Alþýðublaðið - 11.01.1957, Síða 8

Alþýðublaðið - 11.01.1957, Síða 8
 8 bátar byrjaðir róðra, 3 munu fara á sjó uim heígina; einn er í smíðum, Ólafsvík í gær. Fregn til Alþýðublaðsins. V E R T í Ð er nú byrjuð hér. Hófust róðrar 2. janúar og eru 8 bátar komnir af stað. 5 þeirra leggja afla sinn upp hjá Hraðfrystihúsi Dagsbrúnar, 2 hjá Hróa h.f. og l.hjá Hrað- frystihúsi Ólafsvíkur. Nú um helgina munu 3 bátar hefja ráðra til viðbótar, 2 heimabátar og 1 aðkomubátur og munu þeir allir landa hjá HraðfryStihúsi Ólafsvíkur. Hinn nýji 55 lesta bátur er í srníðum á Akureyri fyrir Víg- lund Jónsson útgerðarmann og átti hann að vera tilbúinn um áramótin. Vélin er um það bil að koma til landsins nú, og verð ur hann því ekki tilbúinn fyrr gefur Færeypm björgunarfæki. KVENNADEILD Slysavarna félagsins í Reykjavík hefur á- kveðið að gefa Færeyingum fluglínu, björgunartæki og út- búnað sem þakklætisvott fyrir björgun þeirra á skipshöfn en í febrúar. Formaður á hon- um verður Tryggvi Jónsson. ÝMSAR ENDURBÆTUIÍ, Nú fara fram endurbætur hiá hraðfrystihúsi Ólafsvíkur, bæði á fiskimóttöku, vinnusal, frystitaskjum og vélum. Mun það taka til starfa um helgina. Verið er að. ljúka við byggingu geymsluhúss hjá Hraðfrysti húsi Dagsbrúnar, sem mún taka 450—500 tonn af freðfiski. Ver. ið er að stækka verulega frysti húsið hjá h.f. Hróa, og verður sú viðbót tekin í notkun innan tíðar. AF.LI SÆMILEGUR. Róið hefur verið það, sem af er vikunnar, og má telja afla sæmilegan. I gær var afli 5— 10 lestir á bát óslægt. Margt að komufólk er hér í atvinnu, þar á meðal milli 50—60 Færey- ingar. Bátar fóru á sjó í dag. O. Á. un ii aldr< ALÞYÐUFLOKKSFELOG s Föstudagur 11. janúar 1957 IN í Kópavögi halda skemmt ^ un fyrir aldrað fólk á morg ^ un laugardag kl. 3,30 e. h. S Skemmtunin iiefst meft sam S eiginlegri kaffidrykkju. AlltS eldra fólk er velkomið. S L, mm, HEiMSPEKIDEILD Háskóla íslands hefur metið ritgerð mag. art. Kristjáns. Eldjárns þjóðminjavarðar, Kuml og haugfé úr heiðnum sið á ís- landi, hsefa til varnar við dokt- orspróf. Fer doktorsvörnin fram í hátíðasal háskólans laug ardaginn 19. janúar n.k. og hefst kl. 2 síðdegis. Andmæl- endur af hendi háskólans verða dr. phil. Jan Petersen, yfirsafn stjóri frá Stafangri. og prófess or, dr. phil. Jón Jóhannesson. Athöfninni stjórnar forseti heimspekideildar, prófessor, dr. phil. Steingrímur J. Þorsteins- son. Öllum er heimilt að hlýða á doktorsprófið. Jón Friðsteinsson, Mr. Brittingham og Haraldur Gísi ason. Dregið í 1. fl. Vcru- happdrættis SÍBS. í GÆR var dregið í Vöru happdrætti SÍBS, 1. flokki, Dregið var um 200 vinninga að heildarupphæð kr. 740 þúsund. Hæstu vinningar komu á eftir- talin númer: 500 þús. — 57901; 50 þús. — 9858; 10 þús. — 3334, 109119, 15570, 35615, 37308; 5 þús. — 632, 1680, 5660, 29970, 46981, 52215, 54130, 53584. (Birt án á byrgðar). Veðrið í dag SV-átt með allhvössum éljum Átta bátar gerðir út í vetur. ÞORLÁKSRÖFN í gær. — Útgerð frá Þorlákshöfn fer sí- fellt vaxandi og í vetur sækja fleiri bátar vetrarvertíð þaðan en áður. Leguskilyrði bötnuðu verulega á árinu, en frysti- húsaskortur veldur enn óþægindum um verkun