Alþýðublaðið - 29.09.1956, Síða 4

Alþýðublaðið - 29.09.1956, Síða 4
4 ABþýðublaðlft Laugardagur 29. sept. 1956. Útgefandi: Alþýðuflokkuriim. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsaon og Loftur Guðmundsson. Auglýsíngastjóri: Emilía Samúelsdóttlr, Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Afgteiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðj an, Hverfisgötu 8—10. Rangtúlkun staðreyndanna RANGTÚLKUN stað- reynda er smánarblettur á íslenzkri blaðamennsku. — Þessa dagana hefur Morgun- blaðið forustu um þann ó- sóma, og Þjóðviljinn gerist þátttakandi í sömu viðleitni, þó að hann láti stjórnast af öðrum hvötum. Hér er átt við blaðaskrifin um afstöðu Sjómannafélags Reykjavík- ur og Múrarafélags Reykja- víkur til ráðstafana ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmál unum. Þau eru hlutaðeig- andi aðilum til mikillar skammar. Morgunblaðið og Þjóðviljinn keppast við að rangtúlka skoðun félaganna á málinu. Alþýðublaðið birti í gær af þessu tilefni yfirlýsingu frá Garðari Jónssyni, for- nianni Sjómannafélags Reykjavíkur. Þar er á það minnt, að Sjómannafélags- fundurinn hafi lýst sig „fylgjandi allri viðleitni til þess að stöðva hina síauknu dýrtíð“, en ráðstafanir rík- isstjórnarinnar eru einmitt spor í þá áít. Enn fremur segir Garðar Jónsson, að ■ hann myndi hafa mælt með verðfestingarlögunum á félagsfundi, ef fengizt hefði að fara með málið á fund. Hér er því ekki deilt um málefnið, heldur aðferð ina. Túlkun Morgunblaðs- ins um vítur Sjómannafé- Iags Reykjavíkur á ríkis- stjórnina nær alls engri átt. Og þáttur Þjóðviljans í umræðunum er engu skárri. Hann fordæmir samþykkt Sjómannafélags Reykjavíkur, stimplar hana íhaldssamvinnu og hefur allt á hornum sér. Þó var hún gerð samhljóða á fund inum, og aðalmaður komm únista í félaginu varð fyrst ur til að rétta upp höndina með henni, en enginn af félögum hans sá ástæðu til að greiða atkvæði gegn á- lyktuninni! Þannig er mál- ið í ljósi staðreyndanna. En Morgunblaðið og Þjóð- viljinn meta blekkingarnar meira en staðreyndirnar. Blöðin túlka ályktun Sjó- mannafélags Reykjavíkur eins og þeim finnst sér bezt henta í pólitísku brambolti sínu. Slíkt og þvílíkt á ekki að líðast. Blöð, sem þannig hegða sér, móðga lesendur sína og vinna til fordæm- ingar. Og þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum. Morgun- s s V s S S s s s s S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s \ ) s l s s s s s N s S s s s s s s s s s s s s S s s s < s S s S \ s s s ! s s s s s s s s S s blaðið og Þjóðviljinn eiga undantekningalítið bágt með að segja sannleikann. En jamt þykjast skriffinnar þeirra öðru hvoru vilja sann gjarnari og heiðarlegri blaðamennsku! Ekki tekur betra við, ef athuguð er túlkun Morgun blaðsins á samþykkt Múr- arafélags Reykjavíkur. — Hún á einnig að hafa verið gagnrýni í garð ríkisstjórn arinnar. En Iiverju stingur Morgunblaðið undir stól í þessu sambandi? Því að í ályktun félagsins segir orð rétt: „Stjórn og trúnaðar- mannaráð Múrarafélags Reykjavíkur Iýsir ánægju sinni yfir seíningu bráða- birgðalaga ríkisstjórnarinn ar um verðfestingu o. fl. og telur, að lögin marki spor í þá átt að þrýsta verðlagi niður og auka kaupmátt launanna, sem verið hefur höfuðstefna félagsins í und anförnum kaup- og kjara- deilum.“ Og enn fremur: „Fundurinn beinir því til hinna væntanlegu fulltrúa félagsins á 25. þingi ASÍ, að þeir styðji að náinni og vinsamlegri samvinnu við ríkisstjórnina um þessi mál til þess að sem æskilegastur árangur náist.