Alþýðublaðið - 26.09.1957, Side 3

Alþýðublaðið - 26.09.1957, Side 3
Fimmtudagur 26. sept. 1957 A Sþýjii b ! a ^ E § LJOSMYNDASYNINGIN Fjölskylda þjóðanna er þrung- in boðskap til okkar mannanna, boðskap humanismans, samúð- ar, jafnréttis og frelsis. Allsstað- ar, á mannfólkið við hið sama að stríða, þar eru engin landa- mæri. Svipbrigði svartra, gulra, rauðra og hvítra manna í stríði Iífsins eru alls staðar eins. Það er mikið þrek’/irki að skapa slíka sýningu svo að liún sýni hið eilíft streymandi líf, en þó að maður sé allur af vilja gerð- ur til þess að finna galla, mis- tök, misskilning;, finnur maður það ekki. SVO MIKIL AÐSÓKN hefur verið að þessari sýningu þá fáu daga, sem liðnir eru síðan hún var opnuð, að til þes seru engin dæmi hér á landi. Þetta er eðli- iegt. Þessi sýning er svo skýr í boðskap sínum, svo hrein og bein að allir skilja hana, en auk þess er í henni fólgin mikil fræðsla um ókunna heima og ég hef hitt fólk, sem hefur sagt, að margar myndanna hafi komið sér á óvart. ÞARNA ER EN-GIN mynd frá íslandi —• og það hefur vakið nokkur vonbrigði. En það er ekki eðlilegt að misvirða það. Þarna var ekki valið eftir þjóð- erni heldur eftir gerð myndar og túlkun, boðskap hennar um hið streymandi mannlíf í sorg Fjölskvltla þjóðanna — Stórkostlegasta sýning, sem hér heíur verið sett upp. Engin mynd frá íslandi, enda vissum við íslending ar ekki um söfnunina. Komum upp m-yndasafni um líf og iífsstríð íslenzku þjóðarinnar. og gleði, vinnu, svefni og lifs- sköpun. Þó að þarrta séu mynd- ir frá nær sjötíu þjóðum er eng- in frá mörgum. Svíar munu vera einir Norðurlandaþjóðanna, sem lagt hafa fram hæfar mynd- ir. EN ÞETTA VEKUR mann til umhugsunar um það/að slíkar sýningar er hægt að skapa fyrir hvei'ja þjóð. Þetta er heimssýn- ing, á að sýna mannlífið í heild með ýmsixm myndum. En get- um við íslendingar ' ekki gert slíkt hið sama um okkar samfé- lag? Væri ekki skemmtilegt -- og nauðsynlegt, að einhver' góð- ur maður tæki sér fyrir hendur ( að gera sögu um þjóðina í ijós- myndum? EINHVERSKONAR samtök ættu að hefjast handa um þetta og velja sér mann til að standa fyrir starfinu. Hygg ég að eng- an betri en Jón Kaldal væri hægt að fá til starfsins, en að sjálfsögðu. yrði hann að hafa menn sér til aðstoðar við undir- búnixrg og val myndanna. Það æíti að efna til samkeppni meðal ai!ra_ljósmyndara landsins um þetta, bæði atvinnumanna og á- I hugaljósmyndara. LJOSMYNBARAR hér munu ekkera hafa vitað um undirbún- ing 'þessarar heimsljósmyndun- ar, en líkur eru til að okkur hefði tekist að leggja frarn hitri ljósmynd af fiskveiðum en þá, sem er á sýningunni, að minnsta kosti þykist ég hafa séð miklu betri mynd af togveiðum um ) borð í togara en þá bandarísku ^ sem þarna er. EN HVA£> sem því líður ættu einstakir menn eða samtök að hefjast handa um að saína myndum úr lífi og lífsbaráttu íslenzku þjóðarinnar. Það yrði fróðleg sýning — og eiguleg bók með öllum þeim myndum. Hannes á horninu. Brezka alþýðusambandið opnar skólaSkri,fini,s|ian ræ5ur ■ Framhald af 8. síðu. innar. Var síðan