Vísir - 03.03.1939, Síða 2
2
VISÍ R
Föstudaginn 3. mars 1939,
VfSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S i m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Ver8 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Frjáls
verslun
I fjögur ár hefir ríkisstjóniin
^ sífelt verið að herða á
fjötrum þeim, sem Framsókn-
arflokkurinn lagði á viðskifti
landsmanna við aðrar þjóðir á
fyrstu stjórnarárum sínum. Op-
inberlega var það látið heita
svo, þegar innflutningshöftin
voru upptekin að það væri gert
í þeim tilgangi, að halda við-
skiftunum við útlönd í jafn-
vægi, koma í veg fyrir skulda-
söfnun erlendis og gjaldeyris-
skort. Sterkur grunur lék hins-
vegar á því, að höfuðtilgangur-
inn væri annar, eða sá, að draga
innflutningsverslunina úr liönd-
um kaupmanna og leggja hana
undir kaupfélögin.
Reynslan af höftunum hefir
orðið sú, að þvi meira sem á
þeim hefir vei:ið liert, því meir
hafa skuldirnar vaxið erlendis
og gjaldeyrisvandræðin aukist.
Fjármálaráðlierrann þyldst
mjög af því, hversu hagstæður
verslunarjöfnuðurinn sé orðinn.
En hann getur engar skýringar
gefið á þvi augljósa en furðu-
lega fyrirbrigði, að þrátt fyrir
að fara gjaldeyrisörðugleik-
arnir sífelt vaxandi.
Nú eru menn alveg að missa
trúna á höftin. Almenningi er
orðið það ljóst, að af þeim
stafar sifelt vaxandi dýrtið i
landinu, sem ekki að eins kem-
ur við pyngju einstaklingsins
heldur lamar jöfnum höndum
alt athafnalif i landinu. Jafnvel
hinir tryggustu fylgismenn
stjórnarinnar þrá það mest af
öllu, að losna við liöftin. Ríkis-
stjórnin ein heldur trygð við
þau. Fjármálanáðherrann boð-
aði það í fjármálaræðu sinni á
dögunum, að enn yrði hert A
höftunum. Hinsvegar duldist
það þó ekki, að lionum mundi
standa nokkur stuggur af því,
hve andvigur allur almenningur
er orðinn haftastefnunni. Og
aldrei hefir nokkur Framsókn-
armaður í valdastöðu fyrr Iátið
sér slík orð um mann fara um
höftin, sem fjármálaráðherr-
ann gerði i þeirri ræðu, er hann
sagði, að að því bæri að stefna,
að innflulningsliöftin yrðu af-
numin eins fljótt og verða
mætti. — En þrátt fyrir þau
ummæli ráðherrans, gætir þess
nokkuð, að menn séu vantrúað-
ir á það, að það eigi fyrir valda-
mönnum Framsóknarflokksins
að liggja, að taka upp baráttu-
merki frjálsrar verslunar í
landinu.
í Tímanum, s. 1. þriðjudag, er
nokkruð orðum vikið að
„frjálsri verslun“. En ummæli
blaðsins eru þó ekki á þann
veg, að þau geti beinlínis styrkt
menn í þeirri trú, að Framsókn-
arflokkurinn hafi tekið nokk-
urum verulegum sinnaskiftum í
verslunarmálunum. Ummæli
hlaðsins eru á ])essa leið:
„Það er engin tilviljun, að
heildsalarnir í Reykjavík hafa
núna í þingbyrjun hyrjað að
gefa út blað um „frjálsa versl-
un“, Það er heldur engin til-
viljun, að hóað er saman fundi
kaupsýslumanna í Reykjavik til
þess að lilýða á lestur Bjarnar
Ólafssonar stórkaupmanns og
ráðast á innflutningshöftin. Það
er gert til að láta þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa hitann
í lialdinu, af því að vitað er, að
margir þeirra vilja nú sýna
sanngirni í þessum málum og
líla meir á nauðsyn alþjóðar og
atvinnuveganna en fámennrar
gróðástéttar.”
