Vísir - 16.05.1918, Side 5
VÍSIR
VISIR.
Afgrsiésla bl&ísicii 1 Aðalste*-
14, opia fíá kl 8—6 .4 bvsíjnm úegí
Skrífsioia á saira st&ð.
Sírni 400. P. 0, Boi SS7.
Ritatjóriu® tii viðtiis fri ki. S— 6,
Preaiaffiiðjan i, Langtreg i
Bimi 138.
AuglýtisgttK. Tsitt ttðttaks 5 L&sfo
stjörnuBsi aftii kl, 8 4 kvöldin.
Auglfeingftverð: 5') aur. hver en.
dálks i «tæm acgl. 5 aura orð. i
8*á? ugíýsinjuæs meí öbísyttH letri.
Frá Alþingi.
Þingfundir voru stuttir í gær
og þó mál með íiesta móti á dag-
skrá í báðum deildum: 7 í Ed.
en 11 í Nd., en fundir stóðu yfir
að eins eina kl.stund.
í Ed. var frumv. um bæjar-
stjórn á Siglufirði til fyrstu um-
ræðu og þurfti til þess afbrigði
frá þingsköpunum, og er því
sýnilegt, að nú á að fara að hafa
hraðann á.
Tvenn lög voru afgreidd frá
þinginu: um stækkun verslunar-
lóðar i Ólafsfirði (frá E.d.) og
um ráðstafanir út af ófriðnum
(frá Nd.).
Frv. um eftirlaun B. Kr. var
til 1. umr. í Ed. og varþvívís-
að til 2. umr. og allsherjarnefnd-
ar.
Rannsókn á vátryggingum
landsstjórnarinnar.
Magnús Torfason flytur tillögu
til þingsályktunar í Ed., um
skipun nefndar til þess að rann-
saka s3 ó- og stríðsvá-
tryggingar landsstjórn-
arinnar og íhuga, hvort til-
tækilegt sé að landið taki á sig
slíkar tryggingar.
Væntanlega kippir stjórnin sér
ekki upp við það, þó að þessi
þriðja rannsókn verði fyrir-
skipuð!
Fyrirspurn um sykurverðs-
hækknnina leyið.
Neðri deild leyfði í gær, að
fyrirspurn sú yrði borin upp. —
En svo tregir voru margir þing-
menn til að greiða því atkvæði,
að nafnakalls varð að leita, en
þá sögðu allir viðstaddir þing-
menn já, að undanskildum tveim
mönnum, þeim Einari Árnasyni
2. þm. Eyfirðinga og Þorsteini
M. Jónssyni 2. þm. Norðmýlinga.
Verður að skilja atkvæði þeirra
svo, að þeir vilji ekki vita hið
sanna í málinu — eða þá að þeir
viti það fyrir, en einnig „að oft
má satt kyrt liggja“.
Tveir þingmenn voru svo lán-
samir að vera ekki viðstaddir at-
kvæðagreiðsluna, og voru það
fossanefndarmennirnir, Bjami og
Sveinn. En báðir sáust þeir 1
salnum á undan og eftir.
Mótorbátur
til leigu á Austurlandi með ágætum útbúnaði og öllum veiðarfær-
um, olíu, salti og beitu fyrir útgerðartímann og húsnæði bæði fyrir
fólk og afla. Upplýsingar gefa
6. Kr. Guðmunðsson & Co.
Hafnarstræti 17. Sími 744.
Mótorkúti
i
rúmlega 80 Reg. tons, gerir 7 mílna ferð; hefir stórt lestarrúm
og þar að auki rúm fyrir 14—16 ferðamenn
auk skipshafnar,
fæst leigður til flntninga til 10.-14. júni,
Bréf merkt „ TVlötorlí: ixttei'11
afhendist á afgreiðslu Vísis.
Salt!
Eftir vikutíma fást keypt 40 tons aí salti, ef samið er
um kaup innan morgundagsins við
P. A, Olafsson,
Sími 580.
Mótorbátur til sölu,
tveggja ára, 13 smálestir að stærð, með 20 hesta Scandia-vél.
Mikið af veiðarfærum getur fylgt. Menn snúi sér til
Stefáns Gunnarssonar kaupmanns,
Austurstræti 3.
HeilbrigðisMtrúi
verður skipaður fyrir Reykjavík frá 1. júlí næstkomandi.
Árslaun 2400 krónur.
Heilbrigðisfulltrúi má ekki gegna öðrum slörfum.
Umsóknir, stílaðar til bæjarstjórnar, sendist borgarstjóra fyrir
lok mánaðarins.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 14. maí 1918.
K. Zsmsen.
um Stóraselstún er
strangiiega toannaöur.
Yisir n úibnlddasU blaðill
Prjónatusknr
og Vaðmálstuskur
’hver tegund verður að vera sér)
keyptar Iiæsta verði.
YðruMsið.
ÞÍBgfrestunii.
Það hefir vakið eftirtekt manna,
að í yfirlýsingu þeirri, sem for-
sætisráðherrann danski hefir lát-
ið birta, og birt var í blöðunum
hér í gær, er svo komist að orði,
að búist sé við því, „að núver-
andi alþiugi verði bráðlega lok-
ið, og þingmennirnir dreifist um
alt ísland“ og sömuleiðis að bú-
ist sé við því, að Alþingi sé
undir það búið að koma aftur
saman vegna væntanlegra samn-
ingaumleitana, ef Danir vilji.
Af þessu virðist augljóst, að
íslensba stjórnin hafi í skeyta-
ekiftum sínum við dönsku stjórn-
ina gert ráð fyrir því, að Al-
þingi yrði frestað um sinn eða
elitið, og þingmenn látnir fara
heim. Þingfrestunarhugmyndin
virðist þannig tilorðin í stjórn-
arráðinu, en ekki meðal þing-
manna eins og álitið hefir verið.
K. F. U. M’ í Hafnarfirði
hélt á uppstigningardaginn
hátíðlega vígslu síns nýja fundar-
staðar í húsi því er félagið
hefir keypt þar. Fyrsti fundur
var haldinn kl. 11 árdegis og
voru þar viðstaddir aðeins félags-
menn og fáeinir aðkomandi. Gekk
siðan allur hópurinn til kirkju
og fór þar fram bámessa. —
Klukkan 2 síðdegis var haldin
samkoma fyrir börn og var hinn
nýi salur í kjallaranum troð-
fullur af börnum. Klukkan 4
var haldinn fundur fyrir K.F.U.K.
og sóttu hann fjöldi kvenna.
Kl. 8 var samkoma fyrir karl-
menn, og mættu á þeim fundi
fyrir utan félagsmenn, hér um
bil 50 félagsmenn úr Reykjavík
ásamt allri stjórn Reykjavíkur-
félagsins; þar að auki voru boð-
nir: prestar safnaðanna í Hafnar-
firði, sóknarnefnd og bæjarstjórn
Hafnarfjarðar. — Séra Bjarni
Jónsson talaði fyrir hönd félags-
ins í Reykjavík og þar að auki
töluðu séra Árni Björnsson, pró-
fastur, Magnús Jónsson, bæjar-
fógeti í HafnarfirSi, Knud Zim-
sen og séra Fr. Friðriksson.
Fjórir meðlimir félagsins í Reykja-
vík, skemtu með söng á tveim-
ur síðastnefndu samkomunum.
— Að fundiuum loknum voru
af viðstöddum gefnar 300—400
krónur i hússjóð félagsins.
/