haldið í námu- héruðin í Yorkshire og farið niður í kolanámu. Kvað Jóhann það hafa ver- ið mjög fróðlegt að sjá aðbún- að allan í kolanámunni. Farið var niður í 190 yarda dýpi. Unnu 350 manns í námu þess- ari og framleiddu til jafnaðar um 9 þúsund tonn á viku. Stjórnandi námunnar og leið- togar verkamanna sögðu svo frá, að öryggi og allur aðbún- i aður verkamanna liefði ger- breyzt við þjóðnýtingu kola- ■ námanna á stjórnartímabili 1 alþýðuflókksins brezka. REGLULEGIR FUNDIR / TRÚNAÐARMANNA. í Yorkshire heimsóttum við m. a. koparverksmiðju, sem framleiðir púður úr -kopar, sagði Jóhann. Unnu þarna 3200 verkamenn og var þarna rhjög gott samstarf með verkamönn- um og stjórnenrum fyrirtæk- isins. Athyglisvert var sagði Jóhann, að trúnaðarmenn í verksmiðjunum koma reglu- léga saman til fundar til þess að ræða vandamál verkamanna og gerðu sér far um að fá fram lagfæringar fljótt og skjótlega. TOGARASMÍÐI í SELBY. Einnig heimsóttum við tog- araskipasmíðastöðvar í Selby, segir Jóhann. Heimsóttum við togaraskipasmíðastöð þá, er smíðaði m. a. 8 af nýsköpunar- togurunum fyrir íslendinga. Mr. Cockraine forstjóri, er var formaður hinnar sameiginlegu nefndar, er sá am smíði ný- sköpunartogaranna, leiðbeindi. Er við heimsóttúm skipasmíða- stöðina, var nýlokíð að hleypa 3 íogurum af stokkunum. 3 voru í smiðum og verið var að leggja kjolinn að þeim 4. Skýrði forstjórinn svo frá, að næg verkefni væru fyrir næstu 4 árin. í Hull var skoðuð mjög fullkomin fiskirannsóknar- stofa en síðan var haldið til London á ný. VERKALÝÐSSKÓLI HEIMSÓTTUR. í London var aftur haldið í höfuðstöðvar brezka alþýðu- sambandsins. Það var skemmti leg tilviljun, sagði Jóhann, að sama daginn og við komum aft- ur til London var verið að opna verkalýðsskóla í London á veg- um brezka alþýðusambandsins. Áður hafði sambandið á hverju ári verkalýðsnámskeið fyrir j starfsm.enn verkalýðsfélaga en J hér var um að ræða nýbygg- ingu í London er tekin var í notkun fyrir þessa fræðslu svo og húsnæði fyrir aðra starfsemi brezka alþýðusambandsins. Stendur til að hafa í þessari byggingu stöðug námskeið fyr- ir starfsmenn verkalýðsfélaga. Enn voru heimsóttar aðalstöðv- ar byggingaverkamanna í Lond on og síðar farið á fjölmennan vinnustað og átt viðtöl við trúnaðarmenn. FRÖBLEG FÖR. Að lokum sagði Jóhann, að förin hefði í alla staði verið hin fróðlegasta og skemmtileg- asta. Ekkert tækifæri var látið ónotað til þess að kynna okkur fyrir forustumönnum verka- lýðsfélaga þeirra staða, sem við heimsóttum og okkur gefinn kostur á því að kynnast upp- byggingu atvinnumála og verkalýðsfélaga hvarvetna. Einnig ræddum við við atvinnu rekendur viðkomandi atvinnu- fyrirtækja. Þá skoðuðum við fullkomna verksmiðju er fram- leiðir margskonar sáraumbúðir t. d. magar tegundir af plástr- um gerðum úr þorsklifur. Með okkur var alla ferðina Mr, Banes, fulltrúi úr utanríkis- málaráðuneytinu í Leeds og veitti hann mjög mikilsverða fyrirgreiðslu. Rómaði Jóhann mjög hina brezku gestrisni og kvað ferðina hafa verið ómet- anlega fyrir sig. (Frh. af 1. síðu.i