Alþýðublaðið - 31.07.1957, Síða 4
4
Miðvikudagur 31. júlí 1957
Alþýgublaaiff
KVIKMYNDAFRETTIR
Eftirtaldar tvær fræðslu-
kvikmyndir eru fvrir nokkru
komnar á markaðinn í Banda
ríkjunum: „Human Here-
dity“ — Sýningartími 18
dity“, sýningartími 18 mín,
litmynd. Fjallar hún um
mannlegar erfðir og eigin-
leika og áhrif menningar og
umhverfis á framkomu fólks
og viðbrögð. — „Anger at
Work“, sýningartími 21 mín.
Framleiðandi er háskólinn í
Oklahoma og heibrigðismála
ráðuneyti Oklahomafvlkis.
Þar er skýrt frá þeim ráð-
um, sem fundin hafa verið
til þess að hafa hemil á al-
gengum tilfinningum, svo
sem reiði, gremju og von-
leysi, sem draga úr líkams-
þreki manna í hinu daglega
lífi.
, —o—-
Kvikmyndin „Boy on a
DoIphin“, sem byggð er á
skáldsögunni eftir David Di-
vine, og framleidd er af 20th
Century Foxfélaginu var ný-
lega frumsýnd í New York-
borg, Washington, Boston og
Hollywood og hlaut hún
mjög góða dóma gagnrýn-
enda. Sophia Loren fer með
aðalhlutverkið í myndinni.
Blöðin „The New York
Times“ og „New York Her-
ald Tribune“ luku lofsorði á
leik Sophiu Loren, en þetta
er fyrsta bandaríska kvik-
myndin, sem hún Ieikur í.
Kvikmyndin sem er tekin
í Aþenu og á hinum sólríku
grísku eyjum, fjallar um
2000 ára gamla myndastyttu
úr gulli og kopar, sem Pha-
edra (leikin af Sophiu Loren)
finnur á botni sjávarins um-
hverfis eyna Hydra sem hún
býr á. Hún reynir að selja
bandarískum fornfræðingi
(leikinn af Alan Ladd) stytt-
una, en alþjóðlegur svindl-
ari býður henni hærri pen-
ingaupphæð fyrir hana. Hún
felst á að selja honum stytt-
una, en verður ástfangin af
fornfræðingnum og styttan
verður að lokum kyrr í
Grikklandi í stað þess að
vera smyglað úr landi.
Jean Neglesco stjórnaði
töku myndarinnar, sem er
bvggð á kvikmyndahandriti
eftir Ivan Maffat og Dwight
Taylor. Aðrir leikendur í
mj'ndinni eru Clifton Webb,
Jorge Mistral, Laurence Nai-
smith og Alexis Minotis.
Robert Wagner mun leika
njósnara í myndinni „Stop-
over Tokyo“, sem byggð er
á skáldsögu eftir John P.
Marquand. Myndin verður
gerð á vegum 20th Centurj'
Foxfélagsins. May Britt, ung
leikkona af sænskum ættum,
mun fara með aðalhlutverk-
ið, enRichard Breen mun
sjórna töku myndarinnar.
Verkalýðsmálanefnd
Álþýðuflokksins
verður dregið í
Happdrætti
Verkalýðsmálanefndar.
Hamríð meðan járnið er
heitt:
Fylgzf með
S r
Síðustu forvöð er að kaupa miða: Skrifstofa í
Alþýðuhúsinu við Hverfis-P*
götu — sími 15020 — 16724
og 19570. — Sendum miða
Styrkið starfsemi lýðræð-
isaflanna í verkalýðshreyf-
ingunni — kaupið miða.
Happdrættisnefndin.
Með sterkri rof
eindavél frá ýms-
um stöðum f heim-
inum
í SÍÐUiSTU viku lögðu af
stað hópar síarfsmanna, sem
gera eiga vísindalegar athugun
arstöðvar á svæðinu frá Banda-
ríkjunum til Chile, en þaðan
verður fylgzt með ferðum gervi
hnatta þeirra, sem skotið verð-
ur upp á hinu alþjóðlega jarð-
eðlisfræðiári.
