Alþýðublaðið - 29.09.1956, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 29.09.1956, Qupperneq 5
ILaugardagur 29. sept. 1956. AlþýSubiaglg 5 „HA.NN mun reynast verri plága en Móðuharðindi og 'Svarti dauði samanlagðar," sagði einn af kunnustu prest- um landsins, meðan deilt var um símann. — Þannig tóku mjög margir íslendingar á móti einni mestu framför aldarinn- ar, þegar þessi þjóð ætlaði að tileinka sér hana. Pólitískt ofstæki, aldagróin tregða gegn öllum breytingum, samfara vanþekkingu og skammsýni réði því, að boðað var til æsingafundar, svo að Reykjavík komst í uppreisnar- ástand. Skeggjaðir, vaðmáls- klæddir bændur komu flengríð andi, berjandi- fótastokkinn, hvaðanæva úr sveitum um há- sláttinn til þess að reyna að setja niður ráðherrann, sem barðist fyrir símanum, kenna honum mannasiði og fá hann til þess að fara að vilja þeirra. En ekkert dugði. Við áttum mann, sem hafði sannfæringu og þorði að standa við hana, sem ekki gekk til samninga við ofstækið og van- þekkinguna, þó að hann ef til vill gæti grætt stjórnmálalega á því í bili. Hann var mikil- menni, hann var skáld, hann sá lengra en fjandmenn hans og margir fylgismenn þeirra. Þess vegna tókst honum að afstýra slysum með því að sitja við sinn keip — og koma símamál- inu í höfn. Hér er ekki hægt að rekja sögu sögu landsímans. En í dag er þessi ein merkasta stofnun þjóðarinnar hálfrar aldar göm- ul. Margar áætlanir höfðu verið gerðir, fjölmargir menn og fé- lög fengið einkaleyfi til þess að Jeggja sírna um landið og til þess, alþingi gert hverja sam- þykktina á fætur annarri og geysimiklar deilur verið háðar, áður en málið var til lykta leitt. Það var fyrst og fremst að þakka Hannesi Hafstein, að málið komst til framkvæmda árið 1906. Að vísu hefði síminn sigrað að lokum, hvað sem hefði orðið ofan á á þeim tíma, Hálfrar aldar afmæli Landssímans - en það reyndist þjóðinni gæfa, að ekki var beygt af vegi eins og svo fjöldamargir vildu þó gera. I raun og veru eru nú liðin 104 ár síðan fyrst var talað um síma í sambandi við ísland — og það tók því meira en hálfa öld að koma málinu í örugga höfn, enda höfðu þá verið rann sökuð og rædd fram og aftur í Danmörku og hér heima ýmis til'boð frá erlendum mönnum og félögum um síma til landsins og um það. En saga símans hér innanlands hefst með stofnun Talsímahlutafélags Reykjavík- ur, sem stofnað var árið 1904, en Knud Zimsen, þá verkfræð- ingur, síðar borgarstjóri, var aðalhvatamaðurinn að stofnun þess og síðan stjórnandi þar til bæjarsíminn tók til starfa. Fyrst í stað voru menn mjög tregir að taka síma, en segja má, að allt frá því um 1912 hafi síminn aldrei g,etað full- nægt eftirspurninni. Stærsta framförin í símamál unum var stofnun sjálfvirku stöðvarinnar, en samt hefur hún alltaf verið of lítil, þrátt fyrir stækkanir. Nú er sjálf- virkur sími í Reykjavík, Hafn- arfirði og á Akureyri, þó að segja megi, að nú nái sjálfvirk- ur sími að nokkru einnig til kaupstaðanna, sem liggja næst Reykjavík — og nokkurra kaup túna í nálægð þeirra að auki. Þó stendur þetta til bóta. Hér í Reykjavík eru stórkost legar umbætur á döfinni og er gert ráð fyrir, að þær komi til framkvæmda eftir nokkra mán uði, og er þá ætlað, að í fyrsta sinn í sögunni geti allir bæjar- búar fengið síma, sem þess óska. Bíða nú þúsundir manna eftir þessari viðbót. En þó að síminn hafi haft ó- segjanlega þýðingu fyrir þétt- hafa verið mjög einangraðar. Síminn tengdi byggðirnar sam an — og þar með landið allt, miklu meir og betur en allt ann að. Það var