Vísir - 20.11.1919, Side 2
VÍSIR
haia fyrirliggjandi:
ágœtar danskar
kartöflur
Simskeyti
tri fréttiritan firia.
ÍChöfn 19. nóv.
Friðarskilmálar Ungverja.
Simað er frá Budapest, að
bandamenn krefjist þess, að frið-
arskilmálar Ungverjalands verði
r.ndirritaöir af samsteypustjórn-
inni.
Búist við, að Friedrich segi af
Herforingjar jrfirheyrðir.
Símað er frá Berlín, að Hinden-
ijurg og Ludendorff hafi skýrt svo
frá fyrir rétti, aö herforingjará'ð’
keisarans hafi verið ókunnugt um
samningatilraunir stjórnarinnar
við Wilson, og tvöfeldni Bethman-
Holwegs.
Hindenburg heldur fast við það,
þrátt fyrir Winar-skjölin, að
Þýskaland hafi ekki átt upptök að
ófriðnum.
Kosningaúrslit.
í Dalasýslu er kjörinn
Bjarni Jónsson
frá Vogi,
með 255 atkv. — Benedikt Magn-
ússon í Tjaldanesi fékk 138 atkv.
í Árnessýslu eru kjörnir:
Eiríkur Einarsson,
bankastjþri á Selfossi, með 1032
atkv., og
Þorleifur Guðmundsson,
útvegsbóndi í Þorlákshöfn, með
614 atkv. — Sigurður Sigurðsson,
ráðunautur, fékk 335 atkv. og Þor-
steinn Þórarinsson á Drumbodds-
I
stöðum 317 atkv.
í Húnavatnssýslu eru kjörnir:
Guðmundur Ólafsson
i Ási, með 459 atkv., og
Þórarinn Jónsson
á Hjaltabakka, með 405 atkv.
Jakob Líndal á Lækjamóti fékk
337 atkv. og Eggert Levi 279 atkv.
í Skagafjarðarsýslu eru kjörnir:
Magnús Guðmundsson
skrifstofustjóri, með 606 atkv., og
Jón Sigurðsson,
bóndi á Reynisstað, með 511 atkv,
selnr 250 pr.
IJLLARVETLINGA
handa karlmönnum
á 2,25 pr.
— Jósef Björnsson fékk 360 atkv
og sira Arnór Árnason t61 atkv.
Úsignrinn.
Það er nú komið fram, sem „Vís-
ir“ spáíi i upphafi kosningabar-
áttunnar, að Jón Magnússon væri
orðinn fylgislaus hér i bænum.
Þetta er nú ljóst hverjum manni.
Framboð hans var hamrað fram
af fáum mönnum í fulltrúaráði
,,Sjálfstjórnar“ og þvert um geð
alls þorra félagsmanna. Hinir ör-
íáu fylgismenn Jóns treystu þvi
að eins, að takast mætti að hræða
kjósendur i bænum með sócíalista-
grýlunni, til að kjósa hann. Það
var heldur ekki sparað, að slá á
þann streng í kosningabaráttunns,
að með þvi einu. móti, að kjósa
hann, yrði Ólafi Friðrikssyni
steypt. en Jakob Möller var „reikn-
aður“ alveg frá því að geta kom-
ið til mála.
Af þessum ástæðum einum er
það nú vitanlegt, að fjölmargir
kjósendur þóttust til knúðir, að
kjósa Jón, þó að það væri þeim
þvert um geð. Það verður því all-
mikill frádráttur á atkvæðatölu
hans, þegar meta á hinn pólitíska
ósigur, sem hann beið við þess-
ar kosningar.
Sá ósigur hans er enn þá til-
finnanlegri vegna þess, að keppi-
nautur hans, sem kosning-u hlaut,
var einmitt allra ákveðnasti and-
stæðingur hans í stjórnmálum á
öllu landinu, svo að vitað verði;
einmitt ritstjóri þessa blaðs, sem
nú árum saman hefir vítt stjórn-
ina allra blaða ákveðnast fyrir hin
margvíslegu glappaskot hennar,
, stefnuleysi og hringlandahátt.
Þetta starf ,,V5sis“ hefir verið
ÞURGER
(Magie Yeast)
•N
góö tegund í heildsölu hjá
Jóh. Ölafsson & Co.,
Sími 584. Reykjavík. Símn. Jawei
misjafnlega þakkað; af heimskum
mönnum hefir það verið talið
sprottiö af „persónulegu hatri“ til
forsætisráðherrans: En ritstjórinn
hefir talið það skyldu sína, að víta
alt það, sem hann hefir álitið víta-
vert i fari stjórnarinnar. Ef eng-
inn yröi til þess að gera það, mundi
stjórnmálalíf alt hér á landi verða
botnlaust siðspillingarfen og alt
lenda í sukki og óréiðu. Hvergi í
viðri veröld eru menn svo óvitrir,
að skilja það ekki, að slik blöð,
sem ávalt eru vakandi á verði
gagnvart valdhöfunum, eru nauð-
synlegustu og bestu blöðin. Þau
eru samviska þjóðarinnar, sem alt
af segja henni til, þegar eitthvað
fer aflaga.
