Vísir - 25.06.1930, Blaðsíða 5

Vísir - 25.06.1930, Blaðsíða 5
VÍSIR 5 vík, svo sem kunnugt er. Hefir vald biskups og vegur biskupsdæmis jafnan fremur farið minkandi. 5. Hreppstjórnin er með sama liorfi sem áður var til 1834. Þá (8. jan.) kom út ný reglugerð um fátækraframfærslu, sem af tók flakk þurfalinga um hreppana og eru nú lireppstjórar ákveðnir einn eða tveir i hverjum lireppi. Við þetta situr, þar til tilsk. 2. maí 1872 um sveitarstjórn, og voru þá hreppsnefndir fyrst kosnar. 6. Alþingi. Á skipun Alþingis, þeirri, sem í Jónsbók segir og lýst var áður, varð engin breyting fyrstu 60 ár einveldisins. En eftir 1720 lcomst meðferð dómsmála eftir norskum lögum á og dæmdu þá lögmenn ein- ir í lögréttu, sem nú er oft nefnd lögþingisréttur. Lögréttumenn urðu ekki annað en réttarvottar. Því varð nú enn minni nauðsyn á því, að þeir sækti allir þingið en áður. Og varð nú líka nægilegt, að 8 lögréttumenn væri í lögréttu, meðan dómstörf fóru þar fram. Og er nú farið að kveðja átta lög- réttumenn til setu í lögréttu úr livoru lögdæmi, og eru þó stundum færri látnir duga. 1764 var fækk- að í lögréttu úr 16 í 8, enda slcyldi nú aðeins nefna 20 lögréttumenn í Árness-, Gullbringu og Kjósar- sýslum, og þar af áttu 10 að koma til þings annað hvert ár til skiftis. 1777 var enu fækkað, þannig að nú þurftu 5 einir Iögréttumenn að skipa lögrétt- , una og loks urðu þeir 4 1796. Samþyktarvald Al- þingis i málum löggj al'areðlis Iivarf ekki alveg úr sögunni fyrr en um 1700, þrátt fyrir einveldið. En eftir það fara aðallega dómsstörf og ýmiskonar birtingar, svo sem tilskipana o. s. frv., fram í lög- réttu. Sýslumenn gerðu þar og enn reikningsskil,þar voru boðnar upp umboðsjarðir, sem áður, þaY voru jarðir og stundum boðnar upp til sölu eða jafnvel leigu, og ýms skjöl einstakra manna voru þar birt, svo sem káupbréf og veðbréf, o. s. frv. Yfirréttur- inn sat enn á Þingvelli. Varð amtmaður, og eftirl770 stiftamtmaður, venjulega forseti bans. 1735 var heimilað að fækka meðdómendum niður í 12, og 1777 urðu þeir 6. Og stóð svo til 1800. Prestastefna Skálholtsbiskupsdæmis var og lialdin á Þingvelli, meðan Alþingi stóð. Og 1738 var stofnaður þar gestaréttur, sem sýslumaðurinn í Árnessýslu átti einn að skipa. Þessi réttur átti að dæma mál, er kæini upp út af móðgunum, er menn yrði fyrir þar á þingstaðnum. Þing liófst til 1700 á Pétursmessu og Páls, eins og fyrrum. En vegna almanaksbreytingarinnar það ár var þingbyrjun nú sett á Seljumannamessu, 8. ' júlí, og stóð svo til 1754, er ákveðið var, að þing skyldi hefjast 3. júlí. 1784 var þingupphaf aftur fært til 8. júlí og stóð svo siðan. Til 1690 liafði lög- réttan verið með gamla laginu, undir beru lofti og innan vébanda. Þá var bygt lögréttuhús, sem stóð síðan að nafni til. En lengst um var þvi báglega við lialdið, og 1798 er það loks orðið svo lirörlegt, að Magnús lögmaður Stephensen flýr úr því fyrir þinglok, og var það síðan eigi notað til þinghalds. Tvö síðustu árin, 1799 og 1800, var lög'þingisréttur 9 (lögrétta), yfirréttur og prestastefna Skálholts- biskupsdæmis, haldinn í Reykjavík. Með konungs- úrskurði 6. júní 1800 var Alþingi loks lagt niður. Dómstigum var fækkað úr 4 í 3. Dómsvald sýslu- * manna hélst, sem áður, en í stað lögréttu og yfir- réttar kom „Ilinn konunglegi íslenski landsyfir- réttur“, sem skipaður var 3 föstum dómendum og sat alt árið. Loks var liæstiréttur i Kaupmanna- höfn æðsti dómstóll í íslenskum málum, og hafði verið það síðan á siðara hluta 17. aldar. Alþingi var vitanlega ekki orðið nema skuggi af því, sem það var fyrrum. Þar fór ekki annað fram á 18. öld en dómstörf, þinglýsingar og reikninga- gerðir gjaldheimtumanna. Og það varð