Alþýðublaðið - 05.06.1928, Blaðsíða 2
I
aið&YÐUBlSAÐIÐ
jALÞÝÐUBLAÐIÐ
j kemur út á hverjum virkum degi.
« Afgreiðsla i Alpýðuhúsinu við
Hverfisgötu 8 opin irá kl. 9 árd.
í
til kl. 7 siðd.
; Skrifstofa á sama stað opin kl.
} 9Vi — 10r/s árd. og kl. 8—9 síðd.
j Simar: 988 (afgreiðslan) og 2394
j (skrifstofan).
; Verðlag: Áskriitarverð kr. 1,50 á
! mánuði. Auglýsingarverðkr.0,15
J hver mm. eindálka.
! Prentsmiðja: Alpýðuprentsmi&jan
J (í sama húsi, simi 1294).
I
Heggur sá,
er hlífa skyldi.
„Vöröur" Magnúsar Guðmunds-
sonar & Co. segir svo í siöasta
tölublaði:
„... Þess verður að krefjast, að
svo sem lög standa frekast til
þverneiti stjórninbræðslustöðv-
unum um leyfi til að kaupa
sild af erlendum skipum“ (Let-
urbr. Varðar) -og enn fremur:" Og
jafnvel peir: sem viðkvæmastir
erufyrirhagsmunum utlendinga,
hljóta að sjá, að fátækt riki,
sém vill hætta milljónum til að
ráða bót á meininu, getur ekki
sett fyrir sig itrustu hagsmuni
erlendra farfugla* (Leturbr. hér)
Hvaða hérlendur maður er
„viðkvæmastur fyrir hagsmunum
útlendinga“?
Svar: Magnús Guðmundsson.
Hver reið til Krossaness forð-
um?
Svar: Magnús Guðmundsson.
Hver veitti Dr. Paul, Þjóðverj-
anum, sem núverandi rikisstjörn
hannaði að kaupa síld af erlend-
um skipuin í sumar, ieyfi tii þess
í fyrra sumar að kaupa síld af
25 erlendum skipum?
Svar: Magnús Guðmundsson.
Hverjir voru í stjórn í fyrra,
þegar nærfelt 100 erlend skip
lögðu sildarafla sinn á land á
Norðurlandi?
Svar: Magnús Guðmundsson
og Jón Porláksson.
Hver veitti Krossaneshöfðingj-
anum leyfi í fyrrahaust til þess
að kaupa síld af ótakmörkuðum
fjölda erlendra skipa í næstu 2
ár?
Svar: Magnús sá, sem reiÖ til
Krossaness.
Hver er það, sem er formaður
hlutafélagsins Shell á íslandi?
Svar: Magnús Guðmundsson.
Hver verndar Sheil gegn hin-
um „óguðlegu íslenzku hlutafé-
iagalögum"?
Svar: Magnús Guðmundsson.
Er það fallegt af Árna að rif ja
svona upp fyrri óvirðingar og
misgerðir húsbónda síns og gera
gys að honum í þokkahót?
Nei, segja íhaldsme-nn, þetta er
reglulega ljótt af Árna, honum
var ætlað annað starf en að narta
í Magnús, þegar Kristján var lát-
inn fara hans vegna. Og Magnús
blessunin á þetta allra manna sízt
skilið af honum Árna, segja í-
haldsfrúmar.
Ekkert skil ég í honum Árna,
svona greindum manni, segir
„heild heilanna“ og dæsir: „5
sinnum 19, j>að er 85.“
Ekkert skil ég í honum Árna.
Akranes.
fk- --
Eins og ailir vita, er mest af
framleiöslu islendinga matur. En
þá tegund matar, sem bæði við
og aörar þjóðir geta einna sízt án
verið, hefir okkur þó æfinlega
gengið erfiðlega að framleiða.
Pað er korn.
Fornmenn reyndu hér víða að
rækta korn. Það gekk vitanlega
misjafnlega, og olli ýmist óstöð-
ug veðrátta eða óhentugir stað-
hættir. Nokkrir staðir á landinu
reyndust svo vei, að þar hélst
kornrækt margar aldir. Einn af
þeim stöðum er Akranes.
Akranes dregur vitanlega nafn
sitt af akuryrkju — kornræktinni,
sem hófst þar með iandnáminu.
