Alþýðublaðið - 24.04.1928, Side 2
aHKfcÝÐUBEAÐIÐ
a
Vegavlimiikaupið.
A vegamálast|óri að verða einráður I kasap-
g|aldsmáluuum?
Mvað gerir ðændastjórfiim?
Verklýðsfélög eru nú komin i
hvert kauptún um .land jalt.
Eftir margra ára harða baráttu
er nú loks komið svo, að at-
vinnurekendur yfirleitt viður-
kenna þau sem réttan samnings-
aðila um kaupgjald verkamanna
hVert í sínu umdæmi, ef þeir
gera það ekki í orði, þá hafa þeir
gert það' á borði. Með þessari viðr
turkenningu atvinnurekenda má
segja, að veridýðsfélögin séu að
fullu og öllu viðurkend. Hefir og
s.lík viðurkenning oft kostað
faarðari baráttu í öðrum löndum
en við höfum háð hér, — og. lengi
var svo, að hún var aðalkrafan.
Félögin eru mismunandi sterk,
og vinnuhættir og dýrtíð er
mjög mismunandi í hinum ýmsu
stöðum á landinu. Hefir því kaup-
gjald verið mjög mishátt bæði
fyrir karla og konur. Vantar enn
mikið á um, að það samræmi
sé á komið um kaupgjald víðs
vegar á landinu, sem sanngirni
og réttlæti heimta. Er þar mikið
verk óunnið fyrir alþýðusamtök-
in.
Einn er þó sá atvinnurekandi,
sem eigi hefir enn viðurkent í
verki, að félög verkamanna séu
réttur samningsaðili um kaup-
gjáídsmál. Þessi atvinnurekandi
er ríkið sjálft.
Kaupgjald við vegavinnu og
brúagerð hefir til pessa verið
ákveðið með valdboði vega-
málastjóra eins, að pví er bezt
verður vitað.
Eins og allir vita, er rikið ekki
annað en stofnun, sem sett hefir
verið á laggirnár og haldið er
við líði til að vernda þegnana
og stjóTna þjóðarbúskapnum. Þáð
á að þekkja þarfir og lífsskilyrði
allra stétta og gæta þess, að
þegnarnir allir hafi sömu að-
stöðu í þjóðfélaginu til að afla
sér líf'sviðurværis. Það er því
býsna hart, að verkamenn skuli
sæta harðari kostum af því op-
inbera en aðrir þegnar. Ýmsum
gróðabrallsmönnum eru gefnar
eftir þúsundir króna af skuldum
sínum. Þeir eru verndaðir, og rík-
ið kinokar sér ekki við að gæta
þeirra fyrir a.lls koniar ,óhöpp-
um‘, sem oftast nær stafa af
þeirra eigin trassaskap eða vit-
firringslegri og kæruleysislegri
gróðafíkn.
En verkamennimir verða ‘ út
undan. Ríkið gleymir þeim eða
sér þá ekki — þa'ð fálkakroissar
burgeisana, en sveltir sína eigin
verkamenn. Ekki að eins, að það
eigi viðurkenni félagsskap verk-
anainna að öllu, heldux gerir það
enn verra. Það hjálpar beinlínis
þeim atvinnurekendum, sem
áækka vilja kaupið með þvi að
ákveða það langt um lægra en
tíðkast við aðra vinnu. Ríkið ríð-
ur þannig á vaðið með kaup.lækk-
un, gefur þannig þeim atviineu-
rekendum fordæmið, sem sýtings-
samaistir eru.
Það er enn fremur nokkuð hjá-
kátlegt, að verkamenn skuli
sæta harðari kostum af ríkinu —
verndarstofnuniinni — en af ein-
stökum mönnum, isem auðvitað
hafa ekki annan tilgang með at-
vinnurekstri sínum en eigin hags-
muni og nú geta. tekið sér sjálft
ríkið til fyrirmyndar.
