Alþýðublaðið - 13.08.1957, Qupperneq 7
AlþýSublaðiS
Þriðjudagur 13. ágúst 1957
T
Ijufa land
EITT AF ÞVÍ sem hvað
mesta athygli vekur í Hels-
inki, höfuðborg Finnlands er
fagrar byggingar, enda hafa
Finnar löngum átt víðkunna
arkitekta. Þinghúsið í Hels-
inki, sem sézt á myndinni til
vinstri er einhver frægasta
bygging á Norðurlöndum.
Hana teiknaði J. S. Sirén og
hún var reist á árunum 1927
—’31. Til hægri sézt háskóla-
byggingin í Helsinki. Hún
var fullgerð 1828 og teiknaði
hana C. L. Engel. Háskólinn
stendur í hjarta borgarinnar
við Senatstorgið. Þar stend-
ur einnig Stórkirkjan og ber
hátt yíir. I Finnlandi eru
alls fjórir háskólar. Auk há-
skólans í Helsinki er í borg-
inni verkfræðiháskóli, og í
Ábo eða Turku, þriðju
stærstu borg Finnlands eru
tveir háskólar og annar ein-
göngu fyrir sænskumælandi
Finna (Ábo akademi). —
Turku (Ábo), sem er gömul
höfuðborg og Tampere
(Tammerfors) keppa um sæt-
ið sem önnur stærsta borg
Finnlands: hafa hvor rúm-
lega 107.500 íbúa. Frægustu
byggingar í Turku eru dóm-
kirkjan og kastalinn, sem
sézt hér til vinstri. Hann var
reistur á 13. öld, skemmdist
mikið í síðasta stríði, en hef-
ur verið endurbyggður al-
gjörlega í sinni gömlu mynd.
Helsinki er óumdeilanlega
höfuðborgin, og hefur tæp
400.000 íbúa. í fáum eða
engri borg á Norðurlöndum
ber jafnmikið á nýjum glæsi
legum byggingum. Hér til
hægri sézt helzta vöruhúsið,
Stockmann, sem gefur Maga-
sin í Höfn og NK í Stokk-
hólmi ekkert eftir. Á götunni
fyrir framan sézt höggmynd;
það er ekki óalgeng sjón í
Helsinki, því að borgina
prýða margar ágætar högg-
myndir, og mikið orð hefur
löngum farið af myndlist
Finna, einkum höggmynda-
list. Skáld góð eiga Finnar
og hafa átt. Flestir íslend-
ingar kannast við Runaberg,
Topelius, Kivi, Aho, Leino,
Koskenniemi, Sillanpáá og
Linna, svo örfá nöfn séu
nefnd. Á myndinni sézt inn
í stofu á sveitabíli skáldsins,
sem orti um gamla Stál ög
þjóðsöng Finna. — Finnland
er rúmlega þriðjungi stærra
en ísland eða 337.000 ferkm.
og íbúar þess eru um 4 millj-
ónir. 9, 10 mæla á finnska
tungu, en tæplega 1/10 á
sænska, mest í borgunum.
Skógar og vötn gefa landinu
svip og yfirbragð. Myndin til
hægri og neðst til vinstri
gefa nokkra hugmynd um
landslag í þúsund vatna land
inu. Á myndinni til hægri
hefur verið kveikt jónsmessu
bál, Landbúnaður og skógar-
högg hafa löngum verð með-
al mikilvægustu atvinnu-
greina Finna. Iðnaðurinn er
tengdur þeim greinum. Þaftn
ig er í Mið Finnlandi í Sata-
kunta risin upp nútíma iðn-
aðarborg, Tampere, þar sem
pappírsiðnaður og ullariðn-
aður er mestur í landinu.