Alþýðublaðið - 27.02.1957, Side 6

Alþýðublaðið - 27.02.1957, Side 6
f Miðvikuclagur 27. febr. 1957 AiþýSubSagtg Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Biaöamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur GjSmundsson. Auglýsingastjóri: Emilíá Samuelsdótti’. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Afgreiðslusími: 4990. Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—-10. !: S s * .s s s s s s s s s s •s s s s s s V s s s s s s s I s s s s s s s s ,s s s s s s s s s s s s s s s s s •S s s s s s s s b s s s s s s Brynjólíur og Bjarni ALÞÝBUBLAÐIÐ gat þess á dögunum, að miklar deilur hafi risið um embætta veitingar Bjarna Benedikts- sonar, meðan hann var ráð- herra, en nú séu þær þagn- aðar, og taldi slíkt gleðilega breytingu á stjórn mennta- málanna. Morgunblaðið svar ar þessu í forustugrein sinni á sunnudag og segir orðrétt: „Ef Alhýðublaðið kynni að draga réttar ályktanir af full yrðingum sínum, hlýtur því að verða ljóst, að þetta sýnir aðeins, að núverandi mennta málaráðherra á öllu háttvís- ari andstæðingum að mætæ en sá fyrrverandi. Þessi stað hæfing Alþýðublaðsins er því fyrst og fremst dómur um ólíka stjórnarandstöðu, þar sem önnur gerir allt að árásarefnum, jafnvel það, sem með ágætum hefur tek- ízt í embættisfærslu, svo sem t. d. stöðuveitingar Bjarna Benediktssonar.“ Þetta er haldlítil vörn. ASeins tveir menn í emb- ætti menntamálaráftherra hafa undanfarin ár sætt harðri gagnrýni fyrir hlut- drægni og ofríki — Brynj- ólffur Bjarnason og Bjarni Benediktsson. Og sú af- staða einskorðaðist engan veginn við stjórnarand- stöðu. Stuðningsblöð ríkis- stjórnarinnar, sem Brynj- ólíur Bjarnason átti sæti í, hkctu iðulega að fordæma emfosettaveitin-gar hans. Sama gerðist í ráðherratíð Bjarna Benediktssonar. fiann átti sæti í samstjóm Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, en Tíminn gagnrýndi emb- ættaveitingar hans með svipF.iðum rökum og blöð stjómarandstöðunnar. Á- stæðan var sú, að Bjarni Benediktsson tók Brynjólf Bjarnason sér til fyrir- myndar sem menntamála- ráðherra, ráðstafaði emb- ættum af pólitískri og per- sónulegri hlutdrægni og hirti ekkert um viðteknar reglur. Nú er þeim ósóma lokið. Og það er þess vegna sem folöð núverandi stjórn- arandstöðu treystast ekki að gagnrýna embættaveit- ingar hins nýja mennta- málaráðherra. Tilefni gagn rýninnar er ekki lengur fyrir hendi. S s I V s s Hitt er rétt hjá Morgun- S blaðínu, að stundum er var- S hugavert að seilast langt í V gagnrýni á embættaveiting- ? ar. Alþýðublaðið hefur reynt I að gera sér þetta ljóst. Til- ^ gangur. þess var ekki sá að ^ ráðast á viðkomandi menn, ^ sem sumir að minnsta kosti ^ hafa reynzt vel í starfi. Það S gagnrýndi vinnubrögð og á- S kvarðanir ráðherrans, en á S þessu tvennu er ærinn mun- S ur. Mennirnir, sem fundu ^ iiáð fyrir augum Bjarna Benediktssonar, þegar hann ráðstafaði embættum, höfðu ekkert til saka unnið. Ráð- herrann bar ábyrgðina. Og ^ Bjarni Benediktsson verður s ekki afsakaður með því, að s einhverjir skjólstæðingar S hans reynist frambærilegir. S Það, sem máli skiptir, er hins S vegar framhjá hverjum var S gengið og hvernig embættun ^ um var ráðstafað og af hvaða • hvötum. ^ Morgunblaðið er líka ó- S sköp seinheppið í mál- S flutningi sínum. Deila reis S á sínum tíma um veitingu lí dósentsembættis í guð- ^ fræði við Háskóla íslands. • Keppinautarnir voru báð- J ir prýðilega menntaðir ^ menn, svo að háskólinn ^ hlaut að geta vel við unað, \ hvor þeirra sem hreppti S stöðuna. Hins vegar þótti S Bjarni Benediktsson beita S hér hlutdrægni í vali sínu. S Og nú afsakar Morgunblað S ið hann með því, að sá sem ekki fékk stöðuna, sé skóla ^ stjóri flokksskóla Fram- • sóknarflokksins, en þar er ^ átt við Samvinnuskólann! ^ Hér er gefið í skyn, að ^ stjórnmálaskoðanir um- ^ sækjendanna