Vísir - 29.09.1932, Page 5
VlSIR
Fimtudaginn 29. sept. 1932.
Permanentliðanin lækknð:
Fullkomnasta Permanentvél á landinu. Nýkomn-
ir augnabrúnalitir frá New York.
Hárgreiðslnstofa Sfisðnnn Jðnasdóttnr.
Lækjargötu 6A. — Sími 1327.
Féiag matvðrnkanpmanna.
Fundur í kveld kl. 9 í Kaupþingssalnum. Lyftan í gangi
frá kl. 8y2—9.
S t j ó r n i n.
Þingrallaskðgnr.
Eins og menn vita, er Þing-
vallaliraun nú girt milli Al-
mannagjár að vestan og Hrafna-
gjár að austan. Að norðan ligg-
ur girðingin þvert yfir hraun-
ið all-langt norður af Hraun-
túni. Hlið er að norðan, skamt
frá Þingvallaréttum undir Ár-
mannsfelli, þar sem vegurinn
liggur út úr hinu girta svæði.
Hlið þetta er i tvennu lagi og
haganlega gert, því að önnur
grindin er jafnan opin, en hin
lokuð. Mun sauðfé tæplega fara
þar út og inn mannlaust. Um
önnur hlið er ver búið og þyrfti
að lagfæra þau svo, að þau lok-
ist og opnist nieð sama hætti
og norðurhliðið, ef haldið verð-
ur áfram þeirri vitleysu, að
verja hraunið fyrir sauðfé.
Rikisstjórnin keypti dýrum
dómum alt sauðfé bændanna í
Skógarkoti og Hrauntúni. Fóru
kaupin fram í fyrrahaust og var
verðið miklu hærr«i, en fengist
mundi hafa fyrir féð á blóðvelli.
En að kaupgerningi loknum og
greiðslu, gaf stjórnin bændmn
þessum fé sitt aftur og bað þá
geyma í Þingvallalirauni (þ. e.
Þljóðgarðinum), svo sem verið
hefði. — En er voraði, rumsk-
aði þó stjórnin og bað þá nú
víkja kindunum út fyrir girð-
inguna. Gerðu þeir það, en eitt-
hvað mun þó hafa orðið eftir.
Svo segja þeir, sem farið hafa
um Þingvallahraun í sumar, að
þar sé eða liafi verið margt
sauðfé, slæðingur um alt hraun-
ið og sumstaðar margt saman.
Eg hefi ekki farið um hraunið,
en ekið norður velli og inn með
Fögrubrekku, svo sem leið ligg-
ur norður. Sá eg þá 24 kindur
með fram veginum á þessum
spöl og þótti mikið í girtu og
friðuðu landi. Sagði bifreiðar-
stjórinn, sem í förinni var, að
talið væri, að hraunið væri
krökt af fé, er austar drægi og
fjær veginum.
Það er nú kunnugt, að Þing-
vallanefnd hefir rándýran eftir-
litsmann þarna eystra og ætti
ekki að vera ofraun fyrir hann,
að líta eflir þvi, að sauðlaust
væri jafnan innan girðingar.
Hann hefir ekki annað að gera,
en að snúast í þessu, og mundu
fáir sakna hans, þó að hann
væri ekki altaf að þvælast fyrir
fólki umhverfis Þingvallabæ
eða Valhöll. Vitanlega hafa
sumir gaman af lionum, eink-
um háðfuglarnir, en liinir eru,
þó miklu fleiri, sem fyllast leið-
indum, er þeir sjá liann.
Sumir þykjast liafa heyrt
hundgá mikla í Þingvallahrauni
í sumar og vita ekki hverju
slíkt sætir. Þá er og sagt, að
dauðar kindur hafi sést í vatns-
gjánum, en slíkt er óvenjulegt
að sumrinu. Gæti þetta bent til
þess, að fé hefði verið hrakið
með liundum í gjárnar og drep
ið á þann hátt. Þyrfti að rann-
saka þetta nákvæmlega og hafa
hendur í hári sökudólganna, ef
satt reyndist, að fé hafi verið
tætt með hundum um hraunið,
þar sem hættur eru á alla vegu.
