Vísir - 23.06.1930, Page 2
VIS IB
Alþingismenn
verða fluttir til Þingvalla á miðvikudagskveld kl. 9 frá
Hótel Borg, og verða að koma þangað þeim töskum,
sem þeir geta tekið með sér í bílinn. Ef um meiri far-
angur er að ræða en litlar töskur, verða þingmenn að
hafa komið þeim farangri til flutnings með vörubíl í
Liverpoolsport fyrir kl. 6 síðdegis á morgun (þriðju-
dag), og merkja Iiann fullu nafni sínu.
SKRIFSTOFA ALÞINGIS.
Kappróduriim
Formenn bátanna, sem ætla sér að taka þátt í kapp-
róðrinum milli togaranna á morgun, geri svo vel og
komi til viðtals á skrifstofu Slysavarnafélags íslands,
Austurstræti 17, í kveld kl. 7 e. h.
Þeir, sem aldrei hafa fariö út
fyrir landsteinana, eiga ef til vill
erfitt meö aö skilja til fullrar hlit-
ar, hve ættjarðarþráin getur veri'ð
öílug. En allir þeir, sem dvalist
hafa langvistum fjarri ættlandi
sínu, munu gerla skilja þá heirn-
komnu syni og dætur, sem vikna
af gleði yfir því að hafa aftur litið
ísland, landið, sem þeir yfirgáfu
eí til vill á barnsaldri, en gátu ekki
gleymt, og þráðu að sjá aftur áð-
ur en þessu lífi lyki. Þó munu
menn alment hafa gert sér ljóst,
nú orðið, að þótt lífið hafi búið
íslendingum austan hafs og vestan
ólík örlög, þá eiga þeir eitt sam-
eiginlegt, sem er meginþáttur í lífi
þeirra, en það er meðvitundin ura,
að þeir eru íslendingar. Um það
skal eigi fjölyrt, en svo virðist,
sem það verði æ fleiri Islending-
um beggja rnegin hafsins metnað-
armál, að sýna það í verki, að þeir
sé góðir íslendingar.
Sú var tíðin, og sú tíð er ekki
langt að baki, er kalt andaði til
Vestur-íslendinga frá heimaþjóð-
inni. Aukin mentun, víðsýni og
kynni hafa eytt misskilningnum að
mestu. Og fátt glæðir fegurri von-
ir, fátt er meira gleðiefni en það,
með hversu góðum hug Vestur-
íslendingar koma heim og með
hvaða hug hér er á móti þeim
tekið.
Það kom eigi hvað óskýrast í
ljós á Vestur-íslendingadeginum
aö Álafossi i gær. I ræðum þeim,
sem þar voru fluttar, kom það svo
skýrt í ljós, að „munurinn raunar
enginn ,er“. íslenskir menn verða
aldrei annað en íslendingar, hvað
svo sem þeir kalla sig og hvernig
sem þeir breytast á yfirborðinu, i
dægurstritinu og erlinum fyrir
vestan haf. Stephan G. Stephans-
son sá þetta með sínum. glöggu
skáldaugum:
„Þótt þú langförull legðir
sérhvert land undir fót,
bera hugur og hjarta
samt þins heimalands mót.“
— Skilyrðin eru þvi fyrir hendi
einmitt nú, er minningarnar og
vonirnar lyfta hugum 'manna hátt
yfir alt ])að, sem er smátt, til þess
að hrinda af stað öflugri, skipu-
lagsbundinni samvinnu milli ís-
lendinga vestan hafs og austan —
fyrir ísland, landið, sem er og
verður alt okkar líf, landið, sem
enn er að miklu leyti ónumið
eftir þúsund ár og á alla framtið
sína undir óeigingjörnu starfi allra
sona sinna og dætra.
Vísir
er sex síður í dag. Erlendar sím-
l'regnir, framhald bæjarfrétta o. fl.
er í aukablaðinu.
Silfurbrúðkaup.
í dag er silfurbrúðkaupsdagur
frú Halldóru Björnsdóttur og Jóns
Jónssonar bæjarfulltrúa, Firði í
Seyðisfirði.
Silfurbrúðkaup.
A morgun er silfurbrúðkaups-
dagur hjónanna frú Vilborgar
Bjarnadóttur og Guðmundar
Gestssonar, dyravarðar í Menta-
skólanum.
