Alþýðublaðið - 31.10.1956, Page 1

Alþýðublaðið - 31.10.1956, Page 1
Listirnar einasta landvörnin, sjá 5. s. S s s s s s s s s s s s XXXVII. árg. Miðvikudagur 31. október 1956 249. tbl.'^’Tglpww'- SVÍvH v Drees einu sinni enn. Sjá 4. síðu. Styrjöld ísraels og Egyptalands Állan daginn í gær áftu sér stað miklir liðsflutn-k ingar Breta og Frakka fyrir boíni Miðjarðarhafsins Cairo, Tel Aviv og London. — NTB. í gærkvöldi. ANTHONY EDEN, forsætisráðherra Breta, lýsti því yfir í neðri málstofu brezka þingsins í kvöld, að Bretar og Frakkar hefðu sent Egyptum og ísraels- mönnum orðsendingu, þar sem þess væri farið á leit, að Bretar og Frakkar fengju að staðsetja hersveitir á nokkrum stöðum á Egyptalandi og ísrael í öryggisskyni. Fengu Egyptar og ísraelsmenn 12 klukkustunda frest til þess að svara orðsend- ingunni. Einnig var þess óskað, að vopnaviðskiptum yrði hætt og herirnir færðir 16 km. frá Súez. Yrði ekki fallizt á þessi skilyrði, mundu brezkir og franskir herir sendir til Súez. Guy Mollet, forsætisráðherra Frakka, og Christian Pineau, untanríkisráðherra Frakka, fóru til London í dag til við- ræðna við Eden og Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra Breta um atburðina í Egyptalandi. Náðu ráðherrarnir samkomu- lagi um fyrrnefnda orðsendingu á fundinum. Orðsendinguna má telja hreina úrslitakosti og Ed- en skýrði frá henni í neðri mál- stofu brezka þingsins í dag. TIL ÖRYGGIS SÚEZSKURÐI í orðsendingunni fara Bretar og Frakkar þess á leit við rík- isstjórnir, ísraels og Egypta- lands, að þeir fái að staðsetja hersveitir við Port Said á Is- malia og Súez. ísraelsmenn og Egyptar eiga að hafa svarað fyrir, kl. 6 í fyrramálið. Er það skýrt fram tekið í orðsending- unni, að Bretar og Frakkar muni láta verða úr, því að senda her á fyrrnefnda staði, berist ekki svar fyrir tilskilinn tíma. Úrslitakostir Breta og Frakka voru afhentir egypzka og ís- raelska sendiherranum í Lond- on af Kirkpatrick, vara-utan- ríkisráðherra. Franski utanrík- isráðherrann, Christian Pineau, var viðstaddur, er afhendingin fór fram. REIÐUBÚNIR AÐ SEMJA FRIÐ í útvarpsræðu í Tel Aviv í dag kvað Eytan, fulltrúi í ut- anríkisráðuneytinu, ísraels- menn ekki vilja leggja undir sig ný landssvæði, en væru hins vegar einráðnir í að jafna við i (Frh. á 2. síðu.) I Þýzkf saltskip sökk út af Keflavík um hádegi í gær Skipverjaroir, I í að tötu, björguðust. Fregn til Alþýðublaðsins. Sandgerði í gær. ÞÝZKT SALTSKIP sökk út af Garðskaga um hádegið í dag. Allir skipverjarnir 11 að tölu komust í björgunarbátana og björguðust. Veður var gott, er sjóslys þetta vildi til, en skipið mun hafa siglt allt of nálægt landi, tekið niðri og fengið óstöðv- andi leka. Síðustu fréltir. Um miðnætti bárust þær fregnir, að Egyptar héfðu hafnað úrslitakostum Breta og Frakká. Lýstu þeir því yfir, að þeir mundu berjast til síðasta manns. Má nú búast við, að Bretar og Frakkar sendi hersveitir til Súez. Eden kallaði saman ráðu- neytisfund um miðnætti. ^Skipið tók niðri við eyrina sunn an við innsiglinguna í Sand- gerði, en ekki festist skipið og hélt því áfram ferð sinni. En er skipið var komið á móts við Kirkjuból