Undanfarið ár hafa þessir
menn verið. þjálfaðir í starf-
rækslu sérstakra rafeindavéla,
sem fylgjast með ferðum gervi-
hnattanna, þegar þeim verður
skotið upp 1 háloftin og þeir
svífa á umferðarbrautum sín-
um umhverfis hnöttinn.
Þessar athugunarstöðvar eru
sex og mynda þær „aðalútvegg
inn“, sem búizt er við, að gervi
hnettirnir muni svífa kringum
á brautum sínum. Þar verður
tekið á móti vísindalegum upp-
lýsingum, sem berast frá gervi-
hnöttunum, og þær sendar á-
fram. Stöðvar þessar eru í San-
tiago og Antofagasta, Chile;
Ancon, Perú; Cotopaxi, Equa-
dor; Havanna, Kúba og Fort
Stewart, Bandaríkjunum.
Helztu hlutverk þessara
stöðva eru að sanna með raf-
eindaathugunum, að gervihnött
urinn sé á umferðarbraut sinni,
að reikna nákvæmlega út, hver
sé staða hinnar, að því er ætlað
er, sporbaugsmynduðu umferð-
arbrautar gervihnattarins, þeg-
ar hann svífur yfir og milli
tveggja stöðva, og taka niður
upplýsingar um staðhætti í
þeirri hæð, sem gervihnöttur-
inn er í. Gert er ráð fyrir, að
hvar sem er í heiminum verði
hægt að staðsetja gervihnött-
inn á umferðarbraut hans á fá-
einum mínútum, um leið og
hann svífur yfir staðinn.
ÞESSI saga er úr norskum skóla
og kennslukonan staðfestir, að
hún sé sönn, segir norskt blað.
Dag nokkurn áttu nemendurn-
ir að segja frá Madame Curie.
Einn nemandinn stóð upp og
sagði: „Og svo giftist hún Jo-
liot, og þar með hófst „fysisk“
samvinna meiri en nokkru
sinni hefur áður þekkzt“.
Gerfitungl yfir suðvesturfylkium Bandaríkjanna — eða öllu
heldur mynd af gerfitungli færð inn á loftmynd, tekna á beim
slóðum. Gerfitunglin verða send út í geiminn á landfræði-
árinu og er áður frá þeim sagt. En mvnd bessi er og merkileg
að því leyti, að hún er tekin úr eldflaug í 143,4 mílna hæð og
tekur yfir 600 þúsund fermílna landssvæði.
BREFAKASSINN
Karföf lueinokruEi
Herra ritstjóri.
ÞAÐ var hérna í fyrra, áður
en bæjarradíkalar Framsóknar
að íhaldið og Framsókn í bænda
gerðu hana að vinstri flokki,
kapphlaupi sínu gáfu bændum
Grænmetisverzlun ríkisins og
skyldu með því leyst öll vanda
mál í sambandi við sölu á græn
metisafurðum bænda, einkum
kartöflum. Nú er nokkur
reynsla fengin af árangri þeirr- j
ar ráðstöfunar. Kartöflur hafa
þorrið fyrr en nokru sinni, en
aðeins fengizt hungurlús utan-1
lands frá. Má vera, að það hafi
að nokkru verið verkfalli yfir-
manna á kaupskipaflotanum að |
kenna, þó að manni virðist, að
sjá hefði mátt fyrir, að þurrð
yrði og verkfall og búa mætti (
nokkuð í haginn, áður en í óefni
var komið. |
íhaldsblaðið hér í bænum, ég
man ekki hvað það heitir í svip
inn, átti fyrir skemmstu tal við
forstjóra fyrirtækisins, sem
bændum var gefið, og segir .
hann þar m. a., að brátt muni |
koma á markað nýjar íslenzkar
kartöflur, sem muni verða dýr-
ar. Ekki hefur enn orðið vart
við þessar kartöflur, en orðalag
forstjórans virðist benda til, að
ekki sé hér um að ræða venju-
legt sumarverð á kartöflum,
RAFBYLGJVRNAR FÆLA SÍLDINA
GAMALL og reyndur sjó-
maður kom að máli við blað-
ið fyrir nokkru varðandi síld-
veiðarnar og hugsanleg áhrif
bergmálsdýptarmælanna á
þær. Og hann var ekkert hik-
andi í afstöðu sinni. „Síldar-
gengdin upp að Norðurlandi
hefur sennilega sjaldan verið
meiri en í ár,“ sagði hann, „en
síldin stöðvast ekki. Hún er
jafnskjótt öll á bak og burt.
