Vísir


Vísir - 20.12.1928, Qupperneq 6

Vísir - 20.12.1928, Qupperneq 6
Fimtudaginn 20. des. 1928. VISl K er vlnsælast. Þegar hjonavígslan ferst fyrir. Breskur embættismaÖur, sem ár- um saman hafSi framkvæmt borg- aralegar hjónavigslur, hefir ekki alls fyrir löngu geficS út endurminn- ingar sinar, og segir þar, meðal ann- ars, frá allmörgum borgaralegum hjónavígslum, sem farist hafi fyrir á síðustu stundu, eftir að hjónaefn- in voru komin á skrifstofu hans. — Á 17 ára tímabili kom það 26 sinn- um fyrir, að hætt var við hjóna- vígsluna á síðustu stundu. Nefnir hann nokkur kátleg dæmi úr þess- ari „reynslu“ sinni. Svo bar við einn góðan veðurdag, að hjónaefni komu tímanlega og vildu fá vígslu. En þegar brúögum- inn tók ofan hattinn, fylgdi hár- kollan með, svo að skallinn stóð eftir allsnakinn og gljáandi. — Brúðurin tók þessu með mikilli vanstillingu og hrópaði hástöfum: Þú ert þá nauð-sköllóttur! — Því næst tók hún til fótanna og hljóp eins og byssubrend út úr skrifstof- unni og vesalings brúðguminn á eft- ir. — Þau komu aldrei aftur. Öðru sinni var það, að brúðgum- inn hafði gleymt að kaupa hring- ana. Brúðhjónin lögðu því af stað til gullsmiðs þar í nágrenninu, til þess að útvega sér hið „sýnilega tákn“ hjúskaparins. En þegar þang- að kom, sýndist þeim mjög sinn veg hvoru. Hún vildi hafa hringana dýra og vandaða og fanst ekki mik- ið, þó að þeir kostuðu svo sem tvö sterlingspund hvor. Brúðgumanum fanst þetta óþarfi. Honum fanst þau vel mundu geta komist af með nokkuru ódýrari hringa, og lét á sér skilja, að helmingi ódýrari hringar hlyti að vera fúllgóðir. —, Fyrst jöguðust þau út af þessu stundarkorn, en að lokum urðu bæði ösku-vond, brigsluðu hvort öðru um allar vammir og skammir og ; fóru síðan sitt í hvora áttina. Þriðja sagan er einhvern veginn á þessa leið: „Viljið þér gera svo vel og skrifa í bókina, að eg sé ekkja.“ Brúður- in laut yfir borðið og hvíslaði þessu að skrifaranum. „Eg gleymdi að láta þess getið í skjölxmum mín- , utn.“ Hún talaði mjög lágt, en brúð- gumanum heyrðist þó ekki betur, en að eitthvað hefði verið minst á „ekkju“. Hann rauk upp, eins og na'ðra, og sagði svo hátt, að undir tók í salnum: „Nú dámar mér ekki, kelli mín! Þú ert þó vonandi ekki ekkja, ofan á alt annað! — Aldrei hefirðu sagt mér frá því.“ Brúðurin leit til hans og sagði með einstakri hægð: — „Nei, bað hefi eg ekki gert. — Eg hélt nú satt að segja ,að þér mætti standa nokkurn veginn á sama um það “ „Einmitt það! — Svo að það ímyndarðu þér,“ sagði brúðguminn og var ekki sérlega blíður í rödd- inni. — „En nú skal eg segja þér mína skoðun, og hún er sú, að eg vil ekki sjá neinar ekkjur, — lít bara alls ekki við þeim!“ — Að svo mæltu tók hann hatt sinn, hvarf út úr dyrunum og kom aldrei aftur. Einu sinni var það, að brúðgum- inn stamaði dálítið, og hefir senni- lega verið feiminn lika. Hann ætl- aði þvi aldrei að geta játað spurn- ingunum. Að lokum varð brúðurin óþolinmóð og sagði: „Nei, þetta gerir annars hvorki til né frá. Fg vil alls ekki giftast þér, kunningi." Þá var enn einu sinni, að brúð- guminn hafði gleymt að útvega sér svaramann. Og nú var lagt af stað, til þess að leita uppi kunningja einn þar í grendinni og fá hann til að takast vandann á hendur. En svo hlálega vildi þá til, að þessi tilvon- andi svaramaður hafði verið leyni- lega trúlofaður brúðurinni áður. En einhverir dutlungar höfðu hlaupið i hann, svo að hann vildi Heslihnetur Krakmöndlur Parahnetur Valhnetur Konfektrúsínur Konfektdöðlur Konfekt í skrautöskjum, mikið úrval. Best að kaupa til jólanna í Versl Vísír Sími: 555. Leirvasar. Hinir margeftirspurðu leir- Vasar á miðstöðvarofna eru komnir aftur. Símar: 103, 1903. losna ,við stúlkuna, og að lokum brá hann heiti sínu við hana. Stúlk- unni hafði fallið þetta þungt og í raunum sínum hallað sér að „kunn- ingjanum", sem nú var orðinn brúð- gumi. Undir eins og hinir „fyrri elskendur“ sáust aftur, blossaði ástin upp á nýjan leik með miklum krafti. Þau féllust í faðma fyrir allra augum og sóru og sárt við lögðu, að nú ætluðu þau aldrei frarnar að skilja — fyrr en í dauð- anurn. — Og þegar svona var kom- ið, sáu allir viðstaddir, að ekki inundi um annað að gera, en að láta sér þetta lynda. Svo' sem sjá má af þessum fáu dæmum, er leiðin í hjúskaparhöfn- ina hvergi nærri hættulaus, heldur full af allskonar boðum og blind- skerjum. Sælgæti til jólanna er best a3 kaupa