Alþýðublaðið - 12.04.1956, Síða 4

Alþýðublaðið - 12.04.1956, Síða 4
AiþýðublaSíg Fimmtuilagur 12. apríl 1 !>5(* í'tgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarson. Biaðamenn:: Björgvin GuSmundsson og Loftur Guðmundsson. Augiýsrngastjóri: Emilía Samúelsdóttir- Ritstjórnarsírr.ar: 4961 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4960. Ásfepiftargjald kr. 28.00 á mánuði. Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8 — 10. Heildsala og smásala SUMIR heildsalar, sem flytja irtn vörur frá útlönd- um, selja þær síðan í smá- sölu, en undir öðru firma- nafni. Sagt er, að þetta fari í vöxt, og mun naumast þykja frásagnarvert. Hitt sætir tíð- indum, að sami verzlunar- máti hefur verið tekinn upp á stjórnmálasviðinu. Hér er átt við brask kommúnist- anna og fylgjenda þeirra. Þar er reynt að reka samtím is heildsölu og smásölu og efna til verkaskiptingar í blekkingarskyni. Fyrirtækið er á þessa lund: I sölubúðinni, þar sem smásalan fer fram, eiga Einar Olgeirsson og Hanni bal Valdimarsson að' ann- ast afgreiðslustörfín, fal- bjóða vörur og meðtaka gjaldið. Þar er firmanafnið Alþýðubandalagið. En á bak við er heildsalan Sam- einingarflokkur alþýðu, og hún sér um innkaup vör- unnar, sem selja á í AI- þýðubandalaginu. Sameig- inlegri skrifstofu heildsöl- unnar og smásölunnar stjómar Brynjólfur Bjarna son. Hann á ekki að láta sjá sig við búðarborðið I Alþýðubandalaginu, en er eigi að síður stofnandi og prókúruhafi beggja fyrir- tækjanna og hefur auðvit- að erlendu umboðin eftir sem áður. Og svo segir Þjóðviljinn, að þetta brask sé hin eina og sanna heið- arlega stjórnmálabarátta á fslandi! Einar, Hannibal og búðar- menn þeirra þykjast ekki vita af heildsölunni á bak við, og forstjórinn í skrifstof unni, Brynjólfur Bjarnason, skal ekki nefndur á nafn frammi við. Þó hefur hann haldið smásölufyrirtækinu undir skím og gefið því bless un sína. Sósíalistafélag Reykjavíkur hélt fund í fyrrakvöld til að ræða stofn- un og sviðsetningu smásöl- unnar. Þar var Brynjólfur frummaslandi og hafði Guð- ■ mund Vigfússon sér til að- stoðar. Þangað liggur sú lína, sem sprellikarlarnir í AI- þýðubandalaginu stjórr.ast af. Mátturinn og valdið er Brynjólfs, en Einar og Hanni bal eiga að fá að ráða búðar- borðinu. Sýningarglugginn er hins vegar í verkahring Magnúsar Kjartanssonar, því að Þjóðviljinn er mál- gagn beggja fyrirtækjanna. Þetta er skiljanleg við- leitni, þegar braskarar eiga í hlut, en vörurnar úr þeirri heildsölu, sem heií- ir Sameiningarflokkur al- þýðu, breytast auðvitað ekki hætishót við það, að Einar og Ilannibal reyni að selja þær í Alþýðu- bandalaginu. Þær eru komnar frá Rússlandi og leppríkjum þess og hafa mælzt ósköp illa fyrir upp á síðkastið. Skemmdirnar eru svo augljósar, að Vest- urlandabúar hrista höfuðið og vilja ekki sjá þennart ó- þverra. Samt eru til hér á Islandi menn, sem ímynda sér, að þetta muni söluhæf vara, ef notaðar séu nýjar umbúðir og heildsaliim Brynjólfur Bjarnason lát- inn halda sig í forstjóra- skrifstofunni fram yfir kosningar. Kjósendur, sem Iétu blekkjast til að kaupa vör- urnar í Alþý'ðubandalaginu á kjördegi, myndu fljótlega sannfærast um, að þeir hefðu verið ginntir. Skemmdimar segja til sín, þegar umbúð- irnar hafa verið teknar utan af vörunum og fara á að nota þær. Vonbrigðin yrðu sár eins og alltaf, þegar klækin kaupmannslund er annars vegar. En þá mun lítt stoða að fara í Alþýðubandalagið og reyna að skipta. Smásöl- unni verður lokað eftir kosn- ingar, og heildsalan þykíst hér engan hlut eiga að máli. Einar Olgeirsson verður fal- inn á degi reiðinnar í for- stjóraskrifstofu Brynjólfs Bjarnasonar við að standa honum reikningsskáp ráðs- mennsku sinnar. En hvar skyldi Hannibal Valdimars- son þá verða niður komínn? GerUt á&krifendur blaSslns. Alþýðublaðið ry 77 •/ T} j • Lömunarveikifaraldur gekk í vetur í dtaUungu tu nuenos Airi J-S» Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Þá voru send sjúkragögn frá Bandaríkj.unum þangað, og myndin hér að ofan, sem tekin er á Logan alþjóðavellinum í Boston, er af stállungum, sem skipa á um borð í flugvél- ina, sem einnig sést á myndinni og