hafi ráðið úr- S slitum um val ráðherrans. S S Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum, en nægir til ^ þess að leiða aðalatriði máls- ^ ins í ljós. Bjarni Benedikts- ^ son lét stjórnast í ráðherratíð \ sinni af pólitískri hlutdrægni s eins og Brynjólfur Bjarna- S son. Sá ófögnuður er úr sög- ^ unni góðu heilli. Og hann S ætti aldrei framar að þekkj- S ast, þegar störfum og emb- S ættum er ráðstafað á íslandi. S Þess vegna færi bezt á því, S að Bjarni Benediktsson Í! beitti skapsmunum sínum ) framvegis við Morgunblaðið ^ en ekki í stjórnarráðinu. FéSki fækkaði um 223 í 11 sýslum 1955, en aöi um 290 í 7 sýsium, svo að alis fjöigaði um 67 í sveiium landsms það ár. LENGI UNDANFARIÐ hefur heldur fækkað í sveitum landsins, þó að nokkurrar stöðvunar færi að gæta eftir 1950, en á árinu 1955 fjölgaði heldur því fólki, sem lifir af landbún- aði. Um þetta og hið nýja landnám í sveitum landsins er fjall- að í greinargerð fylgjandi frumvarpi til laga um landnám, ræktun og byggingar í sveitum, er lagt hefur verið fram á al- þingi. Þar kemur fram, að af 453 nýbýlum eða 28 í byggðahverf- um ríkisins. Kaili úr áliti miUiþinganefnd ar, sem um þetta mál fjallaði fer hér á eftir: „Landnám ríkisins hefur stofnað til 12 byggingahverfa (árin 1947—1955), sem staðsett eru í 10 sýslum landsins. Það hefur umráð yfir 7017 ha af landi fyrir þessi hverfi. Áf landi þessu er ræktanlegt land 5135 hektarar og beitiland og fjalllendi 1832 ha. Auk þess hafa verið keypt beitar- og af- réttarlönd vegna tveggja hverfa, en þau hafa ekki verið kortlögð og því ekki til nákvæm stærð á því landi. Það er ekki tekið með í ofangreindar tölur, enda er hér að ræða urri sumar- beitilönd fyrir sauðfé ábúenda hverfanna. Samkvæmt skipu- lagi því, sem gert hefur verið um hverfin, er áætlað, að þar verði reist 70 býli, þegar hverf- in eru fullbvggð, og sex öðrum hefur verið heitið réttindum til ábúðar, sem lítilsháttar hafa byrjað framkvæmdir á þessu ári. Því nær helmingi væntan- legra býla hefur því verið ráð- stafað.“ iyrjað á fyrstu byggSahverfun- um 1943. „Undirbúningsframkvæmdir fyrstu hverfanna hófust árið 1948 með framræslu. Bygging- ar á íbúðar- og peningshúsum hófust 1950 og 1951 í tveimur hverfanna, en á næstu árum í hinum, eftir því sem ræktunar- undirbúningi miðaði áfram. Framfærslan á löndum hverf anna nær til um 2500 hektara. Opnir framræsluskurðir eru 186 km að lengd og rými þeirra 878 509 m3. Girðingar hafa ver- ið lagðar um ræktunar- og beiti lönd 87.2 km. Fullbyggðir ak- vegir til að tengja hverfin þjóð- vegum eða sýsluvegum og um hverfislöndin að býlunum eru 17.9 km. Aðalvatnsæðar, sem lagðar hafa verið, eru 13 þús- und metrar á lengd. Fullrækt- aðir hafa verið 320 ha og auk þess brotið land, plægt og herf- að, 199 ha. Til landkaupa og allra framangreindra fram- kvæmda hefur verið varið 8 087 þúsund krónum.“ Flestir úr sömu sveitum. „Flestir ábúendur í byggða- hverfunum eru úr þeim hrepp- um og-sýslum, sem byggðahverf in eru staðfest í, eða hafa verið uppaldir þar, en verið fluttir burtu á tímabili. Það verður að teljast æskilegt, að nýbýla- stjórn hafi aðstöðu til þess, á þann hátt, að láta af hendi land til búrekstrar, þar sem aðilar sjálfir ekki geta útvegað sér það. Samkvæmt framansögðu hef ur það áunnizt með núgildandi löggjöf, að 425 búendur hafa komizt það áleiðis, að beir eru með bú og hafa lokið veruleg- um hluta framkvæmda sinna. Á byrjunarstigi eru 143 einstak lingar, sem flestir eru bvrjaðir á framkvæmdum, en ekki það langt komnir, að.býlin séu bú- ; rekstrarhæf. Um helmingur i þeirra er með framkvæmdir á vfirstandandi ári, sem láns- og styrktarfé þarf til.