Vísir - 25.11.1938, Side 2
2
V I S I R
Föstudaginn 25. nóvember 1938
ylsiR
ÐAGBLAS
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Eining og
óeining.
AÐ er kominn upp sá kvitt-
ur í bænum, að í ráði muni
vera að mynda „þjóðstjórn“
hér á landi, jiegar þing kemur
sarnan. En svo er það kallað, er
allir stjórnmálaflokkar, eða að
minsta kosti allir stærstu þing-
flokkarnir hafa með sér sam-
vinnu um skipun ríkisstjórnar,
og rikisstjórnin er skipuð mönn-
um úr öllum flokkum.
Vísi er ekki kunnugt um það,
hvort þessi orðrómur á við
nokkur rök að styðjast, önnur
en augnabliks hugaróra ein-
stakra manna og bollaleggingar
um það, hvernig helst mætli
takast að bjarga við hag lands
og þjóðar, sem flestum virðist,
að nú sé í mikiö óefni komið.
Þess eru liinsvegar alkunn dæmi
með öðrum þjóðum, að gripið
hefir verið til slíkra úrræða,
undir svipuðum kringumstæð-
um, og þótt gefa góða raun og
jafnvel ágæta. En mörg dæmi
eru þess einnig, að um shkt
hafi aðeins verið rætt manna á
meðal og í j^laðaskrifum, en
ekkert orðið úr framkvæmdum
þegar „til átti að taka“.
Að óreyndu verður það nú
ekki talð líklegt, að það gæti
tekist, að mynda þjóðstjórn hér
á landi, að svo komnu, þó að
upp á slíku kynni að verða brot-
ið í fullri alvöru. Til þess virð-
ist flokkunum, sem þá ættu að
taka saman liöndum, bera of
mikið á milli. Einn er sá flokk-
ur, þó að hann komi raunar
varla til greina í þessu sam-
bandi, sem virðist þó vera „til-
búinn í alt“ af þessu tagi. Það
er hinn nýi flokkur þeirra Héð-
ins Valdimarssonar og kom-
múnista. En hann hefir líka tek-
ið sér nafnið „Sameiningar-
flokkur alþýðu“. Jöfnum hönd-
um kallar hann sig að vísu
„Socialistaflokkinn“, en það
kann að vera mest til mála-
mynda, eða af gömlum vana.
„Sameiningin“ virðist vera hon-
um fyrir öllu. „Sameiningar-
flokkur alþýðu“ heitir hann, af
þvi að upphaflega var til þess
ætlast, að Alþýðuflokkurinn og
Konunúnistaflokkurinn „sam-
einuðust“ í lionum, en síðan
átti sá „sameináði flokkur“ að
,.sameinast“ Framsóknar-
flokknum í svokallaðri „al-
þýðu“-fylkingu, ogþannig„sam-
einaðir“ áttu þessir þrír flokk-
ar síðan að taka að sér stjórn
landsins. En nú virðist svo, sem
flokkurinn ætli sér enn að færa
út sameiningar-kvíarnar, og það
ekki alllítið, því að í blaði hans
er farið að ræða um sameiningu
við Sjálfstæðisflokkinn!
