Alþýðublaðið - 29.09.1956, Page 7
Laugardagur 29. sept. 1956,
7
AlþýSublaSSð
(PIATKA Z ULICY BARSKIEJ)
Pólsk verðlaunamynd í litum eftir metsölubók
Kazimierz Kozrtiewski.
Myndiíi lilaut Grand-Prix-verSlaunin á kvikmynda-
hátíðirini í Cannes.
Leiksíjóri: Alexander Ford
Aðal-hlutv.: Aleksandra Slaska, Tadeusz Janczar
Myndin hefur ekki verið sýnd áður hér á landi. Enskur
skýringartexti. Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 7 og 9.
EÍNVÍGIÐ í MYKKRINU.
Hörkuspennandi ný amerísk litmynd.
ALAN LADD.
Bönnuð börnum. -—■ Sýnd kl. 5.
Mámidagimi 1. október.
Gagnfræðaskóli Austurbæjar: Skólasetning kl. 14
(allar bekkjadeildir).
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar: 3. og 4. bekkir komi
kl. 14.
Gagnfræðaskólinn við Hringbraut: 3. bekkur komi
kl. 14.
Gagnfræðaskóli. verknáms: Skólasetning kl. 14.
Gagnfræðaskólinn við Vonarstræti: Skólasetning kl.
14.
Priðjiidagimi 2. oktöber.
Gagnfræðaskóli. Aiisturbæjar, Gagnfræðaskóli Vest-
urbæjar, Gagnfræðaskólir.n við Hringbraut, Gagnfræða-
skólinn við Lindargötu, gagnfræðadeild Laugarnesskóla,
gagnfræðadeild Miðbæjarskóla og Gagnfræðaskólinn við
Réttarholtsveg.
2. bekkir komi í skólana kl. 9 f. h.
1. bekkir komi í skólann kl. 10,30 f. h.
Gagnfræðaskólinn við Réttarholtsveg mun ekki geta
tekið til starfa fyrr en síðar í októbermánuði, en þeir
nemendur 1. og 2. bekkjar, er sækja eiga þann skólá,
eiga að mæta til skráningar í Háagerðisskóla á ofan-
greindum tímum.
Tiikynning um skólahverfi er birt á öðrum stað í
blaðinu.
NÁMSSTJÓRI.
Verkamenn óskast til vinnu við jarðsímagröft í
Reykjavík. Nánari upplýsingar í nýja símahúsinu
við Suðurlandsbraut, sími 82709 milli kl. 08.00 og
12.00 laugardag og kl. 08.00 og 18.00 mánudag.
Póst- og símamálastjórnla.
p mm
Framhald af 5. síðu.
svanninn þar og var þó af miklu
að taka. Hugir þeirra hneigð-
ust brátt sarnan, enda líkt á
komið um unpsld.i; ættríki,
bjartsýni, hrifnæmi og erfða
glgesimeimsku.
Þau Lcvísa og Sigurður gift-
ust á vormorgni lífsins. Þau
áttu sér eðlilega marga og
mikla drauma uni vini, urn vor-
fuglaklið, um langa og beina
rósabraut lífs síns. Þau byrjuðu
búskap að Páfastöðum, vel met-
in, ættsæl ög vinsæl, studd fjár
hagslegra verðmæta frá báðum
hliðum. En þetta varaði
skammt. Sigurði féll ei/\ sveita
lífið. Hann heyrði með sínum
innri eyrum, að blásinn var
lúður og slegin var málmgjöll í
dísahöllum fjarlægra landa.
Hans þrá leitaði þangað. Hann
vissi af sínum goðborna hæfi-
leika og þráði að mikla hann
og stækka. Hann sleit af sér
átthagaböndin, yfirgaf heimili
sitt, konu og börn, vini og ætt-
menn og hélt út í heim til að
leita gæfunnar, frama og auðs.
Þarna var djarft teflt og ten-
ingum kastað um frama og
framtíð. Sigurður brauzt fram
á listabrautinni, vann marga
sigra, fékk aðdáun og lófatak
þúsundanna. Hann dvaldist
langdvölum í Þýzkalandi,
heimalandi óperunnar og söng
þar í mörgu.m stórverkum. En
samt var það svo, að honum
auðnaðist ekki föst staða hj4
söngleikhúsum, Hann gat ekki
sett upp og endurheimt heimili
sitt með konu og börnum, sem
hann að sjálfsögðu þráði. Hon-
um reyndist gangan erfið og
um of löng upp á sigurhæðir
sönglistarinnar, enda þótt hann
þreytti skeiðið af kappi.
Skagfield stundaði nám hjá
Herold hirðsongvara í Kaup-
mannahöfn. Enn fremur var
hann við söngnám í Dresden
og víðar í Þýzkalandi. Hann
fór söngför um Norðurlönd.
Var um skeið söngvari við
söngleikliúsið í Oldenburg.
Dvaldist nokkur ár í Ameríku
og hélt þar söngskemmtanir
við orðstír og aðdáun og fjár-
afla. Hann vitjaði fósturjarðar-
innar við og við og hélt söng-
skemmtanir í Reykjavík, Akur-
eyri og víðar. Má meðal annars
nefna, að hann söng við vígslu
Kristskirkju í Landakoti 1929
og við móttöku van Rossum
kardínála.
