Alþýðublaðið - 27.02.1957, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 27.02.1957, Qupperneq 4
4 A I þ ýð u bIað ið Miðvikuclagur 27. febr. 1957 MEGINATRHM : ý Óhreinskilni og fálm í trúarlífi |. þjóðarinnar. Andlega sinnað fólk íætur margt c annað koma í staðinn fyrir messuna. Messan er það sama og hún var j. á dögum postulanna. neyta matar með honum, — og þeir svöruðu velgerðum hans með því að bera fram sín bæn- arorð, lofgjörð og þökk. Eftir upprisu hans halda þeir um stund áfram að mæta honum með líkum hætti og verið hafði. En trúarstaðfestan hvarf ekki, þótt Kristur væri eklti ávallt eða allsstaðar sýnilegur. Þess1 vegna segir Pétur postuli í bréfi sínu til útlendinganna: ,,Þér; hafið ekki séð hann, en elskið hann þó. Þér hafið hann ekki nú fyir augum yðar, en trúið . samt á hann“ í DAG ætla ég að tala um efni, sem oft er mikið rætt hér á landi, enda þótt þeir séu margir,' sem að minnsta kosti á yfirborðinu láta sig það litlu skipta. Þetta málefni snertir oss öll, hver sem vér erum, og hvaða stétt eða stöðu, sem vér tilheyrum, af þeirri einföldu á- atæðu, að vér erum menn. Predikun eftir sr. Jakob Jónsson MORG SJONARMIÐ. Það er erfitt að ræða um þetta mál til hlítar á nokkurum mínútum. Mörg eru sjónarmið- in og margs að gæta. Sumir eiga erfitt með að ræða það, án samvizkubits, sem oft kem- ur fram í nokkurskonar afsök- unum af hendi þess, sem talar. Á dögum Jóns Vítalíns hefðu prestarnir talað um þetta mál með stóryrðum og þungum á- sökunartón. Ég ætla ekki að halda hér neina ávítunarpréd- ikun, enda þótt ég leyni því ekki, að efnið hljóti að snerta skapsmuni hvers prests og pré- dikara ,svo framarlega sem hon- um stendur ekki á sama um það, sem honum sjálfum er dýrmæt- ast, köllun sína og framgang fagnaðarerindisins. En það eru tvær ástæður til þess, að ég vildi síður láta skapsmuni mína hlaupa með mig í ofsa. í fyrsta lagi það, að þegar um þetta efni er að ræða, hljótum vér prest- arnir að finna vora eigin sekt eða eigin vanmátt, og ferst engan veginn að skella skuld- inn að öllu leyti á aðra. — Og í öðru Iagi hefi ég trú á því, að þeir menn, sem ég á erindi við, og nokkurs muni meta mín orð, séu líklegri til að íhuga málið af hreinskilni, og finna sína eigin sök, ef ég ræði við þá, án þess að fylla andrúms- loftið af ásökunum. En hér er oss öllum nauðsynlegt að finna, hvað að oss sjálfum snýr. Þetta yfirgripsmikla efni, sem . hér verður drepið á, er trúarlíf. íslendinga í dag og kirkjurækni; þeirra. — Er þá auðvitað ekki unnt að fara nákvæmlega í allt, er málíð snertir, heldur aðeins að stikla á stóru. En ég ræði þetta með þeirri bæn til guðs, að gott megi af því hljótast. Textinn, sem ég hefi valið, oss til upplýsingar og áminningar er: — Post. 2,42: — „Og þeir héldu- sér stöðuglega í kenn- ingu postulana, og brotningu brauðsins og bænarinnar.