Vísir - 04.11.1934, Page 4
VISIK
■gamla bíóM
Hótel
\
Atlantic.
Afarskemtileg þýsk tal-
mynd og gamanleikur i
10 þáttum.
Aðaihlutverkið leikur:
Anny
Ondra
og er nafn hennar eitt
nægileg trygging fyrir
fjörugum og skemtilegum
leik.
Sýnd kl. 7 og 9
í síðasta sinn.
Barnasýning kl. 4 V2 -
i blindhpíd
Hin bráðskemtilega gam-
anmynd í síðasta sinn.
Hlutavelta Vals.
Knattspymufélagið Valur efnir
til hlutaveltu í dag í K. R.-húsinu
og hefst hún kl. 4 e. h. Inngang-
ur aö hlutaveltunni kostar 50 aura
og drátturinn 50 aura. Núll verða
engin,- en vinsælt happdrætti. —
Valsmenn hafa aflað sér margra
góðra muna, matvæla o. fl., sem
hlutaveltugestir eignast ef hepnin
er með, ennfremur 500 kr. í pen-
ingum í mörgum dráttum. Hljóm-
sveit Vals leikur allan tímann, sem
hlutaveltan stendur yfir, og mun
það ekki draga úr ánægju þeirra,
sem á hlutaveltuna koma. Vals-
hlutaveltumar hafa altaf þótt í
fremstu röð og muti svo enn verða.
Litið í skemmugluggann hjá
Haraldi i dag. V.
Tilkynning
frá ráðuneyti forsætisráðherra:
Samskot vegna jarðskjálftanna
1934: Úr Álftavershreppi í Vestur-
Skaftafellssýslu kr. 113,75- (FB.).
Þvottakvennafélagið Freyja
hefir farið fram á það við stjórn
bæjarins, að gerður verði samning-
ur við félagið þess efnis, að félags-
konur einar megi starfa að ræst-
ingu hjá bænum. Bæjarráð gat
ekki fallist á beiðni félagsins og
vísaði erindinu til bæjarstjómar.
Farþegar á Brúarfossi
frá útlöndum: B.jöm Ólafsson
stórkaupm., Sig. Skagfield söngv-
ari, Frímann Ólafsson, Sunna
Stefáns, Auður Jónasdóttir.
Kjarval
hefir málverkasýningu þessa
dagana í Goodtemplarahúsinu. Op-
in í dag kl. 5—10 og næstu daga
kl. 10—10. Á sýningunni er margt
fagurra og sérkennilegra málverka.
Kvennakór Reykjavíkur
er beðinn að mæta mánud. 5.
nóv. kl. 8)4 e. m. í gömlu síma-
stöðinni, uppi á efstu hæð. Nokkr-
ar nýjar stúlkur óskast í kórinn.
Sjómannakveðja.
FB. 3. nóv.
Lagðir af stað til Englands. Vel-
líðan. Kærar kveðjur.
Skipverjar á Júní.
Næturlæknir
er í nótt Valtýr Albertsson, Tún-
götu 3. Sími 3751. — Næturvörður
í Reykjavíkur apóteki og lyfjabúð-
inni Iðunni.
E.s. Esja
kom úr Borgarnesi í gær og fór
héðan á miðnætti s. 1. áleiðis til
Ðanmerkur.
Útsvörin.
Þeir, sem greiða útsvör sín á morgun (mánudag)
þurfa ekki að greiða dráttarvexti af f jórða hluta.
Bæjargjaldkerinn.
Nærföt.
Karhnannanærföt, ull og silki og ekta kamgam, sem cr
jgj það besta fáanlega.
VÖ RUBÚÐI N,
Laugaveg 53. Sínii 3870.
Lækningastofu
hefi eg opnað á Skólavörðustíg 6 B. Viðtalstimi kl. 4)4—6. Simi
4348. Heima Lokastig 3, sími 2966.
JÓN G. NIKULÁSSON.
Basar templara.
Hinn árlegi basar templara verð-
ur í G.T.-húsinu í dag og hefst kl.
3. — Þar verður hinn mesti fjöldi
eigulegra og gagnlegra muna á
boðstólum. Þess er vænst að sem
flestir kaupi muni á basarnum og
styðji á þann hátt að vexti hús-
byggingarsj óðsins.