“ En Morg- unblaðið gerir sér Iítið fyr- ir og skilur þetta sem vítur á ríkisstjórnina. Þvílíkt gáfnafar! Þvílík blaða- mennska! Fólkið í landinu hneyksl- ast vissulega á öðrum eins baráttuaðferðum og þessum. Morgunblaðið og Þjóðviljinn fyrirgera trausti og áliti með þessu athæfi. En sagan er meiri en ólán áminnztra blaða. Þetta getur því aðeins gerzt, að tveir stjórnmála- flokkar vilji hafna staðreynd um og beita blekkingum, rangtúlka ályktanir og segja hvítt svart, en svart hvítt. Og það sýnir og sannar, hvað lýðræðishjal íhaldsmanna og kommúnista er innantómt. Illgresi einræðisins sprettur á akri þeirra, þó að kjörorð lýðræðisins séu máluð á hlið ið í blekkingarskyni. Þess vegna hljóta íslendingar að veita Sjálfstæðisflokknum og Sósíalistaflokknum áminn ingu fylgistapsins og von- brigðanna til að kenna Morg unblaðinu og Þjóðviljanum mannasiði og viðunandi blaðarnennsku. tengsli og efna til nýrra kynna. nú eru viðhorfin breytt. Gyld- Norskar bækur eru allt of sjald endal í Ósló hefur náð sííkum gæfar á íslandi í dag. Úr því vexti að reynast ofjarl allra verður að bæta. Og Harald annarra bókaútgáfufyrirtækja Grieg áorkar meira í þessu á Norðurlöndum. íslendingar efni en nokkur maður annar. hafa þroskazt til fullveldis. Ákvörðun hans er áhriíaríkari Aldrei hefur sambúð Norður- en störf flestra annarra. Hans landanna verið betri en síðan. er mátturinn og valdið. j Enginn aðili hefur tapað á þró- Gaman hefði verið að rekja. uninni, en allir grætt í þeim hér þann merkisþátt, er Gyld- skilningi, sem fegurstur getur endal varð norskt bókaútgáfu- j talizt og eftirsóknarverðastur. fyrirtæki. Naumast mun Har-' Eigi að síður er mikið verk að ald Grieg þá hafa órað fyrir vinna. Skyldan er sú að hlúa þeim stórsigri, sem nú er kom-1 að frækornunum í akri bók- inn á daginn. Atburðurinn tákn menntanna og listanna og leggj aði úrslit í norskri sjálfstæðis- j ast á eitt um þá jarðyrkju eins baráttu. Áður höfðu bækur t og vinum og frændum sæmir norsku skáldsnillinganna verið ^ — og svo verður uppskeran gefnar út í Danmörku. Björn-' meiri og betri norræn menn- son, Ibsen, Kielland og Lie ing. voru í eins konar útlegð líkt og Harald Grieg er í senn mað- þeir íslenzku menntamenn, sem ur draumsins og athafnanna og urðu að sækja frama sinn út í ^ þess vegna kjörinn til þeirrar Kaupmannahöfn, þó að þeir , forustu að láta þá ósk rætast. vissu, að heima væri bezt. En Helgi Sæmundsson. DAGAR LÍÐA HARALD GRIEG er kominn hingað í tilefni norsku bóka- sýningarinnar, sem hefst í dag. Maðurinn er oddviti norskra bókaútgefenda og sómi þeirra. Hann er forstjóri Gyldendals í Ósló, sem nú mun umsvifa- mesta bókaútgáfufyrirtæki Norðurlanda, en jafnframt merkisberi leiklistarinnar í Noregi, formaður norræna fé- lagsins þar og frömuður hvers konar menningarmála. Islend- ingar hafa því ríka ástæðu til að fagna gestkomunni. Víst myndi Harald Grieg nægja til vinsælda hér, að hann er bróðir Nordahls heitins Grieg, þjóðskáldsins snjalla og stríðshetjunnar djörfu, sem vann hug og hjarta íslendinga með ljóðum sínum og ógleym- anlegum persónuleika. En mað urinn er svo mikill af verkum sjálfs sín, að þessa skal aðeins getið til fróðleiks. Af Harald Grieg er skemmtileg og farsæl saga, þó að orðstír hans sé ann- ar en bróðurins. Upphaflega var hann blaðamaður, en hófst ungur til áhrifanna og forust- unnar, er fyrr greinir. Nú set- ur hann meiri svip á norsk menningarmál en nokkur annar einstaklirigur. Og hann er ekki aðeins sigurvegari heimavíg- stöðvanna. Harald Grieg er sannkallaður heimsborgari, þekkir persónulega helztu skáld og rithöfunda samtíðarinnar um víða veröld og nýtur álits og trausts langt út fyrir landa- mæri Noregs. Og maðurinn ger ir meira en hafa aðdrætti á hendi. Hann vinnur stórvirki