hjá J£S ZIMSEN, Til dæmis: Nýja og niðursoðna ávexti. , Hnetur, margskonar. Konfektrúsínur. — Brjóstsykur alls konar. Döðlur og gráfíkjur í pökkum og lausri vigt. Mikið úrval af konfektkössum og átsúkkulaði. Salernahreinsnn fer fram á svæðinu milli Laugavegs og Skólavörðustígs föstudaginn 21. þ. m. í stað laugardags 22. þ. m.; á svæðinu milli Lækjargötu og Framnesvegar laugardaginn 22. þ. in. í stað mánudags 24. þ. m. Hreinsað verður á sömu svæðum 28. og 29. þ. m. Salernin verða að vera opin á hinum tilteknu dögum. Heillirig8isfnlltrúinn. Besta Cigarettan i 20 stk pökknm, sam kostar 1 krónn er Commander, VestmÍBster, Tirginie, cigarettnr Fást i ðllnm verslnnnm. Islensk jólagjöf er væríarvoS úr Álafoss Afgr. Laogaveg 44. FRELSISVINIR. leggnum, en hann hætti þó við það. Augu hans tindruðu ofsalega. Honum hafði komið nýtt ráð í hug. Hann þreif eitt vínglasið. Latimer sneri sér við á sama augabragði, og stóð þá augliti til auglitis við sir Andrew. Latimer stóð kyr augnablik, og þeir störðu hvor á annan. Þá hneigði Latimer sig, og bjóst til að halda áfram. En Sir Andrew stöðvaði hann. „Svo að þér ætlið að yfirgefa okkur, herra minn?“ Rödd hans var róleg og vingjarnleg. Einhver blær á rödd hans varð þó til þess, að Moultrie hrökk við og flýtti sér til vinar síns. „Já, eg er að leggja af stað, sir Andrew.“ „Munduð þér ekki fáanlegir til, að drekka bikar af víni fyrst, landi okkar til heiðurs?" Sir Andrew benti þjónin- um að koma með bakkann til Latimers. „Landi okkar til heiðurs?“ spurði Latimer. Því næst bætti hann við léttur í máli, enda þótt hann væri töluvert áhyggjufullur: „Já, þess er eg albúinn — enda mundi eg drekka hvert það full, sem óskað væri.“ Nú varð þögn örlitla stund. Sir Andrew stóð grafkyr og virti Latimer fyrir sér, var svipur hans háðslegur og fullur af þræsingi. Því næst lyfti hann glasinu hægt og hátíðlega. William lávarður stóð í hinum enda stofunnar og horfði á sir Andrew. Alger þögn og óheillavænleg ríkti í kringum landstjórann. Honum virtist auðsætt, að þetta væri upphafið að ósvífnum leik. Moultrie þreif í skyndi einn bikarinn. Allir aðrir voru þegar búnir að taka sér bikar í hönd, og biðu nú hálfvandræðalegir, — biðu þess, að fullið yrði drukkið. „Konur og menn!“ sagði sir Andrew og var hátíðabrag- ur á röddinni. „Eg drekk full konungsins. Guð verndi kon- unginn!“ Uppreisnarmenn jafnt og konungsliðar tóku undir og mæltu: „Lifi konungurinn!“ Meðan þessu fór fram, sagði • Moultrie skipandi rómi við Latimer: „Drektu í botn!“ La- timer hefði að sjálfsögðu tæmt bikar sinn, enda þótt Moultrie hefði ekkert sagt — hann hefði ekki hirt um að sýna uppreisnarhug sinn á þann hátt, að láta íullið ódrukk- ið. Hann var búinn að reyna nóg þetta kvöld og óskaði ekki eftir nýjum vandræðum. Hann hikaði að eins augna- blik og hugleiddi í skyndi, hver vera mundi ætlan Sir Andrews. Því næst hóf hann bikarinn á loft eins og aðr- ir. Hann mælti: „Konungurinn lifi“ og dralck í botn. Sir Andrew stóð með bikarinn hálftæmdan og virti Latimer fyrir sér, kuldalega. „Gátuð þér með góðri samvisku drukkið þetta full, hr. Latimer ?“ Latimer brosti, enda þótt hann sæi í hendi sér, að hætta var á ferðum. „Vissulega," svaraði hann léttur i máli. „Eg vona að guð verndi konunginn að öllu leyti, því að hann þarfnast áreið- anlega verndar og hjálpar." „Gegn fjandmönnum sínum?“ „Nei, herra minn, gegn vinum sínum!“ Þetta var nægilegt. — Svarið var Sir Andrew einkar kærkomið. „Herra minn!“ sagði hann. „Þetta er svívirðilegt — þann veg mæla landráðamenn einir.“ Og í sömu svifum skvetti hann vínleifunum úr glasi sinu beint í andlitið á Latimer. „Sir Andrew!“ hrópaði William lávarður. Hann rudd- ist i gegnurn mannþröngina og nam staðar á rnilli þeirra. Rödd hans var gremjuþrungin og ásakandi. Mátti glögglega sjá að allir viðstaddir voru gramir Sir Andrew og víttu tiltæki hans þunglega. Nokkurir af karlmönnunum voru svo hugulsamir, að koma konunum fram í danssalinn. Lafði William ein varð eftir og með henni ungfrú Ra- venell. Moultrie lagði höndina á öxl Latimers, til þess að sefa hann og mýkja. Hann ætlaði að koma í veg fyrir, hvað sem það kostaði, að Latimer lenti í nýjum deilum. En það> var ekki nauðsynlegt. Latimer var fölur sem nár og titraði af reiði, en þrátt fyrir það hafði hann fulla stjórn á sjálfum sér. Hann tók lítinn klút upp

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.