Ríkarður Jónsson
listamaður hefir gefið út i sér-
stakri bók m.yndir af listaverkum
sínum. Bókin er hin skrautlegasta
og mjög eiguleg. Hún er prentuð
i Félagsprentsmiðjunni.
Hátíðargestirnir
streyma nú sem örast í bæinn.
Á Gullfossi að norðan komu 350
farþegar, á Brúarfossi í morgun,
sem kom frá útlöndum og Aust-
fjörðum, voru 150 farþegar og á
Lagarfossi, sem kom í dag, einnig
frá Austfjörðum og útlöndum,
voru 30—40 farþegar. Goðafoss er
væntanlegur i kveld frá Vestfjörð-
um með a. m. k. 200—300 íarþega.
Gullfoss er farinn i aðra ferð að
sækja farþega til ísafjarðar og
mun flytja hingað a. m. k. 170 far-
þega.
Vegna fjölmennis
í bænum er orðið svo rnikið
að gera á bæjarmiðstöðinni, að til
mestu vandræða horfir, nema al-
menningur reyni á allan hátt að
létta undir með símastarfsfólkinu.
Það er áríðandi, að menn hafi tal-
simaviðtöl eins stutt og auðið er
og hringi alls ekki upp að óþörfu,
aðallega kl. 9—12 árdegis, því þá
er mest að gera. Þrátt fyrir alla
aðstoð, sem hægt er að veita síma-
stúlkunumi, var svo mikið að gera
i morgun, að til alvarlegra vand-
ræða horfði. Stafa þessir erfið-
leikar af því, hve stöðin er lítil;
þar er ekki hægt að afgreiða örar
en gert er, og tilgangslaust og að-
eins til aukinna tafa, að hreyta ó-
notum i starfsfólkið. Er þess
vænst, að menn taki framangreind-
ar bendingar til greina. Mun það
létta alla afgreiðslu, svo ástæður
verði ekki til umkvörtunar.
Þeir Vestur-íslendingar,
sem búa úti í bæ og vilja fá
tjöld á Þingvöllum, geta snúið sér
til Ingólís H. Gíslasonar á nýja
Elliheimilinu. Geta þeir, sem panta
Vestur-íslenska söngmærin
syngur í Nýja Bíó þriðju-
daginn 24. þ. m. kl. 7þ4 e. h.
Við hl jóðfærið:
EMIL THORODDSEN.
Aðgöngumiðar á kr. 2,00,
2,50 og 3,50 (stúka) fást i
Bókaverslun Sigf. Ey-
mundssonar og' hjá frú K.
Viðar.
tjöld, fengið farmiða með seinustu
ferð á miðvikudag og fyrstu ferð
á fimtudag.
Suffren,
franskt herskip, kom í morg-
un með frakkneskn fulltrúana á
Alþingishátíðina.
Guðmundur Kristjánsson
óperusöngvari syngur í Gamla
Bíó. i kveld kl. 7J4. Verði eitthvað
óselt af aðgöngumiðum kl. 7, fást
þeir við innganginn.
Alþingismönnum
er bent á tilkynningu hér í blað-
inu í dag. frá skrifstofu Alþingis,
um ferð þeirra til Þingválla.
Rigmor Hansson.
Danssýning hennar veröur kl. 6
a morgun í Ganda Bíó. Sjá augl.
Lagarfoss
kom í dag frá Austfjörðum- og
útíöndum.
Að Álafossi.
Hinn alkunni áhugamaður, Sig-
urjón Pétursson, efndi til mikillar
samkomu á Álafossi í gær, til þess
að fagna Vestur-íslendingum. Fór
þangað fjöldi manna, m. a. voru
þar staddir fulltrúar Bandaríkj-
anna á Aíþingishátíðinni. Veður
var allgott, en sólar naut lítið um
dáginn. Aðalsamkoman fór fram
fyrir framan útileikhús það, sem
Sigurjón hefir komið upp á Ála-
fossi. Grasbekkir hafa verið gerð-
ir í hliöinni gegnt leikhúsinu, og
getur fjöldi manna setiö þar. Þeg-
ar hr. Sigurjón Pétursson hafði
seít hátíðina og boðið gestina vel-
komna, var sunginn sálmurinn
„Hve dýrðlegur er drottinn“, en
á eftir prédikun, sem sira Friðrik
Fíallgrímsson flutti, sálmurinn
„Guð minn, þér eg þakkir segi“.