fara ti! Buenos Aires. Vtnn úr heimi: Af vo AFVOPNUNARNEFND Sam einuðu þjóðanna hefur um langt skeið haft starfandi sér- staka undirnefnd til athugun- ar varðandi hinar ýmsu tillög- ur um almenna afvopnun í heiminum. í fyrra virtist nokk uð draga til aukins samkomu- lags með stórveldunum, og á þingi Sameinuðu þjóðanna í haust er leið var undirnefnd- inni falið að halda áfram störf- um. Um miðjan marz þessa árs kom fram brezk-frönsk tillaga, sem líkleg er til að flýta íyrir lausn þessa mikilvæga vanda- máls. En sökum þess hve ýmis atriði tillögunnar eru tæknilegs eðlis og vegna þess að fáir eiga þess kost að fylgjast með því á hvaða stigi umræðumar standa á hverjum tíma, eru þeir fáir, sem geta gert sér grein fyrir hve víðtækar tillögur þessar eru. í stuttu máli má gera þannig grein fyrir þessum tillögum: Af vopnunin verði framkvæmd í þrem áföngum. Fyrsti áfanginn er fólginn í stofnun alþjóðlegr- ar afvopnunarnefndar, sem meðal annars verði skipuð full- trúum allra stórveldanna fimm. Þessi nefnd setji síðan á lagg- imar eftirlitsstofnun, sem fái mjög víðtækt vald. Mikilvæg- asta hlutverk hennar verður að hafa eftirlit úr lofti og á jörð með herafla þjóðanna. Stórveld in skuldbindi sig til að auka ekki herafla sinn. Sérstök stofn un hafi eftirlit með takmörkun á tilraunum með kjarnorku- vopn. Þegar þessi atriði hafa verið framkvæmd er ráðgert að næsti áfanginn hefjist, — dregið verði úr heraflanum um helmin.g og framleiðsla kjarnorkuvopna bönnuð. Þriðji og síðasti áfanginn er í því fólginn að enn verði dreg- ið úr heraflanum og notkun kjamorkuvopna algerlega bönn uð. Bandarísku fulltrúarnir í t undirnefndinni hafa gert það að tillögu sinni, að Bandaríkin fækki her sínum niður í 2,5 jmilljonir ijiarma — gegn þvi I að Rússar geri slíkt hið sama. j Bandaríkjamenn hafa nú 2,8 l milljónir rdanna undir vopnum, en samkvæmt rússneskum upp , lýsingum :hafa Rússar nú 4 jmilljónir mann undir vopnum, — og óþarft er að gera ráð fyr- ' ir að þeir segi þá fleiri en rétt er. í bandarísku tillögunum er einnig gert ráð fyrir, að stór- veldin láti hvert öðru í té upp- lýsingar um alla herflutninga af þeirra hálfu utan landamæra þeirra, Þá hafa Rússar fyrir skömmu langt fram sínar afvopnunartil- lögur, — dregið verði úr her- styrk, þannig að Rússar og Bandaríkjamenn hafi jafnan her. 2,5 milljónir manna hvor- i ir, Bretar og Frakkar 650 þús- undir hvorir. og dregið verði úr útgjöldum til hernaðarþarfa í samræmi við það. Sameiginleg stofnun Bandaríkiamanna og iRússa hafi yfirumsjón með. því að afvopnunarákvæðunum sé j íramíyigt og rétt til að fullvissa sig um það.-• Þýzkaland verði i herlaust svæði, og þar verði öll ■ kjarnorkuvopn bönnuð. Það er því með öðrum orðum þannig, að til samkomulags hef ur dregið um tæknileg grund- vallaratriði, en svo virðist sem hvorki Bandaríkjamenn né Rússar vilji alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkuvopnum. Umræð um í undirnefndinni er hins vegar haldið áfram, og von er enn um að til aukins samkomu lags dragi með stórveldunum í sumar. Hinn gífurlegi kostnað- ur við framleiðslu kjarnorku- vopna, óttinn við gereyðingar- stvrjöld og sterk áhrif almenn- ingsálitsins ýta á eftir því, að samkomulag sé leitað. En enn er lángt í land. . . . Tellus. Nauðungaruppboð verður. haldið hjá Áhaldahúsi Reykjavíkurbæjar við Skúlatún hér í bænum, eftir kröfu bæjargjaldkerans í Reykjavík, tollstiórans í Reykjavík o. fl. föstudaginn 13. apríl næstk. kl. 2 e. h. og verða seldar eftirtaldar bif- reiðar: •R—110 R—240 R—260 R—561 R—780 R—1351 R—1765 R—1816 R—-2057 R—2348 R—2498 R— 2696 R—2733 R—3095 R—3096 R—3318 R—3385 R—3471 R—4452 R—4475 R—4502 R—4507 R—4544 R—4.649' R—4707 R—4717 R—4722 R—4727 R—4766 R—4970 R—5070 R—5101 R—5452 R—5575 R—6026 R--6032 R,—6136 R—6279 R—6295 R—6360 R—6407 R—6411 R,—6437 R—6451 R—6463 R—6498 R—6586 R—6743 R—7002 R—7065 R—7097 R—7098 R—7160 R—■7163 R—7197 R—7501 R—7632 R—7750 R—7809 R—8348 R,—8449 R—8645 G—255 L—32. Greiðsla fari fram vði hamarshögg. Borgarfógetinn í Reykjavík. vana bakstri, vantar í eldhús Landsspítalans. Matrá$skoinan.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.