Alþýðublaðið - 31.10.1956, Side 4
4
AlþýSublaHiS
Miðvikudagur 31. okt. 195l8
Útgefandi: Alþýðuflokkarlnn.
Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. _
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsaon og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía Sai?.óelsdóttir.
Ritstj ómarsímar: 4901 og 4902.
Afgieiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðj an, Hwrfisgðtu 8—10.
'S
-S
Mennirnir^ sem þegja
ATBURÐIRNIR í Ung-
verjalandi og Póllandi und-
anfarna daga hafa vakið al-
heimsathygli. Frjálsir menn
fyllast skelfingu yfin öðru
eins og því, að skriðdrekum
sé att gegn óvopnuðum borg
urum og fólkið brytjað nið-
ur eins og flugur. Enn er erf
itt að átta sig á samhengi við
burðanna þan austur frá, en
hitt er vitað, að þar hefur átt
;ér stað hryllilegt blóðbað.
Rommúnisminn hefur verið
að dæma sjálfan sig í Ung-
verjalandi og Póllandi, og sá
dómun er óvefengjanlegur.
fín hvað segja aðdáendur
„austræna lýðræðisins“ hér
á íslandi við öllu þessu?
Þjóðviljinn burðaðist við
að taka afstöðu á dögunum.
Hann deildi á fyrrverandi
vaidhafa Póllands og Ung-
verjalands og játar, að þeir
hafi fylgt rangri stefnu og
gerzt sekir um mikla glæpi.
Það á líka að vera óhætt eft
ir að mennirnir eru fallnir í
ónáð og komnir í minni-
hluta heima fyrir. En Þjóð
viljinn sá aldrei mistökin
eða glæpina meðan sömu
menn voru við völd í Pól-
landi og Ungverjalandi.
Þvert á nióti. Þá var allt
gott og blessað, sem þeir
gerðu. Og enn forðast
kommúnistablaðið að taka
afstöðu til meginatriðanna
í þessu sambandi. Þjóðvilj-
inn segir ekki orð um það,
að valdhafar Rússlands
stjórnuðu þeim, sem nú eru
fallnir á sjálfs sín bragði í
Póllandi og Ungverjalandi.
Og hann hefur heldur ekk-
ert um það að segja, að rúss
neskum her sé att fram
gegn Ungverjum. Þjóðvilj-
inn veit ekki enn, hvað
hann má!
Það er þó einmitt þetta,
;em máli skiptir. Heimsvalda
stefna Sovétríkjanna í Ijósi
atburðanna í Póllandi og
Ungverjalandi sannast að
vera alvarlegustu mistök
kommúnismans. Og athæfi
rússneska hersins í Ungverja
landi er afleiðing hennar.
Rússar líta á sig sem herra
íeppríkjanna í Mið- og Aust
ur-Evrópu og hika ekki við
að beita þar valdi ofbeldisins
og grimmdarinnar. Hlutað-
éigandi lönd eru raunveru-
lega hersetin af Rússum,
sem þó þykjast vera forustu
þjóð heimsfriðarins. Og ís-
lenzka kommúnistablaðið
fæst ekki til að segja eitt
orð um þetta. Það veit ekki,
avort það eigi að afsaka sví
virðinguna eða megi for-
dæma hans og brestur kjark
til að hugsa sjálfstætt.
Þetta er sama sagan og
alltaf endurtekur sig um
kommúnista. Aumingja-
skapur Þjóðviijans kemur
því engum á óvart, hann er
ekki annað en allir eiga
von á og telja sjálfsagðan
hlut. En hvað um afstöðu
Alþýðubandalagis? Mið-
stjórn þess hefur enn ekki
látið neitt frá sér heyra um
atburðina í Póllandi og Ung
verjalandi. Hún þegir eins
og steinn. Þó eiga sæti í
henni menn, sem láíast ekki
vera kommúnistar, en segj
ast fylgja róítækri jafnað-
arstefnu, unna lýðræði og
mannhelgi og vera andvíg-
ir hvers konar ofbeldi.
Hvað finnst þeim um blóð
bað Rússa í Ungverja-
landi? Finnst þeim sæm-
andi, að afstaða þeirra sé
óljósari og aumkunarverð-
ari en kommúnistanna við
Þjóðviljann? Vilja þeir
ekki gera svo vel og taka af
stöðu á móti kommúnism-
anum og heimsvaldastefnu
Rússa, en með lýðræðis-
sinnuðum sósíalisma og
frelsisbaráttu þjóða, sem
kúgaðar eru í skjóli rúss-
nesks hers?
