Alþýðublaðið - 18.07.1956, Side 4

Alþýðublaðið - 18.07.1956, Side 4
AiþýðubgagiS Miðvikudagur 18. júlí 1936 Útgefandi: Alþýðuflokkurixm. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsíngastjóri: Emilía Samúelsdóttir. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði. Alj; ýðuprentsmiðjan, H\ erfisgötu 8~10. Síldariðnaðurinn 1 i í I I í f II ;V SÍLDIN er aftur í sjónum úti fyrir Norðurlandi eftir tólf ára f jarveru. Allir íslend ingar hugsa á ný til Siglu- fjarðar og annarra síldar- bæja nyrðra. Tíðindin þaðan vekja meiri athygli en nokkr ar aðrar innlendar fréttir. Þær keppa meira að segja við eítirvæntinguna í sam- bandi við stjórnarmyndunar- tilraunirnar. 'Silfur hafsins berst á land dag og nótt. Gamlar atvinnustöðvar rísa til fornrar frægðar. Háset- arnir á aflahæstu síldarskip- unum hafa þegar fengið um 15 þúsund krónur í hlut. Svipaða sögu mun að segja um afkomu þeirra, er vinna í landi. Erfiðið er mikið, en það gefur líka margar krón- ur í aðra hönd. Og þjóðarbú- ið fer heldur ekki varhluta af þessum gæðum. Fólkið um allt land nýtur aflans beint og óbeint. íslenzkt atvinnu- líf hefur auðgazt að nýrri von. Þessu ber sannarlega að fagna. En mikill vill meira, og þetta sannast á Islend- ingum, þegar síldveiðarnar ber á góma. Aflinn, sem nú berst á land, gæti margfald azt að verðmæti. Iðnaður- inn í sambandi við síldveið arnar er enn allt of skammt á veg kominn hér- Iendis. Síidin, sem nú er söítuð norðan lands, verður flutt út sem hráefni. Er- Iendis taka við henni ný- tízku verksmiðjur, er sjóða síldina niður sem gómsæta og eftirsótta gaffalbita, og þannig heldur varan áfram för sinni á heimsmarkað- inn. Hluti af henni mun jafnvel eiga afturkvæmt hingað til íslands, þó að sjómennirnir og síldarsölt- unarstúlkurnar muni naum ast þekkja hana fyrir sömu vöru og veiddist nyrðra sumarmánuðina 1956. Hér er um að ræða ónotaða möguleika, sem íslendingar verða að koma auga á og leggja sig fram um að hag- nýta. Síldariðnaðurinn er mikill framtiðaratvinnu- vegur á íslandi, ef silfur hafsins býðst á amiað borð. Því fyrr, sein við áttum okkur á þessari staðreynd, því betra. Þetta mál hefur af eðlileg „urn ástæðum legið í þagnar- rildi undanfarið. Síldarleysið hefur dregið hug og dug úr ísiendingum. Sumum hefur jafnvel dottið í hug að van- þakka nýju og stórvirku síld- arverksmiðjurnar, sem kost- uðu ærið fé og gáfu lítið sem ekkert í aðra hönd fram að þessu. En viðhorfin breytast um leið og síldin kemur aft- ur í leitirnar. Nú verður að endurnýja síldarsöltunar- stöðvarnar á Norðurlandi, sem eru komnar að falli eftir tólf ára vanhirðu og aðgerð- arleysi. Og jafnframt er tíma bært að setja markið enn hærra. íslendingar geta ekki unað því að flytja síldina út sem hráefni. Þeim ber skylda til að fullvinna þessa dýr- mætu vöru og gera hana sem verðmæta. Hér eru allar að- stæður til síldariðnaðar: Mik il raforka, ágætt vatn og gæðaríkur afli ræður úrslit- um í þessu efni. Alls þessa njótum við, ef síldin gefst og vilji er fyrir hendi að hefja nýja sókn á sviði atvinnulífs- ins. Og þetta sýnir enn frem ur, að íslendingar þurfa ekki að kvíða framtíðinni, ef áherzla er lögð á atvinnu lífið og framleiðslustörfin. Auðæfi hafs og Iands bjóð- ast, og verðmæti þeirra er hægt að margfalda, ef rétt og vel er að unnið. Síldar- iðnaðurinn er stærsta og nærtækasta verkefnið. Við stöndum vel að vígi að leysa vandann. Skilyrðin