“ Séra Jakob Jónsson TRÚ FRUMKRISTN- INNAR. Guðspjöllin skýra frá lífi Jesú Krists, og hinni fyrstu boðun fagnaðareridisins. Post- ulasagan og bréfin bregða upp mörgum myndum af trúarlífi frumsafnaðanna. Hin kristna trú birfist þar fersk og fögur. Hún iý^ir sér í trausti á góðum guði, í Sannfæringunni um ná- vist hins upprisna. Hún er til- finning fyrir krafti andans, guð- legum mætti, sem læknar sjúka, lífgar mannsálirnar úr dauða- svefni, leysir úr læðingi orku hinna vandlátu. Trúin er sigur- fögnuður lífsins hjá einstakl- ingum og söfnuðum. Hún er vonin um sigur hins upprisna, meðvitund um návist hans, full- vissa um fyrirheit, sem enn höfðu ekki ræzt. Trúin er til- hlökkun til komandi tíma og eftirvænting eftir eilífðinni. Og trúin er líka kærléikur, svo mikill, að enginn þolir að sjá annan útundan við veizluborð jarðarinnar, því að þar sem er eitt hjarta og ein sál, þar er jörðin og ávöxtur hennar sam- eign. EIN MEGIN-LIND — GUÐÞJÓNUSTAN. Enginn, sem á annað borð les Nýja-testamentið með opn- um augum, getur komizt hjá að sjá, að trúarlífið í öllum þess ólíku myndum á sér einn megin-kjarna, eina megin-lind, einskonar orkustöð, sem allt annað lifnar og eflist af. Þessu lýsir Postulasagan með fáum og einföldum orðum á þessa leið: ,,Og þeir héldu sér stöð- uglega við kenningu postul- anna, og samfélagið, og brotn- ingu brauðsins og bænarinnar.“ Það er með öðrum orðum guðsþjónustan, eða eins og vér nú mundum segja, messan, sem er frumkristnum söfnuðum hin óþrjótandi máttarlind, sem endurnærir trúarlífið og gefur því styrk sinn. Hvernig mátti betta véra? Guðspjöllin segja oft frá því, sem gerist, þegar jöurfandi mað- ur mætti Jesú. Sá, sem trúði og sá, sem trúað var á, komu til móts hvor við annan. — Ekki aðeins einstaklingar, heldur heilir lærisveinahópar söfnuð- ust saman, til að heyra orð hans, finna snertingu hans, JESÚS NÁLÆGUR. Nú skyldu menn halda, að skki væri lengur um það að ræða, að Jesús Kristur og læri- sveinar hans mæltu sér mót. En það var öðru nær. Hann var | að vísu ósýnilegur, en andi hans hélt áfram að koma til móts við mennina. Og tæki Krists- andans voru nú kenning post- ulanna, þ. e. a. s. fagnaðarer- indið, boðað af þjónum hans, og sakramentið, sem hann stofn- aði til minningar um návist sína. Ekki návist, sem eitt sinn hafði verið, heldur til minning- ar um návist hans í nútíðinni. Og samfélagið átti sér enn stað í bænum, þ. e. a. s. sambæn safnaðarins, sem kom til guðs- þjónustunnar. — Það var þetta, sem var og hefur verið endur- næring trúarlífsins frá upphafi og til þessa dags. í trúariðjunni, mætist guð og maður, meistarinn og læri- sveininn, Drottinn og þjónn hans, Faðirinn og barnið, lækn- irinn og hinn sjúki, frelsarinn og hin synduga sál. Hin trúar- lega athöfn er samtal guðs og manns, og það samfélag er burðarrás þeirrar byggingar, sem vér nefnum kristilegt líf. NÝJA-TESTAMENTIÐ ER HREINSKILIN BÓK. Hefðu höfundar þess ritað sér til réttlætingar eða kristn- um mönnum yfirleitt til afsök- unar, hefði hún orðið töluvert á annan veg. Hvorki guðspjalla- menn, postular né sagnaritarar reyna að draga fjöður ávirðing- ar kristinna manna né veilur í trúarlífi þeirra og siðferði. En niðurstaða þeirra verður ávallt og allsstaðar hin sama, að trúarlífið, hið’ lífræna sam- félag við hinn upprisna Drott- in, sem