Alþýðublaðið - 29.03.1957, Side 4
AlþýðublaSið
Föstudagur 29. marz 1957
Pierve Marquette:
Fjórða grein
urnar í
SÚ STAÐREYND að Fravcla
skuli tala opinskátt um ókyrrð
á sviði mennta- og stjórnmála,
sýnir bezt á hve hátt stig hún
hlýtur að hafa komizt. Þörfin
á því að berjast gegn spillingu
þessara nýju hugmynda er aug-
sýnilega þyngri á metunum í
huga kennimanna flokksins
heldur en sú áhætta, sem lagt
væri í, ef ekki væri nógu mik-
ið að því gert að ræða þetta mál
opinberlega. í ritstjórnargrein
í Pravda frá 14. desember er
lækningin sögð fólgin í því „að
sýna meiri umhyggju fyrir hug-
sjónalegri uppfræðslu mennta-
stéttar hinna mörgu þjóð-
brota í Asíu“. En það er varla
hægt að búast við, að slík lækn
ing beri tilætlaðan árangur,
vegna þess að það eru einmitt
ágallar þessarar ,,uppfræðslu“,
sem nú eru að birtast svo áþreif
anlega. Nú bendir margt til
þess, að verið sé að herða á eft-
irlitinu með athöfnum rithöf-
unda og listamanna. í október
s.l. fréttist, að Molotov hefði
verið gerður „æðsti lávarður"
menntamála. Greinilegasta vís-
bendingin um, að flokkseftir-
lit með bókmenntum og listum
verður aftur tekið upp, er sú,
að þetta embætti var veitt gall-
hörðum ,,StaIínista“. í lok nóv-
embermánaðar sótti Molotov
fund um myndlist, sem haldinn
var á vegum menntamálaráðu-
neytisins. Þar lagði hann á-
herzlu á nauðsyn þess, að skipu
lagt verði „víðtækt og daglegt
eftirlit flokksins“ með liststarfi
og að „haldið verði fast við
kenningar bolsévika“.
1.
Það ber að hafa í huga, að
fvrstu merki um stjórnmála-
lega ókyrrð í Póllandi og Ung-
verjalandi komu fram í hópi
listamanna. Þetta er staðreynd,
sem sovétleiðtogarnir urðu á-
þreifanlega varir við. Það er
einnig athvglisvert, hve við-
brögð opinberra pólskra og ung
verskra málgagna fyrir upp-
reisnina í bessum löndum eru
svipuð viðbrögðum Pravda í
fordæmingunum á þessum nýju
viðhorfum. Þar eru sömu skír-
skotanir til ,,lýðskrumaratals“
og „villuráfandi skoðana“ (Try-
buna Ludu, 20. júlí 1956); „ó-
fullnægjandi stjórnmálaskoð-
ana“ (Nowa Kultura, 19. júní);
andspvrnu gegn „nauðsyn og
rétti á handleiðslu flokksins í
bókmenntum“ (Tarsadalmi
Szemle, desember 1955) og
þeirrar staðreyndar, að „flokks
andinn og kennisetningar í
bókmenntum okkar eru ekki
nógu háþróaðar" (Szabad Nep,
15. marz 1954).
Slíkt tal megnaði ekki að
stemma stigu við óánægjunni
meðal menntamanna í Póllandi
og Ungverjalandi, og það er
ekki ósennilegt, að Molotov
verði að grípa til ákveðnari ráð-1 Hollusta við marx-leninisma,
stafana, ef hann ætlar sér að I við grundvöll flokksandans í
kæfa þessa villutrúarneista og j bókmenntum oglistum,hollusta
varna því, að úr þeim verði bál. j við ákvæði alþjóðastefnu öreig-
Ritstjórar Novy Mir hafa þeg- j anna og við hugmyndir um vin-
ar fengið ákúrur fyrir fífldjarfa
stefnu. í Pravda frá 15. des-
ember 1956 segir, að flokks-
fundur bandalags úkraínskra
rithöfunda hafi fordæmt þau
„alvarlegu mistök“, sem rit-
höfundar hefðu gert sig seka
um með því að birta „hugsjóna-
lega vanþroskuð verk, sem hafa
ekkert listrænt gildi og eru
stundum blátt áfram spillandi11.
