Alþýðublaðið - 13.08.1957, Síða 4

Alþýðublaðið - 13.08.1957, Síða 4
4 '1 AlþýgublagiS Þíiðjudagur 13. ágúst 1957. Vatnaleiðir um Finnland eru hinar fegurstu. Bjcu ni M. Gíslason: NORRÆN SAMVINNA á margra örðugleika og von- brigða að minnast. Ekki eru það þó fyrst og fremst hin mörgu „skipbrot“, sem sú samvinna hefur orðið að þola, sem maður minnist, þegar leið- in liggur um Norðurlönd, held- ur hitt að það sé með norrænu hugsjónina eins og allar góðar hugsjónir, hún geti ekki undir lok liðið fyrr en enn göfugri hugsjónir hafi vaxið upp af fræi henn-ar, eins og segir í kvæði nokkru dönsku. Þau áhrif orka ef til vill sterkara á mann í Finnlandi en nokkru öðru Norðurland- anna. Meiri hluti þjóðarinnar mælir á tungu, sem hvorki Skandínavar né íslendingar skilja án langnáms, en þó bera iinnskar menningarerfðir, jafnt á sviði löggjafar sem bók- mennta, sterk norræn svipein- kenni. Sænsk-Finnar hafa verið eins konar tengiliður norður á bóginn. Vegna sænskra yfir- ráða á Finnlandi hafa þeir oft sætt misskilningi og orðið að berjast á tveim vígstöðvum fyr ir sitt finnska föðurland, en1 þessi brúarsmíði þeirra er þó j söguleg staðreynd, sem bundið j hefur Finnland traustum tengsl j um við norræn lönd og þjóðir. I Áhuga F’inna fvrir afdráttar- lausri norrænni samstöðu svip- sr meira til viðhorfa Norð- xnanna og íslendinga en Dana og Svía. Danir og Svíar, sem eru sjálfstæðar þjóðir frá fornu fari, hafa náð því þroskastigi að þeir líta ef til vill „raun- hæfara“ á hlutina en þær aðrar norrænar þióðir, sem njóta til- tölulega nýfengins sjálfstæðis. I>ær eru því ekki eins sannfærð- ar um árangurinn af raunhæfu stjórnmálalegu samstarfi Norð- urlandanna nema tilfinninga- 3egum vandamálum sé um leið gaumur gefinn. Líðandi dagur og stund standa í lífrænum tengslum við sögu liðinna alda, <ng manni finnst að Danir og Svíar, sem átt hafa sitt lahga þroskaskeið sem sjálfstæðar þjóðir, þurfi ekki að taka það álla upp eða látast móðgaðir, heldur eigi þeir að vinna að því zö leysa tilfinningaleg vanda- sriál í sambúð norrænna þjóða. Gestrisni Finna og hjálpsemi er frábær og ber því vitni að alraenningur skoðar erlenda íérðamenn ekki enn sem tekju grein. Engu að síður heimsóttu 87 000 útlendir gestir Finniand síðastliðið ár og ferðamanna- straumurinn fer sívaxandi. Hin sumarbjarta borg, Helsingfors, hefur að vísu ekki margt að bjóða samanborið við ferða- mannaborgir eins og París, Nizza eða Róm, en hins vegar eru ferðalög með nýtízku skemmtibátum um hinai; mörgu og fjölbreyttu vatnaleið- ir Saimens eða sigla frá Tam- mersfors til Tavastehus ferða- manninum ævintýri, sem er sérstætt fyrir Finnland. Þó er leiðin til Lapplands ef til vill dásamlegasta ævintýrið, sem hið sumarfagra Finnland hefur að bjóða, enda heillar hún þang að nú æ fleiri ferðamenn. Þá leið kemst maður þó ekki ein- göngu eftir ám og vötnum, heldur verður maður öðru hvoru að ferðast með áætlunar- bílum, og eins er það til að flugvél bíði á vellinum í Rova- niemi reiðubúin að flytja mann til nyrzta vatns á Finnlandi við Ivalo, eða suður á bóginn til Imatra, en þaðan liggja lengstu siglingaleiðir „silfurlínunnar“ um innhéruð landsins. Ekki er unnt að bera saman lönd og telja eitt öðru fegurra. j