átti sér stað í trúarleg- um iðkunum, hafi samt borið ávöxt. Og það sem miður fer, er þeim ekki sönnun þess, að guðs- þjónustan sé lítils virði, heldur alveg öfugt, að mönnunum sé nauðsyn á að rækja það sam- félag, sem í henni felst. — Nýja testamentið verður alltaf sá spegill, sem kristnir söfnuðir geta horft í, ef þeir vilja sjá sjálfa sig. Hinir djörfu og einlægu menn, sem undir áhrifum hins heilaga anda skrifuðu rit, sem endurspegla trúarlíf sjálfra þeirra og sam- tíðar þeirra, standa ljóslifandi fyrir framan mig og þig, og spyrja: Þorið þér að horfast í augu við sanna lýsingu af sjálf- u myður? Þorið þér að kannast við, hvað yður skortir? Hafið þér manndáð til að leita úrræða, eða taka upp aftur það sem þér hafið vanrækt? ISLENZKT TRUAR- OG KIRKJULÍF. Ég ætla mér ekki að gefa neina heildarmynd af íslenzku trúarlífi. Aðeins að benda á nokkur atriði, sem virðast eftir- tektarverð, þó að ég sé alveg við því búinn, að margir muni eiga erfitt með að fallast á sumt, sem ég segi. Eitt geta samt allir orðið sammála um. Messurnar eru illa sóttar. — Heimilisguðrækni á hinum gamla skilningi er ekki lengur til, nema þá á svo fáum heimilum, að þess gætir ekki. Með þessu er ég ekki að segja, að sjálf trúin sé útdauð. Trúin er lífseig, og enginn þarf að halda . að trú, sem rækt hefir verið með þjóðinni öldum sam- án, deyi alveg út með ókirkju- rækni þriggja kynslóða. Vér sjáum meira að segja ýmz merki þess, áð trúarþráin sé farin að segja til sín, meira en verið hefir undanfarna ára- tugi. En ef vér reynum að skyggnast dýpra, er það aðal- lega tvennt, sem vekur eftir- tekt. Annars vegar er viss ó- hreinskilni, sem virðist stafa af ótta við að tjá sig um þessa hluti. Hins vegar er fálmið og festuleysið í trúarlífi þjóðar- innar. ÞAÐ ÞARF KJARK TIL AÐ KANNAST VIÐ KRIST. Fyrir nokkru sagði einn af fremstu og frægustu íþrótta- mönnum þjóðarinnar alveg hreinskilnislega til um það, hvernig bænin til guðs hafi styrkt hann á úrslitastund keppninnar. Nýlega barst þetta í tal, þar sem nokkrir kunningj- ar ræddu saman. Þá lét ung kona þessi orð falla: Mér þykir vænst um, að hann skyldi þora að kannast við þetta. Mér hefir ekki gleymst þessi setning. Til þess var hún alltof átakanlega sönn. Það þarf m. ö. o. sérstakt hugrekki fyrir ungan mann, að kannast við það, að hann lifi trúarlífi. Og þetta er hjá þjóð, sem verið hefur kristin í nærri þúsund ár. Mér liggur við að spyrja, hvað sé að óttast, og þó þykist ég fara nærri um það. — Hann getur átt það á hættu að vera álitin vitlaus, eða að minnsta kosti fífl. Þjóðin liggur sem sé enn undir fargi þeirrar fásinnu, að trúin geti ekki samrýmst heil- brigðri skynsemi. Þetta er arfur frá þeim gamla tíma, þegar ekki þótti samboð- ið vísindamönnum eða fulltrú- j um þekkingarinnar að trúa á guð. MENNTAMENNIRNIR. ' Nú verður þess samt sem áður vart við ýmz tækifæri, að menntamenn þjóðarinnar séu að losa sig við þessa for- dóma, sem þeir eða þeirra stétt ’ átti mestan þáttinn í að inn- ræta fólkinu. En þess verður sjálfsagt nokkuð að bíða, að ís- lenzkir menntamenn, svo