Verkið, sem valið var til sér-
stakrar gagnrýni, var skáldsaga
Dudintsevs „Not By Bread
Alone“, en þar „er dregin upp
afskræmd mynd af sovétveru-
leikanum“.
áttu þjóðanna — það er grund-
völlurinn, sem verkalýðs-
menntafrömuðir Sovét-Úkra-
ínu standa ósigrandí'á.“
2.
Þess sjást merkí, að kúlna-
hríð Molotovs hefur þegar haft
þau áhrif, að bókmenntatímarit
eru farin að lækka seglin. Des-
emberhefti þessara rita eru
furðanlega gjörsneydd öllu um-
deilanlegu efni. En kúgunar-
stefna getur ekki sefað óánægju
menntamanna; hún getur að-
eins varnað því um stundarsak-
ir, að óánægjuraddirnar láti frá
sér heyra, og um síðir verður
hún ekki til annars en magna
þær og blása í þær hita.
Samþykkt frá ráðstefnu
menningarfrömuða verka-
manna í Úkrínu, sem birt var í
Pravda þann 8. janúar, er síð-
asta heimild um núgildandi
sjónarmið yfirvaldanna. Hún
gefur góða hugmynd um það,
hve djúpt áhyggjur yfirvald-
anna ristu og hve mikilvægar
umræðurnar voru:
„í einstökum tímaritum
(Novy Mir, Questions of Philo-
sophy o.fl.) voru fyrir nokkru
gerðar tilraunir til þess að end-
urskoða ákvæði flokks okkar
um viðhorf til bókmennta og
lista, kasta rýrð á grundvallar-
lögmál sósíal-raunsæisstefnunn
ar og leitast við að þurrka út
að hætti Níhílista afrek og
merka áfanga í þróun sovét-
bókmennta og lista. Það hefur
jafnvel skotið upp fólki, sem
hefur reynt að draga úr per-
sónulegum mistökum sínum,
með margskonar staðhæfing-
um um svokallaða takmörkun
tjáningarforms sósíal-raunsæ-
isstefnunnar.
Tilkoma sósíal-raunsæisstefn
unnar í bókmenntum og list-
um stóð alltaf í sambandi við
stéttabaráttu á vígvelli hug-
sjónanna. Þessari baráttu var
haldið uppi af sovétrithöfund-
um og listafrömuðum undir
handleiðslu Kommúnistaflokks-
ins gegn ódulbúnum og dul-
búnum óvinum sósíalistískrar
menningar, gegn blekkingarvef
auðvaldsagenta í bókmenntum
og listum, gegn afturhaldssemi.
3.
Grein eftir K. Simonov, sem
nefnist „Litterary Notes“ og
birtist í Novy Mir í desember
1956, bendir til þess, að flokk-
urinn sé ef til vill líka að reyna
að taka fyrir gagnrýni á sósíal-
raunsæisstefnunni með slyng-
ari ráðum. Simonov lézt finna
til sömu smánar og viðbjóðs og
margir rithöfundar vegna
skammarlegrar meðferðar á
þeim bókmenntagagnrýnendum
á dögum Stalíns, sem dirfðust
að harma skrautbúnað sovét-
veruleikans á leiksviðum lands-
ins: þeir hefðu hreinlega verið
sakaðir um „vísvitandi, skipu-
lagða fjöldaárás á sovétbók-
menntir“. Þegar hann hafði
reynt þannig að vinna samúð
lesenda sinna, hóf hann að
verja lögmál sósíal-raunsæis-
stefnunnar. Hann hélt því fram
að blettur hefði fallið á hana
í augum sumra rithöfunda
vegna Stalínsdýrkunar eftir-
stríðsáranna, svo að sumum
gagnrýnendum hefði láðst að
gera greinarmun á þeim bók-
um, sem raunverulega sam-
rjnndust sósíal-raunsæisstefn-
unni og þeim, er af völdum
þessarar persónudýrkunar var
ósjálfrátt en ranglega gert ráð
fyrir að væru í anda hennar.