En ef það er nú slcoðun Fram-
sóknarflokksins, enn sem fyr,
að innflutningsliöftin séu
„nauðsyn alþjóðar og atvinnu-
veganna“, og „frjáls verslun“
að eins nauðsyn „fámennrar
gróðastéttar“, livers vegna var
þá fjármálaráðherrann að boða
„alþjóð“ þá villukenningu i út-
varpið, að stefna bæri að þvi að
afnema höftin og koma aftur á
frjálsri verslun? — Þess liefðu
menn þó síst vænst af f jármála-
ráðherranum, að liann mundi
fremja slíkan óvinfagnað,
að gerast í þessu efni talsmaður
hinnar „fámennu gróðastéttar“,
sem Tíminn talar um, en liirða
ekkert um „nauðsyn alþjóðar
og atvinnuveganna“.
Það er þó ef til vill„lieIdUr
engin tilviljun“, að fjármála-
ráðherrann einmitt nú í þing-
hyrjun fann sig knúinn lil þess
að lýsa yfir sinnaskiftum sínum
í verslunarmálunum, af því að
hann þykist nú mjög þurfa þess
við, að þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins liti innflutningshöftin
,,réttari“ augum en áður, þegar
svo er líka komið, að önnur
eins krosstré haftanna eins og
kommúnistarnir, eru að hregð-
ast þeim, sbr. skrif Héðins
Valdimarssonar í Þjóðviljanum
í gær.
Konulik finst
nordur af 0r-
firisey-
Kl. 7,15 í morgun kom Ágúst
Guðjónsson, frá Nýlendu við
Nýlendugötu, upp á Lögreglu-
stöðina og tilkynti að hann
hefði séð konulík á floti austan
við nyi*sta tanga Örfiriseyjar.
Brá lögreglan við og sótti
líkið á hafnarbátnum.
Þegar Vísir átti tal við Svein
Sæmundsson, yfirlögregluþjón,
í morgun kvað hann enn óvíst
af hvaða lconu likið væri, enda
hefði það auðsjáanlega ekki
legið lengi i sjó, siðan í gær-
kveldi eða nótt. — Konan virt-
ist vera um 35 ára gömul.
Aðalfimdup
Vílcings..
Aðalfundur Vikings fór fram
í gærkvekli í Oddfellowhúsinu.
Ekki tókst að Ijúka störfum
fundarins og verður framhalds-
aðalfundur eftir hálfan mánuð.
Tekur hann lög félagsins til
endurskoðunar.
í stjórn Víkings voru þessir
kosnir: Formaðui: Guðjón Ein-
arsson, en méðstjórnendur: Ól-
afur Jónsson, Gunnar Hannesr
son, Brandur Brjmjólfsson, Sig-
hvatur Jónsson, Haukur Ósk-
arsson og Friðrik Sigurbjörns-
son.
Fulltpúap Gyðinga ræða á
ný við bpesku stjórnina
síddegis í dag.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morogun.
Eins og United Press hefir áður símað hafa full-
trúar Gyðinga á Palestinuráðstefnunni í Lon-
don lýst yfir megnri óánægju sinni með til-
lögur Breta fram komnum á ráðstefnunni, og þótti
Gyðingum Bretar hafa slakað um of til við Araba.
Urðu allalvarlegar óeirðir í Palestinu, er það fréttist
þangað, að Bretar ætluðu að slaka til við Araba.
En það eru litlar líkur til, að óánægja Gyðinga hafi
þau áhrif, að breska stjórnin hviki frá miðlunartillög-
um sínum, fyrst og fremst vegna þess, að hún álítur
tillögur sínar einu færu leiðina, eins og sakir standa,
til þess að leysa deiluna, en auk þess mundi það styrkja
mjög aðstöðu hennar yfirleitt, ef hún gæti komið svo
ár sinni fyrir borð, að Arabar yrði ánægðir.
