Alþýðublaðið - 16.10.1957, Page 4

Alþýðublaðið - 16.10.1957, Page 4
A I b ý g u b 1 a % i 8 Miðvikudagur 16. október 1957s Bjarni Benedikísson sér sig í spegli LÍTILLÆTI er dyggð, en stundum reynist stórmenn- um örðugt að muna hófséjn- ina, þrátt fyrir einlægan á- setning og staðfastan vilja hversdagslega. Þetta sannað- ist á Bjarna Benediktssyni föstudaginn var. Hann birti af sér fimm myndir í Morg- unblaðinu, og voru þær hver annarri betri og ásjálegri. En slíkt var sízt að ástæðu- lausu. Manninum hafði hlotn azt ærinn frami. Hann var endurkosinn formaður þing- flokks Sjálfstæðismanna og auk þess sæmdur verðlaun- um úr minningarsjóði Björns Jónssonar, móður- málssjóðnum, fyrir vandað mál og góðan stíl. Öll þessi tíðindi voru auðvitað mynd- skreytt í Morgunblaðinu, og Bjarni blasti þar við allra augum á föstudag í fimm hlutverkum eins og leikari, sem hefur „slegið í geg'n“. Sumum fannst þetta fullmik ið af því góða, þar eð Bjarni er aðalritstjóri blaðsins, sem hér átti hlut að máli, en menn skyldu ekki vera of fljótir á sér til ályktunar af tilefni sem þessu. Til dæmis var óhjákvæmilegt fyrir Morgunblaðið að birta mynd af manninum með fréttinni um „litlu nóbelsverðlaunin“. Það þurfti að 'sjást svart á hvítu eða hvítt á svörtu, að einmitt þessi Bjarni Bene- diktsson hefði orðið fyrir valinu. HETJAN MIKLA Morgunblaðið á laugardag var eins og jafnaðarlega glögg sönnun um vandað mál og góðan stíl, en flutti hins vegar enga myndina'af Bjarna Benediktssyni aðal- ritstjóra. Hann hvíldi sig daglangt eins og guð almátt- ugur eftir sköpun heimsins og valdi laugardaginn, sennilega fremur af tilviljun en tillitssemi við aðvent- ista. En svo rann sunnudag- urinn upp, og þá lét Morg- unblaðið ljósflóðið leika á ný um hetjuna miklu. Vel- vakandi kom á framfæri grein eftir Pétur Sturluson á Álafossi. Hún nefndist Verðskulduð verðlaun og fjaljaði um Bjarna Benp- diktsson og upphefð hans. Þar voru miklu efni gerð skil í stuttu máli. — Boðskapur Péturs þessa Sturlusonar var svohljóðandi: BJARNI OG ÞROSKINN „Nýlega hafa verið veitt verðlaun. úr minningarsjóði Bfjörns Jónssonar, Móður- málssjóðnurn. Verðlaun þessi eru, sem kunnugt er, veitt fyrir gott mál og góðan stíl. Að þessu sinni hefur aðalrit- stjóri Morgunblaðsins Bjarni Benediktsson hlotið þessi verðlaun og þar með viðurkenningu okkar fær- ustu manna. Skólar landsins útskrifa árlega mikinn fjölda æsku- fólks, sem aðeins hefur numið undirstöðuatriði móð- urmálsins. Andlegur þroski þessara ungmenna og um leið næmleiki þeirra fyrir fegurð málsins fer að mestu leyti eftir því lesmáli, sem fyrir þeim verður“. GIMSTEINNINN GÓÐI „Dagblöðin eru það les- mál, sem mest er lesið og mest áhrif hefur á málsmeð- ferð þjóðarinnar. Það er því þýðing'armikið að dagblöðin séu vel skrifuð á góðu og fögru máli. Morgunblaðið er stærsta og útbreiddasta dagblað landsins, er lesið af svo að segja hverju mannsbarni á landinu. Það er því ánægju- efni hverjum sönnum ís- lending að svo ritfær maður sem Bjarni Benediktsson er skuli stjórna því og þannig hjálpa til að móta og auka næmleik þess æskufólks, sem vex upp í byggðum landsins, fyrir.. þeim feg- ursta gimstein, er þjóðin á, móðurmálinu“. VÍSAN HANS SÖLVA Vafalaust hefur Bjarna Benediktssyni liðið harla vel eftir að hafa lesið blað- ið sitt með morgunkaffinu á sunnudag. Og afburðamenn þurfa ekki að vera svo lítil- látir að banna blaðinu sínu að birta myndir af sér eða lofgreinar um sig. Þess eru mörg' dæmi, að snillingar hafi sagt sannleikann um sjálfa sig. Sölvi Helgason kvað forðum daga: Ég er gull og gersemi, gimsteinn