En það hefir óspart verið notað
nú í kosningabaráttunni, að rit-
stjóri þessa blaðs væri hinn mesti
ofga- og æsingamaður, og því
lialdið fram, að árásir hans á
stjórnina væru helst sprottnar af
einhverri ofsóknarsýki. Lesendur
„Vísis“ geta nú rifjað það upp
fynr sér, fyrir hvað hann hefir
"ítt stjórnina, og þeir munu kom-
ast að þeirri niðurstöðu. að þær
ávítur hafi verið á fullum rökum
bygðar, enda hafa talsmenn stjórn-
arinnar ávait beðið lægra hlut í
þeirri viðureign. Nægir t. d. að
minna á sykurmálið og kjötmálið.
Og..Vísir“ þykisteiga þökk skylda
lyrir afskifti sín af þeim málum.
F£n eigi að síður er það vitanlegt.
að ýmsir ,,sakleysingjar“ hafa
hneykslast á þessu starfi „Vísis“
°g eríl það við ritstjórann nú i
kosnmgabaráttunni. Þeir hafa ekki
þótst geta „honorerað skrifiri“
hans, eins og Hjalti skipstjóri svo
heppilega komst að orði á fundin-
um á dögunum.
£n þrátt fyrir þetta, og þrátt
fyrir launróg þann. sem borinn
hefir verið í kjósendur og þrátt
fyrir
sósialistafælnina, þá vann nú
ritstjóri „Vísis“ samt sigur í kosn-
ingabaráttunni. Öllu áþreifanlegri
ósigur gat „höfuð“ stjórnarinnar
ekki beðið. Og sá ósigur verður
þvi áþreifanlegri, þvi fleira sem
sagt verður, satt eða logið, keppi-
naut hans til ófrægingar.
En vilji fylgismenn Jóns Magu-
ússonar fá ósigurinn staðfestan
enn áþreifanle^ar, þá er til þess
einn vegur, sem ef til vill er fær,
og hann ei sá, að fa kosninguna
ógilta og láta kjósa á ný. Þá
mundu allir þeir, sem nú sjá eftir
því að hafa kosið hann af nauð-
ung, fa.Ha fra honum, og þá mundi
hið sanna fylgi hans hér i bænum
koma í ljós.
Lætur „Vísir“ þetta mál svo níð-
ur falla að sinni.
100 börn
mnnaðarlans.
Forsætisráðherra hefir 18. þ. »».
sent stjómarráðinu hér svolátandi
skeyti:
„Austurrikskur prófessor, Bong,
hefir komið til mín af hendi ríkis-
stjórnar og sveitarstjórnar í Wie*
með beiðni úm að íslendingar, eins
og aðra hlutlausar þjóðir, tækju
börn frá Wien, alt að 100, til þess
að forða þeim frá hungurdauða.
Islandskontor.
Jón Magnússon.“
Þess er að vænta, að Reykvík-
ingar bregðist fljótt og vel vif
þessari nauðsyn, og viljum vér
leggja þessari beiðni hin bestu
meðmæli.
Veðrið í dag.
Frost á öllum stöðvum, — hér
4.8 st., Isafirði 3,7, Akúreyri 5,
Seyðisfirði 3,4, Grimsstöðum 8,5
og i Vestmannaeyjum 3 st. Hrí4
á Seyðisfirði og Grimsstöðum.
„Suðurland“
fer að forfallalausu til Borgar-
ness á morgun.
„Botnia“
fór frá Færeyjum í gærkvöldi.
Baejarstjómarfundur
verður haldinn i kvöld. 18 mál
á dagskrá. Þar á meðal fyrri um-
ræða um frjárhagsáætlun bæjarins
og erindi frá Hjálpræöishemui*
um stofnun gamalmennahælis.
Trúlofuð eru:
Lilja Guðmundsdóttir og Gísií
Sigurðsson,
Þóra ólafsdóttir og Þórður Síg-
urðsson.
Jón Jóhannesson
trésmiður hefir fengið staðfest-
ingu á ættarnafninu D a 1 b ú.
Guðmtmdur frá Mosdal,
tréskurðarmaður og listamaðui',
er nýkominn hingað frá ísafiröi.
Hann er nú á leið til útlanda til
að framast í list sinni.