á Garðsskaga var svo mikill sjór kominn í skipið, að það sökk. Var það á 8 metra dýpi. Allir björguðust. Skipverjar bjarguðust allir eins og áður segir. Var veður gott en staðurinn hins vegar mjög slæmur þarna. Skipbrots mönnum var 1 fyrstu komið fyrir í samkomuhúsi í Sand- gerði, en síðan voru þeir flutt- ir til Reykjavíkur. Fréttir frá Budapest segja rússneska herinn gera miskunnarlausar tilraunir til að útrýma upp- reisnarmönnum víðs vegar um landið VÍN, þriðjudag, (NTB-AFP). — Fréttir, sem bárust til Austurríkis í kvöld frá Ungverjalandi skýra frá því, að bardagar hafi aftur brotizt út í Budapest og vesturhluta Ungverjalands í dag. Skýrðu ferðamenn svo frá, að sveitir þjóðern- issinna í tveim hverfum í Budapest hafi jhaldið uppi jharðvítugri baráttu gegn ofurefli rússnesks liðs. Blaðamaður, sem talar ungversku og kom til Vínarborgar í kvöld frá vesturhéruðum Ungverjalands, skýrir frá því, að þjóðernissinnar hafi verið mjög daprir yfir þeim fréttum frá höfuðborginni, að rússneski herinn gerði miskunnarlausar tilraunir til að útrýma öllum uppreisnarmönnum. ---------------------------4 Bretar og Frakkar hyggjast beita neitunarvaldi í Ör- yggisráðinu. NEW YORK, NTB í gærkvöldi. ÖRYGGISRÁB SÞ var á fundum í allan gærdag og fram á nótt til þess að ræða styrj- öldina milli Egyptalands og ís- raels. Fulltrúi Bandaríkjanna bar fram tillögum „um að bund inn yrði þegar í stað endir á vopnaviðskipti“. í umræðum lagði hann áherzlu á það, að leysa yrði deiluna á friðsamleg- an hátt. iSíðar bárust fréttir um það, að Eisenhower Bandaríkjafor- seti hefði sent Bretum og Frökk um persónulegan boðskap um að leysa deilu ísraels og Egypta éftir friðsamlegum leiðum. Framhald á 7. síðu. Fréttir hafa borizt um, að tvö rúmensk fótgönguliðsherfylki hafi verið send inn í Ungverja- land til stuðnings Rússum, en liðsforingjar þjóðernissinna í bænum Sopron eru ekki trúað- ir á það. BYLTIN G ARRÁÐ í HERNUM Útvarpið í Búdapest skýrði í fyrsta sinn frá því í dag, að til væri byltingarráð innan ung- verska hersins og hefur ráð þetta gefið út yfirlýsingu, þar sem segir, að það standi á bak við þjóðina í því að verja það, sem áunnizt hefur með bylting unni. Af yfirlýsingu ráðsins sést, að það hefur sett ýmsa í- haldssama hershöfðingja af og starfar nú að því að afvopna deildir úr hinni leynilegu ör- yggislögreglu. Búdapest-útvarpið skýrði frá því í kvöld, að rússneski herinn hefði hafið brottflutning sinn kl. 16 í dag eftir staðartíma. Sagði í fréttasendingu útvarps- ins, að brottflutningnum verði haldið áfram á miðvikudag. Frétt um þetta var send út af landvarnaráðherranum, Karol Janza. FLOKKURINN j ENDURSKIPULAGÐUR Tilkynnt hefur verið í Búda- pest, að kommúnistaflokkur landsins hafi verið endurskipu- lagður og meðlimir, sem á einn eða annan hátt afhi fengið á sig stimpil, fái ekki inngöngu. LIÐSFLUTNINGUR RÚSSA INN í UNGVERJALAND Fréttir af hernaðarstöðunni í landinu voru óljósar og var í Vín erfitt að gera sér grein fyr- ir liðsflutningum Rússa. Sumar fréttir skýrðu frá því, að liðstyrkur hefði kom- (Frh. á 7. síðu.) ,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.