Kunnugur maður, sem farið
liefir víða um Þingvallaskóg í
sumar, telur liann nú með ljót-
asta móti. Víða sé kalviðir, en
maðkur til mikilla skemda á
öðrum stöðum . Eg veit ekki
sönnur á þessu, en sé því svo
varið að skógurinn sé nú í aft-
urför, þyrfti eitthvað að gera,
til þess að liindra frekari
skemdir.
15 september.
Gangleri.
Qtan af landi
Vik í Mýrdal, 22. sept. —- FB.
Heyskap er nú lokið fyrir
nokkuru og munu heybirgðir
bænda nú vera með allra mesta
móti. Grasvöxtur á túnum og
vallendi varð ágætur, en mýrar
voru lakari. Nýting varð yfir-
leitt góð. Tíð var hagstæð.
Skiftust á hæg væta og góðir
þurkar.
Uppskera úr görðum varð ær-
ið misjöfn. Sumstaðar, t. d. í
Vik, meiri en dæmi eru til áður.
Sýki i kartöflum gerir talsvert
vart við sig og hefir sumstaðar
eyðilagt uppskeruna alveg, einn-
ig á stöðum, þar sem hún hefir
aldrei gert vart við sig áður og
engar kartöflur verið aðfluttar
árum saman. Njólasýki í kart-
öflum hefir einnig orðið vart.
Bráðapest fór að gera vart
við sig snemrna í ágúst eða jafn-
vel fyrr, en hefir magnast svo
frá því um 10. þ. m., að til vand-
ræða liorfir á mörgum bæjum.
Á sumum bæjum hafa fundist
10—20 kindur, sem hafa tekið
pestina, og er þó ekki farið að
smala heiðalönd. Veit því eng-
inn, hve víðtæk liún er. T. d. var
Hafursey smöluð í gær, en þar
ganga á annað hundrað ær, en
23 lömb fundust dauð eða dráp-
ust í samanrekstrinum. Margir
bólusettu þau lömb, sem þeir.
náðu í, þegar veikin fór að
magnast, og hefir það sennilega
stöðvað hana allmikið, en þó er
hún svo mögnuð á sumum
bæjum, að bólusett lömb liafa
verið að drepast fram að þessu
og það i allstórum stíl.
Slátrun er nú að byrja í Vík,
en menn kviða lágu verði. Af-
koma manna er fram yfir allar
vonir. Afurðaverð er lágt, en
skuldasöfnun lítil. Fari verð á
afurðum enn lækkandi, stand-
ast menn það ekki, þótt þeir
hafi dregið eins úr öllum út-
gjöldum og unt er.
MnllersskölioD.
Hinn góðkunni íþróttaskóli
Jóns Þorsteinssonar frá Hof-
stöðum tekur til starfa 1. októ-
ber næstk., eins og undanfarin
ár, og slarfar á svipaðan hátt.
Leikfimisnámskeið þau, sem
skólinn liefir i vetur, eru þessi:
Námskeið fyrir pilta eldri en
15 ára. Kensla daglega kl. 8—9
árd. \
Námskeið fyrir telpur 13—15
ára gamlar. Kensla þrisvar í
viku, kl. 5—6 eða 6-^-7 síðdegis.
Námskeið fyrir stúlkur,
vanar leikfimi, 15—22 ára
gamlar. Kensla 5 sinnum í
viku kl. 5—6 eða 6—7 síðdegis.
Námskeið fyrir telpur 12—14
ára gamlar. Kensla tvisvar í
viku kl. 4—5 siðd.
Öll námskeiðin byrja 1. okt
næstkomandi. Ennfremur eru
ýmsir leikfimisflokkar, sem
Mullersskólinn hefur í vetur,
eins og undanfarna vetur. Sjá
að öðru leyti auglýsingu i Vísi
20. þ. m. Kennarar skólans eru
hinir sömu, góðkunnu kennar-
ar og áður, ungfrú Ingibjörg
Stefánsdóttir og hr. Jón Þor-
steinsson; eru þau svo vel kunn
Reykvíkingum, að frekari með-
mæli eru óþörf.