til iðnaðar eru að verða á- kjósanleg. Og sá iðnaður, sem býður upp á marg- þætta möguleika í sam- bandi við atvinnulífið og höfuðframleiðslu þjóðar- innar, á að ganga fyrir næstu árin. Verðmæti salt- síldarinnar er hægt að margfalda, ef við förum að dæmi annarra þjóða, scm lengra eru á veg komnar í þessu efni. Og hvers vegna ættum við að láta aðra auðgast á því, sem stendur okkur sjálfum til boða? Síldariðnaðurinn er mál dagsins. Og hér er um að ræða viðfangsefni handa vinstri stjórn — eitt af mörgum, en kannski það stærsta. Alþýðublaðið væntir þess, að allir framsæknir og stór- huga menn geti sameinazt um-þetta mál og íslendingar verki, að hér sé viðfangsefni gefið sér þann vitnisburð í við þeirra hæfi. En það getur því aðeins orðið, að almenn- ingsálitið krefjist og stjórnar völdin geri skyldu sína. lafnðSarstefnan 0 B ð fokum rr E B - segir Halldór Albertsson á Hann varð sjöfugur á sunnudaginn var. HALLDÓR ALBERTSSON á Blönduósi varð sjötugur á sunnudaginn var. Halldór hefur áratugum saman verið einn af traustustu mönnum Alþýðu- flokksins á Norðurlandi, einn þeirra, er tóku tröllatryggð við jafnaðarstefnuna ungir, og hef- ur í hvívetna reynt að gera hlut hennar og Alþýðuflokksins sem mestan, hvað sem á hefur geng- ið í þjóðmálum. Halldór hefur setið í flokksstjórn árum sam- an og á að baki sér áratuga starfsferil fyrir Alþýðuflokkinn og verkalýðshreyfinguna á Blönduósi og í Austur-Húna- vatnssýslu. Blaðamaður A. iþýðublaðsins ræddi stundarkorn við Halldór eftir síðustu helgi, er flokks- stjórnarfundi Alþýðuflokksins var lokið, en Halldór kom suð- ur til Reykjavíkúr til þess að sitja hann. — „Ég gat ekki ver- ið að leyfa neitt tilstand í sam- bandi við afmælið," sagði Hall- dór. „Það stóð líka þannig á, að flokksstjórnarfundurinn var næstu dagana áður, svo að ég hlaut að verða hér syðra, en fundinn mátti ég til að sækja. Dvaldi ég því á afmælisdaginn hjá börnum mínum og barna- börnum í Reykjavík." Öt í heim til að sjá sig um. Halldór er Þingeyingur, fædd ur að Stóruvöllum í Bárðardal, 15. júlí 1886. Á unglingsárum fluttist hann með foreldrum sínum til Akureyrar og gekk þar í gagnfræðaskóla. Á Blöndu ósi hefur hann átt heima í 31 ár, fluttist þangað 1925. Þar vann hann við verzlun Einars Thorsteinsson til 1942, en stofn aði þá verzlun sjálfur, sem hann hefur rekið síðan. Hann var orðinn sannfærður jafnað- armaður/þegár hann fluttist til Blönduóss. Kveðst hann hafa kynnzt jafnaðarstefnunni vest- an hafs, hjá Sigurði Júl. Jó- hannessyni lækni í Winnipeg. „Ég fór vestur um haf 1912, eiginlega bara til að sjá mig um 1 í heiminum," segir hann, „var ; alltaf staði’áðinn í að koma : heim aftur. Ég ætlaði helzt ekki að vera lengur en svo sem fimm ár erlendis, en þau urðu nú átta alls.“ Halldór vann ýmis störf vestan hafs, en þó aðallega skrif stofustörf. Var hann lengi í Sas katchewan og einnig í Winni- peg, en stundum á sumrin vann hann við uppskeruvinnu. Skotið á verk- faílsmenn. ,.Ég sé ljótar aðfarir í W.n- nipeg, er ég var þar,“ segir Halldór. „Þá kom til verkfalls í borginni, og uppi voru raddir um það, að menn rækju mál sitt með meiri hita en vera ætti. Fyrirskipaði stjórnin hern um, sem þá var nýkominn heim, að skakka leikinn og var beitt skotvopnum á verkfalls- menn. í Winnipeg kynntist ég Sigurði Júl. Jóhannessyni lækni, sem hafði forustu rneðal þeirra íslendinga þar, er höll- uðust að jafnaðarstefnu og vildu taka þátt í starfi verka- lýðshreyfingarinnar. Með það vegarnesti kom ég heim.