Alþýðublaðið - 01.08.1957, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 01.08.1957, Blaðsíða 2
 AUiýSutjIaSlS Fimmtudagur 1. ágúst 1957 n ORLOF B. S. í. FERÐáFRÉITIR - 1& Ferðalög um verzl- unarmannahelgina Föstudagur 2. ágúst kl. 21.00 4 daga ferð til Akureyrar og Mývatns. i Laugardagur 3. ágúst kl. 8.0.0 3 daga ferð til Akureyrar og Mývatns. § Kl. 8.30 3 daga ferð um| Snæfellsnes o'g Borgar- 1 fjörð. Kl. 13.30 3 daga ferð í Þórsmörk. Kl. 13.30 3 daga ferð í Landmannalaugar. KI. 13.30 3 daga ferð um Skaftafellssýslu. Ekið um i Vík í Mýrdal, Kirkjubæj- arklaustur og Kálfafell. Kl. 13.30 Skemmtiferð um Suðurnes. Farið að Höfnuni, ' Sandgerði, Keflavík og'Grindavík. Kl. 14.00 3 daga ferð til Hvítárvatns, Hveravalla, og Kerlingarfjalla. Sunnudagur 4. ágúst Kl. 9.00 Hringferð um Borgarfjörð. KI. 9.00 Skemmtiferð að Gullfossi, Geysi,, Skál- holti og Þingvöllum. Mánudagur 5. ágúst KI. 13.30 Skemmtiferð um Suðurnes. Vinsamlegast athugið, að sætafjöldi í ofangreindum j ferðum er takmarkaður, og er það því í yðar eigin hag að tryggja yður sæti hið fyrsta. Farpantanir í síma 24025 og 18911. ^.{ÍAFÞórz óumumsoN .(/Jmxkn,6 ~ 'Sutd 23970 INNHEIMT-A LÖú FRÆ.VlöTÖHT Athugasemd Irá Sin- fóníuhljámmii íslands í BLAÐI yðar 25. þ. m. birt- ast svofelld ummæli í grein eft ir Steingrím Sigfússon: „Furðulegast þykir okkur þó að ,Sinfóníuhljómsveit íslands* skuli vera látin fara um allt land að undanteknum Vest- fjörðum. Eða má ekki gefa henni kost á að rísa undir nafni? Ég hygg þó að Vestfirð- ingar eigi sinn þátt í því að bera hana uppi eins og önnur ríkisfyrirtæki". í tilefni þessara ummæla vil ég f. h. Sinfóníuhljómsveitar ís- lands biðja yður að birta eftir- farandi: * „Tónleikaferðir Sinfóníu- hljómsveitarinnar eru nýmæli, og fyrsta langa ferðin er sú, sem farin var. nú fyrir skemmstu til Norður- og Aust- urlands. Ferðir þessar eru dýr- ar, svo sem vænta má, og ýms- um annmörkum háðar. Sann gjarnir menn geta því naunv ast krafizt þess, að á einu ári séu heimsóttir allir þeir staðir á landinu sem til gréina koma. Síðan í maí 1956 hefir Sinfón íuhljómsveitin haldið tónleika. á alls 20 stöðum. Samgöngur hafa ráðið mestu um .það að ^Vestfirðir hafa orðið út undan til þessa. En hljómsveitin hygg ur gott til að heimsækja Vest- firðinga, sennilega á næsta starfsári, og sú óþolinmæði, sem kemur í grein Steingríms Sigfússonar, dregur síður en svo úr eftirvæntingunni í sam- bandi við þá för. Reykjavík, 30. júlí, 1957, Virðingarfyllst, Jón Þórarinsson. Sendiherra Öngverja- iands afhendir Srúnadarbréf HINN NÝI sendiherra Ung- verjalands á íslandi, Lajos Be- brits, afhenti laugardaginn 27. júlí 1957 forseta íslands trún- ■aðarbréf sitt að Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráð- .herra. Sendiherra Ungverjalands á íslandi hefur búsetu í Stokk- hólmi. Fréff! amerísku bla^i m, að aSómvopiium hafi verið kasfað í sjóinn Boiið íil baka: aðeins venjuleg vopn. BLAÐIÐ Journal Américan skýrði frá því í dag, að ame- rísk flutningaflugvél