Náttúran er alls staðar í sínu, eigin gildi, og fegurðaráhrifin j eru ekki eingöngu bundin því hvað maður sér, heldur og j hvernig maður sér það. Engu ‘ að síður minnir siglingin um finnsku vötnin mann á siglingu um dönsku vötnin við Himmel- bjærget. í Finnlandi eru ekki nein há fjöll fremur en í Dan- mörku, heldur íhæðótt land með skógi og ökrum. Öðru hvoru sér maður rauðmáluðum húsum skjóta upp á milli trjánna í fjarska eins og rauð- um túlípönum úr grænum haga, eð siglingaleiðin verður svo þröng, að trén flétta saman laufkrónur sínar yfir bátnum. Ef til vill er landslagið ekki eins Ijúft og í Danmörku, en í staðinn fyrir vatnaliljubreið- urnar fögru við bakka dönsku vatnanna koma hér grásteinsfer líki, sem getur svipað til frum- drátta, sem listamaður hefur rissað upp. Á stundum geta þau minnt á sofandi dýr og það er sem maður skynji styrk vinds og báru í sveiglínu baksins. Feldurinn er svo gljáandi slétt- ur, að mann langar ósjálfrátt til að strjúka þeim eins og fall- egum hesti á lendina. Þetta er eins og samanþrýst þögn, spenntari en nokkur hreyfing og þó er allt þrungið hljómlist og tónum, án þess maður sjái góma snerta strengi. Maður finnur vakna með sér löngun til að segja eitthvað, finnur varirnar bærast, en þöglar. Því hér í innhéruðum Finnlands eiga orð Steen Steensen Blich- ers einnig við: „Virðið mér til betri vegar er ég segi ykkur ekki allt, sem ég sá. Ég gæti ef til vill greint þér frá aðalat- riðum, einu og einu í senn, en hvernig ég sá það í heild - varla!“ Margir telja dýrt að ferðast um Finnland, en sé gengið at- hugað, held ég að það sé ekki að ráði ódýrara á öðrum Norður- löndum. Eins manns herbergi kostar venjulegt 600 mörk — eða um 36 krónur, tveggja manna 1000 mörk — um 63 krónur, en matur er álíka dýr og á dönskum, norskum og sænskum matsölustöðum. Taki maður á leigu sumarbústað á ströndinni, kostar það 20 000— 40 000 mörk yfir sumarið, sem er sízt meira en það, sem mað- ur verður að greiða fyrir sum- arbústað á baðströndum í Dan- mörku um mánuðinn. Hins veg ar er mjög örðugt að fá sumar- bústaði leigða í Finnlandi. Finn ar telja skerjagarðinn hinn á- kjósanlegasta stað til sumar- dvalar og hressingar og búa sjálfir í sumarbústöðum þar um helgar. Þessir bústaðir eru reist ir á eyjum meðfram ströndinni og skipta þær þúsundum, og í einni borg, eins og Vasa til dæmis, eru 5000 vélknúnir skemmtibátar í einkaeign, sem ganga milli lands og eyja um helgar. Virðist hver fjölskylda þarna á ströndinni eiga sinn vélknúna skemmtibát. Sama máli gegnir um þá, sem búa við vötnin fögru. Hafi maður dvalizt um hríð í Ábo og Borgá, þeim fornu og æruverðugu finnsku mennta- borgum, verður maður ef til vill gripinn1 þeirri löngun að fá bát að láni og sigla út í skerja- garðinn, sem á báðum stöðum hefur undramikla og fjöl- breytta fégurð að bjóða. Þó er ekki ráðlegt að leggja upp í slíka ferð án þess að hafa með sér finnskan leiðsögumann. Eyjarnar mynda hér svo furðu- legar völundarleiðir, að manni kemur oft til hugar, að það séu ekki greni vaxnar grásteins- klappir, sem stinga kollinum upp úr sjónum, heldur mergð blómvanda, sem svífi á milli tveggja himna, himins yfir og undir bláskyggðum vatnsspegl- inum. Til eru og margar