Seinna mikiu koniu jarðeplin til
iandsins, og engmn staður hefir
reynst betur til jarðeplaræktar en
Ákranes.
Akranesjarðepli hafa iengi verið
landfræg. Nú er að hefjast land-.
nám að nýju á þessu landi. Ef
ekki kemur sérstakt harðæri, er
sennilegt að á næstu 10 árum
verði meira af nýju landi tekiö
til ræktunar heldur en á siðast
liðnum 10 öldum.
Yfrileitt er sennilegt, að fram-
kvæmdirnar verði mestar þar,
sem nægilegt iand liggur vel við
ræktun nálægt kaupstöðum og
sjávarþorpum. Þar er auðveldast
að láta jarðræktina borga sig
fljótt.
Ef rétt er á h.aldið, mun það.
sannast enn sem fyrr, að Akranes
verður ofarlega eða efst 1 röð-
inni. Ef til vill hefir það betri
aðstöðu nú en nokkurn tíma áð-
ur til þess að skara fram úr.\
Pað hefir betri aðstöðu en
nokkurt annað þorp að nota sér
þann markað, sem beztur er hér
á landi. En það er markaður höf-
uðstaðarins. Á Akranesi búa dug-
legir og atorkusamir menn, sem
ávalt hafa sýnt, að þeir vilja og
kuniná að bjarga sér. Og siðast en
ekki sízt: Að Akranesi.liggur meira
af auðræktuðu landi en flestum
eða öllurn öðrum sjávarþorpum
á landi hér. Á síðaste þingi var
stjórninni veitt heimild tiil þess
að selja Akurnesingum þetta land..
Með því er seinasta steininum
rutt úr vegi, og núer sennilegast,
að landnámið hefjist þar að nýju.
En það ríður mikið á, að forsjá
og framsýni fylgi dugniaði og'
framkvæmdaþreki Akurnesinga úr
h'aði, þegar þeir byrja á hinu
nýja landnámi.
Pað þarf að mæla landið upp,
því næst að mæla fyrir framræsiu
og girða það. Svo þarf að iáta
skurðgröfú vinna meginhiutann af
því verki.
Þegar framræzlu er lokið, ligg-
ur fýrir að setja þúfnabana á
landið, og myndi óviða á iandinu
borga síg jafnvel að hota þau
verkfæri eins og einmitt þar.
Alt þetta þurfa Akurnesingar
að gera í félagi, og þegar svo
iangt er komið, er fyrst kominn
tími til að skifta landinu niður
milii þeirra, sem ætla sér að
rækte það. Tryggast fyrir alia
aðila væri, að hreppurinn keypti
alt landið, léti vinna þau undir-
búningsstörf, sem að ofan eru
nefnd,, og leigði svo spildurnar
út á erfðafestu eða á annan að-
gengilegan hátt.
Það mætti iíka fara þá leið, að
þeir, sem ætla að fá þarna land
til ræktunar, myndi með sér sam-
vinnuféiag, og kæmi þá vitanlega
aldrei til niála, að hægt yrði að
braska með landið. Ef félagsmað-
ur flytti burtu, fengi hann sinn
hlut útborgaðan hjá félaginu, sem
gæti'svo annaðhvort leigt eða selt
öðrum manni það land, sem þessi
maður hefði haf,t. Aðalatriðið er
að girða fyrir, að landið geti lent
í fárra manna höndum, og í öðru
Iagi þiarf að tryggja það vand-
lega, að landið verði aldrei dýr-
ara þeim, sem nota það, heidur
en það hefir upprunalega kostað
að viðbættum þeim umbótum,
sem á því hafa verið gerðar.
Það er góður prófsteinn á
proska Akurnesinga, hvernig þeir
undirbúa þetta mái. Er óskandi,
að þeim takist það vel.
Urso.
Sigurður Eggerz
skrifaði greinarstúf undir nafni
í blaðið sitt á laugardaginn var.
Segir hann þar, að Alþýðublaðið
bafi ráðist á sig af alefli fyrir
viðtal við íhaldsblað eitt í Dan-
mörku, „Köbenhavn". Þetta er
hreinasti misskiiningur hjá þjóð-
hetju Islandsbanka. Alþýðublað-
inu finst það einmitt ofur eðii-
legt, að hún láti þetta íhaldssam-
asta blað í Danmörku flytja mál
sitt þar í landi, sama blaðiÖ, sem
Knútur Berlin og fleiri slíkir „ís-
iandsvinir“ láta bera fram sín á-
húgamál.