aflans. Vertíðarundirbúningi er nú 6 þessara báta og Eyrarbakka- að verða lokið í Þorlákshöfn bátur leggur upp afla sinn hér, og fara bátarnir á veiðar næstu daga. Átta bátar verða nú gerðir út héðan, en það er einum báti meira en í fyrra. Meitillinn á Verksmiðjufólk á Akureyr á móti sjúkrasamlagshækkun Skorar á alþiogi að endurskoða breytinguna firá því í marz sX < STJÓRN IÐJU á Akureyri samþykkti fyrir nokkru að mót- mæla þeirri hækkun á sjúkrasamlagsgjöldum, er felst í því, að hverjum manni, er leitar læknis, er gert að greiða aukagjald fyrir hvert læknaviðtal. Er hér um að ræða breytingu, er í- haldsstjórn Olafs Thórs kom á í marz síðastliðnum. Ályktunin var .gerð á stjórn- arfundi Iðju, félags verksmiðju fólks, Akureyri, sem haldinn var 4. janúar s.l.: „Stjórn Iðju, félags verk- smiðjufólks, á Akureyri, vill hér með eindregið, mótmæla þeirri hækkun á sjúkrasam- lagsgjöldum samkvæmt lög- um frá 29. marz 1956, er felst í því, a'ð hverjum manni er til læknis leitar, er gert að greiða aukagjald kr. 5.00 fyrir hvert læknaviðíal, og kr. 10.00 fyr- ir hverja heimvitjun. Auk þess, sem tekin er upp greiðsla fyrir röntgenmyndir og röntgengskoðun og til viS bátar minnkandi niðurgreiðsl ur á meðalakaupa, ennfremur eru híunnindakjör sjúkrasam lagsmeðlima að öðru leyti stór lega skcrt. Þessi ráðstöfun fyrrverandi ríkisstjórnar er því stórt spor afturá bak í tryggingarmál- um þjóðarinnar, þar sem tr.yggja á rekstur sjúkrasam- laganna með aukagjöldum frá þeim sjúku. Er hér algerlega horfið frá fyrstu hugmyndum um sjúkrasamlög er miðuðu að stuðningi við þá sjúku og . lasburða í þjpðfélaginu. Það hefði því átt að vera verk núverandi ríkisstjórnar, ef hún vildi vera starfi sínu ©g stefnu trú, að sjá um að slík lög kæmu ekki til fram- kvæmda, svo óréttlát sem þau eru. Stjórn Iðju vill því eindreg ið skora á hið háa alþimgi og ríkisstjórn að taka lög um AI mannatryggingar og sjúkra- samlög frá 29. marz 1956 til gagngerðar endurskoðunar“. NYR BATUE. Nýr bátur hefur vérið keypt- ur til Þorlákshafnar. báturinn Björgvin, og var hann keyptur frá Dalvík. Björgvin er 38 tonn að stærð og nýlegur. Fullráðið e.r nú á alla bát- ana. Útræði hefur gengið mjög vel héðan undanfarnar vertíðir. Bátarnir eru litlir, en afkoma þeirra góð. UNDIRBÚIN FRYSTÍ- HÚSSBYGGING. Erfiðleikar eru miklir í sam- bandi við vinnslu fiskaflans vegna þess að ekkert frystihús er á staðnum. Fiskurinn er því allur saltaður eða þurrkaður, en þegar afli er mikill, er baga- (Frh. á 2. síðu.) veiið n< Bandarískur iðjuhöldur veitir styrkina BANDARÍSKUR IÐJUHÖLDUR, Thomas E. Briitmghamaj hefur undanfarið dvalizt hér á landi. Kom bann hingað í þeim tilgangi að velja tvo íslenzka nárosmenn, er hann hugðist veita styrki til náms við Wisconsin-háskóla. , Gunnar Sigurðsson ritari ís lenzk-ameríska félagsins boð- aði blaðamenn á sinn fund í gær og gaf þeim kost á því að ræða við Brittingham og son hans er hingað kom með hon- um. Voru á fundinum einnig hinir tveir íslenzku námsmenn, er Brittingham hafði valið. VELUR ALLA SJÁLFUR. Gunnar Sigurðsson kynnti Mr. Thomas E. Brittingham fyrir blaðarnönnum. Skýrði hann svo frá, að Brittingham væri