Og ég er ekki í neinum vafa
um að það eru rafbylgjurnar
frá dýptarmælunum og
radartækjunum sem; hrekja
hana í burtu. Það er
vísindalega sannað, að sum
dýr eru næm fyrir rafsegul-
byigjum, sem menn verða
ekki varir. Dúfur glata t. d.
áttskynjun og setjast, ef þær
fljúga í grennd við útvarps-
stöðvar að sendingu. Þannig
villtu Þjóðverjar um fyrir
bréfdúfum fjandmannanna í
ófriðinum. Lax rotast við ör-
vægan rafstraum í vatni. Hver
treystir sér að neita því að ó-
rannsökuðu máli, að síldin sé
næm fyrir „bergmálsrafbyigj-
um“ og flýi þær. Hér er að
minnsta kosti um slíkt hags-
munamál fyrir alla þjóðina að
ræða, að það verður ekki með
neinu móti varið að fá ekki
úr þessu skorið með óyggjandi
tilraunum. Því skora ég á
rétta hlutaðeigendur að hefj-
ast handa um slíkar tilraunir
sem fyrst.“
Þetta segir gamli sjómaður-
inn. Og þeim til hvatningar,
sem aldrei taka mark á neinu,
sem ekki kemur ertendis frá,
skal bent á að erlendir vísinda
menn hafa nú líka varpað
fram þessari tilgátu um áhrif
bergrriálsdýptarmælanna og
radartækjanna, á síldveiðar
heldur eitthvað enn hærra.
Hvað er eiginlega að gerast
hér? Er fyrst verið að skaija
þurrð á katöflum til þess að
hafa afsökun fyrir því að leyfa
bændum síðan að selja kartöfl-
ur á okurverði? Þetta er auð-
vitað hætta, sem alltaf er fyrir
hendi, ef hagsmunahópum er
veitt eins konar einokunarað-
staða. En ég vil bara í, allri góð
vild benda á, að svona bissness-
máti verður ekkert vel séður af
bæjabúum og enn fremur, að
það er ekki aðeins kosið í sveita
stjórnir í vetur, heldur einnig í
bæjastjórnir.
Það er fullkomin óhæfa, ef
láta á framleiðendur nauðsyn-
legrar neyzluvöru hafa einok-
unaraðstöðu, ekki aðeins á sölu
vöru sinnar, heldur einnig á
innflutningi þeirrar vöru. Hlýt-
ur hver maður að sjá þá hættu,
sem heim er boðið. með slíkri
ráðstöfun. Ríkið var hinn hlut-
lausi aðili, sem sjálfsagt var að
trúa fyrir þessari verzlun.
Vonandi grípur ríkisstjórnin
í taumana og bannar óhæfilega
hátt verð á kartöflum til neyt-
enda. •
Reykjavík, 21. júlí ’57.
Einn, sem hatar spaglietti.
öryrkjar og sölufurnar
OFT hefur verið á það
minnzt í blöðum, að öryrkjar
skyldu hafa forgangsétt að
rekstri söluturna. Það virðist
raunar ekki nema sjálfsagt, að
mönnum, sem orðið hafa fyrir
því óláni, sem örorkan er, sé
gert fært að vinna fyrir sér án
styrkja að öllu leyti.
Allir vita, hvílíkt fjármagn
það kostar að stofnsetja verzl-
unarfyrirtæki, og fæstir leggja
út í slíkt án stórra lána, og það
þótt heilbrigðir séu. Má þá
nærri geta, hve auðvelt það er
öryrkja að eignast einn hinna
margumtöluðu söluturna. Hvar
er þeim ætlað fjármagn til
þess?
Ég vil aðeins leyfa mér að
benda hv. bæjarstjórn á þetta
atriði.
Reykjavík.
Einn hinna sjiiku. J
) |