Alþýðublaðið - 24.05.1956, Side 1

Alþýðublaðið - 24.05.1956, Side 1
Ræða Aka Jakobs- síðu. $ V '5 $ s . s s s s s Framtíðarskálclsaga. Grein á 4. síðu. ( s i S s \ s $ s s s XXXVII. árg. Fimmtudagur 24. maí 1956 114. thi. höguðu sér eins um um kjöri í Austur-Húna valnssýslu Bragi Sigurjónsson ALÞÝÐUFLOKKSMENN í Austur-Húnavatnssýslu hafa á- kveðið að Bragi Sigurjónsson ritstjóri á Akureyri verði þar í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn. Hefur miðstjórn Alþýðuflokks- ins samþykkt þá ákvörðun. — Framsóknarflokkurinn býður ekki fram í Austur-Húnavatns- sýslu, heldur styöur framboð Alþýðuflokksins þar. Gengu með ópum og óhljóðum um göturnar og vildu ekki hlusta á Jóhann Hafstein eða Jóhann í>. HVÍTASUNNUFERÐ HEIMDELLINGA til Vest mannaeyja varð algert hneyksli og móðgun við kaup staðinn og íbúa hans. Létu íhaldsbörnin öllum illúm látum á götum úti og urðu sér til skammar á samkom nni, þar sem kenna átti þeim fræði Sjálfstæðisflokks ins Sama gerðist um borð í skipinu, er flutti Heim- dallaræskuna yfir hafið. Var mun líkara, að farþegarn ir væru skíll en unglingar af myndárheimiíum í Reykjavík. Gegnir mikilli furðu, að stærsti stjórn- málaflokkur landsins skuli standa fyrir slíkum ósóma og virðulegir borgarar leyfa börnum sínum að gera sig áð fíflum á almannafæri. Þátttakendur í hvítasunnu-* ferðinni voru undantekninga-, r lítið hálfþroskaðir unglingar, AlaflIJ' h JCrÍclÍállC. sem gáfu ærslahneigð sinni og VllHUI "» nl IJIJUU2 ófyrirleitni lausan tauminn strax og lagt hafði verið af stað frá Keykjavík. Munu farþeg- ar þessir hafa komið sér þannig við áhöfn skipsins, að henni rnegi naumast verða til þess hugsað að hafa öðru sinni kynni af vaxtarbroddi Sjálfstæðis- flokksins á skemmtiferðalagi slíku sem þessu. Heimdellingarnir gengu (Frh. á 2. síðu.) soníkjörlíVest- Eisenhower íelur íækkunina í her ' Rússa spor í rétía átt Minni hætta af geyslavirkun frá vetn- issprengjum nú en áður WASHINGTON, miðvikudag. — Á síðasta blaðamanna fundi sínum sagði Eisenhower forseti, að því væri tekið mtð gleði í Bandaríkjunum, að Sovétstjórnin hefði boðað íækknn herliðs síns. Jafnframt tók hann fram, að bandaríska ríkis- stjórnin vissi enn ekkert um þessi mál, utan liinar opinberu fréttatilkynningar sem Ráðstjórnin hefur íátið frá sér fara, en í þeim felst aðeins vitneskja um að það sé landher og flugher, sem sovétstjórnin hyggst fækka í. Alþýðubandalagið varð til aí gagnkvæmum vandræðum og ótta segir Áki Jakobsson ALÞÝÐUBLAÐIÐ birtir á 5. síðu í dag grein Áka Jakobssonar, þar sem hann svarar spurningunni, hvers vegna hann sé í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn á Sigiufirði við alþingiskosningarnar í sumar. Rekur hann ýtarlega ágreininginn við Brvnjólf Bjarnason og Einar Olgeirs- son og lætur í liós skoðun sína á bandalagi Alþýðufiokks ins og Framsóknarflokksins, en skýrir jafnframt hvers konar fyrirbæri Alþýðubandalagið sé og af hvaða ástæðu Hannibal Valdimarssyni hafi skolað á fjörur Brynjólfs og Einars. Um það segir Áki orðrétt: „Hið svokallaða Alþýðubandalag er ekkert ann að en nafnið tómt. Hannibal Valdimarsso.i treyst- ir sér ekki til þess áð'fara fram aftur í sínu gamla kjördæmi, ísafirði, og á ekki kost á öðru kjördæmi, sem hann telur öruggt að geti tryggt honum þing- setu. I þessum vandræðum sínum rekst hann í fangið á þeim Brynjólfi og Einari Olgeirssyni, sem hafa þungar áhyggjur út af afdrifum Sósíalista- flokksins i kosningununi. Þessi gagnkvæmu vand- ræði og ótti verða til þess, að þessum mönnum dett ur í hug að reyna að hagnýta sér aðstöðu sína í A1 þýðusambandi íslands til þess að fleyta sé>: yfir kosn ingarnar. IVIér finnst tiltækið barnalegt, auk þess sem hér er að ræða misnotkun Alþýðusambandsins, sem kemur mjög í bága við fyrri stefnu Sósíalista- flokksins um pólitískt óháða