Chamberlain talaði sjálfur við fulltrúa Gyðinga í
gær til þess að gera þeim nánari grein fyrir stefnu
stjórnarinnar. Að því er United Press fregnaði var
hann mjög ákveðinn og sagði fulltrúunum, að þeir
ætti ekki nema um tvent að velja, annaðhvort að fall-
ast á málamiðlunartillögur stjórnarinnar eða þá á þá
skipun^ málefna Palestinu, sem ákveðin yrði vegna
neitunar Gyðinga.
FuIItrúar Gyðinga lofuðu, að ráðgast frekar um
málið og koma þeir saman á fund með fulltrúum
bresku stjórnarinnar á ný síðdegis í dag.
United Press.
HITLER RÍKISLEIÐTOGI
er alvarlegur á svipinn á flestuin myndum, sem af lionum hafa
verið birtar, en litli hnokkinn, sem með lionum sést á myndinni
hér að ofan, hefir getað laðað fram bros á andliti hans. Mynd-
in er tekin á íþróttavelli við Berlín.
Facelli var kisin pífL
. i : Úrslit páfakjörsins vekja ánægju
í Bretlandi og Frakkiandi, en
öánægju i Þýskalandi.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Pacelli, sem verið hefir utanríkismálaráðherra páfa-
ríkisins frá 1930, var kjörinn páfi í gær, í þriðju um-
ferð kosningarinnar, Pacelli tekur sér nafnið Pius og
er hinn tólfti páfi, sem ber Piusarnafnið.
Símfregnir frá Berlín herma,
að það hafi vakið mikla undrun
í Þýskalandi, að Pacelli var
kjörinn páfi, og valda úrslitin
leiðtogum nazista allmiklum á-
hyggjum, þar sem Pacelli hefir
margsinnis gagnrýnt nazista-
stjórnina.
í Frakklandi, einkum meðal
frjálslyndra manna hafa úrslit-
in vakið afar mikla ánægju.
Breskir stjórnmálamenn hafa
látið mikla ánægju i ljós yfir
því að Pacelli var kjörinn páfi.
United Press.
Píus XII., Eugenius Pacelli,
er fæddur i Rómaborg 2. febr.
1876, og er hann kominn af
efnaðri borgaraætt, en bróðir
hans, nýlátinn, var na'fnkendur
málaflutningsmaður þar i
borg, og var liann tekinn í að-
alsmannatölu skömmu fyrir
andlátið og gerður að mark-
greifa. Píus stundaði nám við
hina kaþólsku háskóla í Róma-
borg og síðast við skóla þann,
sem býr presta undir stöður í
æðstu stjórn kirkjunnar, og
kallaður er hcldri manna skól-
inn. Prestur vigðist hann í
mars 1899, og fékk þegar stöðu
í skrifstofum páfa og sihæklcaði
hann þar í tigninni uns hann
1917 varð erkibiskup af Sardes,
PACELLI.
PÍUS XII.
og vígði Benedikt pái XV. hann
í Sixtusarkapellunni þar sem
liann nú var kjörinn til páfa.
Sama ár var liann skipaður
sendilierra páfa í Bayern og
1920 á öllu Þýskalandi, og var
hann á báðum stöðum sjálf-
kjörinn forseti sendiherranna
(doyen), en það eru allsstaðar
forréttindi sendiherra páfa. —
1929 varð hann kardínáli og ár-
ið eftir æðsti ráðherra páfa;
um leið varð hann erkiprestur
Péturskirkjunnar. 1935 varð
hann camerlengo. 1935 var
Iiann legáti páfa í Lourdes við
hátíðahöldin þar, 1936 var hann
legáti páfa í Lesieux, liann hefir
verið legáti í Buenos Aires og
Bandaríkjunum og í sumar eð
GANDHI FASTAR
TIL ÞESS AÐ LOFORÐ UM
UMBÆTUR VERÐI
HALDIN.