Það væri engin þörf á að kasta
grundvallarlögmáli sósíal-raun-
sæisstefnunnar fyrir borð; það
þyrfti aðeins að skilgreina á ný
tilgang hennar á fullnægjandi
hátt. Benti hann á, að nauð-
synlegt væri að ræða þetta mál
opinberlega. Þegar höfð er í
huga tilhneiging Simonovs til
að lúta forskriftum, er senni-
legasta skýringin á þessari
grein sú, að hún sé tilrauna-
skot, sem hleypt var af með
blessun flokksins. Tilgangur
hennar virðist vera að láta líta
svo út sem þeir óski eftir frjáls
um umræðum, þótt í rauninni
sé ekki blakað við gfundvelli
þess, sem á að ræða.
lenda hugsjónafræði“, hafi að
nokkru leyti orðið til fyrir á-
hrif frá samskiptunum við
frjáls þjóðfélög á Yesturlönd-
um. Enda þótt slík samskipti
hafi verið mjög takmörkuð,
hafa þau eftir eitt ár gengið
langt í því að brjóta niður ár-
angurinn af hinni vandlega
skipulögðu mennta- og listaein
angrun Stalínstímabilsins.
En stærsti aflvaki ólgunnar
meðal menntamanna var þó 20.
flokksþingið. Nú er það aug-
ljóst, að Krústjov misreiknaði
áhrifin af uppljóstunum sín-
um, ekki aðeins í leppríkjun-
um heldur og í sjálfu Rússlandi.
Afneitun hans á Stalín og arfi
hans höfðu tvennskonar áhrif.
Annars vegar varð það til þess
að varpa rýrð á núverandi for-
ystu í augum margra mennta-
manna og það hugsjónakerfi,
sem hún boðar; hins vegar
stuðlaði fullyrðing hans um, að
leynilögreglan myndi aldrei
aftur njóta ótakmarkaðs valds,
að því að örva aukið málfrelsi.
5.
Ófrægingarherferðin gegn
Stalín hefur orðið til þess að
opna augu manna, en auk þess
hafa margir meðal mennta-
manna fyllzt viðbjóði á þeirri
hræsni, sem núverandi leiðtog-
ar þeirra hafa sýnt með því að
beita dýrslegu valdi til þess að
bæla niður sjálfstæðiskröfur
Ungverja. Litiö verður á þær
ráðsýafanir, sem nú eru gerðar
til þess að kæfa ókyrrð meðal
menntamanna, sem frekari
sönnun þess, að sovétvaldhaf-
ar þekki ekkert annað stjórn-
arkerfi en Stalínismann, sem
þeir hafa tilkynnt opinberlega,
að þeir hafi sagt skilið við, enda
SAMTININGUR
Megraði sig í hel.
STÚLKA EIN lézt nýlega í
sjúkrahúsi í Stokklióhni eftir
að hafa gengið einum of langt
í tilraunum tii að megra sig.
Hún var 25 ára gömul og vó
55 kíló fyrir þrem árum er
hún byrjaði að megra sig
vegna þess að maður nokkur
hafði sagt við hana að hún
væri of feit. Þegar stúlkan
var svo flutt á sjúkrahús var
lnin orðin 40 kíló og heilsu-
farið heldur bágborið. Henni
var þar gefið blóð og veitt öll
möguleg læknishjálp — en
allt kom fyrir ekki. Hún dó
litlu síðar.
Læknarnir segja að hún
hafi komið of seint á sjúkra-
húsið. Skömmu fyrir dauða
sinn varð stúlkan fyrir því
andstreymi, að ónærgætni
maðurinn, sem hafði áður
sagt að hún væri of feit, hafði
nú misst allan áliuga fvrir
henni, þrátt fyrir megrunina,
og ekki varð það til að bæta
heilsuna.
þótt þeir sverji sig enn í ætt
við hann í augum rússnesku
þjóðarinnar. Stalínsformúlan
er nú orðið ekki nothæf né
vænleg til árangurs, en þó hef-
ur engin önnur komið fram, og
í heimi menntamanna er það
harla vafasamt, hvort til muni
vera nokkur hálfvolgur bás
milli sósíal-raunsæisstefnu og
hugsana- og málfrelsis.
HANNES ÁHORNINU
VETTVANGUR DAGSINS
Menn, sem
Frjáls menning — Hugtakabrengl
skilja ekki mælt mál — Ráðizt á Gunnar Gunnars
Gætum að framkvæmdinni
S.G.T. Félagsvisfin
í G. T.-húsinu í kvöld kl. 9.
S þátttakendur fá kvöldverðlaun.
DANSINN hefst kl. 10,30.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 3355.
4.