Að sjálfsögðu hefir blaðinu
borist til eyrna orðrómur sá
um „þjóðstjórn“, sem getið er
um hér að framan. Og það er
alveg bersýnilegt, að blaðið trú-
ir því statt og stöðugt, að þessi
orðrómur muni eiga við meira
en lítil rök að styðjast. Þess
vegna þykir þvi það miklu
skifta, að „réttir lilutaðeigend-
ur“ fái þegar í stað fulla vit-
neskju um það, að flokkur þess,
„Sameiningarflokkurinn“ sé að
sjálfsögðu reiðubúinn að taka
þátt í slíkri stjórn, og muni ekk-
ert setja það fyrir sig, þó að
Sjálfstæðisflokkurinn „verði
með“. Og nú birtast daglega
greinar í blaðinu, J>ar sem þvi
er lýst yfir, með hjartnæmum
orðum, að samvinna við Sjálf-
stæðisflokkinn sé einmitt það,
sem „Sameiiningarflokkurinín“
liafi alltaf viljað og kept að,
enda sé það vitanlegt, að sú ein-
ing þjóðarinnar, sem hfsnauð-
syn sé að skapa, verði ekki sköp- >
uð, án þeirra tugþúsunda, sem
fylgi Sjálftæðisflokknum!! —
Blaðið lætur þess nú að visu
getið, að í Sjálfstæðisflokknum
muni vera 30—40 menn, sem
séu alveg óhæfir til að taka þátt *
í þessari samvinnu, og engu
betri en „Skjaldborgin“ í Al-
þýðufl. eða „Jónas og aft-
urhaldið i Framsókn“. Hins-
vegar er það kunnugt, að Sam-
einingarflokkurinn liefir heitið
Framsóknarflokknum og Al-
þýðuflokknum (að Jónasi og <
„Skjaldborginni“ meðtöldum)
skilýrðislausum stuðningi sin,-
um, ef Jieir vilji þiggja hann,
og má því ætla, að samvinnan
við Sjálfstæðisflokkinn verði
ekki heldur látin standa á þess-
um „30—40“ mönnum, ef úm
það væri að ræða, að mynda
„þjóðstjóm“ og flokkurinn ætti
þess kost, að taka jiátt í henni.
En hvað sem því líður, hvaða
líkur kunni að vera til þess, að
„þjóðstjóm“ komist hér á lagg-
irnar, þá þurfa kommúnistar á-
reiðanlega ekki að gera sér
nokkurar vonir um að fá að
koma þar nálægt.
Frá Gskifirði.
Fréttaritari Visis á Eskifirði
símar blaðinu í dag, að sæmi-
legur afli hafi yerið þar að und-
anförnu, og hafa bátar aflað alt
upp í 9 skpd. í róðri, en meðal-
afli mun vera 3—6 skippund, og
fiskur er ágætur.
Togarinn Surprise frá Hafn-
arfirði liefir undanfarið keypt
aflann af bátunum og selt hann
á erlendum markaði og er nú
væntanlegur í dag eða næstu
daga til slíkra fiskkaupa.
Síra Marinó Kristinsson hélt
söngskemtun á Eskifirði í gær-
ikveldi og fékk ágætar undirtekt-
ir. Hann hefir dvalið þar um
nokkurt skeið, og æft karlakór
Eskfirðinga, á vegum Sambands
íslenskra karlakóra. Frá Eski-
firði fór síra Marinó til Fá-
skrúðsfjarðar í sömu erindum,
og mun liann halda þai- söng-
skemtun hinn 1. des. n. k.
Skákjtingið í
Hollandi
12. umferð á slcákþinginu i
Hollandi fór þannig: Botvinnik
vann dr. Euwe, Flohr og Fine
gerðu jafntefli, biðskákir urðu
milli Keres og Aljechin og milli
Resohevski og Capablanca. —
Þessi umferð var tefld í gær, 13.
í dag og sú síðasta á sunnudag.
Eflir þessar 12 umferðir eru
þeir enn efstir Keres og Fine,
en Aljechin hefir dregið allmjög
á þá, þótt ekki verði enn séð
fyrir úrslitin, einkum vegna
biðskáka.
InnisetaverkfallsmeDD 1 Paris hraktir úr verk-
smiðjQíiem með táragasi. - - 450 hanðteknir.
Verkfallsmenn opöhíf ÍOO
þúsund í Frakklandi. Horf-
urnai* verða æ alvarlegri.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Verkfallsmenn í Frakklandi eru nú 100.000 tals-
ins og fer enn fjölgandi. Horfurnar eru víða
býsna alvarlegar, þar sem skorist hefir í odda
milli verkfallsmanna og lögreglu. Hafa verkamenn
víða gert innisetuverkföll og neita að hverfa á brott úr
verksmiðjunum og hefir lögreglan þá sumstaðar knú-
ið þá til þess með valdi. í Valenciennes og grend, þar
sem verkfallsmenn eru um 40.000 talsins hafa orðið
skærur milli verkamanna og lögreglu. Nokkur þúsund
námumanna bættust í hóp verkfallsmanna þar í gær,
settust að í námunum og tóku námujárnbrautina.