Unglingar á vaxtarárunum
geta ekkert betra gert til eðlilegs
vaxtar og þroska sjálfs sín, en
að stunda líkamsæfingar undir
hollum ytri skilyrðum og eftir
leiðbeiningum góðra kennara,
og Mullersskólinn hefir hin
bestu skilyrði að bjóða í þessu
efni. Er það mjög þarft starf og
mikilsvert fyrir likamsrækt og
þrifnað bæjarbúa, sem Mullers-
skólinn innir af hendi, enda
hefir liann notið skilnings og
vinsælda þessi ár, sem hann
hefir starfað. Foreldrar! Takið
eftir því, að Mullersskólinn er
ef til vill besti skóli, sem þér
getið sent börn yðar í.
x.
Islendingabygdip
á Grænlandi.
Skólasetning
Gagnfræðaskóla Reykvikinga fer fram í Baðstofu iðnaðar-
manna í Iðnskólanum laugardaginn 1. okt. kl. 2 e. h.
Eftir skólasetningu kennarafuiidur.
Skólastjóri.
LaugarvatnsskóUnn.
Væntanlegir nemendur Laugarvatnsskóla komandi vetrar,
sem staddir verða í Reykjavík 30. september n.k., mæti þann
dag við Safnahúsið á Hverfisgötu kl. 1 síðdegis.
Aðalstöðin annast alla flutninga að Laugarvatni.
Vönduð úr með miklum afslætti. —
Jón Sigmundsson, gullsmiður.
Laugaveg 8.
Sérstakt tækifærisverð
og ágætir greiðsluskilmálar á nýju húsi innan við bæ-
inn, sé samið strax.
JÓNAS H. JÓNSSON,
Hafnarstræti 15. Sími 327.
Sendiherrafregn í gær herm-
ir, að „Disko“, skip dönsku
Grænlandsverslunarinnar, sé
komið til Kaupmannahafnar
frá Grænlandi. Aage Roussell
húsameistari skýrir frá því, að
þegar grafið var í fornar bæja-
rústir í nánd við Godthaab,
hafi margt markvert fundist.
Bæjarústirnar eru við Godt-
haabsfjörð norðaustanverðan.
íslenskir landnámsmenn sett-
ust þar að, en bygð þeirra mun
hafa lagst í auðn um 1370, að
líkindum vegna árása af hálfu
Skrælingja. M. a. fundust í
rústunum liúsmunir, óskemdir
að kalla, og bein úr liúsdýr-
um. Gripaliús liafa verið furðu
stór og munu landnámsmenn
hafa liaft margt stórgripa. Hið
merkasta, sem fanst, voru lík
afkomenda landnámsmanna.
Fundust mörg lík lítt skemd.
Lík þessi munu nú vera yfir
550 ára gömul. Sum líkanna
eru alklædd. Klæðnaðir og
höfuðbúnaðir eru af þeirri
gerð, sem tíðkaðist um 1350.
Beinagrindur þær, sem fundist
| liafa, eru að eins 1 m. og 60
cni. á lengd. Fólk það, sem
, þarna bjó, hefir verið bjart
; yfirlitum, ljóst á liár og hrokk-
, inhært. Fjögur lik voru flutt til
i Kaupmannahafnar.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
„Ríkisrekstur“.
Þar sem eg hefi um tíma ver-
ið fjarverandi, hefi eg ekki fyr
liaft tækifæri til þess að gefa
upplýsingar viðvikjandi því,
sem stendur um Landssmiðj-
una í greininni „Rikisrekstur“,
í 215. tbl. Vísis 10. f. m.