hefði á mánúdag fleygt heilli hleðslu af kjarnorkusprengjum eða eldflaugum hlöðnum atóm- sprengiefnum í Atlantshafið, áð ur en hún nauðlenti með tvær vélar ónýtar. í frétt, sem skrif- uð er af flugmálasérfræðingi blaðsins, George Carolle, segir, að hann hafi fengið um það upp lýsingar hjá aðilum, er nærri standi stjórninni, að atómvopn- in, sem sennilega vógu um 25 tonn, hafi átt að fara til ame- ríska herliðsins í Evrópu. I tilkynningu frá landvarna- ráðuneytinu í Washington seg- ir, að ekki hafi verið kjarnorku vopn í hleðslu þeirri, sem á mánudag var kastað í sjóinn út af strönd New Jersey úr flutn- ingavél frá hernum. „Þar af leiðandi er engin hætta á, að komi til atómsprengingar eða geislaverkunar. Farmurinn var herútbúnaðúr, en af öryggisá- stæðum er ekki hægt að láfa uppi hver hann var. Um er að ræða venjulegar sprengjuhleðsl ur, sem nú stafar engin hætta af“, segir í tilkynnipgunni. Ösfur Framhald af 8. síðu. Undanfarin ár hefur Mjólk- urbú Flóamanna sent nokkur sýnishorn af osti út og hafa þau líkað mjög vel. Er íslenzki osturinn álitinn 1. flokks vara og líkar mjög vel. Telur Gret- ar, að íslenzki osturinn muni falla erlendum neytendum vel, og að unnt sé að skapa nokkurn erlendan markað fyr ir íslenzkan ost. SIS sér um söluna á ostin- um og hefur leitað fyrirsérum markað víða. Árrð 1956 nam ostaframleiðslan 458.000 tonn- um og fór það magn allt á inn lendan markað. Hins vegar fer mjólkurframleiðslan vax- andi og ostaframleiðslan þar með. Bcr því nauðsyn til að vinna nokkurn erlendan marlc að fyrir ost. UM KLUKKAN 11 í fyrra- kvöld kom upp eldur í íbúðar- húsi við Álfhólsveg 42 í Kópav. Eklurinn átti upptök sín í kynd- ingartækjum hússins og læsti eldurinn sig upp í ris, en hús þetta er steinhús, ein hæð og ris. Rjúfa varð þekju hússins til að komast fyrir eldinn. Urðu skemmdir miklar af eldi og vatni. Framhald af 1. síðu. landi allan mögulegan stuðning til að koma efnahagsmálum landsins í gott horf. Ekki vildi hann segja, hversu umfangs- mikið þetta tilboð Rússa væri, en sagði að samkvæmt skýrsl- um, sem hann hefði fengið frá sýrlenzkri sendinefnd, sem stödd er í Moskvu, hafi mála- leitanir nefndarinnar borið góð an árangur. áfvopnunarmái. Framhaidl af 1. síðu. on snemma á fimmtudag til viðræðna við hinn ameríska starfsbróður sinn. Starfsmaður franska utanríkisráðuneytisins gerir einnig ráð fyrir fundi Pin eaus og Lloyds. í París eru þær upplýsingar veittar, að viðræður Pineaus og Dulles muni fyrst og fremst ' snúast um afvopnunarumræð- urnar og í því sambandi, um þær tillögur, er lagðar skulu til grundvallar hinni sameigin- legu yfirlýsingu. Samkomulag um meginatriði áætlunarinnar náðist eftir fund Dulles, Lloyds, Jules Mochs, formanns frönsku nefndarinnar og Davids Johnson, formann. kanadísku nefndarinnar. í hinní opinberu tilkynningu um sam- komulagið er ekkert sagt um hvenær áætlunin skuli lögð fram, aðeins að úr því verðí einhvern næstu daga. Talið er, að áætlunin feli í sér m. a. tillögur um eftirlit úr lofti