Margir menn hafa sæst í óeirðum. í gærkveldi voru 450
verkfallsmenn handteknir í Reynault-verksmiðjunum.
Verkfallsmenn höfðu sest að í verksmiðjum og neit-
að að fara þaðan. Hrakti lögreglan verkfallsmenn að
lokum á brott með því að nota táragassprengjur. Um
20 lögreglumenn meiddust í viðureigninni við verk-
fallsmennina.
DALADIER VONGÓÐUR.
Forsætisráðuneyti Frakk-
lands berast daglega skeyti úr
hinum ýmsu héruðum landsins,
þar sem menn lýsa yfir stuðn-
ingi sínum við viðreisnanáform
stjórnarinnar og óska Daladier
til hamingju.
í Lille er vinna hafin aftur
með styttum vinnutíma, án jiess
til mótmæla liafi komið eða
verkfalla.
Járnbraut sú sém verkfalls-
menn náðu á sitt vald, er nú
starfrækt af stjórninni. Stjórnin
gerir sér góðar vonir um, að
geta bælt niður mótþróa verk-
fallsmanna.
SARRAUT 1 AÞENU.
Samkvæmt fregn frá Berlín
fer von Ribbentrop til Parisar
28. nóvember. Albert Sarraut,
innanrikisráðherra, sem var við
útför Kamals Ataturks sem full-
trúi Frakklands, fór frá Istam-
bul til Aþenuborgar, í boði
grisku stjórnarinnar, og átti við
hana mikilvægar umræður.
United Press.
London, 25. nóv. F|Ú.
í fregn frá Johannesburgh
segir frá þvi, að fasistafundur,
sem haldinn var þar í borginni i
gærkveldi, hafi leitt til þess, að
múgurinn safnaðist saman til
þess að láta í ljós andúð sína
á fasismanum. Lenti þarna i
skærum og varð lögreglan að
nota táragas til þess að dreifa
múgnum. 30 manns særðust.
LIÐSSAMDRÁTTUR VIÐ
LANDAMÆRI RUTHENIU.
Samkvæmt fregn frá Prag
di-aga nú bæði Pólverjar og
Ungverjar lið saman við
landamæri Rutlieníu og fara
árásir pólskra hermanna á
Rutheníu í vöxt.
Ankakosningin í We&t Ltwisfiam.
íhaldsflokknrinn hélt kiflrdæminn.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Aukakosningar þær, sem nú fara fram í Bretlandi vekja
mikla athygli, þvi að aðaldeilumálið í þeim öllum er utan-
ríkismálastefna stjórnarinnar. Vekja niðurstöður aukakosning-
anna aukna atliygli vegna þess, að ýmsar likur bendi til, að
þingkosningar fari fram á næsta ári.
Að undanförnu liafa verið liáðar aukakosningar á nokkrum
stöðum og í þremur seinustu kjördæmunum voru úrslitin
stjórninni óhagstæð.
í gær fór fram aukakosning í West Lewisham, og hélt Ihalds-
flokkurinn kjördæminu. Frambjóðandi flokksins, Henry
Brooke, lilaut 22.587 atkvæði, en frambjóðandi jafnaðarmanna,
Skeffington, 16.939.
í allsherjarþingkosningunum seinustu hafði íhaldsframbjóð-
andinn 12.370 atkvæði fram yfir frambjóðanda jafnaðarmanna,
en nú 5648. Jafnaðarmenn liafa bætt þarna við sig 2136 at-
kvæðum, miðað við þingkosningarnar.
Lundúnablöðunum í morgun verður tíðrætt um þessi kosn-
ingaúrslit. Andstæðingablöð stjórnarinnar halda því fram, að
kosningaúrslitin sýni, að stefna Chamberlains bafi minna fylgi
en menn hafi ætlað. Fylgistap íhaldsflokksins í West Lewis-
ham stafi af því, að kjósendurnir sé að missa traust á utan-
ríkismálastefnu Chamberlains.
