Vísir - 25.06.1930, Blaðsíða 18

Vísir - 25.06.1930, Blaðsíða 18
18 VISIR Vélaverkstæði. — Járnsteypa. Ketilsmiðja. Tryggvagötu 54, 45, 43. Reykjavík. Útbú HafnarfLrði. Framkvæmdarstjóri: 0. MALMBERG. Sftnar: 50, 189, 1189, 1289, 1940, 1789. Símnefni: Hamar. Tekur að sér allskonar aðgerðir á skipum, gufuvélum og mótor- um. — Framkvæmir allskonar rafmagnssuðu og logsuðu, befir einnig loftverkfæri. Steypir alla bluti úr járni og kopar. — Rigið modelverkstæði. Miklar vöru- birgðir fyrirliggjandi. — Vönduð vinna og fljótt af bendi leyst, framkvæmd af fagmðimum. — Sanngjarnt verð. — Hefir fyrsta flokks kafara með góðum útbúu' aði. — Býr til minni gufukatla, mótorspil, snurpinótaspil, rek- netaspil og „Takelgoss“. íslenskt fyrirtæki. Styðjid innlendan iðnað. Islensk vikivakalðg og önnur íslensk þjóðlög, lirval. Safnað hefir, raddsett og búið tilprentunar síra Bjarni Þorsteins- son á Siglufirði. — Allir þjóðræknir íslendingar, vestan hafs og austan, verða sjálfra sín vegna að kaupa þetta fróðlega hefti. — Fæst hjá bóksölum um land alt, og í músikverslunum. O0< PÓSTHÚSSTRÆTI 2. REYKJAVÍK. Símar: 542, 309 og 254 (þrjár línur). Pósthólf 718. Símnefni: ,,Insurance“. Allskoixai* sjó— og bninatrygginga]*. * (Hús, innbú, vörur o. fl.). Alísleiiskt Sjó- og bruna-vátryggingarfélag. Hvergi hetri og áreiðanlegri viðskifti. -O- En þá eða nokkru seinna er hrent silfur, þ. e. skirt silfur, tvöfalt dýrara en bleika silfrið, og er þá hlutfallið 1: 8. Um 1100 er verðhlutfallið milli silfurs og vaðmáls orðið 8:60 = 1:7%. Síðan virðist silfurverðið enn fara lækkandi, því að eftir Jónsbók (1281) jafngildir silf- ureyrir 6 aurum vaðmála, og verðhlutfallið er því 1:6. Þetta lilutfall hélst í sektagreiðslum. í viðskiftum manna á meðal varð hlutfallið síðar 1:5. Þurfti þá eyri (= 2 lóð silfurs) fyrir 30 álnir vaðmála í innanlands viðskiftum. I viðskiftum einok- unarkaupmanna varð hlutfall- ið annað, því að 1619 eiga þeir að selja — því að silfurmynt var skoðuð vara — spesíuna, sem er eyrir silfurs, á 22% nl- in, svo að hlutfallið er 6:22% = 1:3% og síðar 1:4. Gullið og vaðmálið var sem 60:1. Fyrir eyri (= 2 lóð) gulls þurfti því 360 álnir vaðmála, eða 3 kúgildi. En gullmyntir gengu hér ekki, og gull hefir sennilega lítt gengið hér manna á meðal fyrr en á seiuni hluta 19. aldar. Það liefir aðallega sést i skrautgripum. III. Viðskiftin við önnur lönd. 1. Almennar alhugasemdir. Viðskifti eins lands við önn- ur lönd hljóta mjög að fara eftir því, livaða vörur landið þarf að kaupa og hvaða vörur það hefir afgangs þörfum sin- um til útflutnings handa öðr- um löndum, svo og hvort það getur sjálft annast flutninga til sín og frá sér. Nokkurn veg- inn sömu afurða hefir hér ver- ið aflað frá upphafi landsbygð- ar og til vorra daga, þó að vörumagn og vöruverkun liafi ekki ávalt verið með sama hætti. Aðalátflatningsvara í forn- öld var hér vaðmál og varar-• feldir (þ. e. þurkaðar gærur). Ullar er og getið um 1200. Fisks cr víst ekki getið í fornöld, en þegar kemur fram á 14. öld og siðan er hann ein aðalútflutn- ingsvaran (harðfiskur). Síðar hætist við prjónles ýmiskonar (sokkar, peysur, vetlingar o. s. frv.). Æðardúnn hefir að minsta kosti verið fluttur eitt- livað út siðan á 16. öld. Lýsi varð og snemma útflutnings- vara. Svo var tekið að flytja út kjöt, bæði sauðakjöt og nautakjöt, á einokunartímun- um. Inn