eríitt fyrir fátæka bændur og búendur að taka þessa uppfyndingu í þjónustu sína, en bæði þeir og þjóðfélag- Hannes Hafstein ávarpar mannfjöldann 29. september 1906. býlið eins og til dæmis; ið í heild hafa nú unnið svo Reykjavík, þá hefur hann ekki! vel saman á síðustu tveimur haft minni þýðingu fyrir dreif-! áratugum, að nú hafa níutíu og I býlið. Land okkar er stórt og tvær af hverjum eitt hundrað strjábyggt, og margar byggðir ábýlisjörðum landsins síma, en þá eru ekki taldar ábýlisjarðir, sem eru í kaupstöðum eða kaup túnum. Og það er langur tími liðinn síðan að nokkur hrepp- ur var algerlega símalaus. Póst- og símamálastjóri sagði mér i gær, að vonir stæðu til, að inn- an ekki langs tíma yrðu allir ábýlisjarðir landsins búnar að fá síma, það er að segja allir búéndur, sem vildu. Ég hygg, að nú þegar stöndum við fram- ar öllum öðrum þjóðum í þessu efni, hvað þá þegar búið er að ná hámarkinu — og ekki verð- ur komizt lengra. Hálfrar aidar afmæli land- símans er miðað við þann dag, sem ritsímasambandið frá Reykjavík til útlanda var opn- að, en áður var komið á rit- símasamband frá Seyðisfirði til útlanda. Ritsíminn til útlanda hafði fyrst og fremst þýðingu fyrir upplýsingu landsmanna, sem áður höfðu ekki fengið neinar fréttir frá umheiminum nema með erlendum blöðum og bréfum, sem bárust með skip- um, er voru allt að viku og upp í þrjár vikur á leiðinni hingaö — en auk þess hafði hann stór- kostlega þýðingu fyrir öll við- skipti landsmanna við erlenda kaupsýslumenn. Geta allir gert sér í hugarlund hve geysilegri breytingu þetta olli á öllum verzlunarháttum og viðskipt- um einrnitt þegar verzlunin var sem óðast að færast yfir á inn- lendar hendur, en einmitt upp úr tilkomu símans risu upp dug miklir menn, sem lögðu grund- völlinn að íslenzkri verzlun. Hinn 29. september árið 1906 bar upp á laugardag eins og nú, fimmtíu „árum síðar. Hannes Hafstein getur þess einnig, að hanr. voni, að laugardagurinn reynist til lukku. Hann flutti ræðu þennan dag til mannfjöld- ans, sem safnazt hafði sarnan við símastöðina, og til þess að gefa hugmynd um afstöðu hans til deilnanna skulu hér tilfærö nokkur orð hans. Hannes Haf- stein sagði meðal annars: ,,Ég ætla mér ekki að rekja (Frh. á 3. síðu.) MIKILVÆGUR þáttur í til- urð bókar er setning textans, nauðsynlegur, en vanalega ekki beint skemmtilegur, að minnsta kosti ekki fvrir höfundinn, sízt þegar á líður prófarkalestur <og honum fer að leiðast fyrir alvöru verk sitt. Þó fer þetta mikið eftir samstarfi við setj- arann. Sá, sem þetta ritar, hefur mikið þurft að lesa prófarkir iim dagana og hefur því haft mikil skipti við setjara, og er hreiii undantekning, að ekki iiafi samvinnan verið góð — ja, eina dæmið um vonda sam- vinnu held ég hafi verið, þegar setjari tók sér fyrir hendur að leiðrétta textann eftir sínu höfði, en það var raunar ekki annað en tómur kostnaður fyr- ir prentsmiðjuna, því að öllu varð að breyta aftur í samræmi við handritið. Sá setjari, sem ég hef haft mest. saman við að sælda, er Sveinbjörn Oddsson, sem nú er sjötugur í dag og mig langar að minnast örlítið á hér í blaðinu. Æviatriði hans, hvort mundi þeirra ekki getið í prentaratal- inu? En mig langar að segja fáein orð um kynni mín af manninum. Sveinbjörn hefur þrívegis, að ég held, verið árum saman í Gutenberg, síðast frá árinu 1934 og fram á þennan dag. Allan þann tíma hefur hann verið látinn setja vandasöm verk, þar á meðal hefur hann sett íslenzk fornrit, svo að á Sveinbjörn Oddsson. þessum tíma hafa ekki aðrir