja að aðeins sé um kunn-
ingsskap að ræða. Engu að síð-
úr viðurkennir Oliver, að hún
háfi hvatt sig mjög til að láta
framkVæma þessa breytingu
íormlega.
KROSSGÁTA.
N'r. 1013.
1 •a i ¥
T” t j
i <?
le u tz
li 19 15
lí r? L
lt
Lárétt: 1 fjós, 5 tóbak, 3
hljóta í arf, 9 bókstafur, 10 í
dyrum, 13 tónn, 15 drakk, 16
greinir, 18 sögn.
Lóðrétt: 1 prakkari, 2 poið
svæði, 3 feng, 4 eyðsla, 6 stall-
ur, 7 í skóm, þf., 11 kvenmanns
nafn, 12 bygging, 14 afleiðslu-
ending, 17 frumefni.
Lausn á krossgátu nr. 1012.
Lárétt: 1 skuggi, 5 rein, 8
mark, 9 la, 10 kála, 13 ær, 15
laut, 16 rola, 18 kæran.
Lóðrétt: 1 samsæri, 2 klak, 3
urr, 4 gil, 6 ekla, 7 narta, 11 álí,
12 auma, 14 rok, 17 ar.
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÖNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Ilákoti, ÁLftanesi, andaðist 10. þ. rn. að heimili sínu, Norð-
urbraut 1, Hafnarfirði.
Börn og tengdabörn.
Frá námskeiði ISISÍ.
REKST&mSSKiPULA&NING
I
Námskeiðið hefst mánudaginn 16. apríl kl. 9 ár-
degis í Iðnaðarmálastofnun íslands í Iðnskóláhúsinu v»Ö
,Skólavrörðutorg.
Skráðir þátttakendur eru beðnir ao vitja aðg'öngu-
miða og dagskrár í skrifstofu stofnunarinnar nk. föstu-
dag, 13,apríl.
Þátttökugjald, kr. 250,00, óskast greitt við afhend-
ingu miða. Iðnaðarmálastofnun. íslai ds.
Ný sending amerískir kjó'iar
í glæsíiegu árvalL
GVLLFOSS
AðaistrætL
til góðrar sambúðar
Góðar samgöngur stuðía að aukinni
vináttu þjóða í milíi.
í áratug hefur Fíugfélag tslands
haldið uppi fIugsamgöngum miiii ís-
lands og Danmerkur í sívaxandi mæli.
1 sumar fíjúga Faxar Flugfélags Is-
iands 4 sinnum í viku miííi Reykjavík-
ur og Kaupmannahafnar.
Með auknum flugferðum miili höfuð-
borga frændþjóðanna stuðíar Flisgfé-
lag islands að bættri þjónustu og
auknum vináttutengslum.
em