elskuríkur. Ég. er djásn og dýrmæti, drottni sjálfum líkur. MYNDIN OG VARÐINN Hins vegar hefði farið vel á því að láta mynd af Pétri Sturlusyni á Álafossi fylgja grein hans um Bjarna Bene- diktsson, manninn með gim- steininn í mildri föðurhendi. íslendingar eru svo mein- fýsnir og illgjarnir. Ein- hverjum þeirra kynni að detta í hug, að höfundur Lúsoddagreinarinnar frægu væri hér að verki til að gera Bjarna nýja skráveifu. Og vissulega gæti það talizt skemmtilegur fróðleikur að líta ásjónu þessa Péturs- Sturlusonar á Álafossi. Framtíðin mun ef til vill leggja hann sem sagnantara að líku við hálfnafna hans, Snorra Sturluson í Reyk- holti. Myndin af þvílíkum manni þarf að vera fyrir hendi, þegar einhver Guð- mundur frá Miðdal byrjar á styttunni, því að öðrum eins snillingi og postula verður að sjálfsögðu reistur minnis varði. Ekki þarf Bjarni að óttast gleymskuna að held- ur. Hann fékk af sér fimm myndir í Morgunblaðinu á föstudag. Því þá ekki að birta eina af Pétri? Enn þekkja hann fáir. Bjarni er aftur á móti löngu kunnur. Ilcrjólfur. Nýjungar í vísindum og tœkni Á RANNSÓKNARSTOFU skógræktarframleiðslunnar í Madison, Wisvonsin, Bandaríkj unum, hafa verið gerðar tilraun ir með framleiðslu pappírs úr filippínskum bambusreyr, og hafa þær borið mjög góðan ár- angur. í up.plýsingum frá rannsókn- arstofnuninni segir, að ekki sé auðvelt að rífa þennan pappír og skilyrði til litunar séu góð. Eru bændur í Bandaríkjunum hvattir til þess að rækta.þennan bambusreyr, vegna þess að hann vex fljótt og nýtist vel. ^aukaorka auka hraða flugvél- anna um 40 km á klukkustuncl eða meir. í þessum flugvélum eru Curt* iss-Wright hverfihreyflar. I hverjum þeirra eru 18 strokkan og þrír innbyggðir hverflar, sera nýta á ný útbrunnið gas og breyta því í orku. ] elgar og I ríkjamenn stofna kjarnorkufyrir- NÝTT fyrirtæki hefur verið stofnað af belgískum og banda- rískum iðnsamböndum með það fyrir aug.um að stuðla að auk- inni notkun á kjarnorku í Evr- ópulöndum í friðsamlegum til- gangi. Fyrirtæki þetta heitir NDA Europe og eru aðalbæki- stöðvar' þess í Brússel í Belgíu. MUn það sjá iðnfyrirtsekjum í Evrópu fyrir fræðilegum og tæknilegum leiðbeiningum sér- fróðra manna og aðstoða þau við Jramleiðslu á.þessu.sviðí. Ný tegund ai FYRIR SKÖMMU komst ( bandarískur flugliðsforingi með { íoftbelg upp í 33 kílómetra1 .:>.æð, og eldflaugar með til- raunadýrum, hafa náð meira en j •.vöfalt hærra. í hvert skipti sem slík furða hefur gerst, j ::nátti halda það eftir blaðafyr- ú’sögnum að dæma að nú væri fsíðustu þröskuldunum fyrir því að geimfarir mættu hefjast, Xoks rutt úr vegi. Þessi merki- 'egu afrek eru þó ekki þýð- Xngarmeiri en það, að enn erum i Við stödd í flæðarmáli hins óra- víða geimhafs. Enn höfum við I'-.arla litla hugmynd um hvern-. . g- öllu er háttað í efri logum geimsins, segir þýzki eðlisfræð- ^ Ingurinn Werner Braunbek í Htgerð um eðlisfræðilegt ásig- i:omulag háloftanna. Andrúmsloftið umhverfis og yfir okkur er svo létt og gagn- sætt, að okkur er fjarri að telja okkur djúpsævisskepnur. And- rúmsloftið er nefnilega þúsund sinnum þynnra eða léttara en vatn og vegur lítri af því ekki nema eitt gramm. En samt sem áður dugar það okkur vel sem varnarveggur gegn hinum hættulegu áhrifum útgeimsins, fyrst og frernst veg'na þess hve' lagið er þykkt. Hve þykkt er andrúmsloftið í I raun réttri? Hversu vítt er' geimhafið? Hve hátt þurfum! við að komast til þess að fara út fyrir jaðar gufuhvolfsins’ Spurningunni verður ekki svar að, þar sem ekki er um nein hrein takmörk að ræða, and- rúm'sioftið aðeins smá