“ Félksfækkun. „Sveitirnar urðu fyrir mikl- um áföllum vegna eyðingar á byggð allt tímabilið 1930—1949 og enn á sér stað fólksfækkun í sveitum, og einstakar jarðir fara í eyði. Séu taldir íbúar sveitanna, að frádreginni þeirri fólkstölu, er býr í smáþorpum og öðru þéttbýli, þar sem fólk hefur atvinnutekjur að meiri hluta af öðru en landbúnaði, sést, að stöðvunar verður fyrst vart eftir 1950, og þrátt fyrir þær aðgerðir, sem hér hefur verið lýst, er enn engan veginn að ræða um heildarfjölgun fólks í sveitum. Fólkstalan á heimilum í sveit um, að frádregnu því fólki, er býr í hinum smærri þorpum og kauptúnum, hefur verið þessi hin síðusíu ár: 1952 ...... 34 906 1953 ...... .. 34 979 .1954 ..... 34 244 1955 ...... 34311 Fólksfjölgun frá árinu 1954 til ársins 1955 hefur orðið í 7 sýslum um 290 manns, en í 11 sýslum hefur fólki fækkað um 223. svo beildarfólksaukningin er aðeins 67 manns þetta ár. í iþremur sýslum orsakast fólks- I fækkunin að noklc.ru leyti af því, að jarðir hafa farið í evði, en að nokkru levti er þaf um áð ræða fækkun fólks á heim- !ilunum, og eins í þeim 8 sýsl- um, þar sem engin jörð hefur farið í evðí á árinu.“ | Aukin ræktun og stækkun búa. I ,,Benda má á í þessum sam- bandi, að í þéttbýlinu, sem fólk leitar til, þegar það flytur úr sveitunum, kemst það inn í harða baráttu um þá úrslita- kosti, sem í þéttbýlinu eru til lífsframfæris, Oft eru sjá þessu fólki húsnæðisvandamálin það, sem erfiðast er að leysa. Hús- næði er dýrara í bæjum en í sveitum, og enn eru í flestum sýslum byggðar jarðir, sem hafa ófullnægjandi rúsakost, þó hin síðustu 9 ár hafi þar verið full- bvggð 2510 íbúðarhús til árs- loka 1955 að telja. | Fram hjá því verður ekki gengið í byggingamálum sveit- anna, að fjárfesting til bygg- inga, í hlutfalli við framleiðslu- möguleika búanna, er meiri á ltlum lítt ræktuðum jörðum en þeim, sem stærri eru. Því þarf að miða ráðstafanir gagnvart þeim jörðum, sem dregizt hafa aftur úr um ræktunarfram- kvæmdir, við það, að saman geti farið á jörðum, sem bvggja þarf upp á, aukin ræktun og ^stækkun bús að því marki, að afrakstur búanna geti staðið undir nauðsynlegum bygging- arumbótum.“ SamgöngoörSyg- ieikar. ,,Þes ber að geta í þessu sam- i bandi, að orsakir til þess, að jarðir hafa farið í eyði og fólk (Frh. á 11. síðu.) KVENNAÞÁTTUR Ritstjóri Torfhildur Steingrímsdóttir »#########« Gtrfsi iskrlfendur blaðiíns. 'I? Álþýðublaðið ÞAÐ er þekkt staðreynd, að fjallagrös voru beztu fjörefni forfeðra okkar, enda eigum við ekki kost á hollari né betri mat, Þau eru mesta hnossgæti. Þætt inum hefur borizt eftirfarandi bréf U -i þau, „Eins og öllum er kunnugt, voru fjallagrös hér áður fýrr höfð til matar og lyfja um land allt, og nú s'íðustu árin fjölgar þeim húsmæðrum stöðugt, sem kunna ð meta kosti fjallagras- anna. Ein húsmóðir, sam ég átti ný- lega tal við, sagði mér að hún notaði fjallagrösin í graut sam- an við skyr og stundum í vell- ing. Enn fremur sagðisi hún sjóða þau heil í mjólk og nota til miðdegismatar, og strax ef einhver á heimilinu yrði kvef- aður byggi hún til fjallagrasa- te. Grösin eru auðug af mjölva og mörgum bætiefnum, og margir, sem veilir hafa verið í maga, þykjast hafa læknað sig að miklu leyti með fjallagrös- um. Fróðustu menn fullyrða og telja víst, að í fjallagrösum sé meðal annars mikið af slímefn- um, sem eru ákaflega mikils- verð fyrir starfsemi magans og meltingarfæranna. Það er eng- inn vafi á að slímið er magan- um vörn gegn kvillum og á- verkum, enda voru magasjúk- dómar hér miklu sjaldgæfari áður fyrr. Þau eru áreiðanlega hollasta fæða fyrir sóttveikt fólk, sem ekki þolir annan mat. Um fjallagrösin segir Magn- ús Stephensen í Hugvekjum 1808: „Hvernig sem fjallagrös eru brúkuð eru þau margreynd að vera hið hollasta og kröftugasta læknismeðal og fæði í megru- sótt og brjóstveiki, langvar- andi innantökum og magaveiki, halda við jöfnum og góðum hægðum og matarmeltingu, en eru þar hjá yírið vel nærandi.“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.