United Press.
KRISTJÁN X. og IIÁKON NOREGSKONUNGUR,
bróðir hans, við komu hins síðarnefnda til Kaupmannahafnar í
haust, í tilefni af 80 ára afmæli Valdimars prins.
Bretar ætla að haía stóran,
vel ætðan fastaher til taks,
Frðhknm til aðstoðar
ef á þá vérður ráðist.
Samelning breska og franska flnghersins.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Tilkynt hefir verið, að Sir Kingsley Wood, breski flugmála-
ráðherrann, muni fara til París þ. 2. desember, til viðræðna við
Guy la Chambre, flugmálaráðherra Frakklands. Munu þeir
ræða um aukna lofthernaðarlega samvinnu Breta og Frakka
og raunverulega sameiningu loftherja beggja þjóðanna á
styrjaldartímum.
Ýmsir stjórnmálamenn ætla, að Bretar hafi fallist á, að koma
sér upp mannmörgum, velæfðum fastaher, til þess að nota
á meginlandinu Frökkum til aðstoðar, ef á þá verður ráðist.
Orðrómur um þetta var á kreiki' í London í gær og ábyrgir
stjórnmálamenn telja, að hann hafi við rök að styðjast.
Aðalviðræður bresku og frönsku ráðherranna í gær voru um
landvarnamálin, hvernig ráða beri fram úr veilunum á land-
vörnum Breta og Frakka. Ennfremur ræddu þeir Spánarmálin
og er talið að ráðherrarnir hafi verið á einu máli um það, að
nú væri óhentugur tími til þess að taka ákvörðun um hemað-
arréttindi handa Franco. Franco hafði búist við, að samkomu-
lag mundi nást um þetta nú.
United Press.
Daládier liefir lýst yfir þvi
við blaðamenn, að hann leggi
áherslu á, að franska þjóðin
hafi vottað hresku ráðherrun-
um þakklæti sitt og virðingu
með mikilli lirifni. Ennfremur,
að vinsamlegt samkomulag
hafi náðst milli ráðherranna um
öll þau alþjóðamál, sem um
hafi verið rætt, og liafi umræð-
urnar yfirleitt orðið til mikils
stuðnings fransk-breskri sam-
vinnu.
Chamberlain og Dala-
dier kalladir svikarar
Berlín, 25. nóv. FÚ.
1 blöðum spönsku stjórnar-
innar kemur fram mikil gremja
í garð frönsku og ensku ráð-
herranna, er þau ræða um fundi
þeirra í París þessa dagana. —
Virðist spænska stjórnin óttast,
að Franco verði á þessum fundi
veitt hemaðarréttindi. Cliam-
berlain, Daladier og Bonnet eru
nefndir svikarar o. s. frv.
CHAMBERLAIN RÆÐIR VIÐ
HERTOGANN AF WINDSOR.
Opinber tilkynning var gefin
út í gærkveldi um viðræðui'nar
er þeim var lokið og þvi lýst
yfir, að fullkomð samkomulag
hefði orðið um 511 atriði. Lagði
Chanrberlain til að franskir og
Iireskir ráðherrar héldu jafnan
með sér fundi öðru hvoru. —
Chamberlain og Halifax Iávarð-
ur áttu hálfrar stundar viðræðu
við hertogann af Windsor í hó-
leli einu i París. Var hertoga-
frúin einnig viðstödd. Föru-
nautar Chamberlains segja, að
þar sem forsætisráðherrann
liafi elcki séð liertogann síðan
bann sagði af sér konungdómi
bafi það verið eðlilegt, að hann
notaði þetta tældfæri til þess að
lieilsa upp á hann. — (Úr FÚ-
skeyti).
I veðrinu mikla
um síðustu helgi slitnaði vélbát-
urinn Skallagrímur af legu á Húsa-
víkurhöfn. Rak hann á land og
brotnaði. (FÚ.).