æ og æ fá- sóttara. Það mætti þvi ælla, að almenningi hefði ekki verið mikil eftirsjón í þinginu. En þó kennir nokkuð salcnaðar eftir þingið meðal almennings. Við Þingvöll voru bundnar allmargar endurminn- ingar úr lífi þjóðarinnar, sumar bjartar og glæsi- legar, og þær liafa lengst lifað í hugum manna. Aftur voru aðrar óbjartari. Á Þingvelli höfðu lands- menn stofnað lýðríki sitt í fornöld og sett mörg viturleg lög. Þar höfðu þeir tekið kristna trú og þar höfðu þeir lengi vel varist yfirráðum erlends konungs. En þar höfðu þeir líka. látið undan til- raunum þess sama konungs og glatað frelsi lands- ins. Á Þingvelli hafa þeir verið kúgaðir til að kasta trú sinni á siðaskiftatímunum. Þar hyltu þeir kon- unga löngum og þar áttu landsmenn að gangast undir einveldið 1662. Á Þingvelli urðu einatt róst- ur til forna og stundum hlóðugir bardagar. Þar var réttur lítilmagnans oft einskis virði. Þar gætti á síðari öldum Bessastaðavaldsins einna mest. Fáir þorðu þar að sitja eða standa öðruvísi en æðsti um- boðsmaður konungsvaldsins vildi. Það er oft svo sem vilji hans væri mönnum lög. Dómaskipun landsins var mjög óhentug orðin. Dómstigin voru 4, og olli það miþlum drætti á málum. Lögþingis- réttur og yfirréttur voru háðir einu sinni á ári, og var sú skipun auðvitað mjög óbentug. Það var því ehgin furða, þótt hagsýnn maður og nýjungagjarn, eins og Magnús Steplíensen var, legði til breyting- ar á þessu skipulagi. Átli hann allra manna mest- an þátt í því, að Alþingi var lagt niður, og sætti víst ámælum ýmsra manna síðar fyrir það. En þeir, sem nú líta ólilutdrægt og rólega á málið, munu sennilega telja Magnús og þá, sem honum fylgdu, hafa rétt séð, er þeir lögðu til, að Alþingi yrði niður lagt og landsyfirréttur settur í staðinn. Alþingi hið ngja. Niðurlagning Alþingis hafði vitanlega ekki í för með sér neina verulega breytingu á höguni lands eða stjórn. Landsyfirréttur dæmdi mál þau, er til lians komu, og sýslumenn fóru með gjaldheiintuna sem áður, með eftirliti amtmanna. Yfirstjórn lands- ins var sem fyrr i Kaupmannahöfn, raunverulega í Kancellíi og' Rentukammeri. Þessar skrifstofur voru afar seinar til afgreiðslu mála, þekkingin lítil á íslands málum og áliugi og framtakssemi af mjög skornum skamti, sem vænta mátti. En slíku voru landsmenn vanir, og' liafa líklega talið það sjálfsagt, að liinir háu herrar í stjórnarskrifstofum þessum legðist á málin, eins og þeim lílcaði. Enda var landinu svo að segja ekkert gert til gagns af bálfu stjórnarinnar á þessu 45 ára milliþinga-tíma- bili, nema ef kalía mætti flutning latínuskólans frá Bessastöðum til Reykjavikur, og má þó sú ráðstöf- un orka tvímælis. Árið 1831 gaf Friðrik 6. fyrirbeit um stofnun ráð- gjafarþinga í Danmörku, og' árið 1834 var skipun þeirra ákveðin til þrautar. Skyldu þau 4 vera, eitt í Hróarskeldu, og áttu þangað að sækja Eydanir, aniiað i Vébjörgum, og skyldi Norður-Jótar heyja það, þriðja skyldi vera í Suður-Jótlandi og hið fjórða í Holtsetalandi. Áttu þing þessi að hafa ráð- gjafaratkvæði um lagafrumvörp ýmiskonar efnis. íslandi var ætluð hluttaka i Hróarskelduþingi. Kjöri konungur þangað tvo l'ulltrúa fyrir ísland, því að aldrei varð neitt úr því, að lög yrði setl um kosn- ingar fulltrúa frá Islandi á Hróarskelduþing, enda þótt viðleitni nokkur væri höfð i þá átt af hendi stjórnarinnar. íslendingum var það Ijóst, flestum, ef ekki öllum, að landinu mundi lítt nýtast af dönsku ráðgj afarþingi, þar sæti fulltrúar ókunn- ugir tungu og högum íslendinga. Baldvin Einars- son ritaði fyrstur manna um nauðsyn á því, að Is- land fengi sérstakt ráðgjafarþing. 