urðu menn að flgtja nauðsynjar þær hinar söinu flestar, sem afla verður frá út- löndum enn i dag, svo sem kornvörur, trjávið, —- íslend- ingar áttu frjálst viðarhögg í konungs skógi í Noregi í forn- öld, — jáim, smíðakol, veiðar- færi, drykkjarföng (bjór, brennivín frá þvi á 16. öld), tóbak (frá því á 17. öld), ýmis- lconar klæðavöru og lérefta, o. s. frv. En miklu hefir lengstum verið minna brúkað af vörum þessum að tiltölu en nú er gert. 2. Lýðríkistímahilið. Allflestir landnámsmenn komu hingað á skipum sjálfra sín. Skipakosti sínum héldu Is- lendingar nokkurn veginn fram á 11. eða 12. öld. Sjálfir fóru þeir þá utan, aðallega til Nor- egs, og sóttu vörur sínar sjálf- ir og stunduðu nokkuð kaup- ferðir og farmensku. En jafn- framt sóttu þó útlendir menn, nær eingöngu norskir menn, hingað með vörur og seldu þær landsmönnum. Kauptún mynd- uðust hér þó engin. Menn áttu kaupstefnur við skip og það, sem eigi seldist þar, fluttu ís- lenskir menn með sér heim til sín, en norskir kaupmenn tóku sér venjulega vetrarvist með bændum og fluttu til þeirra varning sinn og seldu smám saman. Fóru síðan utan næsta vor, er þeir höfðu heimt skuld- ir sínar. Eftir þvi, sem í sög'- unum segir, lögðu goðorðs- menn lag (þ. e. verðlögðu) varning kaupmanna á kaup- stefnum, og er þess sjaldan getið, að óánægja hafi af því risið. En líklega liefir þessi að- ferð þó verið fallin í gleymsku um 1200, því að líklega hafa Norðmenn kunnað því illa, er Sæmundur í Odda og Þorvald- ur Gizurarson verðlögðu vör- ur þeirra á Eyrarbakka 1215. Þegar hingað er komið sögu, þá mun skipakostur lands- manna mjög vera þorrinn, og verslunin mun mjög vera kom- in i liendur Norðmanna, þótt enn færi menn nokkuð út af landinu til kaupskapar og suð- urgöngu. Oft var vöruskortur á vetrum á íslandi á 10.—13. öld, og oft varð hæði skepnu- fellir og mannfellir af sulti, svo að nú mundi þykja ódæmum sæta. Lögðu menn sér þá til munns liverja óátu, svo sem hrafna og melrakka. Oftast var einliver skipaför úr Noregi til íslands. En þær ferðir voru með nokkurri hættu. Skipin #voru lítil, menn voru leiðar- steinslausir, höfin voru ekki mæld eða kortlögð, liafnir voru fáar góðar og vitar hér á landi engir, höfin moruðu af víking- um, sem höfðu það að atvinnu að ræna kaupmenn. Sjóvá- trygging var engin.svo að menn urðu að híða tjón sitt óhætt, ef sjór eða menn grönduðu fé kaupmanna eða fjörvi. Urðu margir skiptapar og manntjón í kaupferðum milli Noregs og íslands á þessum öldum. Það voru og lög í Noregi, að kon- ungur gat baniiað öllum skip- um för úr landi. Þetta gerði Ólafur Trygg vason eitt árið, er hann var að kúga íslendinga til kristni. Og þetta gerði Hákon gamli nokkurum sinnum á 13. öld, er yfir stóðu tilraunir lians til að ná landinu á vald sitt. Þau vandræði, sem slík far- hönn hlutu að baka landinu, voru ógurleg. Menu hlaut að skorta eigi einungis erlendar matvörur, heldur líka efnivið í báta sína, járn í Ijái og veið- arfæri, svo að erfiðleikar hlutu líka að verða geigvænlegir um fiskveiðar og heyjaöflun vegna siglingaleysisins. En alt hjálp- aðisl þetta að til að huga lands- menn. Verslunarvandræðin hafa sjálfsagt ekki átt lítinn jiátt í því, að landsmenn gengu Hákoni gamla Noregskonungi á hönd árin 1262—1264. 