þynnist1 þar til geimurinn tekur við. Með tveggja eða þriggja þrepa eldflaug hefur náðst 400 km. hæð, og hafa slíkar tilraunir veitt margháttaða fræðslu um ásigkomulag háloftanna. Fyrir uppgufun og önnur áT hrif hafsins er samsetning and- rúmsloftsins, fyrst og fremst varðandi köfnunarefni, súrefr.i og kolsýru, mjög svipuð upp ,í verulega hæð. Það er ekki fyrr en dregur marga kílómetra frá jörð og loft'ið er farið að gerast mjög létt, að vart verður Weggja léttra gastegunda, ild- is og helium, að meira leyti en neðar. Að minnsta kosti virðast upplýsingar þær, sem fengist hafa fyrir tilraunir með eld- flaugar benda til þess. Þyngd Framhald á 8. síðu. Á VEGUM bandaríska fyrir- tækisins Du Pont fara nú fram tilraunir með framleiðslu nýriv ar tegundar af nælon, sem ofið er í vinnufataefni úr baðmull eða rayon, og mun það auka endingu þeirra um 70 %. Hinn nýja þráð, sem nefndur hefur verið nælon 420, má nota í baðmullar- og. rayonefni til þess að auka ( slitþol þeirra og varna því að þau. rifni. í til- kynningu frá fyrirtækinu segir, að undanfarin fjögur ár hafi verið unnið að rannsóknum á framleiðslu þessa þráðar. ÖRLÍTILL þurrhlöðuraf* geymir, minni en armbandsúrj sem hægt er að hlaða aftur með raímagni til margra ára, hefux” verið framleiddur í rannsókn* arstofum Bandaíkjaflota. Ætlað er, að hægt verði að nota slík- an rafgeymi til þess að kný.jas hið smágerða raíeindakerfi í heyrnartækjum, ferðaútvarps- tækjum og öði-um rafeindatækj um. i Hið athyglisverðasta í sam- bandi við þennan nýja rafgeými er það, að hægt er að hlaða harm á ný, þegar hann er orð- inn þurr, en það er ekki hæg't að gera við venjulega þurr- hlöðurafgeyma. Ennfremm’ má hlaða rafgeyminn aítur eins oft og þörf krefur, og endist hann í nokkur ár. Sarakvæmt þeim tilraunum, sem hingað til hafa verið gerðar, er búizt við, að rafgeymirinn muni endast í rúm tíu ár. Ef það reynist rétt, mun hann endast lengur en flest ir aðrir hlutir í rafeindakerfi. FUNDIN hefur verið ný að- ferð til þess að framleiða dem- antsnálar í plötuspilara í vél- um hjá Walco-fyrirtækinu í East Orange, New Jersey í Bandaríkjunum. I tilkynningu frá fyrirtækinu segir, að tekið hafi tvö ár að fullkomna þessa nýju aðferð. Hingað til hafa demantsnál- ar verið búnar til í höndunum og demantshjól verio notuð til þess að sverfa þær. Með þess- ari.nýju aðferð verður hægt að hefja fjöldaframleiðslu á dem- antsnálum, og mun verð þeirra því lækka að mun. flugvéla. NÝ TEGUND af flugvéla- benzíni, sem getur aukið orku sérstakra hverfihreyfla um allt að því 20%, hefur verið fram- leidd hjá Ethyl-fyrirtækinu í Bandaríkjunum. Benzín þetta hefur verið nefnt AK-33X og eykur það stórlega hreyfiafl brennsluhola í hreyflum fiugvéla eins og t.d. af gerðinni Lockheed Super Constellation og Douglas DC-7, segir m.a. í frétt frá fyrirtæk- inu. í framtíðinni, þegar hreyfl- arnir hafa enn verið endurbætt- ir og fullkomnaðir, mun þessi líulekju. Á VEGUM bandaríska fyrir- tækisins Gulf Oil Corporation eru nú gerðar tilraunir með notkun nýrrar aðferðar, sem á ef til vill eftir að auka mjög olíutekju úr lindum, sem hing- að til hafa verið álitnar þurr- ausnar. Fer þetta þannig fram, að myndaður er hiti inni í olíu- borholunni til þess að kvikni í olíunni í klettalögunum um- hverfis holuna. Við það breyt- ,ist hluti af olíunni og vatninu í ' ldettamyndunum í gufu og síð- an aftur í olíu. Gert er ráð fyrir, að með þessari aðferð verði ef til vill unnt að ná jafnmikilli olíu úr ,,þurrum“ olíulindum og náðst hafði úr þeim áður.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.