“ Áður en hann kom heim, var Halldór eitt ár í Minneapolis í Banda- rikjunum og annað í Dan- mörku. Hann hafði því séð sig rækilega um í heiminum, mið- að við venjur þeii'ra tíma, er hvorki voru flugvélar á lang- ferðaleiðum né skipulagning al- menningsferða, eins og nú er orðið. Fyrir verkalýðs- hreyfinguna. Strax og Halldór kom til Blönduóss, fór hann að athuga möguleika á því að stofna verka lýðsfélag þar. Þar hitti hann fyrir annan jafnaðarmann, Jón Einarsson, og eru þeir frum- kvöðlar að stofnun Verkalýðs- félags Austur-Húnvetninga, á- samt Einari Olgeirssyni, er FÖNDUR FLUGMODELSMIÐI Það hefur lengst af verið löngun mannsins að geta lyft sér til flugs og svifið hátt yfir þessum jarðneska eymdadal og virt hann fyrir sér, kosti hans og lesti, fegurð og hrikaleik og svo er enn þann dag í dag. Allt frá unga aldri eru mennirnir að glíma við flugtæknina og fram á elliár, þó þeir séu þá flestir orðnir farþegar, en ekki flug- menn. Hér á Iandi hefur verið alveg séi'staklega mikill áhugi fyrir flugmálum, jafnt meðal ungra sem gamalla, og hefur þetta á ótrúlega skömmum tíma gert ís land að einni mestu flugþjóð heims „miðað við fólksfjölda“. Nægir í því efni að benda á hið umfangsmikla utanlandsflug, sem flugfélagið Loftleiðir rek- ur nú orðið. En meiningin var nú ekki að fara að rekja hér alla sögu flugs ins, heldur að segja nokkur orð um smíði módelflugvéla. Þetta tómstundastarf hefur verið vin sælt mjög, ekki aðeins meðal (Frh. á 7. síðu.) Halldór Albertsson starfaði að því með þeim. Það gekk þegar í Alþýðusamband- ið. Seinna var svo stofnað Al- þýðuflokksfélags Blönduóss og var Halldór kjörinn formaður þess. Það hefur hann alltaf ver- ið síðan. Þá hefur Halldór gegnt mörg urr trúnaðarstörfum á Blöndu- ósi. Sat hann mörg ár í hrepps- nefnd, og í skattanefnd hefur hann verið árum saman. Halldór kvæntist 1928 Krist- jönu Guðmundsdóttur og hafa þau eignazt 5 börn. Tvö barn- anna eru í Reykjavík, en hin þrjú eru heima. Jafnaðarstefnön sigrar. Nú getur Halldór litið yfir langan veg og mikið starf. Hann segir, að sér finnist mikill mun- urinn á moldarbæjunum, sem stóðu dreifðir á flatlendinu „fyr ir innan“ og stórhýsunum, sem nú hafa verið reist, svo sem héraðshælinu, en fleira hefur bi'eytzt og ýmislegt hefur breytzt meira. Mörg af þeim hugsjónamálum, sem Halldór átti og barðist fyrir ungur, eru nú orðin að veruleika. Þetta viðurkennir Halldór auðvitað, en hann segir: „Allt frá því er ég gekk á hönd jafnaðarstefnunni hef ég vænzt þess, að jafnaðarstefnan mundi leggja undir sig löndin, og það hefur hún gert víða, en hér á landi h„' ég alltaf vonast eftir- meiri og almennari þátt- töku í baráttunni fyrir sigri hennar en raun hefur á orðið. Mér hefur fundizt, að úrræði jafnaðarstefnunnar væi'u svo augljóslega það bezta fyi'ir verkafólkið að minnsta kosti, að það hlyti að aðhyllast hana, og þess vegna hafa vonir mínar um vöxt Alþýðuflokksins ekki allt- af rætzt. En hiá því getur ekki farið, að jafnaðarstefnan sigri að lokum.“ PARKDRENGEKORET. Danski drengjakórinn Parkdrengekoret, hefur undaufario dvalizt hér á landi og haldið söngskemmtanir^ Myndin var tekin á söngskemmtun í Austurbæjarbíó sl. sunnudag. — Er myndin úr atriði sem heiti „Sunnudagur á Amager. Ljósm. G. .S

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.