3. Tímahilið 1262—1602. í Gamla sáttmála hafði Nor- egskonungur að vísu skuld- buudið sig til að láta 6 skip ganga af Noregi til landsins 2 næstu árin eftir 1262, en síðan svo mörg sem konungur og bestu hændur landsins teldi henta landinu. Hvernig sem um þetta hefir samist, þá er hitt víst, að konungsvaldið skeytti litt um siglingar til landsins. Verslunin komst nú alveg í hendur norskra kaup- manna. íslendingar liætta nær alveg kaupferðum til annara landa. Biskupsstólarnir áttu þó kaupför alt fram á 16. öld, og sóttu nauðsynjar áínar til Nor- egs. Verslunin er annars með svipuðum hætti, að því leyti sem sýslumenn lögðu venju- lega lag á varning kaupmanna þetta timabil. Menn versluðu á kaupstefnum. En nú var svo ákveðið, að skuldir skvldi lúka kaupmönnum fyrir Ólafs- messu liina fyrri (29. júlí), því að nú aflagðist vetrarvist kaup- manna hér að mestu. Fóru þeir utan samsumars, og vetrarlega kaupmanna var hér hráðlega bönunð. Fram um 1300 virðist hverj- um hafa verið frjálst að flytja liingað vörur til lands og selja þær hér. En um 1300 tekur Nor- egskonungur að banna öllum utanríkismönnum siglingar norður fyrir Björgvin og' til ís- lands, nema leyfi konungs komi til. Varð þá verslun við fsland ófrjáls, og náði þetta bann líka til íslendinga sjálfra. Um 1350 veitir konungur kaup- mönnum í Björgvin einokun á íslenskri verslun og Björgvin átti nú að verða upplagsstaður íslenskrar vöru og var það lengl í orði kveðnu, þannig að allur íslenskur útílutningsvarniiigur skyldi fyrst fluttur til Björg- vinjar og lagður þar upp, livert sem hann yrði síðar seldur. Fer víst svo fram út 14. öldina, en á 15. öld snemma virðast Eng- lendingar taka að venja lcom- ur sinar til lahdsins, hæði tií verslunar og fiskveiða. Ömuð- ust konungar Norðmanna og Dana við þessu og lék nú ú ýmsu á 15. öld. Stundum versl- uðu Englar hér og fiskuðu leyf- islaust, en stundum með kon- ungs leyfi. Var verslun við þá liagfeld, en heldur voru þeír stundum óeirnir og léku einatt hart umboðsmemi konungs- valdsins. Þegar fram líður á 15. öld, koma Þjóðverjar til sög- unnar. Voru það Hansakaup- menn, aðallega frá Hamhorg, Lybiku og Bremen. Höfðu þeir og' oft konungsleyfi, enda voru Hansaborgirnar mjög voldug- ar um þær mundir, og buðu Danakonungi einatt byrgin. Samkomulag milli enskra og þýskra kaupmanna var oft mjög ilt, svo að jafnvel lenti með þeim í blóðugum hardög- um, um 1500. Verslun Englend- inga sýnist mjög minka hér éft- ir þann tíma, en þó höfðu þeir liér útgerð og vetursetu fram um 1530, og hverfur þá verslun þeirra víst að mestu úr sög- unni. Aftur versla Hansakaup- in'enn liér út 16. öldina, og stendur verslun þeirra hér mjög föstum fótum í öndverða 17. öld, þegar einokunarversl- un Dana liefst, enda liöfðu þeir víða reist hér liús og jafnvel haft útgerð á vetrum. Svo virð- ist, sem íslendingar hafi unað dável skiftunum við Þjóðverja, að minsta kosti í samanburði við viðskiftin við einokuuar- kaupménnina dönsku. Það er að sjá, sem verslun hæði við Englendinga og Þjóðverja liafi reynst landinu heilladrýgri en norska verslunin út 14. öld og danska einokunarverslunin eft- ir 1602. 4. Einokunarverslun Dana 1602—185tf. Þessu tímabili má skifta í 2 kafla: A. Timabilið 1602—1787, og B. Tímabilið 1788—1854. A. Tímabilið 1602—1787. Konungsvaldinu þótti ekki liæfa, að þýskir kaupmenu (Hamborgarar, Bremarar og Lybikumenn) hefði hagnaðinn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.