Alþýðublaðið - 01.08.1957, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.08.1957, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 1. ágúst 1957 7 AlþýSublaSU Sími 50184. 4. vika. Frú Manderson 4 Úrvalsmynd eftir frægustu sakamálasögu heimsinsj „Trents Last Case“, sem kom sem framhaldssaga | „Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins.“ OJKSON WELLES — MARGARET LOCKWOOD Sýnd kl. 7 og 9. Myndin hefu? ekki verið sýnd áður hér á landi. Ðanskur texti. — Bönnuð börnum. Síðasta sinn. Ingólfscafé Ingólfscafé í kvöld klukkan 9. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8 sama dag. Sími 12-8-26 Sinii 12-8-26 smur Avextir í dósum Sími 1-41-75. Bryndís Framhald af 8, síðu. I nám í máladeild Menntaskólans j í Reykjavík. GÓÐ FYRIRGREIÐSLA. 1 Long Beach tók frú Ólöf Swanson á móti Bryndísi en Sverrir Runólfsson, sonur Run- ólfs Sverrissonar í Parísarbúð- inni var fulltrúi undirbúnings- nefndarinnar íslenzku á keppn- inni og sá um margs konar fyr- irgreiðslu fyrir Bryndísi. Bjó Bryndís hjá frú Swanson með- an á keppninni stóð. SKRAUTVAGN ÍSLANDS HLAUT FYRSTU VERÐLAUN. Þátttakendur í fegurðarsam- keppninni óku um í skrautvögn um, er skreyttir voru fagur- lega. Hafði íslendingafélagið í Los Angeles séð um skreytingu íslenzka vagnsins en Örn Harð- arson, er stundar nám í auglýs- ingateiknun í Los Angeles teikn aði skreytingarnar. Hlaut ís- lenzki vagninn fyrstu verðlaun og má það teljast mikill heiður fyrir hinn unga íslenzka teikn- ara, Örn Harðarson, en hann er sonur Harðar Jóhannessonar málarameistara hér í bæ. ■—■ Skrautvagninn var útbúinn sem víkingaskip á hnattlíkani. GÓÐ LANDKYNNING. Stanley Ólafsson konsúll ís- lands í Los Angeles telur, að þátttaka íslands í fegurðarsam- keppninni hafi verið hin ágæt- asta landkynning. Myndir hafi birzt af ungfrú Bryndísi á for- síðum stórblaðanna og mikið skrifað um ísland. í HÓFI ÍSLENDINGA- FÉLAGSINS. Bryndís sagði í viðtali við blaðamenn í gær, að hún hefði hvarvetna mætt velvild vestra og einkanlega hefðu Vestur- ís- lendingar í Kaliforníu verið vinsamlegir. Gat hún þess, að íslendingafélagið í Los Angeles hefði haldið henni hóf, er um 130 manns hefðu setið. Var henni þar færð gjöf, fallegur hringur og ræður voru fluttar til heiðurs henni og íslandi. TILBOÐ FRÁ MGM. Blaðamenn inntu Bryndísi eft ir því, hvort hún hefði ekki skotizt til Hollywood. Kvað hún svo hafa verið. Hitti hún þar tvo fræga leikara þá Danny Kay og Cary Cooper. Þá bárust henni tilboð frá Metro Goldwyn Mayer kvikmyndafélaginu bandaríska, um tilraunaleik í kvikmynd. En ekki kvaðst henni hafa dottið í hug að sinna því. Annað tilboð barst henni einnig frá þessu sama kvikmyndafélagi, þ. e. um að leika í kvikmynd, er MGM hyggst taka í Evrópu með Gene Kelly í aðalhlutverki. Vantaði MGM 4 erlendar stúlkur, er kynnu nokkuð fyrir sér í tungu málum til þess að leika 1 mynd- inni. Var búizt við að upptaka myndarinnar í Evi'ópu mjmdi taka um 4 mánuði. Verður Bryn dís þá við nám í Menntaskólan- um og á því ekki heimangengt. Á FÖRUM TIL PARISAR. Blaðamenn spurðu Bryndísi hvað nú tæki við. Sagðist hún á förum til Parísar, þar sem hún hyggðist stunda nám í frönsku um 2ja mánaða skeið. Tók hún skýrt fram, að hún hefði verið ákveðin í Parísarför inni áður en hún valdist til vesturfararinnar. Hún keífiur heim frá París rétt áður en Menntaskólinn hefst á ný og síð an tekur við erfitt nám í vetur til undirbúnings stúdentsprófi næsta vor. HUSASAUMUR. Eina naglasmiðjan f Heykjavík er á Lindargötu 46, í ficrtlnu hjá IViatborg, síml Í9-9-93. 