Eins og allir vita, var kaup-
gjald við vegavinnu rikisins sums
staðar á landinu að eins 50 aur-
ar um kl.stund hverja. Allir hljóta
að sjá, hvílík fádæma kúgun og
hvílíkt óréttlæti er framið með
því að láta fátæka verkamenn
og bændur vinna fyrir slík lauin.
En ríkið virðist ekld finna til
þess. Það fremur sömu kúgunina
vor eftir vor, sumar eftir sum-
ar, og virðist ekki ætla að breyta
til batnáðar.
Það er enn fremur annað, er
sýnir, að ríkinu eru mislagðar
hendur.
Sums staðar greiðir það kr. 1,10
um klst., en annars staðar að
eins 50 aura, og það í sömu
vinnu. ÓskiJjanlegt er með öllu,
hvað liggur til grundvallar fyrir
þessum mismun.
Nú hafa verkamenn í Árnes-
sýslu snúið sér íil stjórnar rikis-
ins, og farið þess á leit við hana,
að hún kipti þessu í sæmilegt
horf. Bréf nefndar verkamanna-
félaganna á Eyrarbakkia og
Stokkseyri, sem birtist hér í
blaðinu í gær, túlkaði með skýr-
um orðum vilja og skoðanir
verkaimanna þar austan fjalls. Er
sýnt frarn á það í bréfinu, að ef
þessu háttalagi ríkisins verði
haldið uppi framvegis einis og
hingað til, geti það riðið afkiomu
kauptúnanna að fullu og með
því séu menn flæmdir á burtu
úr þorpunum, þeir flytjist þang-
að, sem þeir álíti lífvænlegra að
vera, og þá helzt' til Reykjavíkur.
Engan undraði, þótt íhaldið,
sem réði ríkinu urtdan fariin ár,
kúgaði verkamenn og bærtdur á
þenna hátt sem annan. — Frá
þeim flokki, sem sýnt héfir sig
að vera fjandsamlegan verkalýð
til sjávar og sveita, var ekki við
öðru að búast.
Flestir bjuggust við, að stjórn
sú, sem nú situr að völdum, tel-
ur sig framsækna, kennir sig við
bændur og þykist viija gæta rétt-
lætis á ýmsum sviöuim, myndi
nú þegar ráða bót á þessu mikla
óréttlæti.
En bvað skeður?
Stjórnin hefir enn ekki svarað
málaleitun bændanna og verka-
mannanna. Hún þykist ætla að
athuga málið, en dregur það á
lainginn.
Verkaimenn og bændur sam-
þyktu þó ti.llögur í málinu á
þingmálafundum sínum í þeirri
von, að þær yrðu teknar til greina
af bændastjórninni. Ef svo fer
að stjörnin hafist ekki að, 'þá
sjá þeir, að þar hafa þeir farið í
geitarhús að leita ullar. Hvar er
þá öll umhyggjan fyrir bænidun-
um?
Eða er það svo, að umhyggjan
nái að eins til þeirra bænda, er
bezt hafa lifskjörin og ekki þurfa
að grípa til vegavinnunnar sem
aukavinnu, þegar þröngt er í búi
hjá þeim?
Ætlar Tryggvi atvinnumálaráð-
herra að g.leyma fátækustu bænd-
unum?
Jafnaðarmenn krefjast þess af
stjörninni, ,að hún gleymi ekki
fátækaista hluta þjóðarinnar,
-hvorki til sjávar né sveita. Að
hún sjái sóma sinn og flokks síns
í því, að láta ekki glamuryrði
afturhaldssamra gæðinga sinna
um fjárhag rikisinis blinda sig
svo, að hún svelti þá menn, er
vinna þaríasta verkið: að byggja
brýr yfir ár og vötn og leggja
vegi og endurbæta þá.