ræddi einnig nokkuð við Milic um atburðina í Ungverjalandi í október s. 1, ár. — Var ekki júgóslavneska þjóðin andvíg íhlutun Rússa í Ungverjalandi? -— Ja, jú, Júgóslavar eru and vígir allri erlendri íhlutun. Júgóslavar vilja ráða málum sínum sjálfir. Þess vegna studdu Júgóslavar Imre Nage og þeim líkar stefna Gomulka vel. — Óttuðust júgóslavar ekki rússneska herinn, er hann var á landamærunum við átökin í Ungverjalandi? - — Nei, við höfðum enga á- stæðu til að óttast. Við höfðum ekki hlutast neitt til um mál- in í Ungverjalandi og júgóslavn eski herinn er það öflugur, að ekki er ástæða til ótta. JÚGÓSLAVAR MÓT- MÆLTU HANDTÖKU IMRE NAGY. Fréttamaður blaðsins spurði Milic um afdrif Imre Nagy. Sagði Milic, að hann hefði leit- að hælis í sendiráði Júgóslava í Budapest í fyrstu. Síðan hefði hann hafið samningaviðræ.ður við Rússa og Kadar og verið lofað fullu frelsi. Fór hann úr sendiráðihu í þeirri vissu en var handtekinn þegar í stað. Mun hann nú dveljast í Rúm- eníu, sagði Milic. Mótmæltu júgóslavar ' síðar handtöku Imre Nagy harðlega. BETRI LÍFSKJÖR EN í ÖÐRUM AUSTUR- EVRÓPURÍKJUM. Að lokum ræddi fréttamað- ur Alþýðublaðsins við Milic um lífskjöriir í Júgóslavíu. Sagði Milic, að lífskjörin væru góð og yfirleitt betri en í hinum Austur-Evrópurí'kjunum. Þrátt fyrir það væru efnahagsöðug- leikar miklir enda vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður. Væri því mikið kapp lagt á það að auka framleiðsluna. SALA - KAUP Höfum ávallt fyririiggj- andi flestar tegundir bii- reiða. Bílasalan ' Hallveigarstíg 8. Sími 23311. Minnmgarsplöld! D. A. S. fást hjá Happdrætti DAS, Austurstræti 1, sími 17757 — VeiSarfæraverzl. Varðanda, sími 13786 — Sjómannafé- lagi Reykjavíkur, sími 11915 — Jónasi Bergmann, Háteigs- vegi 52, sími 14784 — Bóka- verzl. Fróða, Leifsgötu 4, sími 12037 — Ólafi Jóhanns- syni, Rauðagerði 15, sími 33096 — Nesbúð, Nesvegi 39, Guðm. Andréssyni gullsmið, Laugavegi 50, sími 13769 — í Hafnarfirði í Pósthúsinu, sími 50267. Samúðarkort J Leiðir allra, sem œtl* að I kaupa eða selja í ' B I L liggja til okkar B t í a s a I a n Klapparstíg 37. Sími 19032 Slysavarnafélags Islands kaupa flestir. Fást hjá slysa- varnadeildum um land allt. í Reykjavík 1 Hannyrðaverzl- uninni 1 Bankastr. 6, Vefzl, Gunnþórunnar Halldórsdótt- ar og í skrifstofu félagsins, Grófin I. Afgreidd f síma 14897. Heitið á Slysavarnafé- lagið. — Það bregst ekki. ■— Málflutníngur Innheimta Samningagerðir Málflutningsskrifstofa Vagns E. Jónssonar Austurstræti 9 o g Krfslján Elríksson hæstaréttar- og béraðs dómslögmenn. Málflutningur, innheimta, samningagerðir, fasteigna- og skipasala. Laugaveg 27. Sími 1-14-53. Héinæðls* miðlunin, Vitastíg 8A. Sími 16205. Sparið auglýsingar of hlaup. Leitið'tií okkar, ef þér hafið húsnæði til leigu eða ef yður vfintar húsnæði. Hdseigendur ðnmimst alískonjur Titav oi hittkgnir. Hitalagnir Símar: 33712 og I289S. prjónatusknr og vað- málstuskur hæsta verði. Aíafsss, Þingholtsstræti S. I NNt-íElMTA \ LÖGERÆÐl&TQGF (

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.