20/1957. Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á benzín og gasolíu og gildir verðið hvar sem er á landinu. 1. Benzín hver lítri ................... kr. 2.27 2. Gasolía a. Heildsöluverð, hver smáles .... kr. 87Ö.00 b. Smásöluverð úr geymi, hver lítri kr. 0.87 Heimilt er að reikna 3 aura á lítra af gasölíu fyrir útkeyrzlu. Sé gasolía og bénzín afhent í vera evri hærra hver olíulítri hver benzínlítri. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 1. ág. 1957. Reykiavík, 31. júlí 1957. Verðlagsstjórinn. tunnum 3 o« ma aurum verðið hærra Yísindi og iækni Framhald af 4. síSu. e. t. v. sex kjarnorkurafstöðvar starfandi í Bandaríkjunum. Sagði hann, að orkustöðvar þessar myndu „framleiða raf- magn um endilöng Bandarík- in“, en gat þess jafnframt, að þetta væru aðeins byrjunar- framkvæmdir á mikilli áætlun um byggingu kjarnorkuraf- stöðva. Kvað hann margar slík- ar stöðvar vera nú í byggingu eða áætlanir fyrir hendi um byggingu þeirra, og „snemma ársins 1960 má gera ráð fyrir, að a. m. k. 21 kjarnorkuraf- stöðvar verði starfandi í Banda 1 ríkjunum.“ eldis aðinu, ur og ágásf Þorvaldsson Framhald af 3. síðn. og' erfða í hér- er vel mannfróð- þekkir skil á fólki um allt héraðið. En ekki sízt og síð- ast vegna þess, að hann er sunn lenzkur alþýðumaður — ekkert annað en sunnlenzkur alþýðu- maður. Enda urðu kosningaúr- slitin í Árnesþingi þau, að Ág- úst Þorvaldsson var kosinn með fleiri atkvæðum en nokkur ann ar þingmaður nokkurn tíma í Árnessýslu. Ágúst Þorvaldsson hefur ekki brugðizt vonum kjósenda sinna á alþingi. Það vakti mikla at- hygli um land allt á síðastliðnu hausti, er þing var nýbyrjað, að einn þingmaður úr andstöðu- flokki Ágústs, sem er einnig úr bændakjördæmi, en ekki bóndi, réðist á Ágúst í ræðu og hafði eftir honum rangmæli, hvað Ágúst svaraði þessum þing- manni einarðlega og snjallt, svo þingmaðurinn sat hljóður eftir og hefur ekki vakið máls á slíku síðan. Ágúst Þorvaldsson hefur á- byggilega sýnt það með setu sinni á alþingi síðastliðinn vet- ur, að hann er nú þegar í tölu þeirra alþingismanna, er mest kveður að í þingsölunum. Vakti það mikla athygli á vori síðast- liðnu, þegar umræður frá al- þingi var útvarpað, að hann var valinn þar talsmaður bænda- stéttarinnar. Var ræða hans í þessum umræðum hin snjall- asta bæði að rökum og flutningi öllum, svo ekki verður þar bet- ur á kosið. Hann sneiddi hvergi persónulega að andstæðingum sínum, heldur greiddi þeim högg með rökum. Ég vil svo að lokum óska Ár- nesingum til hamingju með Ág- úst Þorvaldsson sem alþingis- mann og vona að þeir njóti hans vel og lengi. Ég óska Ágústi og fjölskyldut hans allra heilla á þessum tíma- mótum. Vona að hann eigi eft- ir að starfa lengi fyrir hérað sitt sem alþingismaður og vinna að öðrum málum, sem honum hef- ur verið trúað fyrir. Ég vona að hamingja og heill fylgi störf- um hans í framtíðinni og hann verði sómi héraðs síns á alþingí eins og frændur hans, Magnús Andrésson og Hannes Þorsteins son voru áður. Gæfa og gengl fylgi þér í framtíðinni. Jón Gíslasón. Áfökin í öman Framhald af 1. síðu. Búizt er við ,að hann mursi heimsækja soldáninn af Oman og Masqat til að ræða við hann um aðstoð Breta í baráttunní við uppreisnarmenn. Faðir minn, GUÐLAUGUR IIINRIKSSON trésmíðameistari, sem lézt hinn 28. iúlí, verðúr jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. ágúst kl. 1,30. Jarðsett verður að Görðum í Garðahreppi. Fyrir mína hönd og systkina minna. Hermann Guðlaugssoíi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.