Málara- og teikniskóla
auglýsa þeir Finnur Jónsson og
Jóhann Briem í blaðinu í dag.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Móttekin áheit: Frá „Einhverj-
um“ kr. 5,00, frá G. F. kr. 5,00.
Afhent af frú Lilju Kristjánsd. frá
Sigríði J. kr. 10,00. Bestu þakkir.
Ásm. Gestsson.
Áheit á Viðeyjarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá S. G. Á.
Áheit
á Hallgrímskirkju í Saurbæ, afh.
Vísi: 25 kr. frá S. J. S.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi: 1 kr. frá I. N., 10
kr. frá S. Þ., 25 kr. frá E. Þ.,
10 kr. frá „víkingi", 1 kr. frá H.
U. 10 kr. frá ónefndum, 5 kr. gam-
alt áheit frá Þ. G„ 10 kr. frá G.
K.
Betanía
Laufásveg 13. Samkoma í kveld
kl. 8)4- Allir velkomnir.
Heimatrúbo& leikmanna,
Vatnsstíg 3. Samkomur í dag:
Bænasamkoma kl. 10 f. h. Barna-
samkoma kl. 2 e. h. Almenn sam-
koma kl. 8 e. h. Allir velkomnir.
Áheit
á Barnaheimilið Vorblómið
(Hapi>akrossinn), afhcnt _ Vísi: 3
kr. frá H. K. H., 5 kr. frá S.
Útvarpið í dag:
9,50 Enskukensla. 10,15 Hönsku-
kensla. 10,40 Veðurfregnir. 12,00
Messa í Fríkirkjunni. Ferming
(síra Árni Sigurðsson). 15,00 Er-
indi: Don Bosco, verkamanna-
prcstur og dýrlingur (Guðbrandur
Jónsson rithöf.). 15,30 Tónleikar.
18,45 Bamatími: Sögukafli
(Gunnar M. Magnússon kennari).
19,10 Veðurfregnir. — 19,20
Grammófónn: Karlakór. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er-
indi: Áfengislöggjöfin. I (Frið-
rik Á. Brekkan stórtemplar). 21,00
Grammófóntónleikar: Prokofieff:
Píanó-konsert, No. 3. — Danslög
til kl. 24.
Rússar smíða nýjan ísbrjót.
Fyrir nokkru var um það getið
í skeytum, að rússneskur ísbrjót-
ur hefði farið meðfram Síberíu-
ströndum, milli Murmansk, í Norð-
ur-RússIandi, til Wladiwostock i
Austur-Síberíu. Var þess jafn-
framt getið, að rússnesk blöð ræddi
nú mikið um skilyrðin til þess að
halda uppi skipaíerðum meðfram
sfröndum Norður-Síberíu. Rússum
er fylsta alvara, að gera frekari
tilraunir með þetta, og er nú ver-
ið að smíða nýjan isbrjót í skipa-
smíðastöðinni í Leningrad, sem
ætlaður er til ferða norður þar.
ísbrjótur þessi á að verða útbú-
inn dieselvélum, sem til samans
hafa 12,000 hestöfl. — Hann verð-
ur sterkbygðasta skip, sem smíðað
hefir verið í Rússlandí.
í
TAPAÐ - FUNDIÐ
I
Tapast hefir járna-Iykkju-
beygja með tveimur álmum, á
veginum frá Lágafelli til Rvík-
ur. Finnandi vinsamlega beöinn
að gera aðvart í síma 3956. —
(112
Tapast hefir í Tjarnargötu
lítill pakki með tveimur nátt-
kjólum o. fl. Finnandi beðinn
að skila pakkabum til Antons
Jónssonar, Öldugötu 59, gegn
ríflegum fundarlaunum. (111
Lyklakippa hefir tapast á
leiðinni frá bifreiðaverkstæði
Sveins Egilssonar að Garnastöð-
inni eða þaðan og að brjóstsj’k-
ursgerðinni Nói. Finnandi er
vinsamlega beðinn að skila
henni í verslun Sveins Egilsson-
ar, Laugaveg 105. (100
Lyklar töpuðust frá Elliheim-
ilinu Grund að sjúkrahúsi
Hvitabandsins. Finnandi vin-
samlega beðinn að gera aðvart
i síma 4080. (97
JPÆÐÍ
1
Gott og ódýrt fæði fæst á
Barónsstíg 19. (1219
NtJA Bló
Katrín
mikla!