í nefndri Vísisgrein er þvi
lialdið fram, að smiðjan geti
liaft reikninga fyrir vinnu í
þágu liins opinbera svo háa sem
henni sýnist. Dagblaðinu Vísi
og öðrum skal upplýst: Ef um
smíðar er að ræða, sem nokkru
nema, semja hinar ýmsu ríkis-
stofnanir um verð fyrirfram. í
öðru lagi: Allmikið af ríkis-
vinnu er boðið út á venjulegan
hátt, og býður smiðjan þá í
vinnu ríkisins móti einkafyrir-
tækjum. Eru bæði þessi atriði
rök gegn jxúrri aðdróttun
nefndrar Vísisgreinar, að smiðj-
an geti haft svo hátt verð á rik-
isvinnu, sem lienni sýnist, sem
og gegn þeirri tilgátu, að smiðj-
an okri á ríkisvinnu til þess að
geta undirboðið vinnu, sem hún
tekur að sér fyrir einkafyrir-
tæki og einstaklinga.
í Vísisgreininni er þvi haldið
fram, að stjórn ríkisstofnana
þeirra, sem þar um getur, muni
vera i „lausu lofti“. Hvað
Landssmiðjuna snertir vil eg
upplýsa, að þetta er að eins til-
gáta, því að forstjóri smiðjunn-
ar starfar undir 5 manna
stjórnarnefnd, skipaðri af at-
vinnumálaráðunej’ti íslands. í
nefndinni eru: Útgerðarstjóri
Pálmi Loftsson (formaður),
vegamálast. Geir G. Zoéga, past.
emer., Magnús Bl. Jónsson,
landssímastj., Guðmundur Hlíð-
dal og lögreglustj. Hermann
Jónasson.
Hvað það snertir, að smiðjan
Iiefir enn þá ekki greitt útsvar
til bæjarins, er það ekki hennar
sök.
Reykjavilc, 5. sept. 1932.
Ásgeir Sigurðsson.
Norskar loftskeytafregnir.
Osló, 26. sept. NRP-FB.
Randsfjorddeilan.
Hundseid forsætisráðherra
hefir i dag á ný snúið sér til
sáttasemjara ríkisins og falið
honum að gera nýja tilraun til
þess að miðla málum í Rands-
fjorddeilunni. Telji sáttasemjari
fyrirsjáanlega árangurslaust, að
hann geri slíka tilraun, ætlar
Hundseid persónulega að reyna
að miðla málum i deilunni.
Fyrrverandi stórþingsmaður,
Ole Ström, Ringerike, er látinn
69 ára að aldri. Hann átti sæti
á Stórþinginu fyrir Buskerud-
kjördæmi 1910—12. Ström var
þjóðkunnur maður.
Uminæli • Mörtu Steinsvik i
garð Norem bæjarfógeta, voru
eigi öll dæmd dauð og 'ómerk
í undirrétti á laugardag. Nokkr-
ar alvarlegar ásakanir voru
taldar sannaðar. í blöðunum er
talað um, að úr því svona sé
komið, muni Norem að sjálf-
sögðu láta af dómaraembætti,
en menn ætla þó, að til mála
geti komið, að hann fari fram
á, að sér verði stefnt fyrir rétt
af hinu opinbera* Mun Norem
ræða þetta mál við dómsmála-
ráðuneytið.
Á föstudagskveld réðust
nokkrir kommúnistar á verk-
fallsbrjóta í Rena. Einnig voru
þeir valdir að íkveikju þar. Rik-
islögreglan var send á vettvang
og tók höndum fjóra kommún-
ista.
„íslandskveldin" hafa farið
mjög vel fram og þátttakan
mikil. Seinasta „Islandskveldið“
er í kveld og flytur Gunnar
Gunnarsson rithöfundur þá er-
indi í Penklubben um gömul is-
lensk kvæði.
Eldur kom upp á þremur
stöðum í gær í nánd við Bergen
og olli miklu tjóni. Sútunar-
verksmiðja brann til kaldra
kola og seinna um kveldið bár-
ust fregnir um mikinn eldsvoða
á Österöen, en nánari fregnir
vantar.
Osló, 28. sept. NRP-FB.
Eldur kom upp í „Follcets
Hus“ i Tromsö i gær. Tjónið er
talið nema 40.000 kr. — Hús
þetta var reist 1837 af Holm-
boe-versluninni.
Skipið Veslemarie (Vesle-