Þeim Skagfield og Lovísu
Ingibjörgu varð tveggja barna
auðið í þeirra stuttu sambúð.
Börnin eru Hilmar skrifstofu-
maður, búsettur í Ameríku, og
Edda húsfreyja að Páfastöðum.
Eru börnin fyrirmannleg, fjöl-
hæf og glæsileg svo sem ættir
þeirra standa til.
Skagfield þráði líf lista-
mannsins og gekk þá braut og
þreytti skeiðið af kappi. Hann
hafnaði hinu borearalega lífi.
Hann vildi vera eins og fugl á
kvisti og fljúga frá einni grein
til annarrar. Því festi hann svo
lítið rætur. Hann var hið flögr-
andi skáld, sem átti heima hjá
sjálfum sér, söng og kvað aí
heilli þrá ávallt og ævinlega.
Söngur hans skyldi ganga fólki
að hjarta og þaðan átti Xann að
bergmála vítt um heim svo
lengi sem fólkið elskaði fagrar
listir.
Eins og títt er um öll stór-
menni andans hafði Skr^gfield
sínar veilur og takmarkanir,
því að fáum er allt lánað.. Hann
skorti á um samvinnuþýðleik;
skorti stéttvísi og jafnvel mátti
segja að háttvísi hans væri á
stundum ábótavant. Þetta varð
honum því miður fjötur um
fót. Skagfield hafnaði hinu
borgaralega lífi, sem honum
var þó upp í hendur lagt. Hann
hefði getað átt sitt ágæta heim
ili, að Páfastöðum, getað hlotn-
azt sá æðsti heiður, sem fram-
ast er hægt að fá, að verða við-
urkenndur fyrirmyndar heim-
ilisfaðir, með valkvendi að
konu við hlið sér og fögur börn.
En listagyðjan seiddi hann frá
öllu þessu inn á draumalönd
söngsins, sem dró honum hverf-
ul tímanleg gæði, en sigur hans
er, að hann mun lifa sem mikil-
hæfur söngmaður í meðvitund
þjóðarinnar um komandi ár.
P. Jak.
Dagar hða
(Frh. af 4. síðu.)
vinna hylli Vesturlanda. Um
ferðafólk segir hann, að það
mál- sé að komast á góðan rek-
spöl, því að samið hafi verið við
President-gufuskipafélagið um
að flytja farþegahópa í hring--
ferð um eyna og hafi þegar einn
hópur verið fluttur. Hafi sá
hópur verið sérlega ánægður
yfir ferðalaginu, því að nátt-
úrufegurð sé víða á eynni frá-
bær, auk þess fjöll og hitabelt-
isskógar, fossar, vötn dásamleg'
og heitar laugar.
Vegna frosta, sem gengu í
Frakklandi snemma á árinu, og
mikilla og langvarandi kulda í
sumar, verður vínuppskera þar
í landi, á þessu ári, bæði verri
og minni. Er talið víst, að vín
þessa árgangs verði súrt, sem
þykir nokkur galli, en samt
er verð á víni hækkandi, af því
talið er, að vínframleiðslan
verði 12 % minni en í fyrra.
En þessi 12% nema 8 milljón-
jum hektólítra eða 4 milljónum
200 lítra tunnum.
Hinn 20. þ.m. afhenti loft-
varnamálaráðherra Bandaríkj-
anna, Donald A. Onarles,
Tyrkjum 14 Thunderflash flugr
vélar, en þessi tegund fer hrað-
ar en hljóðið. Eru þær með sér-
stakan útbúnað til myndatöku
og' geta tekið myndir af jörðu
allt í 40.000 feta hæð. Þessar
14 flugvélar er fyrsta sendingin
af 50 flugvélum þessarar gerð-
ar, er Bandaríkin ætla að gefa
Tyrkjum.
Hinn frægi brezki eðlis- og.
efnafræðingur Friðrik Soddy er
látinn, 79 ára gamall. Hann
kom (1913), þá 36 ára gamall,
með kenninguna um ísótópana,
(og bjó til það orð). En kenn-
ing hans er skýringin á hvers
vegna atóm, sem eru sömu efn-
istégundar, geta verið misþung,
þó að efnafræðin geti ekki
greint þau að. Fyrir þessa
kenningu fékk hann Nóbels-
verðlaunin í efnafræði átta ár-
um síðar (1921).
3 stærðir — fyrirliggjandi.
Igi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19 — Sími 3184
a
Duglegur sendisveinn óskast allan
daginn.
Olíufélagið h.f.
Þriðjudaginn 2. október komi börnin í bamaskólana
sem liér segir:
Kl. 2 e. h. börn fædd 1946 (10 ára).
kl. 3. é. h. börn fædd 1945 (11 ára)
kl. 4 e. h. börn fædd 1944 (12 ára)
kl. 11 f. h. börn fædd 1947 (9 ára) úr skólahverfi
Háagerðisskóla.
Þau börn, sem flytjast milli skóla, skulu hafa með
sér prófskírteini og flutningstilkynningar.
Skóíastjórar.