kunnur iðjúhöldur í Wilm ington, Deleware í Bandaríkj- unum. Hefur hann undanfarin ár veitt allmörgum námsmönn- um á Norðurlöndum styrki til náms í Bandaríkjunum og hef ur leitast við að hafa þann sér stæða hátt á við val þessara námsmanna að gera sér sjálfur ferð til hinna ýmsu landa til þess að geta kynnzt námsmönn unum persónulega og valið þá sjálfur eftir persónulega við- kynningu. Undanfarin ár hefur Brittingham styrkt námsmenn frá öllum hinum Norðurlöndun um en í upphafi hugðist hann einnig veita íslenzkum náms -14 VALDIR UR HOPI 12- NÁMSMANNA. j Yfirleitt eru námsmenn um tvítugt valdir. Tekur Britting- ham ekki aðeins tillit til náma hæfileika ’heldur einnig al- mennra mannkosta annarra^ Gunnar Sigurðsson skýrði blaðamönnum svo frá, að ís- lenzk-ameríska félagið hafði valið 12—14 íslenzka náms- menn og úr hópi þeirra hefði Brittingham valið tvo. Baw Gunnar fram þakklæti íslenzk ameríska félagsins til Britting ham fyrir hið óvenjulega boS hans og þá fyrirhöfn er hamt legði á sig að koma hingað sjálS ur til þess að velja námsmena- ina. ; VERZLUNARSKÓLASTÚD- ENT OG AKUREYRAR- STÚDENT. Þeir, sem valdir voru til fat) arinnar eru, Halldór Gíslasoit nemandi í 6. bekk Menntaskól- ans á Akureyi-i, er útskrifast, mun sem stúdent næsta vor og Jón Friðsteinsson stúd. oeeon., útskrifaður frá Verzlunarskúl* anum. Halldör er sonur Gísla Halldórssonar verkfræðings og mönnum styrki en ekki gat orð , hefur einu sinni komið til ið af því fyrr. Verulegar hafnarbælur í Þorlákshöfn. Bátakví í byggingu. Miklar hafnarbætur eru nú gerðar í Þorlákshöfn. Verið er að byggja stóra bátakví, sem sennilega verSur fullgérð fyrir næstu vertíð. I sumar hófst lenging bryggjanna og hafa nú þegar skapast beíri leguskilyrði en áður. Áð- staða bátanna til að athafna sig stórbatnar við þessar hafnarbætur. Aðalhafnargarðurinn lerigd ist í sumar um 14 meíra, með því að einu keri var bætt vi'ð hann. Við aðra bryggju var bætt tveim kcrjum, svo hún lengdist um 25 metra, en það er aðeins áfangi á leið til lokaðrar bátakvíar, sem þar skal koma. Almenna bvgg- ingarfélagið sér um hafnar- gerðina og mun henni lokið fyrir vertí'ð annan vetur. Þá skapast öryggi háta í Þorláks höfn, úíróðrar lögðust niður í Þorlákshöfn á sínum tíma vegna stórkostlegrar hættu, sem bátarnir voru alltaf í. Má nú vænta þess, að á næstu árum verði umfangsmikil og ört vaxandi útgerð frá Þor- lákshöfn, enda cr stutt að sækja á miðin. Bandaríkjanna í heimsókn til föður síns meðan hann dvald- ist þar. Jón er sonur Friðsteing Jónssonar veitingamanns hér í bæ. Munu þeir félagar haida ut an til náms við Wisconsin-há- skóla í Bandaríkjunum í sept- ember n.k. Báðir kváðust þeir mjög þakklátir Mr. Britting- ham fyrir hið rausnarlega boS hans. Halldór hyggst leggja stund á verkfræði en Jón hyggst stunda nám í viðskipta- fræðum. Engir ísl. stúdentar munu fyrir við Wiseonsin-há- skóla. BYRJAÐI FYRIR TILVIL JUN Brittingham skýrði blaða- mönnurn svo frá, að það heíði í rauninni verið ti’lviljun, að hann hóf að styrkja námsmenn á Norðurlöndum til náms í Bandaríkjunum. Sagðist hann (Frh. á 2. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.