Vísir - 07.10.1938, Page 4
4
VÍSIR
Haustkápur.
1) Stuttur loðskinnsjakki
með blússu-sniði að aftan. Við
hann er notaður þröngur kjóll,
sem sýndur er á myndinni neð-
an við jakkann.
2) Svört kápa með víðum
ermum úr „persian-skinni“, og
er lcraginn úr sama efni. Á
beltinu er spenna úr þunnum
málm-blöðum og er samskonar
spenna i hálsmáli kápunnar.
3) Kápan yst til hægri á
myndinni er úr svörtu klæði.
Ermarnar eru sérkennilegar og
viddin í kápunni að neðan er
öll að framan, eins og myndin
sýnir.
HÚSRÁÐ
OG HEILLARÁÐ
.... Tekönnur, sem gul húð
hefir lagst á, er best að hreinsa
með sterku sódavatni, sem lát-
ið er standa í könnunni í nokkr-
ar klukkustundir. Þvi nsest er
kannan núin upp úr sódavatn-
inu og skoluð vandlega.
.... Muni úr tini er gott að
fægja með þvi að láta þá liggja
hálfa klukkustund í sódavatni,
en þvi næst eru þeir þerraðir og
fægðir með finum, heitum
sandi.
.... Straujárn, sem ryðblett-
ir eru fallnir á, má fægja með
ediki og sandi.
.... Blóðblettum má ná úr
öllum efnum með því að blanda
einn lilut joðkalium með 4 hlut-
um vatns.
Góð afmœlisgiöf
Frú Sigriður var nýkomin í
hið heilaga hjónaband, og mað-
urinn hennar átti afmæli næsta
dag. Hún hafði verið að velta
því fyrir sér, hvað liún ætti að
gefa honum, en það var verst,
að auraráðin voru sarna og eng-
in. Leitaði hún þvi ráða hjá
Guðrúnu vinkonu sinni, sem
hafði verið gift í mörg ár og
hafði öðlast mikla lífsreynslu
þar af leiðandi. Hún sagði: „Þú
vilt auðvitað gleðja hann, er það
ekki aðalatriðið? Þá skalt þú
fara strax heim og segja honum
að þú skuldir skraddaranum kr.
200,00 fyrir kápu.“
„Ekki verður hann nú mikið
glaður yfir því.“
„Nei, væna mín. Hann verður
alveg í öngum sínum, en þú
segir að hann eigi afmæli á
morgun, og þá skalt þú fara til
hans og segja honum að þú
skuldir skraddaranum ekki
nema liundrað krónur, og þá
græðir hann i rauninni sömu
upphæð, og það er aðalatriðið
að gleðja hann dáhtið.‘“
Halió!
Nú er tími til að kaupa hansk-
ana fyrir haustið og veturinn.
Giófinn,
Kipkjustræti 41.
SOOOOOOOOOOOÚOOGOOtStSÖOÍíCÍÍÍÍÍíOííOÍÍOOÍÍtJOaOÍSOOOOOOOOOÚÍSOOOí SOO©ÖOOÍSOÖOOÖíSÖOOOÖOÖOOÖOtSÖO
| SNYRTISTOFAN PIROLA
11 Vesturg. 2 Sími 4787. |
Andlltssnyrtlng - Massage — — Kristín Arnet |
Hárgreiðsla - Permanent------Margrét Hrómnnfls. |
| Fótsnyrting með baði og Massage — Þðra Borg |
| ALT A EINUM STAÐ SÍMI 4787 §
sooooootsooootstsotsotstsooooootsoo stsoooooísoootsootsooootsootsoooooooooooootstsootstsootststsotsoootst
Föstudagínn 7. okfóber 1938,
HOLL FÆBA ER FYRSTA SKILYBÐI
FEGURBARINNAR.
Á liinum síðari tímum er
mikið um mataræðið talað, og
öllum vísindamönnum ber sam-
an um, að nauðsyn beri til, að
það sé sem fjölbreyttast og
bætiefnaríkast, með því að því
aðeins sé heilsan góð að einhver
rækt sé lögð við líkamann.