til hags og heilla norskum bók- menntum og norskri menningu í líkingu við meistarana, sem forðum kölluðu nafn Noregs út yfir heiminn. Undirritaður átti fyrir all- mörgum árum samtal við Har- ald Grieg fyrir Alþýðublaðið. Þá var Noregur enn í sárum eftir styrjöldina og hernámið. Margir voru daprir og kvíðnir í þá daga, en Harald Grieg var bjartsýnn. Hann gerði sér raunar Ijóst, að Noregur hafði orðið fyrir þungu áfalli, en hon um datt ekki í hug að gefast upp. Bjartsýni hans átti djúp- ar rætur í starfsvilja og stór- hug. Og Harald Grieg hefur vissulega látið verkin tala. Hon um er það mjög að þakka, að Norðmenn eru í dag norræn forustuþjóð í skáldskap og bók- menntum. Slíkur maður er ís- lendingum aufúsugestur, því að sæmd Noregs er okkar gleði. Samskipti Islendinga og Norð manna á sviði menningarmála hafa löngum kallazt náin og góð. Heimskringla er kannski ennþá vinsælli í Noregi en á íslandi. Þar kemur hún fljót- lega í leitirnar á hverjum bæ við hliðina á biblíunni og sálmabókinni. En Noregur á líka sitt ríki meðal íslendinga. Rödd Björnsons og Ibsens heyrð ist í landi Snorra eins og vík væri milli frænda, en ekki ólg- andi úthaf. Stundum er sagt, og því miður með nokkrum sanni, að fjörðurinn sé orðinn breiðari milli Noregs og íslands í andlegum skilningi en áður var. Samt mun óhætt að full- yrða ,að Sigrid Undset, Knut Hamsun og Nordahl Grieg hafi átt hér vini og aðdáendur um allt land, og enn kunna Ijóð- elskir Islendingar ærin skil á skáldskap Hermans Wilden- veys og Arnúlfs Överlands, svo að tveir séu nefndir. En eigi að síður þarf að treysta gömul ÞE-GAR Sjang Kai-Sék flutti ásamt liði sínu til Formósu fylgdu svo margir Kínverjar í fótspor þeirra, að íbúum þess- arar eyju fjölgaði um helming. FGrmósubúar hafa því þurft að vera mikið upp á vesturveldin komin, einkum Bandaríkin. Hafa þeir nú séð, að þeim er nauðsynlegt að bjarga sér sjálf ir frekar en verið hefur. Ætla þeir nú fyrst um sinn að leggja allt kapp á að koma þeim þrem atriðum í lag, sem hér greinir: 1. að reyna að auka utanrík- isverzlun sína, einkum á suð- austur ströndum Asíu. 2. að breyta og bæta frétta- burð blaðanna, svo að útlend-- ingar, einkum vinveittar vest- urlandaþjóðir, geti fengið sem réttast fréttir af höfuð For- mósabúa. Er einn hluti þessara mála að fá ritskoðun afnumda, en stjórnin hefur ekki treyst sér til þess vegna óbilgjarns frétta burðar. 3. að laða ferðamannastraum til landsins, einkum Evrópu- og Asíumanna, bæði til þess að vestrænar þjóðir kynnist landi og þjóð og vegna þess, að ferðamenn flytja með sér inn í landið mikið af erlendum gjaldeyri, sem Formósu van- hagar alltaf um. Maðurinn, sem stendur fyrir þessum samtökum, Yú Kúó- Húa, segír að líkindi séu til að auka megi stórum útflutnng til Suðaustur-Asíulandanna, og hefur Thailand keypt af þeim 5% milljón stikur (metra) af margs konar baðmullarvefnaði. Suður-Vietnam hefur líka keypt mikið af þessum vefnaði og margt annað, til dæmis 160 smálestir af alúmíníumplötum, 4700 smálestir af asfalti og all- mikið af krossviði. Loks sagði Yú Kúó-Húa, að ekki væri von á, að utanríkisverzlun með nýj- ar tegundir gengi betur, því að síðustu sjö árin, eða frá 1949, hefðu Formósubúar ekki haft tíma, eða ekki gefið sér tíma því að stjórnmálin hefðu á þéss um árum yfirskyggt allt. Annar maður í stjórn þessara mála er Sjen Sjeng. Hann leggur áherzlu á, að ritstjórar og útgefendur vinni með skyn- samlegum rökum að því, að rit- skoðun sé afnumin. Sé almennt álitið, að stjórnin á Formósu sé orðin því hlynnt, því að útgáfu frelsi sé nauðsynlegt til þess að Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.