komið þar við nema rétt í ígrip um. Á þessum tíma hef ég ann- azt útgáfu nokkurra sagna í þessu ritsafni, og var því sam- vinna okkar harla mikil, og svo góð, að aldrei skyggði á. Hand- setning er við höfð, og er Svein björn einn þeirra manna, sem kunna enn þessa gömlu klass- ísku list. Hann er furðulega handfljótur, og er ekki hent að byrja útgáfu nema hafa gríðar mikið handrit tilbúið í upphafi; ekki væri ráðlegt að yrkja jafn óðum og hann setti eins og Gröndal gerði forðum daga. Sveinbjörn Oddsson er líka einn hinn öruggasti setjari, sem ég hef unnið með, og ekki leið á löngu, áður en hann kunni upp á sína tíu fingur all- ar secsnoníur, sem tíðkast í fornritunum, en það er satt að segja aíar vandasöm setning. Mjög er misjafnt, hve vel er í hendur búið af útgefanda; ekki hafa allir okkar haft jafnörugg vinnubrögð og dr. Bjarni Aðal- bjarnarson. Mjög er Svein- björn þolinmóður, en á það hef ur reynt stundum, ekki sízt í Njálu, en þá kvað hann raunar vísu um, að nokkuð þætti sér bókin löng. Útgefandi þóttist líka vera að læra eitthvað nýtt fram í síðustu próförk og af því leiddi nokkrar breytingar, en Sveinbjörn sýndi þá mikið um- burðarlyndi. Að loknu verkinu kvað hann: Glaður er og létt mín lund lífs á brautum hálu. Átti ég marga yndisstund, er ég setti Njálu. En það var ekki samvinnan við Sveinbjörn ein, sem var (Frh. á 2. síðu.) Minningarorð Sigurður Skagfiei SIGURÐUR SKAGFIELD óperusöngvari fæddist að Litlu-Seylu á Langholti í Skagafjarðarsýslu 29. júní 1895. Hann lézt á Landspítal- anum í Reykjavík 18. septem- ber 1956. Var hann því aðeins rúmlega 61 árs. - - Með Sigurði er hniginn til moldar fjölhæfur, stórbrotinn, hámenntaður og stórmerkur listamaður. Foreldrar Sigurðar voru sæmdarhjónin Jóhanná Steins dóttir hins ríka bónda að Stóru Gröf og Sigurður Jónsson odd- viti að Litlu-Seylu. Var hann Sunnlendingur, fæddur og al- inn upp í Fljótshlíðinni. Hann var náinn frændi þeirra Hraun gerðisbræðra, Geirs Sæmunds- sonar vígslubiskups á Akureyri og séra Ólafs Sæmundssonar að Hraungerði. Stóðu að Sigurði Skagfield góðir stofnar. Móður- ættin kunn fyrir ráðdeild og dugnað og hvers konar fjár- málahyggindi, en föðurættin glæsileg og listgefin. Erfði Skagfield í ríkum mæli fyrir- mennsku og glæsileik föðurætt- ar sinnar og bar hennar tákn og stórmerki hátt. Sigurður Skagfield ólst upp að Litlu-Seylu. Þaðan er fallegt útsýni. I austri er fjörðurinn með eyjarnar, Drangey, Málm- ey og Þórðarhöfða; í suðri há fjöll og hrikavaxin, þar á með- al Glóðafeykir, en í vestri Mæli fellshnjúkur. Eri neðar í hérað- inu er allt grasivaxið, með blómlegustu bændabýli svo langt sem augað eygir. For- eldrah&imili hans var hið bezta, fullt búsældar og hversdags háttprýði og snyrtimennsku, svo að orð var á gert. Sigurður naut hins bezta uppeldis; varð ungur mikill fyrir sér, geðríkur, glæsilegur að vallarsýn og stórbrotinn í daglegu lífi og hátterni. Hann bar af flestum sínum jafnöldr- um. Hann var þegar á unga aldri fullur sönghæfileika, gæddur mikilli söngrödd og raddfegurð. Hann hafði mikla kvenhylli eins og glæsimenn hafa á öllum öldum. í nágrenni við foreldraheimili Sigurðar var annað höfðingjaheimili, Páfastaðir. Bjuggu þar héraðs- höfðingjar, þau Guðrún Ólafs- dóttir og Albert Kristjánsson. Þau og heimili þeirra var hin mesta héraðsprýði. Meðal barna Páfastaðahjónanna var Lovísa Ingibjörg. Hún var eitt göfug- asta af gjafdrðum Skagafjarð- arsýslu og glæstasti og ríkasti (Frh. á 7. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.