Ahnenningur veit, að þetta er
rétt, en þrátt fyrir það skellir
liann við því skolleyrum og
keppist við að drekka kaffi og
the, og borðar með því hveiti-
brauð og kökur, eins og það sé
hið eina heilsusamlega. Græn-
metisneysla fer ]>ó vaxandi og
altaf borðum við kartöflur með
lcjötinu, sem er gott og blessað,
en soðinu af kartöflunum hell-
um við, en þó er það talið mjög
holt og heilsusamlegt.
Það fólk, sem þjáist af magn-
leysi og vanlíðan, án þess þó að
um veruleg veikindi sé að ræða,
ætti að gæta þess að oft getur
þessi vanliðan stafað af ein-
hæfri og rangri fæðu, og ætti
það þá að leita ráða lækna til
þess að fá bót á þessu. En það
er ekki einungis að heilsufarið
byggist á mataræðinu heldur er
fegurð hvers einstaklings undir
því komin. Samfara vanlíðan
vegna rangrar fæðu hverfur
fegurðin, ef ekki er að gert í
tíma.
Mörgum er illa við að verða
gráhærðir og hrökkva í kút er
þeir uppgötva fyrstu gráu hárin,
en þá er reynandi að borða
nógu járnauðuga fæðu, t. d.
egg, lifur, grænmeti, kjama-
brauð eða rúsínur, og fáið þér
þá máske bót á þessu meini. Oft
er þetta enganveginn einhlítt,
en þá ættuð þér að leita Iækn-
isráða og fá sérstök „járnmeð-
ul“ til aðstoðar, en það getur
oft verið nauðsynlegt og til
mikilla bóta fyrir heilsu yðar
yfirleitt.
Þá eru hrukkurnar margra
mæða, en af hverju orsakast
þær? Þegar fólk eldist verður
húðin ekki eins teygjanleg, eða
réttara sagt, þensla hennar
verður minni en í hörundi unga
fólksins, en oft er orsökin sú,
að húðina vantar A-fjörefni,
eða að ekki er nægjanlegt járn
uppleyst í blóðinu. Þessi efni
eru það aðallega, sem endur-
næra kirtla þá, sem veita húð-
inni hið nauðsynlega fituefni,
sem hún þarfnast, til þess að
haldast mjúk og teygjanleg.
Einnig er ágætt og oft nauðsyn-
legt að neyta smjörs, rjóma,
rauðaldina (tomata) og fiskjar,
en þó ekki í frekara mæli en
svo, að þið komist með öllu hjá
offitu.
Offitan er margra kvenna
mæða, og er þá gripið til ýmsra
örþrifaráða til þess að ná henni
af sér, en það getur verið skað-
legt og oft stórhættulegt, enda
þolir liúðin það oftast ekki. Ef
þið viljið grennast er réttast að
nota nudd og böð og megrandi
smyrsl, en neyta ekki annara
meðala, sem geta haft hinar al-
varlegustu eða ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir heilsu yðar og
vellíðan nema þeirra sé neylt
samkvæmt læknisráði.
Haustnýjungaraar eru
byrjaðar að koma.
Komið tímanlega.
Flóra.
Blómin
piýða
heimilið.
FLÓ R A
Austurstræti 7. — Sími 2039.
£jnyntistofa
Nokkur fín
model komu
fpam í dag.
Hattabúð
Soffíu Pálma,
Laugavegi 12.
Nú
Hreinsar hárið fljótt og
vel og gefur því fallegan
blæ. Amanti Shampoo er
algerlega óskaðlegt hárinu
og hársverðinum. Selt í
pökkum, fyrir ljóst og
dökt hár. —
Fæst víða.
er aftur komið nýtt úrval af höttum. —
Einnig nokkur model.
Sigriðor Helgadóttir
(Hattaverslun Margrétar Leví).
Læk.jargötu 2. — Sími: 1815.
Fermingar-
gjafip
Höfum fallegt urval af
Dömutöskum,
Ferðaveskjum o. fl.
Slgriðnr Helgaflóttir
(Hattaverslun M.Levi)
Lækjargötu 2.
Sími: 1815.
Haustfrakkar og
Vetrarkápur kvenna.
Mjög fallegt úrval. Nýjasta tíska. Lágt verð. (
Verslun Kristínar Sigurðardóttur. |
Laugaveg 20 A. Sími 3571.