yfir hlutum Evrópu, Sovét- ríkjanna, Bandaríkjanna og heimskautssvæðanna. Ekki'. mun vera fullgengið frá áætl- uninni að því er varðar eftir- lit á landi. Ú R Ö L L U M A T T U M í DAG er fimmtudagur 1. ágúst 1957. Slysavarðstofa Reykjavíkur er opin allan sólarhringinn. Nætur- læknir L.R. kl. 18—8. Sími 15030. Eftirtalin apótek eru opin kl. 9—20 alla . daga, nema laugar- daga kl. 9—16 og sunnudaga kl. 13—16: Apótek Austurbæjar (sími 19270), Garðsapótek (sími 34006), Holtsapótek (sími 33233) og Vesturbæjar ápótek (sími 22290). Kvikmyndahúsin: Gamla bíó (sími 11475), Nýja bíó (sími 11544), Tjarnarbíó (sími 22140), Bæjarbíó (simi 50184), Hafnar- fjarðarbíó (sími 50249), Trípoli bíó (sími 11182), Austurbæjar- bíó (sími 11384), Hafnarbíó (sími 16444), Stjörnubíó (sími 18936) og Laugarásbíó (sími 32075). FLUGFEKÐIR Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug: Gullfaxi er væntanlegur til Reykjavíkur kl. 17.00 í dag frá Hamborg, Kaup- mannahöfn og Oslo. Flugvélirt fer til Glasgow og Kaupmanna- hafnar kl. 08.00 í fyrramálið. Hrímfaxi fer til London kl. 08.00; í dag. Væntanlegur aftur tiL Reykjavíkur kl. 20.55 á morg- un. -— Innánlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (3 ferðir), Egilstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Patreksfjarðar, Sauc árkróks og Vestmannaeyjar (2 ferðir). — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (3 ferð- ir), Egilstaða, Fagurhólsmýrar, Flateyrar, Hólmavíkur, Horna- fjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjar klausturs, Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þingeyrar. Loftleiðir h.f.: Hekla er væntanleg milli kl, 15.00—17.00 frá New York, flug vélin heldur áfram til Gauta- borgar, Kaupmannahafnar 02 Hamborgar eftir klukkutíma vi dvöl. Edda er væntanleg kl, 19.00 frá London og Glasgow flugvélin heldur áfram til New York kl. 20.30. —o— rD —- ÚL. ctwthtT OUL. FttfUKS tvtiÓiCAf* Blaðamannafélag íslands helr ur fund í dag kl. 2 að Hótel Borg. Leiðrétting. Sú villa slæddist undir mynd af Svínafellsfjalli í Öræfum í frásögn um jurtasteingeruinga. er birtist í Alþ.bl. í gær, að ljós- myndari Alþbl. hefði tekið myntl iná. Hún var tekin í ferð dr. Sig- urðar Þórarinssonar þangað aust ur. Utvar pið Þeir félagar heyra þrusk mikið uppi á loftinu og ákveða að athuga það nánar. Þeir heyra að einhverjir menn muni þarna inni, — og nú fá þeir sér kyndla til að athuga það nánar. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 12.50—14.00 Á frívaktinni. 15.00 Miðdegisútvarp. 19.30 Harmonikulög (plötur). 20.00 Fréttir. 20.30 Náttúra íslands; 15. erindí: Jarðskjálftar (Eysteinn Tryggvason veðurfræðingur), 20.55 Tónleikar, kórsöngvar úr ýmsum óperum. (plötur). 21.30 Útvarpssagan: .Hetjulund', eftir Láru Goodman Salver- son, IV. (Sigríður Thorlacius). 22.00 Fréttir. 22.10 Kvöldsagan: „ívar hlú- 1 járn“, eftir Walter Scott; 15. (Þorsteinn Hannesson les). 22.30 Sinfónískir tónleikar (pl.). 23.10 Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.