vérkalýðsbrcyfingu. Framboð fyrir Alþýðubandalagið kom því heldur ekki til greina af minni hálfu“. Ennfremur lýsir Áki Jakobsson því, að Einar Oigeirs son sé brotalöm, sem Brynjólfur Bjarnason hafi alger- lega brotið undir vilia sinn. Fylgið, sem Einar hlaút, hef ur orðið vald í höndum einræðisseggsins Brynjólfs Bjarnasonar. Og Áki Jakobsson telur réttilega, að engin breyting verði í því efni við stofnun Aiþýðubandalagsins. Ólán Hannibals bætist aðeins ofan á ófarnað Einars. S v S s s s s s s s $ s s s S s s s s s s s V S: V s s S V. S; S? S s s s V s S V s s s s s s s s s s s s Franskir varaliðsmenn skjóla af byssum í mólmælaskyni við að vera sendir tii Aigier Taldi hann, að í þeim tilkynn ingum feldist ekkert jákvætt, er benti til þess að hernaðarstyrk- ur Sovétríkjanna rýrnaði við ráðstafanir þessar. Ræddi for- setinn einnig um að herstyrk- ur Kína, sem er geysimikill, væri enn að mestu órýrður. Þó taldi hann lfklegt að Kínverjar myndu frekar æskja vinsam- legrar afstöðu- við Bandaríkin. Ennfremur ræddi forsetinn nokkuð almenna aðstöðu hinna stærri ríkja í heiminum og taldi hana heldur góða Á fundinum var einnig rætt um vetnissprengj utilraunir Bandaríkjanna á K/rrahafi og sagði forsetinn að geislavirkun í lofti væri mun minni en búizt var við og það svo að aldrei hefði hennar gætt eins lítið og eftir þessa tilraun. Stafar þetta af því að geyslavirkum efnum í sprengjunni hefur verið fækk að niður í það minnsta nauðsyn legt. Hefur þetta þau áhrif að geislavirkt ryk, sem sprengjan hefur gefið frá sér í stórum stíl við fyrri tilraunir, minnkar nú mjög við þessa nýju fram- leiðslutækni. Ólafur Þ. Kristjánsson ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN í Vestmannaeyjum hafa ákveð- ið, að Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri í Hafnarfirði verði í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn ■ þar. Hefur miðstjórn flokksins Isamþvkkt þá ákvörðun. Fram- | sóknarflokkurinn býður ekki ; fram í Vestmannaeyjum, held- ur styður framboð Alþýðu- flokksins þar. DIJON, miðvikudag. Ungirj franskir hermenn á leið til Al- gier létu í dag í ljós óánægju sína með að vera sendir í bar- áttuna gegn uppreisnarmönn- unum með því að skjóta af byss um sínum upp í loftið og kasta handsprengju, er járnbrautar- , lest þeirra stanzaði í einni út- borg Dijon. Handsprengjan sprakk á akri nokkrum án þess að valda neinu tjóni, og ekki lentu byssuskot- in í neinum. í lestinni voru 24 vagnar og lagði hún af stað á þriðjudags- kvöld frá Mourmelon Uuest til Parísar með Marseilles sem á- kvörðunarstað. Stuttu eftir að lestin var lögð af stað frá Dijon stöðvuðu hermennirnir hana með því að taka í neyðarbrems- una. Kosningaskrihlofa á Keilavíkurflugvelii. í DAG opna Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn kosningaskrifstofu í Turnerhverfi við Keflavíkurflugvöll. Verð ur skrifstofan opin alla virka daga frá kl. 10—10, en sunnudaga kl. 2—6. Alþýðuflokksmenn og Framsóknarmenn á Keflavíkurflug- velli og í nágrenni hans, veitið skrifstofunni alla þá aðstoð og upplýsingar sem þið getið. í lestinni voru um það bil 1000 varaliðsmenn og spenntu þeir vagnana hvern frá öðrum. Heimfa Norðurlanda kommar skýrslu Krústjovs á borðiðl KAUPMANNAHÖFN, mið- vikudag. (NTB). Kaupmanna- hafnarblaðið Information held ur því fram í dag, að kommún istaflokkarnir í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hafi sam- þykkt að mótmæla því, að skýrslu Krústjovs með gagn- rýninni á Stalín á flokksþing- inu í Moskva skuli vera haid- ið leyndri. Flokkarnir heimra, að skýrslan verði lögð fram til umræðna. NTB hefur lagt fregn þessa fyrir formann kommúnista- flokksins í Noregi, en hann ne.it ar henni og telur hana upp- spuna. Veðriðídag Þykknar upp með sunnanátt.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.