Ef hún ekki verður við þeirri
kröfu, má hún búast við, að sum-
ir þeir, sem röggsamlegast unnu
að þ'ví að steypa íhaldsstjórn-
inni af stóli, spyrji sjálfa sig:
Er F rams.ö Imar-stjiórnin engu
betri? Eða er hún svo ístöðulaus,
að hún láti jhaldssinnaða embætt-
ismenn ráða gerðum sínum?
Viggo Hartœann,
professeur de danse.
í kvöld sýnir hinn frægi, dainski
danzsnillingur, Viggo Hartmann,
list sína í Gamla Bíó. Hann sýnir
meðal annars hinn velþekta,
gamla Vínar-va-ls, se-m gert hefir
nafn Strauss ódauðlegt. — Einnr
ig gefst niönnum kostur á að sjá
allra nýjustu danza, svo sejhi
Black Bottomi, Goniique o. fl., en
þenna danz danzar hnnn ekin (só-
ló-danz). Skemtun þessi verður á-
reiðanlega til mikillar ánægju
mönnum, sem unna fagurri damz-
Kst. X.
f~\ ~ zi rr'
, i
Helgistaðurinn.
fc-að mun ekki einungis þykja
tíðindum sæta hér á landi, held-
ur og um öll Norðurlönd — jafn-
vel víðar — að hinn forni og
sögufrægi alþingisstaður við Öx-
ará er nú með lögum gerður að
„friðlýstum helgistað allra íslend-
inga“. Aðrar þjóðir, sem fá vitn-
eskju um þetta og sem lítið eða
ekkert hafa þekt til íslands hing-
að til, líta svto á, að menning héxi
á landi muni á sama stigi og hjá
þjóðum, sem hún er einna lengsl
á veg kofnin, því að flestir vita,,
að menningarsnauðar þjóðir fríð-
helga aidrei nokkurn blett á iandi
sínu.
Nágrannaþjóðir vorar hafa
stundum reynt að eigna sér suma
nafnkunnustu menn vora eða verk
þeirra, en helgistaðinn getur eng-
in önnur þjóð talið eign sína, þó-
fegin vil-di, eða hrósað sér af, að-
hafa gert hann frægan og helgað
hann.
Nálega má kveða svo að orðí,
að hver einasti þingmaður á al-
þingi hafi verið hlyntur því, að
friðheiga Þingvelli og taiið það
sjálfsagt, að eins skiftar skoðanir
um, hve friðunin skyldi víðtæk.
Verður því ekki sagt, að til hen-n-
ar sé stoínað í trássi við vilja.
þjóðarinnar.
Jafnframt því, sem náttúran er
varðveitt fyrir innan vébönd frið-
helginnar, eru sögumenjarnar á
Þingvöllum verndaðar um aldur
og æfi, en endurminniingamar,
sem við þær eru bundnar, glæð-
ast við það í huga þjóðarinnar.
Á helgistaðnum ætti einnig að
geymast lengst íslenzkt mál og
menming, þó að ofurliða yrði bor-
ið, í baráttunni við erlend áhrif
annars staðar á landinu.
í frumvarpinu er tekið fra-m, að>
eyða megi dýrum og fuglum, sem
vinna búfénaði bænida mein á
þessum slóðum, eða gera annan
usla. Þegar menn fara að v-enjasf
friðhelginni og skilja hana til hlít-
ar, verður litið svo á, að ákvæði
þetta verði óþarft. Fer þá eins og
í fornöld, er heiðnar venjur voru
.afnumdar með lögum nokkru efí-
ir kristnitökuna. í erlen-dum þjóð-
görðum eru úlfar, refir, birnir o.
fl. villidýr friðlýst. En þegar út
fyrir takmörk garðanna kemur,
eiga þau ekki lengur friðlandJi
Húsmæður
Dollar - stangasápan
hreinsar betur og er miklu
mýkii fyrir fötin og hendur-
nar en nokkur önnur
SW þvottasápa,
Fæsi vfðsvegar.
í heildsölu hjá
Halldóri Eiríkssyni,
Hafnarstræti 22. Sími 175.