Ókyrrðin meðal menntamanna
í Ráðstjórnarríkjunum stafar
af margvíslegum ástæðum. Ein
þeirra er aukið menningarsam-
band við Vesturlönd eftir sam-
komulagið, sem náðist á fjór-
veldaráðstefnunni í Genf 1955,
og ætti að varast að gera of lít-
ið úr áhrifum þessa. Þetta
aukna menningarsamband varð
á skömmum tíma mjög til þess
að ala á hungri sovétmennta-
manna eftir athfana- og hug-
sjónafrelsi. Síðast liðið ár hljóta
þessi samskipti að hafa þurrk-
að burt margan misskilninginn
um skilorðsbundið frelsi rúss-
neskra og vestrænna mennta-
manna og um lífsskilyrði íbúa
hinna vestrænu „auðvalds-
ríkja“. Verið getur, að skoðanir
þær, sem nú koma fram meðal
margra innan rússnesku
menntastéttarinnar og yfirvöld-
in stimpla sem „auvirðilegan
auðvaldshugsunarhátt“ og „er-
son
FRJALS MENNING er fagurt
orð. Ekki sízt er vert að kryfja
það til mergjar þeg’ar þeir þykj-
ast eiga ,,patent“ á menning-
unni, sem felia allt í fjötra,
kúga heilar þjóðir, ráðast með
skriðdrekum gégn vopnlausu
fólki, myrða það í tugþúsunda-
tali og flytja annað brott úr
landi sínu í útlegð og þrældóm.
ÉG SÉ að Þjóðviljinn ræðst
með ofstópa á Gunnar skáld
Gunnarsson fyrir það að hann
hefur Beitt sér fyrir stofnun fé-
lags til verndar frjálsri menn-
ingu eins og við íslendingar
skiljum það hugtak. Kommún-
istar skilja það ekki og kunna
það ekki. Hugtakabrenglin hafa
leitt þá afvega svo að þeir skilja
ekki mælt mál. Þess vegna ráð-
ast þeir á Gunnar Gunnarsson.
ÞEIR VILJA EKKI nein sam-
tök í þessa átt. Þeir óska eftir
því að eiga „frítt spil“: stofnun
alls konar sýndarsamtaka: frið-
arsamtök kvenna, menningar-
tengslasamtök ofbeldismanna
við okkur íslendinga. Ef ein-
hver rís upp til starfa ráðast
þeir að honum með kjafti og
klóm.
ALMENNINGUR skal varast
að taka mark á nokkru orði
kommúnista um þessi mál. Allt
starf þeirra miðar að því að
rugla dómgreind, búa til ný hug
j tök, níða alla, sem snúast gegn
þeim. Æ fleiri skilja þetta og
fara eftir því. í raun og veru
eigum við enga samleið með
kommúnistum í menningarmál-
um, Við hugsum öðru vísi en
þeir og störfum öðru vísi. Þeir
eru eins blindir og ofstækistrú-
armenn. Það er hvorki hægt að
ræða við þá né starfa með þeim,
að minnsta kosti ekki nema þeir
séu hræddir.
ÞAÐ ER ÆSKILEGT að sem
flestir taki þátt í stofnun hins
nýja félags. Það er engum vafa
bundið, að menn úr öllum lýð-
ræðisflokkum eru einhuga um
stefnumálin, að minnsta kosti
ættum við jafnaðarmenn að
vera það, því að félagið er í
raun og veru byggt upp af þeim
í öllum löndum. Eln félagið verð
ur að stofna á breiðum grund-
velli og nauðsynlegt að það hafi
það fyrst og fremst í huga, að
sameina alla lýðræðissinna í því
til starfa.
ÉG IIELD að bezt væri að
nýir menn veldust til forustu
fyrir þessum félagsskap. Ég á
við það, að þeir, sem ekki hafa
komið við sögu í stjórnmálaá-
tökunum, veljist í stjórn félags-
ins. Þar eiga hvorki að vera
stjórnmálaforingjar eða aðrir
framámenn. Hins vegar eigum
við marga ágæta menntamenn,
skáld og listamenn, sem ekki
hafa tekið þátt í átökunum.
ÞESSIR MENN geta sameinað
okkur hina til starfa fyrir þær
göfugu hugsjónir, sem vaka fyr
ir þeim, sem vinna að stofnun
þessa alþjóðafélagsskapar liér á
landi. Veljum þessa menn til for
ustu — og fylkjum okkur um þá.
Hannes á horninu.