Þvi næst flutti hr. bókavörður
Árni Pálsson snjalla ræðu fyrir
minni Vestur-ísíendinga, en að
ræðu hans lokinni var sungið
kvæði eftir Sig. B. Gröndal. Ræð-
ur fluttu einnig dr. B. J. Brand-
son, fulltrúi Canada á Alþingishá-
tiðinni, og síra Jónas Á. Sigurðs-
son, einn af kunnustu mælsku-
mönnum Vestur-íslendinga. Þessi
kvæði voru sungin fyrir og á eft-
ir ræðunum: „Þótt þú, langförull
legðir“, Ðrottinn, sem veittir frægð
og heill til foriia“, „Vilhj. Stef-
ánsson norðurfari", eftir Jakob
Thorarensen, „Lýst’ sól“, og „Lof-
söngur“ Matthíasar. Karlakór
Reykjavikur annaðist sönginn og
lofuðu menn hann mjög.
Að ræðuhöldunum loknum var
gengið að sundlaug og sýnd ýmis-
konar sund. Þótti mönnumi það
góð skemtun, ekki hvað síst dýf-
ingarnar og sundknattleikurinn.
.T.oks fór fram leikfimissýning
(Akureyrarstúlkurnar) og voru
menn mjög hrifnir af list þeirra,
minningarathöfn um fyrstu ís-
lensku ráðherrana vestan hafs og
austan, skrautsýningar o. fl. Tíð-
Ferdafémar,
IPlöti&s?.
Mesta úrval landsins.
HLJÓfiFÆRAHDSlB
R.M.S. „BRITANNIA”
is leaving Reykjavik for Glasgow on 5th July. A few'
passengers can be booked. — Fare inclusive of food
£10.00.0. Excellent accommodation. Early reservations
should be made. Please apply to:
Geir 0. Zoéga
Agent for:
Cunard Steam Sliip Company Limited and Anchor Line.
iudamaður Vísis gat því miður
ekki verið viðstaddur er seinustu
atriði skemtiskrárinnar fóru fram.
Dagurinn var hinn ánægjuleg-
asti.
Gs. Island
kom til Kaupmannahafnar kl. 7
í morgun.
Lyra
kom í morgun frá útlöndum með
liðlega 70 farþega.
Ms. Dronning Alexandrine
kom í gær frá útlöndum með
hátt á annað hundrað farþega.
Botnia
kom í gær frá Englandi með
liðlega 100 farþega.
Sýning óháðra listamanna
veröur opnuð almenningi á mið-
vikudag.
Spegillinn
kemur út á morgun, 32 bls„ á 14
tungumálum.
Áhelt á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá N. C.
Góðnr gestur.
—o—
Með ,Brúarfoss‘ kom i morg-
un síra Jón Sveinsson
liingað til landsins. — Flestir
íslendingar munu kannast við
„Nonna litla“ og minnast hans
með virðingu.
1870 fór Jón Sveinsson af
landi burt, og lá leið hans fyrst
lil Danmerkur, en þaðan til
Frakklands. Þar og í Belgíu
stundaði liann nám, og gekk í
„Jesúítaregluna“ og er hann
hafði hlotið nægan undirbún-
ing, tók hann prestsvígslu. Litlu
síðar varð liann um stund kenn-
ari í Danmörku, og fór að gefa
sig við ritstörfum, þó að hann,
sökum annríkis, yrði að liafa
og Tjaldborgina á Þingvöllum
með íslenskum fánum.
Aílar stærðir af íslenskum flöggum fyrirliggj-
andi. Þar á meðal: Fánar á stöngum, sérlega
þægilegir til að flagga með út um glugga og t,jald-
mæni. Einnig lítil flögg á stöngum fyrir börn.
Ennfremur nýkomnar fánastengur með falleg-
um stöpli úr bronse. A fótstallinum er Alþingis-
liátíðarmerkið og ártölin 930—1930 — er það
gert eftir fyrirmynd Guðnnindar Einarssonar
frá Miðdal.