Róttækir jafnaðarmenn
um allan heim eru sannar-
lega ekki mykrir í máli um
atburðina í Póllandi og Ung
verjalandi, hvað þá að þeir
þegi eins og Alþýðubandalag
ið á íslandi. Þeir fordæma
þessa óhæfu og svívirðingu
eins og þeir fordæmdu blóð-
baðið í Austur-Berlín 1953
og ofbeldið í Poznan í ár.
Alþýðubandalagið var lög-
lega forfallað 1953. En það
þagði, þegar verkamennirnir
í Poznan voru brytjaðir nið-
ur, og það þegir enn við of
beldinu og grimmdinni í Ung
verjalandi. En frjálslyndir
og róttækir menn, sem kusu
Hannibal Valdimarisson,
Finnboga Rút og Alfreð
Gíslason á þing í síðustu
kosningum, eiga sannarlega
kröfurétt á því, að þeir þori
að hafa skoðun á þessu máli
og segja hana. Þögnin er
líka afstaða, þó að hlutskipti
hennar sé átakanlegur aum
ingjaskapur.
Askriftasímar blaðsins
eru 4900 og 4901.
Utan úr heimi
ÞAÐ ER orðin föst regla í
hollenzku stjórnmálalífi, að
stjórnarkreppan eftir hverjar
kosningar standi allt að því eins
lengi og nemur meðal valda-
tíma fransks ráðuneytis. Að
þessu sinni sló þó stjórnar-
kreppan öll met hvað það
snerti, því að hún stóð fjóra
mánuði. Og hún endaði á sama
hátt og svo oft áður — Willem
Drees tókst að mynda stjórn að
lokum. Hann hefur nú lagt
ráðherralista sinn fyrir Júlí-
önu drottningu; er hann skip-
aður fimm fulltrúum jafnað-
armannaflokksins.
Margir telja Willem Drees
fulltrúa hinnar eldri kynslóð-
ar jafnaðarmanna, — og gæt-
inna Hollendinga yfirleitt.
Hann hefur mjög einfaldar lífs
venjur, hefur verið strangur
bindindismaður alla æfi, býr í
lítilli og látlausri íbúð og ferð-
ast oftast heim í strætisvagn-
inum að loknu dagsverki. Hann
nýtur frábærrar lýðhylli, og
þó einkum meðal hinna eldri.
Það var Drees, sem fékk elli-
tryggingarlögin samþykkt.
Þau eru síðan aldrei nefnd ann-
að en Dreestryggingin. Þegar
hann sagði af sér ráðherradómi
eftir kosningarnar í vor, barst
jafnaðarmannablaðinu „Het
Vrije Volk“ bréf frá aldraðri
konu, sem þoldi önn vegna
Drees-trygginganna. Tekur
kona hans ef til vill við fram-
kvæmd þeirra? spurði hún.
Jafnaðarmannaflokkurinn
fékk 38 þingmenn af 100 kjörn
um við síðustu kosningar. Er
þetta í fyrsta skipti sem þeir
fá fleiri kjörna en kaþólski
flokkurinn, sem að þessu sinni
hlaut 32. Hinir skiptast á ýmsa
flokka. Jafnaðarmenn gátu því
bent á, að þeir væru í sókn,
höfðu unnið 3 fulltrúa síðan í
kosningunum 1952, sex síðan í
kosningunum 1948. Það er hröð
þróun á Hollandi.
En Drees, sem var forsætis-
ráðherra í kosningunum fór að
hollenzkri venju og sagði af
sér. Drottningin bað hann
veita viðskiptaráðuneytinu for
stöðu og menn tóku eftir því,
að hún nefndi ekki til hve
iangs tíma. Síðan reyndu fjór-
ir stjórnmálamenn, hver á eft-
ir öðrum að mynda stjórn, en
árangurslausri. Þá var leitað
til Drees — sem tókst það.
Það voru fyrst og fremst
varnarmálin, sem slagurinn
stóð urn, en svo ræddust leið-
togar flokkanna við og náðu
samkomulagi. Framlag til varn
armálanna skyldi verða jafnt
og áður, en laun þeirra, sem að
þeim unnu, hins vegar aukin
án- þess það væri reiknað með
framlaginu.
i Þá stóð og barátta um em-
bætti fjármálaráðherrans. Báð
ir vildu hafa hann úr sínurn
flokki. Margir telja að átökin
innan drottningarfjölskyldunn
| ar ættu sína sök á stjórnar-
kreppunni en um það getur
enginn sagt. Hollendingar sjálf-
ir benda á að áhrif drottning-
arinnar séu mjjög takmörkuð
í þessu sambandi. En maður
getur ímyndað sér að það hafi
ekki verið auðvelt fyrir stjórn-
málamennina að berjast þann-
ig á tveimur vígstöðvum í einu.