En sá „frjáislyndi" verður að
virða Alþýðublaðinu það til vork-
unnar, þótt. þVí finnist hánin dá-
lítið broslegur, þegar hann,
öankastjóri Stór-Dana á Islandi,
sem þarf að sýna húsbændunum
í Danmörku reikninga bankans,
sem ber nafn íslands, áður en
hann leggur þá fyrir aðalfund,
og ber danska krossa bæði í bak
og fyrir, er útnefndur af ihalds-
samasta blaði Stór-Dana í Dan-
mörku til að vera útvöröur sjálf-
stæðis íslendinga á Islandi gegn
ásælni Dana.
„Meinleg örlög margan hrjá.“
Iþróttir.
Knattspyrnumót fyrir II. flokk.
Valnr og K. R. gera jafntefli,
1:1 í fyrrakvöld.
Úrslitakappleikur milii Vals og
K. R. fór fram í fyrrakvöld. Val-
ur valdi suðurmarkið og hafðí
þá vindinn með sér; K. R. hóf
ledk, en Valur náði fljótt bolt-
anum og hljóp með hann upp
að marki K. R. og skoraöi mark
hjá þeim á fyrstu tveim minút-
unum. Valsmenn héldu nú bolt-
anum oítast nær á vallarhelm-
ingi K. R. og skutu oft og veli
á markið, en markvörður K. R.
varði markið af dugnaði rniklum.
og leikni og má óefað segja, að
hann sé dugiegasti markvörður,.
er sést hefir hér á annars flokks
mótum. 'f,a:uk svo þessuim hálf-
leik með 1: 0. 1 seinni hálfleik
höfðu K. R. vindinn með sér og
hófu sókn á Val og héldu henni
of/tast þennan hálfleik, skoruðui
mark hjá Vai eftir 12 mínútur
og kvittuðu. Hertu Valsmenn sig
nú og gerðu nokkur upphlaup,
en ekkert dugði, og var nú sótt
og vari&t af beggja hálfu það,
sem eftir var ieiksins, og endaði
hann með jafntefii, 1:1, eftir
Mukkutíma kappleik, en þar sem
þetta var úrslitakappleikur, var
hann framlengdur eftir stutt hlé
í hálfan tíma, 15 mín. á hvort
mark.
Nú hófst leikurinn fyrst fyrir
alvöru og með svo miklu kappi
■'og krafti, að slíkt hefir sjaldan
eða aldrei sést hér fyrri, og gekk
boltinn fram og til baka um völl-
inn með svo mikilli leikni, hraöa.
og fjöri, að varla mátti auga a
festa, en þrátt fyr.ir það gerði
hvorugur mark og endaði þessi
framlengdi leikur með 0 :0.
Eins og á síðasta ári eru þessi
féiög afarjöfn og verða að keppa
oftar en einu sinmi til úrslita,
en það sýnir aftur, hvað félögin
æfa vei þessa flokka, þar sem
þetta kemur fyrir ár eftir ár. Val-
ur virðist hafa sterkari og dug-
iegri mönnurn á áð skipa, en K.
R. menn eru aftur á móti betur
samæfðir og hafa sériega góð-
an samleik að hinum ólöstuðum,
og markvörður K. R. er hreinasta
þing. Eins eru þeir Ingi og Gísli
íMiði K. R. duglegir og efnilegir
knattspyrnumenn. Valur á lika
Geira iitla, seni; var, oftar í net-
inu hjá K. R. en boltinin, því hanm
meðal annars hljóp oft fimlega
á markvörðinn, en ekkert dugði,
því hann, markvörðurinn, ^péri af
sér öll slífc áhlaup. Þá eru þeir
Agnar og Bjössi í Val ekki síður
duglegir og efnilegir knattspyrnu-
mienn.
Valur og K. R. keppa aftur í
kvöid ki. 8V2, og verður þá ekki
síður skemtilegt á að horfa en í
fyrra kvöld. Áhorfendur votru
mað mesta móti og skemtu sér
vel eftir ópunum, og klappinu að
dæma, og er pað áreiðanlegt, að