sem læknar, kennarar við æðri skól- ana eða vísindamenn, verði: trúarlífinu í landinu sá styrk- ur, sem einmitt þeir eiga að geta orðið, vegna þess hvert tillit er tekið til orða þeirra. Svo er þess auðvitað heldur ekki að vænta, að þeir séu á: svipstundu búnir að varpa af sér viðjunum,, fremur en aðrir. FÁLM OG REIK. Hitt atriðið, sem ég nefndi, fálmið og reikið, kemur fram í mörgum myndum. En nú vona ég, að enginn misskilji mig. Ég er ekki að áfellast þá, sem leita fyrir sér í alvöru ,að því sem geti fullnægt trúarþrá þeirra. í þessu öllu saman er tilaun hins vegvilta farfugls til þess að finna áttina heim. Og allt er betra en algert sinnuleysi eða sljóleiki 'þeirra, sem ekki finna neina hræringu hið innra (Frh. á 9. síðu.) HANNES Á HORNINU nr: Haugarnir á göíumim — Ófremdarástand — Dæmi , af Ægissíðu — Það> sem gamla konan sagði um grænlenzku stúlkurnar í Tyrkjaráninu. UM DAGINN skrifaði Kiót- hiidur mér og kvartaði undan því með þungum orðum, hvern- ig gengið væri frá snjósköflun- um upp á gangstétíum svo að næstum væri ómögulegt fyrir fólk að komast yfir göturnar. Klóthildur hafði á réttu að standa, en af tilefni bréfs henn- ar sagði ég, að hver ætti að gera hreint fyrir sínum dyrum. Ég átti við það, að hver og einn ætti að moka frá sínum tröppum til hliðar. NÚ HEF ÉG fengið annað bréf um þetta efni. Það barst mér fyrir nokkrum dögum og er enn í sínum rétti, því að enn eru skaflar, að vísu nú orðnir svart- ir af ryki og skít á gangstéttum og á fólk erfitt með að komast yfir götur nema með því að taka á sig stóran krók ef það ætlar til dæmis að komast á biðstöðv- ar strætisvagna. Bréfið er svo- hljóðandi: VEGFARANDI segir: „Það er ömurleg sjón að sjá gamalt fólk, konur með smábörn berandi og yfirleitt fólk á öllum aldri vera að klungrast á snjóhaugunum á flestum gangstéttum bæjarins. Það er eins og þeir, sem hefla akbrautirnar, geri sér það að skyldu að hrúga öllum snjó upp á gangstéttirnar og jafnvel fyrir inngangshlið til húsanna. Af þeim sökum verða vegfarendur annaðhvort að klifra yfir þessa auga og út á akbrautirnar eða þá að klungrast eftir þessum snjó- dyngjum. Er öllum Ijóst, að af þessu geta hlotizt slys og hafa hlotizt. Er ekki hægt að láta laga þetta? Þessu er beint til bæjar- yfirvaldanna.“ ÞAÐ ER ALVEG RÉTT, serri segir í bréfinu, en ég sný ekki j aftur með það, að hver og einn á | að gera hreint fyrir sínum dyr- um. Á sunnudaginn ók ég um Ægissíðuna. Þar eru mörg glæsi- leg hús, lúxushús, og að líkind- um á lúxusfólk þar heima. Á há- um og fögrum tröppum að einu lúxushúsinu sá ég stóran skafl alla leið að dyrunum, aðeins hafði verið mokað af tröppunum öðrurn megin, við vegginn, svo ; að þar væri hægt að komst upp og niður. Þrengra mátti það ekki ÞETTA ER DÆMI um það, hvernig menn láta reka á reið- anum. í gamla daga mokuðu menn vel frá sínum dyrum. Nú virðast menri álíta, að bæjarfé- lagið eigi einnig að sjá um það. En svo er ekki. Það á að sjá um að göturnar séu eins greiðfærar fyrir fólk og unnt er. Að þessu (Frh. á 11. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.