London í morgun.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
Fregnir frá Bombay í
morgun herma, að Mahatma
Gandhi hafi ákveðið að neyta
ekki neinnar fæðu, fyrr en
Thakor Saheb, furstinn, sem
ræður ríkjum í Rajkot-ríki
efni loforð sín um umbætur í
ríki sínu. — Gandhi hóf
föstuna í morgun.
United Press.
leið á allsherjarþingi lcaþólskra
manna í Budapest. Hinn heilagi
faðir er lagamaður ágætur og
doktor bæði í kirkjulögum og
borgaralegum lögum, enda átti
hann mikinn þátt i samningi
páfastólsins við Ítalíu 1929.
Páfi er og ágælur fornfræðing-
ur, og var fram lil þess að hann
var kosinn til páfa forseti forn-
fræðafélags páfaslólsins. Píus
XII. er klerkur með ágætum og
predikari góður og er til prent-
að safn af predikunum lians á
þýsku. Páfi er stórgáfaður mað-
ur, og talinn einn slyngasti
stjórnmálamaður, sem nú er
uppi.
Páfi hefir lilotið mörg heið-
ursmerki, og er liann meðal
annars stórkrossriddari af
Félkaorðunni íslensku.
Madiir verðnr
milli iveggja
bifreiða.
í morgun varð slys á Tryggva-
götu skamt austur af Stein-
bi'y’ggjunni, með þeim hætti, að
maður einn varð milli tveggja
bifreiða.
Stóð einn af sorpflutningabíl-
um bæjarins þar á götunni, út
við gangstétt, en annar vörubíll
liafði stöðvast rétt aftan við
hann og til hliðar. Stóð maður-
inn, sem meiddist, við hlið
þessarar bifreiðar og var að tala
við ökumanninn.
Nú er svo háttað með sorp-
bílana, að ekki er hægt að horfa
út um afturrúðu þeirra, svo að
þegar bíllinn var látinn fara dá-
lítið aftur á bak, varð maður-
inn milli vörupallanna.
Sem betur fór munu meiðsl-
in eldci mikil, þvi að hann gat
gengið óstuddur inn í Landspí-
lalann í morgun, en þangað var
liann fluttur. Maður þess heitir
Ingimar Þorláksson, verkamað-
ur, Bjarnarstíg 3.
Stofoþiisg
farfuglanria.
Stofnun bandalags íslenskra
Farfugla lauk i gærkvöldi.
Voru lög og ferðareglur Banda-
lagsins samþyktar þar, en síðan
kosin stjórn. Forseti var Pálmi
Hannesson rektor kjörinn með
dynjandi lófaklappi en Þór
Guðjónsson stúdent varafor-
seti. Meðstjórnendur voru
kjörnir: Kristbjörg Ólafsdóttir
Mentaskólanemandi, Hilmar
Kristjónsson stúdent, Gisli
Gestsson bankamaður, Páll
Jónsson verslunarmaður og
Þorsteinn Bjarnason úr Körfu-
gerðinni. Auk þess var þarna
kjörin varastjórn og endurskoð-
endur reikninga.
Rikti einhuga vilji þingfull-
trúa um það, að gera lög og
reglur B. í. F. eins rúmar og
frjálslegar og unt væri, þvi þeir
virtust hafa þá sjálfsögðu skoð-
un, að Farfuglana hvorki ætti
né þyrfti að þvinga til að haga
sér prúðmannlega, heldur ættu
þeir að sjá sóma sinn í því sjálf-
ir og án allra lagafyrirmæla.
Að loknum dagskrárstörfum
skipaði hin nýkjörna stjórn í
fastanefndir: Ferðanefnd, nám-
skeiðanefnd og útgáfunefnd
ferðabældings, sem eiga að
vinna í samráði við stjórnina
að ýnisuin óhuga- og starfsmál-
um B. í. F.
*