1837 gengust ýmsir góðir menn fyrir því, að samdar voru bæn- arskrár og undirritaðar af mörgum mönnum til konungs um sérstakt, íslenskt ráðgjafarþing. Með- an Friðrik 6. var á lifi, var ekki við það komandi. I stað þess var ákveðið, að stiftamtmaður og æðstu embættismenn landsins skyldi koma saman annað livert ár til að segja álit sitt um þau málefni, er konungur vildi fyrir þá leggja. Nefnd þessara em- bættismanna liélt tvisvar fund, 1839 og 1841. Frið- rik 6. andaðist 3. des. 1839, en konungdóm tók Kristján 8., gáfaður maður í samanburði við aðra Aldinborgarkonunga og frjálslyndur, miðað við þeirrar tíðar þjóðhöfðingja. Með úrskurði 20. mai 1840 bauð hann embættismannanefndinni að íhuga það, hvort eigi mundi íslandi heppilegt, að liér yrði sett sérstakt ráðgjafarþing og hvort það skyldi ekki heita Alþingi, vera liáð á Þingvelli og vera sem mest sniðið eftir hinu forna þingi. Nefndin lagði til, að ísland fengi sérstakt ráðgjafarþing, er lieita skyldi Alþingi. Meiri hluti nefndarinnar vildi liafa þingið í Reykjavík, en minni hlutinn á Þingvelli. Slóðu miklar deilur um skipulag þingsins og þing- staðinn. Iiinir frjálslyndari íslendingar kröfðust rýmri skilyrða kjörgengis og kosningarréttar til þingsins en embættismannanefndin bafði lagt til. Menn vildu láta heyja þingið í heyranda hljóði og að alt færi þar fram á íslensku. Þessar lcröfur fengu ekki álieyrn í fyrstu. Með tilskipun 8. mars 1843 voru loks sett fyrirmælin um hið fyrirliugaða ráðgjafarþing á Islandi, og' kom það í fyrsta skifti saman 1. júlí 1845. Alþingi skyldi heyja annað hvert ár. Það var liáð fyrir luktum dyrum 1845 og 1847, en síðan í heyranda hljóði. Konungsfulltrúi mátti mæla á dönsku, en þá skyldi þýða á íslensku ræður hans jafnharðan. 1849 varð Páll Melsted amtmaður kon- ungsfulltrúi, og síðan kom ekki til þess, að kon- ungsfulltrúi mælti á dönsku. Þingið starfaði í einni málstofu. Var það skipað 20 þjóðkjörnum þingmönnum (síðar 21) og 6 kon- ungkjörnum. Var liver sýsla og Reykjavik kjördæmi sér og lcaus einn fulltrúa til 6 ára. Skilyrði kjörgengis og kosningarréttar voru mjög þröng. Kosningarrétt höfðu upphaflega þeir einir, sem áttu 10 hundruð í jörð að minsta kosti eða timburliús eða steinhús í einhverjum verslunar- staðanna, sem þá voru 27 alls, er næmi 1000 ríkis- dala virðh eða hefði lífstíðarábúð á einliverri þjóð- jörð eða kirkjujörð, er væri að minsta kosti 20 luindruð að dijrleika. Auðvitað var það ennfrem- ur kosningarréttarskilyrði, að aðili hefði óflekkað mannorð, væri 25 ára gamall og hefði forræði á fé sínu. Kjörgengisskilyrðin voru hin sömu, að því við- bættu, að þingmannsefni skyldi að eins vera kjör- gengur í því amti, sem fasteign hans var í, vera þegn Danakonungs, kristinnar trúar, 30 ára að aldri og hafa að minsta kosti verið 5 ár búsettur í löndum Danakonungs í Norðurálfu. Margir voru harla óánægðir með þessi ákvæði. Fékst þeim loks breytt 6. jan. 1857. Nú var skilyrð- ið um eignarrétt eða ábúðarrétt að fasteign felt niður. Kosningarrétt fengu nú allir bændur, sem höfðu grasnyt og greiddu eitthvað til allra stétta (sveitar, ríkis, kirkju og prests), embættismenn og menn með lærdómsprófi frá háskóla eða presta- skóla, kaupstaðaborgarar, sem liöfðu tekið sér ból- festu í einhverjum'verslunarstaðnum til að versla þar eða reka iðn, og loks þurrabúðarmenn, ef þeir guldu 6 rílcisdali til sveitar sinnar. 25 ára aldur, óflekkað mannorð og krafan um fjárforræði héld- ust óbreytt. En við var bætt þeim skilyrðum, að kjósandi hefði verið búsettur eitt ár í kjördæmi og stæði ekki í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk. Hinir sömu, er kosningarrétt höfðu eftir tilsk. 6. jan. 1857, urðu nú yfirleitt kjörgengir. Búseta í kjördæmi var þó ekki skilyrði. 