sögur um menn, sem sigldu út í eyj- arnar, en rötuðu ekki heim aft- ur. Topelius gefur það í skyn í Sögum herlæknisins, er hann segir finnsku eyjarnar svo margar, að enginn ókunnugur, sem villzt hafi inn á völundar- leiðir þeirra, megi rata þaðan aftur. Kveður hann að þrjátíu beitiskip mundu ekki geta kom- ið í veg fyrir smygl á þessum slóðum. Þá hefur Runeberg og skrifað sögur þar sem hann dá- Grásteinsferlíki, sem getur svipað til frumdrátta er listamaður hefur rissað upp. ist að skerjagarðsbúum, sem oft hafi bjargað framandi sjó- mönnum úr greipum hafsins þegar óveður geisuðu. Yfirleitt virðast Finnar fast- heldnir á fornar venjur, og fiskiveiðarnar í skerjagarðin- um virðast að miklu leyti bundnar gömlum venjum. Ræði maður við íbúana þar, tala þeir helzt um kreppuna. Eigi menn dálítið af peningum eru þeir hræddir um að dýrtíðin gleypi þá, eigi menn enga, er það ótt- inn við atvinnuleysið, er sigla muni í kjölfar kreppunnar. Því verður heldur ekki neita, að verð lífsnauðsynja fer hækk- andi. Árið 1950 kostaði mjólk- urlítrinn 20 mörk, en 30 ári síðar. Smjörkílóið þá 360 mörk, en um 400 ári síðar. Einnig fer verð hækkandi á eldsneyti og húsnæði. Það eru ekki Finnarnir einir, sem berjast við verðbólgu og, hækkandi skatta. Sömu draug- arnir virðast orðnar standsper- sónur annars staðar á Norður- löndum. Þetta eru þó ekki á- hrifin, sem manni verða minn- isstæðust úr Finnlandsför, held ur gestrisni þeirra og þjóðlegt lífsviðhorf. Alvara styrjaldar- innar virðist hafa losað þá við alls konar þjóðernislegar van- metakenndir, sem oft koma fram í drottnunargirni hjá öðr- um þjóðum. Þeir eru lausir við alla kröfugirni og hafa andúð á öllum þjóðernislegum hégóma- skap. Jafnvel þótt þeir hafi á- stæðu til að telja sig misrétti beitta, álíta þeir það vænlegast til að ná jákvæðum árangri að reyna að skilja, en stilla dóm- um í hóf. Og þegar þjóðir á Norðurlöndum eru gæddar svo heilbrigðri hugsun, hlýtur að finnast raunhæfur grundvöllur að árangursríkri norrænni sam- vinnu. Dregið í Happdrætti Háskólans DREGIÐ VAR í 8. flokki Happdrættis Háskólans síðast- liðinn lau-gardag. Dregið var um 787 vinninga, að upphæð sam- tals kr. 995,000,00. Hæsti vinningur, 100 þús. kr. kom á nr. 1083, sem er hálfmiði seldur hjá Ftímanni í Hafnar- húsinu, 50 þús kr. kom á nr. 225, heilmiði seldur á Akureyri. 10 þiis. kr. kom á nr. 2629, fjórð- ungsmiði í umboði Frímanns í Hafnarhúsinu. 6810, fjórðungs- miði hjá Sivertsen í Vesturveri. 21826, fjórðungsmiði tveir hjá Andrési, Vesturgötu 10 og tveir í Keflavík, og 27629 í umboðinu Bankastræti 11. 5 ÞÚS. KR.: 4656, fjórðungsmiði tveir seldir á Akureyri og tveir á Hvammstanga. 7900, fjórðungs- miðar hjá Frímanni í Hafnar- húsinu. 30171, heilmiði í um- boðinu Bankastræti 11. 35508, hálfmiði hjá Sivertsen í Vest- urveri. Flugfélagið Framhald af 5. síðn. gengið mjög vel, það sem af er árinu er þar um mikla aukn- ingu að ræða í flutningi farþega og vöruflutningum. Veður hef- ir verið mjög hentugt til flugs í sumar og tafir fátíðar. Far- þegar innanlands voru fvrstu sex mánuðina í ár 25075, en 22828 á sama tíma í .fyrra Aukning er 2243 farþegar eða 9,84 af hundraði.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.