Sjó verSur breytf í ferskl vafn
með ódýrri aðferð effir 10 ái
SAN FANCISCO, Kaliforn-
íu. — Everett D. Howe, pró-
fessor við háskólann í Kaliforn
íu, hefur nú um skeið unnið að
tilraunum á vegum háskólans
með að breyta söltu vatni í
ferskt vatn.
Hefur hann látið svo um
mælt, að innan tíu ára muni
verða hægt að breyta söltu
vatni í ferskt vatn með litlum
tilkostnaði og mun það verða
notað til drykkjar, iðnaðar og
vatnsveitinga.
Howe sagði, að samkvæmt
þeim rannsóknum,. sem þegar
hefðu verið gerðar, þá væri nú
unnt að framleiða ferskt vatn
úr sjónum fyrir upphæð, er
næmi um það bil 100 dollur-
um fyrir hverja 1233,5 kúbik-
metra.
Howe sagði, að stórborgir
yrðu að greiða allt að 125 doll-
ara fyrir 1233,5 kúbikmetra af
fersku vatni, en lægsta gjald
væri 30 dollarar. Annars fer
gjaldið eftir staðsetningu borg-
anna.
Hann sagði enn fremur, að
ódýrasta aðferð, sem nú þekkt-
ist til þess að breyta söltu
vatni í ferskt vatn væri kunn
sem „eiming við lágt hitastig“.
Aðferð þessi er fólgin í því,
að vatni er breytt í gufu við
lágan þrýsting, en síðan hleypt
gegnum hverfihjól, við það
myndast orka og síðan ferskt
vatn.
Prófessor Howe er vongóður
um, að bráðlega muni verða
byggðar tilraunastöðvar, sem
veita muni vitneskju um,
hvernig þessi aðferð muni
reynast í framkvæmd.
Háskólinn í Kaliforníu hefur
látið fara fram rannsóknir og
gert tilraunir á þessu sviði síð-
an árið 1952. Þessar rannsóknir
eru gerðar í samráði við sams
konar rannsóknir, sem fram
fara á vegum bandarísku stjórn
arinnar.
Prófessor Howe sagði: „Við
erum þess fullvissir, að sá dag-
ur mun koma, er ódýrara verð-
ur fyrir okkur að beyta söltu
vatni í ferskt vatn en að flytja
vatn langar vegalengdir.“
Það er sérlega mikilvægt fyr
ir fylkið Kaliforníu, að þessar
rannsóknir gefi góðan árangur,
vegna þess að þar eru mikil
Iandssvæði, sem á eru ræktaðir
ávextir og grænmeti, og eru
þau að mestu leyti vökvuð með
víðtæku vatnsveitukerfi.
KVENNAÞATTUR
”1
Ritstjóri Torfhildur Steingrímsdóttir
NÝJIR LITIR Á HERBERGJ-
UM OG f HÚSUM.
John Frayn Turner segir, í ný
komnu blaði af Britain and Eve,
að nýjasta tízkan í húsamáln-
ingu sé svart og hvítt.
Hófst þessi tízka með svört-
um og hvítum flísum í eldhús-
inu, en þær tóku fljótt að breið-
ast út í baðið, forstofuna og
loks dagstofuna. Gekk þannig
lengi vel að aðeins voru svartar
og hvítar flísar á gólfinu. Síðan
kom svart gólfteppi, stoppaðir
stólar og loks veggfóður í Eng-
landi, að allsstaðar í nýjum hús
um getur að líta svart og hvítt
í öllum mögulegum munstui>
samsetningum og á hvaða hús-
gögnum sem er.
Hvér er svo ástæðan fyrir
þessu öllu saman, sökum þess að
svart og hvítt er svo þægilegt
saman og hvílir svo vel. Reynið
það bara segir hann.
Hvað finnst ykkur t. d. um
kínverska vasann, sem myndin I
er af. Hann er úr hvítu kera-
mik og með svörtum röadum.
JÓLAANNIR NÁLGAST.
Það fer senn að líða að því
að þið lesendur góðir farið að
hugsa ykkur gott til glóðarinn-
ar og reyna að útbúa ýmislegt
til jólanna. Má með sanni segja
að slíkt sé ekki ráð nema í tíma
sé tekið. Það er ákaflega leið-
inlegt að vera með allt á síð-
ustu stundu og vera svo yfir sig
i þreytt þegar að jólum kemur,
að lítill möguleiki er til þess að
njóta hátíðarinnar.
Ég ætla því á næstunni að
birta fyrir ykkur sem áhuga
hafið ýmsar hugmyndir að jóla-
gjöfum, sem þig getið sjálfar bú
ið til og vona að þið fylgið ráði
mínu um að fara þegar að hugsa
. til hátíðarinnar.
>000000000000000000000041
Auglýsið
í Alþýðublaðina l|