Stórfengleg ensk tal-
og tónkvikmynd, bygð
fá sögulegum heimild-
um úr lífi Katrínar II., sem taíin var mesti stjórn-
andi Rússlands eftir Pétur mikla.
Aðalhlutverk leika:
Douglas Fairbanks (yngri),
og hin heimsfræga þýska „karakter“-leikkona
Elísabeth Bergner o. fl.
Þetta er ein af hinum stórfenglegu og skraut-
miklu, sannsögulegu kvikmyndum, sem gerðar
hafa verið með ærnum kostnaði, og hefir hlotið
lof ströngustu listdómara um gjörvallan heim.
Sýnd kl. 7 (lækkað verð) og kl. 9.
r
VINNA
1
Duglegur verkamaður, sem
kann að mjólka, getur fengið
atvinnu á góðu heimili í grend
við bæinn. Uppl. á Lindargötu
15. — (107
Húsmæður! Brýnum allskon-
ar verkfæri, einnig skauta. —
Brýnsla, Hverfisgötu 4. (106
Stúlka óskast í formiðdags-
vist nú þegar. Uppl. Bergstaða-
stræti 54,11. hæð. (103
Góð stúlka óskast í vist. UppJ.
Laugaveg 101. (101
„SOREN“ PERMANENT.
Pantið tíma fyrirfram. Sími
4787. Hárgreiðslustofan Lauga-
veg íl. (1261
I
P LEIGA
Búðin Hverfisgötu 56 er til
leigu. Uppl. í timburverslun
Árna Jónssonar. (99
r
TILKYNNING
!
Maður, með 500 kr., getur
orðið meðeigandi í verslun með
öðrum. Hringið í 3664. (98
I
HUSNÆÐI
f
Stórt eldhús, eða annað bús-
næði, hentugt fyrir matreiðslu-
námskeið, óskast nú þegar. Til-
boð, merkt: „Námskeið“, legg-
ist inn á afgr. Visis fyrir 7. þ. m.
(108
r
KAUPSKAPUR
1
Máluð púðamótiv og dúkar
til sölu. Smekklegt og ódýrt.
Vigdis Kristjánsdóttir, Lauga-
veg 80. (104
Barnasýning kl. 5.
Mickey setur mark.
Bráðfjörug og skemtileg tal- og tónmynd, leikin af litla
stráknum Mickey McGuire og félögum hans.
Krakatoa.
Stórfengleg eldfjallamynd.
MieJkey Monise í póstflugi.
Teiknimynd í 1 þætti.
35 krónur.
Dívanar, allar tegundir.
Fjaðradýnur, allar teg,
Dýnur í barnarúm.
Og allar tegundir af
stoppuðum húsgögnum.
Að eins fallegar og góð-
ar vörur með sann-
gjörnu verði. — Altaf
er gott að eiga viðskifti
við
Hú803önaver8lunlna
vlð Dómklrfcjnna
í Reykjavík.
Til sölu ei’fðafestuland, rækt-
að, ca. 3 ha.; einnig’ óbrotið
land, ca. 2 ha., ásamt íbúðar-
húsi. Uppl. á Eiríksgötu 13, kl.
3—4 og 7—8 e. m. Stgr. Stef-
ánsson. (110
Til sölu húseign á fögrum
stað. Uppl. á Eiríksgötu 13, kL
3—4 og 7—8 e. h. Stgr. Stef-
ánsson. (109'
Athugið! Ullarpeysur, sokkar
og fleira nýkomið. Karlmanna-
hattabúðin, Hafnarstræti 18.
Handumiar hattaviðgerðir þajr
bestu, á sama stað. (105
Sem nýr 85 kr. divan til sölu
á 50 kr. Laufásveg 9, niðri. (102
Til sölu tvennir stálskautar,
með stigvélum, sem nýir. —
Sömuleiðis lítið notaður frakki
á ungan mann og einn skíða-
sleði. Uppl. í síma 3660, Tjarn-
argötu 22. (79
prlagsprentsmtðtan.