30 ára aldursskil- yrðið, 5 ára búsetan í löndum Danakonungs í Evrópu og þegnskylda við liann héldust óbreytt. Konur liöfðu hvorki kjöi'gengi né kosningarréit. Stóðu fyrirmælin í tilsk. 6. jan. 1857 óbreytt, þar til reglur um kjörgengi og kosningarrétt komu i gildi síðan í stjórnarskrá 5. jan. 1874. Á ráðgjafarþingunum sátu margir þjóðkunnir menn, svo sein Jón Sigurðsson forseti, Þórður Sveinbjörnsson yfirdómsforseti, Pétur biskup, Jón Guðmundsson ritstjóri, Hannes Stepliensen og Halldór Jónsson prófastar, Arnljótur Ólafsson, Benedikt Sveinsson o. fl. Þingið liafði til meðferð- ar á þessu tímabili öll þjóðmál, sem þá voru á dagskrá, svo sem verslunarmálið, skólamál, fjár- mál Islands og Danmerkur, fjárkláðamálið o. s. frv. En það málið, sem lengst verður þó getið þing- mála frá þessu timabili, er sambandsmál íslands og Danmerkur. 5. jan. 1849 fékk Danmörk sín grund- vallarlög. Konungur hafði lofað því 23. sept. 1848, að grundvallarákvæði þau, sem setja þyrfti vegna sérstöðu íslands til þess að koma skipun á stjórn- fkipunarstöðu þessa „landshluta í ríkinu", skyldi eigi sett f jrrr en leitað væri tillagna íslendinga á sérstök- um fundi þeirra á íslandi. Yar þvi efnt til þjóðfund- arins 1851. Þar lagði stjórnin fram frumvarp um samband landanna, og skyldi grundvallarlög Dan- merkur samkvæmt því gilda á íslandi, og ísland átti þvi alveg að innlima í Danmörku. Yfirgnæf- andi meiri liluti þjóðfundarinanna var algerlega andhverfur frumvarpi þessu og samdi alveg sjálf- stætt frumvarp. En lconungsfulltrúi sleit þá þjóð- fundinum alveg fyrirvaralaust, þegar fundarmenn ætluðu að taka frumvarp sitt til umræðu. Konung- ur liét því nú að vísu 2. maí 1852, að gera ekki fullnaðarákvarðanir um málið, fyrr en Alþingi fengi það til meðferðar, en niðri lá málið þangað til 1867. Var enn sem fyrr, að stjórninni fanst sér ekki liggja á, þegar Island átti hlut að máli. Frum- varpið, sem lagt var fyrir þingið 1867, var að ýmsu leyti frjálslegt, en þó dró ekki saman. Meiri hluti þings, með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar, gat ekki fallist á frumvarpið. 1869 lagði stjórnin málið enn fyrir þingið, og var frumvarp hennar nú lak- ara en frumvarpið 1867, enda varð tilraunin 1869 árangurslaus. Setti nú ríkisþing Dana og konungur stöðulögin svonefndu frá 2. jan. 1871, sem Alþingi mótmælti saina ár. Samkvæmt stöðulögunum fékk landið löggjöf og stjórn að nafni til í innanlands- málum sínum. Ennþá vantaði fyrirmæli um það, livernig þeirri löggjöf og stjórn skyldi fyrir komið. Hafði Alþingi 1873 beðið konung til vara að gefa landinu stjórnarskrá árið eftir á 1000 ára bygg- ingarhátíð þess, og þá var stjórnarslcrá 5. jan. 1874 sett. Kom Kristján konungur 9. þá til Islands, sem kunnugt er, og kom stjórnarskráin til framkvæmd- ar 2. ág. 1874. Fyrri liluti einveldistímans er einhver myrkasti tíminn i allri sögu landsins. Þá stóðu galdramál og galdrabrennur sem hæst. Einokunarverslunin liafði þá, um 1700, nær því alveg drepið landsmenn. Hallæri var þá og oft í landi. Höfðingjar lands- ins lágu um og einkum eftir 1700 í hinum mestu illdeilum. Valdabarátta og flokkadráttur stóð því í vegi, að bestu menn landsins mætti njóta sín. Þá gekk og stórabóla (1707) og lirundi niður þriðj- ungur landsmanna, að því er menn telja. Og þótt slakað væri á allrarömmustu einokunarákvæðun- um, stóð það verslunarástand enn lengi, og í raun- inni var engin viðreisnarvon, meðan það skipulag stóð. Viðreisnartilraunir 18. aldar urðu því gagns- litlar. Stofnun landlæknisembættis 1760 og lyfja- búðar og sá vísir, sem kom upp til læknaskipunar, má þó teljast til bóta. En yfir liöfuð má segja, að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.